Dagur - 23.03.1995, Side 8

Dagur - 23.03.1995, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 23. mars 1995 Verkamenn á ökrunum stinga plönturnar upp en hver haus er 30-60 kíló á þyngd. Handatl við uppskeruna Dagur brá sér til Tequila á dögun- um og kynnti sér framleiðslu á þessu þekkta víni, í boði mexí- kanska ferðamálaráðsins. Blaóa- manni Dags var ekki boóið ekta mezkal eða maðkaseyði en það var mjög forvitnilegt að fylgjast með tequilaframleiðslunni frá upphafi til enda. Umhverfis Tequila eru akrar þar sem eingöngu agave er ræktað á víðáttumiklum landssvæóum. Plantan er 6-7 ára þegar hún er skorin upp og nýtt til framleiðsl- unnar. Það eru verkamenn sem vinna á ökrunum og allt er gert með handaflinu. I miðju plöntunn- ar er „ananas“ eða haus sem er nýttur til tequilavinnslunnar. Plant- an er skorin upp af rótinni meó skaftlöngum hnífum, blöðin af og eru þau nýtt til áburóar á akurinn en afleggjarar af plöntunni gróður- settir. Hver haus vegur 30-70 kg og er handaflið enn notað við að koma þeim á bíla. Verkamennimir vinna í ákvæðisvinnu og fá um 250 kr. fyrir tonnið af uppskerunni eða um 1000 krónur íslenskar í daglaun, sem þykir gott kaup á þessum slóðum. Unnið er að upp- skerunni allt árið og það fer eftir magninu sem framleiða skal á hverjum tíma hve mikið er sótt á akrana. Hver dropi nýttur Hausunum er ekið til verksmiðj- unnar og þar tekur handaflió við á ný. Hver einasti haus er höggvinn sundur með exi og raðað í ofn þar sem hann er gerilsneyddur í átta tíma og síðan soðinn í 30 tíma. Það eru síóan mannshendur sem sækja soöna hausana í ofnana. Sagt var að það væri vegna strangs gæðaeftirlits að þessi háttur væri á hafður, en vélbúnaður ekki nýttur við framleiðsluna. Odýrt vinnuafl í landinu hlýtur þó að hafa einhver áhrif á að verksmiðjumar em ekki Margir íslendingar hafa bragðað á Tequila, sem þekktastur er mexikanskra drykkja. En það hafa ekki eins margir komið til Tequila eða vitað að bær með því nafni fyndist skammt frá Gua- dalajara í Jaliscohéraði. Þar þykir vaxa besta afbrigði blá- grænu agaveplöntunnar til bruggunar á Tequilavíninu og þar er hið eina sanna Tequila unnið. Agave er notað til bruggunar fleiri þjóðardrykkja. Minni af- brigði em notuð við framleiðslu á pulgue, gerjaós safa magueyagava sem smakkast Ijómandi vel, og mezkal sem kennt er við mezkal- safann og er sterkur drykkur, unn- inn úr villtum agava. Þaó er drykk- urinn sem upphaflega var bættur með maðki í flöskuna, samkvæmt þjóðsögu um aö í hverri plöntu byggi maðkur er gæfi henni aukið gildi. Síðar hafa sumir tekið þessa siði upp við drykkju á tequila. Tequila sunrise og fleiri blöndur kynntar fyrir íslensku fjölmiðlafólki. Myndir: IM Tequilabíilinn mættur. Ti! að tryggja gæðacftirlit eru hausarnir höggnir sundur með exi og raðað í ofnana með handafli. Eftir 30 tíma suðu er maltbragð af kaktusplöntunni, hún er sæt og safamik- il, svalandi og seðjandi í sólarhitanum. Kaktussaflnn er látinn gerjast í þrjá daga. vélvæddari en raun ber vitni. Það er sérstakt að koma inn af heitum akrinum og bragða safa úr nýsoðinni plöntu. Hann er sætur, en svalandi og seðjandi, og minnir á aó það er eins og jörðin skili á hverjum staó þeirri næringu til mannskepnunnar er henni er holl í því loftslagi. En soðnar plöntumar eru ekki ætlaðar til átu á þessum stað, heldur drifnar í fjórfalda pressu til að kreista úr þeim hvem dropa af safanum. Honum er síðan dælt í tanka til gerjunar í þrjá daga. Síðan fer eimingin fram og margar gerðir og verðflokkar af tequila verða til, bæði úr hreinum safa og mismunandi mikið blönd- uðum og einnig er vínið látið geymast mismunandi lengi. Því hreinna og eldra, því betra, það fengu Islendingar í Tequila að reyna í garði Orendaenverksmiðj- unnar, þar sem eigendur gerðu vel við þá í mat og drykk að lokinni skoðunarferð um akrana og verk- smiðjuna. Fjör á ferðamannastöðum Þjóðardrykkurinn er mikið notaður á mexíkönskum skemmtunum á ferðamannastöóum og ýmsar kúnstir viðhafðar. Stóru snafsa- glasi af drykknum er barið harka- lega í borðið nokkrum sinnum og innihaldinu síðan hellt í sjálfboða- liða úr ferðamannahópunum og hlustað hver þeirra gólar skringi- legast á eftir. Þetta virðist ferða- mönnum þykja gaman og mexí- könum ekki síður. Hægt er að blanda vel drekkandi drykki úr tequila, s.s. Margarithu og Tequila Sunrise, en mesta sportið þykir þó að sturta því í sig með salti og sí- trónu eða lime. Fjör færist í mann- skapinn ef sá sem drekkur fær að sleikja saltið sitt einhversstaðar af skrokknum á bardömunni, þjónin- um, góðum vini eða vinkonu. IM

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.