Dagur - 25.03.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 25. mars 1995 - DAGUR - 7
í byrjun þessa mánaðar var haldin árleg keppni hárgreiðslu-
fólks, förðunar-, snyrtifræðinga og fatahönnuða á Hótel ís-
landi. Keppnin nefnist Tíska og er alþjóðleg frístæl-, tísku-
línu-, förðunar-, fatagerðar- og tískuhönnunarkeppni sú
lang stærsta og viðamesta sem haldin er hér á landi. Linda
Björk Óladóttir, förðunarfræðingur á Akureyri, tók þátt í
keppninni og hlaut íslandsmeistaratitil þriðja árið í röð. Því
má ætla að hún sé einn fremsti förðunarfræðingur landsins í
dag, lítum í myndamöppuna hennar.
Þegar Islandsmeistarakeppni í
förðun fer fram er keppt í þremur
mismunandi greinum, í ljós-
myndaförðun, leikhúsförðun og
fantasíuförðun. Árið 1993 varð
Linda Islandsmeistari í leikhús-
förðun og hreppti annað sætið í
Ijósmyndaförðun. Árið 1994
keppti hún í fantasíuförðun sigraói
og varð Islandsmeistari og endur-
tók svo sama leikinn í ár.
Hvað er fantasíuförðun?
- Já einmitt, Linda, hvað er eigin-
lega fantasíuförðun?
„Fantasíuförðun má einnig
nefna hugmyndaföróun. Galdur-
inn er að fá einhverja góða hug-
mynd og útfæra hana á mannslík-
ama. í íslandsmeistarakeppni er
líkaminn málaður frá toppi til táar
bæði að framan og aftan. Fyrir-
sætan er aðeins í mjög efnislitlum
Unnustinn fær förðun
- Hvemig undirbýrðu þig fyrir
svona keppni, æfír þú þig að farða
fyrirsætuna?
„Nei, ég farða hana bara þegar
til kastanna kemur. Fyrsta þrepið
er auðvitað að fá góða hugmynd
og þróa hana, það getur kostað
andvökunætur. Svo lendir unnust-
inn í því aó verða fómarlamb í
svona smá tilraunum. Það þarf að
finna réttu litina og farðann,
teikna mynstrið og útfæra fyrir
allan líkamann og svo útbý ég
nauðsynlega fylgihluti. Þegar í
keppnina er komið þá mála ég
eins og brjáluð manneskja í þrjá
tíma.“
- Þú hefur sigrað tvö ár í röð.
Hver er galdurinn?
„Sennilega fyrst og fremst góð
hugmynd. Hugmyndin er jú undir-
staða alls en svo verður förðunar-
fræðingurinn auðvitað að búa yfir
íslandsmeistarí
/ #X /
noja ano 1
í förðun
röð
nærbuxum en að öðru leyti nakin.
Verkinu verður föróunarfræð-
ingurinn að skila á þremur
klukkustundum en fylgihlutir, eins
og hatturinn á minni fyrirsætu,
mega vera til fyrir fram. Að þess-
um þremur tímum loknun er verk-
ið dæmt. Tekið er tillit til margra
þátta svo sem litasamsetningar,
litablöndunar, vandvirkni og
heildarútlits fyrirsætunnar svo
sýna fyrirsætumar gestunum á
Hótel Islandi árangurinn."
- Hver munurinn á fantasíu-
förðun og leikhúsförðun?
„Það er mjög ólíkt. Fantasíu-
förðun er ákaflega listræn útfærsla
ákveðinnar hugmyndar en í leik-
húsförðun er lyrirsætunni breytt
til aö takast á við eitthvað hlut-
verk sem getur í raun verið hvað
sem er allt frá ballerínu í skrímsli.
I ljósmyndaföröun er andlit
fyrirsætunnar hins vegar farðað
fyrir tískumyndatöku. Það gefur
því auga leið að það er langmesta
málið að keppa í fantasíuförðun
enda sannarlega ekki allir sem
leggja í það dæmi.“
íslandsmeistari í fantasíuforðun
1995 er... Linda Oladóttir
í ljósaskiptunum
Vcrkió túlkar náttúruna. Frum-
þættina: loft, jörð, vatn og eld.
Sameinuö orka náttúrunnar er
undirstaóa alls lífs.
Hatturinn er úr kembu sem er
byggð upp utan um pappa, hann
er 100x70 cm og neðan í honum
hanga 250 glerperlur sem hafa
verið þræddar upp á gimi. Fugl-
inn er úr hendi fyrirsætunnar og
fjöðrum.
Fyrirsætan cr logagyllt að
lraman cn skínandi silfrað og
himinblá að al'tan, skreytt tungli
og stjömum. Linda faraöi hana
með blautum farða og púðraði
margar dósir af hreinum glimmer
ofan í farðann. Fyrirsætan cr
Amfríður Amardóttir.
Árstíðímar
- Islandsmeistara-
stykki Lindu 1994
Verkið túlkar baráttu veturs
og sumars. Á hægri helmingi
fyrirsætunnar túlkar farðinn
gróskumikið sumar, og í
þeirri hendi heldur fyrirsætan
á marglitum rósavendi en
hinn helmingur fyrirsætunnar
er í klakaböndum og vetrarlit-
um í þeirri hendi heldur hún á
vænu grýlukerti.
faglegri fæmi til að geta útfært
hugmyndina á fullnægjandi hátt.“
í París
- Þú ert förðunarfræðingur. Hvar
lærðir þú þitt fag?
„Eftir stúdentspróf fór ég til
Parísar í mjög viðurkenndan list-
förðunarskóla og var þar við nám
í einn vetur, það var veturinn
1991-1992. Þessi skóli sérhæfir
sig í listrænni kennslu og tekur
mið af frönskum markaði. Lögð er
áhersla á föróun fyrir tískuiðnað-
inn og leikhúsin.
I skólanum era gerðar geysi-
legar kröfur um nákvæmni, sér-
staklega þegar verið er að læra
förðun fyrir tískuljósmyndir, þá
mátti sko ekki muna broti úr milli-
meter á augnabrúnunum.“
Þeir sem koma seint koma
að læstum dyrum
- Það hefur þá ríkt agi og metnað-
ur í skólanum?
„Já, það er vís óhætt aó segja
það. Kröfumar eru slíkar að um
60% nemenda tekst ekki að ljúka
prófum. Aginn var líka mikill. Eg
get nefnt sem dæmi að ef nemandi
var ekki mættur 15 mínútum eftir
að fyrsta kennslustund hófst kom
hann að læstum dyrum og missti
af allri kennslu þann dag. Skólan-
um var einfaldlega læst, það leiðst
engin traflun. Annað hvort mættir
þú á réttum tíma eða alls ekki. „
- Vora flestir nemendanna
franskir?
„Skólasystkini mín voru alls-
staðar að, til dæmis vora margir
frá Japan og Kóreu en þetta er
einkaskóli og nemendur eru um
það bil 50 á hverri önn.“
- Hvemig fór námið fram?
„Suma daga var sýnikennsla en
aðra daga unnum vió undir leið-
sögn kennara. Við fengum mikla
verklega kennslu og æfingu í
◄ Linda á vinnustað í Vöruhúsi
KEA. Fyrsta ár ævinnar bjó
hún á Sauðárkróki en fluttist síðan
til Akureyrar með foreldrum sínum
Óla Ólafssyni bakara og Sesselju
Einarsdóttur, sem rekur nú versl-
unina Ynju í Sunnuhlíð. Unnusti
Lindu er Akureyringurinn Heimir
Kristinsson, hann er smiður.
skólanum, sem ég tel mjög nauð-
synlegt.“
Icelandic Models
- Fékkstu vinnu vió þitt fag þegar
heim kom?
„Já, ég fór að vinna hjá Línu
Rut, föróunarfræðingi í Reykja-
vík. Hún var þá með umboð fyrir
Make up for ever snyrtivörumar,
verslun og förðunarskóla. Eg
starfaði hjá henni í nokkra mánuði
en svo tók ég ákvöróun um að
hætta.
Eg keypti þá hlut í fyrirsætu-
umboðinu Icelandic Models og er
einn fjögurra eigenda. Hjá umboð-
inu eru margar fyrirsætur á skrá
og töluvert um að vera. Þegar ég
bjó í Reykjavík hafói ég því nóg
að gera við förðun í tengslum vió
myndatökur á vegum Icelandic
Models.
Eg kom svo hingað norður í
heimahagana á ný síðasta sumar
og fór að starfa hér í snyrtivöru-
deild KEA.“
- Nýtist námið þér í núverandi
starfi?
„Já, að sjálfsögðu. Eg get leið-
beint viðskiptavinunum um litaval
og förðun og þaó er aó mínu mati
mikilvægt fyrir fólk að geta fengið
bitastæðar leiðbeiningar þegar það
kaupir sér augnskugga, varalit eða
farða. Eg hef komist aó því að
margir eiga bunka af augnskugg-
um og varalitum inni í skáp sem
þeir nota aldrei en vonandi geta
réttar leióbeiningar orðið til þess
að nýi varaliturinn eða augn-
skugginn lendi ekki í bunkanum.“
Að draga fram það besta
- Hefur þú eitthvað unnið við
förðun aó undanfömu?
„Eg hef verið að farða leikar-
ana í Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri, krakkana í Locos, en þau
sýndu leikritið Draum í dós. Svo
tek ég aó mér aö farða fólk ef það
vill setja upp spariandlitið, til
dæmis vegna myndatöku eða sam-
kvæmis. Það hefur aukist mjög að
fólk fari í förðun áður en það fer á
árshátíðir eða önnur samkvæmi.
Eg held líka förðunamámskeið í
heimahúsum sem hafa átt vin-
sældum að fagna. Um eins kvölds
eða hálfsdags námskeió er að
ræða þar sem hverjum og einum
er leiðbeint persónulega um förð-
un og litaval."
Brúnn er litur öldrunar
- Getur þú gefið okkur einhver
einföld ráð?
„Förðun á aö draga fram það
besta í andliti hverrar konu en
ekki að eltast um of við tísku-
sveiflur þó þær hafi alltaf einhver
áhrif. Brúnir litir eru mjög í tísku
um þessar mundir en fyrir eldri
konur er gott aö hafa í huga að
brúnt er sá litur sem förðunarfræð-
ingar nota til að ná fram elli og
þreytu í andlitum til dæmis fyrir
leikhús. Mosagrænn litur er í
uppáhaldi hjá mér. Hann er dæmi
um lit sem hentar mjög mörgum í
augnmálningu og hann dregur úr
roða í andliti og rauóum, þreytu-
legum augum. Það setur líka veru-
legan svip á hvert andlit að augna-
brúnimar séu vel lagaðar og hæfi-
lega dökkar,“ sagói förðunarfræð-
ingurinn og Islandsmeistarinn
Linda Óladóttir. Hún sagði að því
væri ekki að neita að hún vildi
gjaman nýta þekkingu sína enn
frekar í starfi, til dæmis innan
veggja leikhússins, en tækifærin
yxu ekki á trjánum. „Það era samt
ýmis spennandi verkefni framund-
an í mínu lífi, sem ég hlakka til að
takast á við,“ sagói þessi bros-
mildi Islandsmeistari. KU