Dagur - 25.03.1995, Page 13
Laugardagur 25. mars 1995 - DAGUR - 13
Það hefur ekki verið til siðs hér á
Poppsíðunni aó vera með sífelldar
afmælisupptalningar á báðar
hendur með öllu sem þeim fylgir,
eins og sumstaðar tíðkast og þá
sérstaklega í ljósvakafjölmiðlum,
en nú er hins vegar ekki hægt að
stilla sig um að gera smá undan-
íslensk útgáfa
Nokkur hreyfing er nú að kom-
ast á íslenska útgáfu og er þar
danstónlistin áberandi líkt og
var á síðasta ári. Þar ber fyrst
að telja enn eina Reifplötuna,
Reif í kroppinn frá Spor, sem
inniheldur 19 lög. Þar á meðal
er eitt með hinni akureyrskætt-
uðu hljómsveit Fantasíu. Skífan
er einnig aö senda frá sér dans-
efni og það á tveimur plötum,
annars vegar Party zone, sem
inniheldur harða klúbbadans-
tónlist, en hins vegar Transdans
4 meó allskyns efni. Frá Skíf-
unni kemur svo einnig safn-
plata með Björgvin Halldórs-
syni, sem geymir öll lögin sem
hann hefur sungið í undan-
keppnum fyrir Eurovision.
Endabk?
Doningtonrokkhátíðin, sem
hundruó Islendinga hafa sótt
reglulega gegnum árin, þ. á m.
fjölmargir Norðlendingar, virð-
ist nú endanlega vera að syngja
sitt síðasta eftir brösótt gengi
fram og til baka á síðustu árum.
Vegna aukins kostnaðar,
strangari reglna og þeirrar stað-
reyndar að samkeppnin í tón-
listarhátíðum á Bretlandi á
sumrin hefur sífellt harönað,
hefur reynst æ erfíðara að halda
hátíðina og íhuga forráðamenn
hennar nú aö hætta henni alveg.
Hún virtist reyndar vera komin
á réttan kjöl í fyrra, eftir að
hafa verið lengd og hljómsveit-
um fjölgað með ágætis útkomu,
en nú er semsé framtíóin í
óvissu.
Loksins loksins
Eftir langa mæðu og nokkra
óvissu um framvinduna, er nú
bandaríska rokksveitin frá New
Jersey, sem heimsótti klakann
við góðar undirtektir fyrir um
þremur árum, Skid row, loksins
aó koma með þriðju plötuna
sína. Ber hún heitið Subhuman
race og kemur á markaöinn nú
eftir helgina. Hafa menn beðið
spenntir eftir þessari nýju plötu
í ljósi þess að önnur platan,
Slave to the grind, gerði það al-
deilis gott og fór m.a. á toppinn
og það beinustu leið í Banda-
ríkjunum þegar hún kom út árið
1991. Ætla Sebastian Bach
söngvari og félagar hans sér
áreiðanlega aó leika þann leik
aftur.
Skid row með nýja plötu eftir
fjögurra ára hlé.
tekningu frá því. Næstkomandi
fimmtudag, 30. mars, verður
nefnilega ein helsta gítarhetja
hvíta kynstofnsins og einn virtasti
tónlistarmaður samtímans, Eric
Clapton, fímmtugur. Það væri aö
bera í bakkafullan lækinn að ætla
að fara aó rekja feril Claptons hér.
Hefur þaö aö nokkru í meira eða
minna mæli veriö gert áður, en
samt er ekki úr vegi að stikla á
stóru um afrek kappans af þessu
merka tilefni.
Úr glerlist í gítarleik
Eric Clapton fæddist í Ripley í
Surreyhéraði á Englandi og var al-
inn þar upp af fósturforeldrum.
Hann var orðinn sautján ára og
búinn að stunda nám í glerlist-
hönnun um hríð, þegar hann
ákvað að söðla um og freista gæf-
unnar sem gítarleikari í London.
Hafði hann þá nokkru áður heill-
ast af blústónlistinni og blökkum
boðberum hennar á borð við Mud-
dy Waters, Robert Johnson, Big
Bill Bronnzy, auk rokkara á borð
við Buddy Holly og Chuck Berry.
Þetta var árið 1963 og það sama ár
var Clapton kominn í sína fyrstu
hljómsveit, Rooters. Þar beið
frægðin hins vegar ekki, en ásamt
öðrum síðar þekktum tónlistar-
manni, Tom McGuinnes (með
Manfred Mann’s Earth band og
The blues band) var hann í þessari
sveit um hálfs árs skeið og síðan
Eric Clapton. Fimmtugur foringi.
líka í Casey Jones and the engine-
ers. Þar entust þeir þó aóeins í um
tvær vikur. Þrátt fyrir það hafói
Clapton nú náð að vekja á sér það
mikla athygli, að honum var boóið
að ganga í þá ört vaxandi blús-
rokksveit, Yardbirds. Þar innan-
borðs var hann fram á árið 1965,
en hætti þegar honum fannst sveit-
in vera að poppast upp með aukn-
um vinsældum. Tók þá önnur gít-
arhetja, Jeff Beck, við af honum.
Frá veru Claptons í Yardbirds er
einna helst að minnast plötunnar
sem sveitin gerði með blúsmunn-
hörpumeistaranum Sonny Boy
Williamson. Telst sú plata til ger-
sema. Nánast um leið og Yard-
birds sleppti var Clapton kominn
á mála hjá einum helsta fóstra og
forkólfi bresku blúsbylgjunnar,
John Mayall, í hljómsveit hans
Bluesbreakers. Og þá tók líka
frægðarsól hans að rísa fyrir al-
vöru og til varð frasinn marg-
frægi, „Clapton er guð“, sem tíók-
aðist að krota á veggi um alla
Lundúnaborg.
Eitt af öðru
Þannig er í stórum dráttum upp-
hafíð af ferli Erics Clapton, sem
enn þann dag í dag, rúmum þrjátíu
árum síðar, er dáður og dýrkaður
af milljónum tónlistaraðdáenda.
Kom eitt af öðru hjá honum þaóan
í frá. Eftir veruna í Bluesbreakers
stofnaði hann Cream meó Jack
Bruce og Ginger Baker 1966.
Kom sá síðamefndi með honum
úr Bluesbreakers. Cream hefur
jafnan verið kölluð fyrsta „súper-
grúppan“ og það er víst aó undir
því stóð hún fyllilega meðan hún
var og hét. Með henni náði líka
Clapton heimsfrægðinni fyrst fyrir
alvöru og á líftíma sveitarinnar,
1966-68, varð tónlistarlegt viðhorf
hans víðsýnna. Eftir Cream var
það síðan önnur stórsveit, en
Blind faithe, sem tók við hjá Clap-
ton og eftir að hún dó drottni sín-
um tók hann að leika með öðrum
bæði inn á plötur og á tónleikum.
(Spilaði m.a. inn á „Hvíta albúm-
ið“ hjá Bítlunum.) 1970 kom svo
fyrsta samnefnda platan hans út
og sama ár, Layla and other as-
sorted love songs með dered and
the Domins, þar sem Duane All-
man var m.a. innanborðs. Heróín-
neysla og önnur persónuleg
vandamál, vinamissir o.fl., urðu til
þess að næsta almennilega plata
Claptons kom ekki fyrr en 1974,
461 ocean boulevard, en þaó var
líka plata í lagi og fór hún m.a. á
toppinn í Bandaríkjunum. Síðan
hafa vissulega skipst á skin og
skúrir hjá honum, en á þessum
tímamótum stendur hann þó nokk-
uð keikur og hefur örugglega ekki
sagt sitt síðasta.
Síðastliðið sunnudagskvöld voru íslensku tón-
listarverðlaunin afhent í annað sinn og fór at-
höfnin fram með pompi og prakt á Hótel ís-
landi i Reykjavtk. Voru það sem fyrr FÍH, Fé-
lag íslenskra hljómlistarmanna, Samtök
hljómplötuframleiðenda og DV, sem stóðu fyrir
herlegheitunum. í upphafi var sérstök dóm-
nefnd skipuð til að tilnefna fulltrúa í hina ýmsu
flokka, en úrskurðarvald um verðiaunahafa
hafði síðan önnur sérstök dómnefnd annars
vegar en atkvæði lesenda DV hins vegar. Fara
hclstu verðlaunahafarnir hér á eftir.
söngvari ársins var valinn Páll
Rósenkrans.
Jet black Joe varð fyrir valinu
sem hljómsveit ársins 1994.
Kemur það ekki á óvart, en ein-
hvem veginn finnst manni að
Unun, sem reyndar varð í öðra
sæti, hefði átt þcssa nafnbót
meira skilið. Hafnfirsku dreng-
imir fengu siðan tvenn önnur
verðlaun, fyrir að ciga bcsta lag
ársins, Higher and higher og
n l
Nýliðamir í Spoon hömpuðu
líka þrennum verðlaunum eins
og Jet Black Joe. Hljómsveitin
var útnefnd Bjartasta vonin og
Emiliana Torrini hlotnuðust þau
sömu verðlaun sem einstakling-
ur auk þess sem hún var útnefhd
Söngkona ársins. Það síöast-
talda verður aó teljast mjög svo
sanngjamt, sömuleiðis sem
framtíðin er óneitanlega björt
hjá Emiliönu. Það má hins veg-
ar alveg deila um hvort hljóm-
sveitin sé endilega sú efnileg-
asta, en sú varð samt niðurstað-
an í kjörinu.
arsins
Unun, sem bæði hefði borið
sæmdarheitin Bjartasta vonin og
hljómsveit ársins mcð sóma, en
náði hvoragu, hlaut þó viður-
kenninguna fyrir bestu plötu
ársins, Æ. Var þaó í samræmi
við flest önnur sambærileg kjör
sem fram hafa farið, þannig að
það er engin spuming að nafn-
bótin Plata ársins fór á réttan
stað. Plata Jet black Joe hafnaði
í öðra sæti.
Guðmunduraftur
Sá góði og hægláti drengur,
Guðmundur Pétursson gítar-
snillingur, hlaut nafnbótina git-
arleikari ársins í annað sinn.
Guðmundur Pétursson, gífarlelk-
ari ársins.
Þarf ekki að tíunda fyrir þeim
sem til þekkja hæfileika Guð-
mundar, sem getið hefur sér
frægðarorð langt út fyrir land-
steinana með Vinum Dóra, auk
þess að hafa vera innanborðs í
Tregasveitinni og víðar. Hann
er því meira en verðugur sem
áframhaldandi handhaii nafn-
bótarinnar Gítarleikari ársins.
Nú er Guðmundur svo að sögn
kominn í hljómsveit með Bimi
Jörandi Friðbjömssyni og Birgi
Baldurssyni trommara m.a.,
sem heitir Poppland, eða eitt-
hvað í þá áttina.
Aðrir verðlaunahafar
Spoon verðlaunuð í bak og fyrir.
Aðrir verðlaunahafar voru m.a.
Eiður Amarsson, sem reyndar
sat í undirbúningsnefndinni, en
vék síðan vegna tilnefningar
sinnar, bassaleikari ársins, Jón
Ólafsson úr Ný dönsk, hljóm-
borðslcikari ársins og síðast en
ckki síst Ragnar Bjamason, sem
var heiðraður sérstaklega af tón-
listarmönnum fyrir ffamlag siit
til íslenskrar dægurlagasögu.