Dagur - 17.05.1995, Blaðsíða 1
Skandia
Ætk Iifandi samkepp
W
Geislagötu 12 • Sími 12222
m
- lœgri idgjöld
Frakkar fögnuðu sigri
Frakkar fögnuðu sigri á Spánverjum í 16 liða úrslitum heimsmeistaramótsins í íþróttahöllinni á Akureyri í gær.
Sigur Frakka kom nokkuð á óvart, en þeir voru miklu betri og Spánvcrjar áttu aldrei möguleika. Nánar um heims-
meistarakeppnina á bls. 8, 9 og 10. Mynd: Robyn.
Snjóalög tefja vorverk hjá bændum:
Sennilega seinkar slætti
- segir Stefán Skaftason, ráöunautur
Heimsmeistaramótið í handbolta:
Lögreglan fékk
að taka þátt
í leiknum
Enn er svo mikill snjór á tún-
um og í kríngum hús að
menn koma ekki fé sínu út. Það
verður þröngt ef menn koma
fénu ekkert út úr húsi á sauð-
burðinum og að öðru jöfnu getur
það aukið smithættu, þó að oft
sé minni hætta á veikindum
þegar kalt er en þegar hlýtt er í
veðri,“ sagði Stefán Skaftason,
ráðunautur í Straumnesi, að-
spurður um áhrif tíðarfars og
snjóalaga á vorverkin hjá bænd-
um.
„Menn horfa ekki fram á að
nein hlýindi séu á Ieiðinni svo það
má búast við að slegið verði í
seinna lagi. Hinsvegar er jörðin
þíð undir og ef hlýnar er þetta
töluvert fljótt að koma. Þó er mik-
ill snjór víða svo það þarf talsvert
mikið til. Menn eru orðnir þreyttir
Sigríður Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins
og fulltrúi í menningarmála-
nefnd, talaði fyrir því á fundi
bæjarstjómar Akureyrar í gær
að Akureyrarbær setji íjármuni,
ca. 3 milljónir króna, til lág-
marksendurbóta á Ketilhúsinu
svokallaða í Grófargili til þess
að nýta það á Listasumri 1995.
Á fundi menningarmálanefndar
2. maí sl. var tekið fyrir erindi frá
Gilfélaginu varðandi notkun og
endurbætur á Ketilhúsinu og þar
var bókuð sú eindregna ósk menn-
ingarmálanefndar að Akureyrar-
á þessu,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að menn hefðu
ekki orðið varir við mikið kal í
vor, en það gæti orðið enn ef næt-
urfrost yrðu þegar snjóa leysti og
tún væru mjög blaut. Slíkar að-
stæður gætu farið illa með gróður.
Venja er að sláttur hefjist um
mánaðamót júní-júlí eða fyrstu
viku í júlí, og það gæti enn náðst
ef hlýnaði verulega. Hins vegar
sér ekki fyrir endann á vetrinum
og hætt er við að slætti seinki.
Bændur hafa borið á tún frá því
seinast í maí fram í miðjan júní en
Stefán býst ekki við að borið verði
á túnin á næstunni. „Þetta er hálf-
gert vetrarástand ennþá og svo er
spáð hríð um helgina svo það er
ekki mikið vor í honum,“ sagði
Stefán.
„Menn eru yfirleitt vel birgir af
heyjum hér svo þeir þola þetta vel
bær veiti fé til lágmarkslagfæringa
á Ketilhúsinu þannig að unnt verði
að nýta það til þess að koma upp í
sumar einskonar höggmyndalist-
arsmiðju, en hugmyndin er að allt
að fimmtán myndhöggvarar setji
upp vinnustofu í Ketilhúsinu og
almenningi gefist kostur á að
fylgjast með vinnu þeirra. í bókun
menningarmálanefndar 2. maí er
bent á að þessar endurbætur muni
einnig nýtast tijl áframhaldandi
notkunar Ketilhússins.
Sigríður Stefánsdóttir tók fram
á bæjarstjórnarfundinum í gær að
algjör einhugur hafi verið um það
og geta miðlað til þeirra sem á
þurfa að halda. Það er ekki vanda-
málið. Menn eru önnum kafnir við
sauðburðinn, frjósemin er í besta
lagi og þetta gengur áfallalítið,"
sagði Stefán. IM
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Mecklenburger
Hochseefischerei í Rostock í
Þýskalandi, dótturfyrirtækis Út-
í menningarmálanefnd að óska
eftir að veitt verði fé til lágmark-
sendurbóta á Ketilhúsinu.
Þórarinn E. Sveinsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokks, sagði
að við gerð fjárhagsáætlunar hafi
ekki verið veitt fjármunum í Ketil-
húsið og þeir fjármunir væru ekki
frekar til nú. Það væri Sigríði
Stefánsdóttir vel kunnugt um.
Þetta mál var til umræðu á síð-
asta bæjanráðsfundi og þá var af-
greiðslu þess frestað, en bæjar-
stjóra og menningarfulltrúa falið
að leggja fram frekari upplýsing-
ar. óþh
Lögreglumenn á Akureyri,
fengu að taka þátt í leiknum,
þegar Frakkar og Spánverjar
mættust í 16 liða úrslitum
Heimsmeistaramótsins í hand-
bolta í fþróttahöllinni í gær.
Þegar fáar sekúndur lifðu af
leiknum og sigur Frakka í höfn,
varð smá uppþot við varamanna-
bekk Spánverja og þurfti lögregla
og fleiri starfsmenn að skakka
leikinn. Einn Ieikmanna Frakka
datt á varamannabekk Spánverja
og á svipstundu ætlaði allt um koll
að keyra, leikmenn liðanna hlupu
saman en fljótlega tókst að koma
á ró aftur. Franskir áhorfendur
hlupu þá inn á völlinn, til að
hjálpa félögum sínum og þurfti
lögregla og aðrir starfsmenn að
stöðva för þeirra. Eftir leikinn
þurfti lögreglan líka að hafa af-
skipti af leikmanni Frakka á
áhorfendapöllunum. Hann var
ekki í leikmannahópnnum að
þessu sinni en vildi vera með lið-
inu við myndatöku.
„Hann vildi fara inn á völlinn
en var ekki með passa og því var
ekki hægt að hleypa honum inná,
þótt margir hafi staðfest að hann
væri í leikmannahópnum. Ég hef
grun um að hann hafi lánað pass-
ann sinn en það breytti engu, hann
vildi inná og var mjög ókurteis.
Hins vegar báðust forráðamenn
gerðarfélags Akureyringa hf.,
hefúr sagt upp störfum.
Ekki fengust í gær skýringar á
því af hverju Ingi segir nú upp, en
ljóst er að uppsögnin kom skyndi-
lega til, þótt jafnframt að hún hafi
haft einhvern aðdraganda. Ingi
mun hafa afhent Gunnari Ragnars
uppsagnarbréf seinnipart síðustu
viku, en eftir því sem blaðið
kemst næst var ekki vitað um
þessa uppsögn á stjórnarfundi
Mecklenburger úti í Þýskalandi í
síðustu viku.
Ingi Bjömsson kom heim til
Akureyrar í kjölfar uppsagnarinn-
ar, en í gær, þegar Dagur reyndi
að ná tali af honum, var hann á
leið til Þýskalands. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins er við það
miðað að Ingi stýri fyrirtækinu út
þennan mánuð.
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA og stjómarformaður
Mecklenburger Hochseefischerei,
vildi ekki tjá sig um þetta mál
þegar Dagur hafði samband við
hann í gær. óþh
franska liðsins afsökunar á hegð-
un hans og það verða engir eftir-
málar vegna atviksins,“ sagði Ól-
afur Ásgeirsson, yfirlögreglu-
þjónn, í samtali við Dag. KK
Síldin aftur á leiö í
Síldarsmuguna:
Júpíter ÞH með
fullfermi til
Vopnafjarðar
-10 bátar í gær á leiö til
Norðausturlandshafna
ræm síldveiði var í fyrrinótt
en var heldur að glæðast
eftir því sem leið á gærdaginn.
Fá íslensk skip eru á miðunum í
færeysku lögsögunni, mörg
þeirra ýmist á landleið til lönd-
unar eða á leið aftur á miðin eft-
ir löndun. Síldin er mjög dreifð
og á stóru svæði í færeysku lög-
sögunni og hefúr verið að færa
sig í norður og norðausturátt og
fjarlægist því íslensku lögsöguna
frekar en að nálgast hana en
stefnir að nýju í Síldarsmuguna.
Síldin er ennfremur nokkur
stygg og á það til að stinga sér
þegar kastað er á hana.
A.m.k. 350 sjómílna sigling er
á miðin sem tekur á annan sólar-
hring.
Júpíter ÞH-61 kom f gær til
Vopnafjarðar með fullfermi, 1.250
tonn, og sagði Lárus Grímsson
skipstjóri að síldin stæði yfirleitt
mjög djúpt og síldin væri á hreyf-
ingu norður eftir austan megin við
köldu tunguna í stað suðvesturátt-
ar, sem hefur verið hennar stefna
undanfama sólarhringa.
„Síldin er því ekki að nálgast
íslensku lögsöguna en við urðum
hins vegar varir við lóðningar á
heimstíminu. Þetta er hins vegar
alveg ofboðslega stórt svæði, éin-
ar fjórar breiddargráður í norður
sem veiðisvæðið getur verið eða á
þriðja hundrað mílur og það væri
alveg gífurlegt magn ef síld væri
til staðar á öllu því svæði. Um
blandaða síld er að ræða, ekki
bara „royal“ stærð, en enn er mikil
áta í henni en minni en áður en fit-
an er komin upp í ein 10%,“ sagði
Lárus Grímsson.
Albert GK, Gígja VE og JÚIIi
Dan GK voru í gær á leið til Þórs-
hafnar og Bjarni Ólafsson AK og
Gullberg VE til Raufarhafnar. Um
10 bátar voru í gær á leið norður
með Austfjörðum og því líkur á
að einhverjir bátar fari til Siglu-
fjarðar og jafnvel til Krossaness ef
enn frekar þrengist um þróarrými
á Austfjörðum en orðið er. M.a. er
farið að rotverja síld sem komin er
til Neskaupstaðar og bíður þar
bræðslu. GG
Umræöur um Ketilhúsið á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær:
Hugmyndir um lágmarksendurbætur
- þannig að húsið nýtist fyrir Listasumar 1995
Ingi segir upp hjá
Mecklenburger
- miðað við hann stýri
fyrirtækinu út mánuðinn