Dagur - 17.05.1995, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 17. maí 1995
Island - Rússland 12:25:
Hræðileg utreið
íslenska landsliðið fékk einn
mesta skell í manna minnum
þegar liðið lék gegn feiknasterku
liði Rússa í Laugardalshöllinni í
gær. Eftir skemmtilegan fyrri
hálfleik var eins og allur dugur
væri úr íslensku stákunum eftir
hlé og Rússar nýttu það til hins
ýtrasta. Lokatölur leiksins eru
skammarlegar, 25:12, og leitt að
sjá lið íslands leggja árar í bát í
síðari hálfleik eftir að Rússar lok-
uðu á línuspil liðsins, sem virðist
vera eina leið liðsins að marki.
Sagt eftir lelk íslendinga og Rússa:
„Okkar bestu
einstaklingar'
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson
„Við komum vel stcmmdir til
leiks og lékum í fyrri hálfleik
ú:0 vöm eins og hún er best
leikin í heiminum. I seinni hálf-
leiknum áttum við ekki mögu-
leika í sókninni og þcir refsuðu
okkur mcð mörgum hraóaupp-
hlaupum. Rússamir lék mjög vel
og klárlega sinn besta leik á
mótinu. Vió lékum hins vegar
aóeins vel í 35 mínútur. Fyrir-
fram eigum vió ekki að eiga
möguleika á því að leggja Rúss-
ana aó velli á stórmóti en við
lögóum okkur alla fram. Það var
ekki nóg í dag og kannski eigum
við bara ekki nógu gott lið. Þetta
cm okkar bestu einstaklingar
fyrir utan það að við söknum
vissulega Héðins Gilssonar,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari.
Erfiður leikur
- sagði Vladímir Maxímov, þjálfari Rússa
„Þetta var erfióur leikur fyrir
bæði lið og lokatölumar gefa
ekki rétta mynd af því hve mikið
við þurftum að leggja á okkur.
Pressan var mikil á báðum lið-
um, þar sem mikilvægt sæti á
Ólympíuleikum var í húfi, en þó
mun meiri á íslendingum þar
sem þeir voru að leika á heima-
velli. Þaó er alltaf erfitt að leika
svona leiki á heimavelli og sum-
ir íslensku leikmannanna stóðu
ekki undir því álagi,“ sagði
Vladimir Maximov.
Þýðir ekkert að
gefastupp
- sagði Geir Sveinsson, fyrirliði
„Menn voru staðráðnir í að
leggja sig alla fram og ég á afar
erfitt með að trúa því að hægt sé
að kenna því um að menn komi
ekki rétt undirbúnir til leiks.
Undirbúningurinn fyrir mótið
var mjög góóur og ekki er við
hann að sakast. Andstæóingar
okkar annað kvöld (í kvöld) eru
næsti bær við Rússa, Hvít-Rúss-
ar, og það þýðir ekkert fyrir
okkur aó gefast upp. Við verð-
um að taka á öllu scm við eigum
til að reyna að leggja þá að
velli,“ sagði Geir Sveinsson.
Einfaldlega
við besta lið
heims að etja
- sagði Viggó Sígurðsson,
þjálfari Stjörnunnar
„Þeir spiluðu vel í fyrri hálfleik,
börðust virkilega vel og þaó
kostaði mikinn kraft. Hér var
einfaldlega við besta lið heims
að etja og okkar lió hafði engar
lausnir í sókninni. Þetta er sorg-
legur endir á frábæru móti en
menn eru í lægð og á vitlausu
tempói, að sjálfsögðu að Geir
Sveinssyni undanskildum. Nú
horfum við upp á að verða ekki
með á næstu stórmótum en sæti
á HM í Japan er enn inni í
myndinni. Því verðum við að
ná,“ sagði Viggó Sigurðsson.
SV
íslenska liðið byrjaði vel og
jafnt var á öllum tölum fyrstu
mínútumar en Rússamir voru þó
ávallt á undan að finna leiðina í
rietið. Vöm íslenska liósins var
þétt og stórskyttan Vasily Kud;
inov var stöðvaður snemma. I
sókninni var spilað upp á sterkasta
vopnið, Geir Sveinsson. Hann
skilaði boltanum í netið og liðin
fylgdust að fyrstu 15 mínútumar,
fram að stöðunni 4:4. En þá kom
kafli sem gerði út af við vonir Is-
lenska liðsins. Dmitriy Filippov
skoraði þrjú mörk í röð og eftir
það voru Islendingar alltaf að elta
Rússa. Guðmundur fann sig ágæt-
lega í markinu og Islendingar
náðu að minnka muninn tvisvar í
eitt mark eftir þetta en leikreynsl-
an skilaði Rússum með þrjú mörk
í forskot í hléi, 8:11.
Upphaf síðari hálfleiks lofaöi
góðu og vöm og markvarsla gekk
upp, án þess þó að Islendingum
tækist að saxa á forskot Rússa.
Guðmundur varði vel í tvígang en
síðan kom vendipunkturinn. Geir
var rekinn útaf í 2 mínútur og
Rússar komust í fimm marka for-
skot. Þá var sem strákamir gæfu
upp alla von og játuðu sig sigraóa.
Það sem eftir lifði leiks skoruðu
þeir aðeins tvö mörk á 26. mínút-
um. Rússneski bjöminn refsuðu
grimmilega og fremstur í flokki
fór Stjömumaðurinn Dmitriy Fil-
ippov. Lokastaðan var 12:25 og
niðurlæging islenska liðsins var
algjör.
Leikur okkar stráka lofaði góðu
framan af. Geir, Einar Gunnar,
Patrekur og Júlíus stóðu vömina
sterkir en gegn snillingum eins og
Rússar svo sannarlega eru dugöi
það ekki til. Um leið og Rússar
náðu að loka fyrir sendingar til
Geirs á línunni var sóknarleikur
Islands lamaður og enginn þorði
að taka af skarið. Sigurður, Júlíus,
Patrekur og Jón gerðu ekkert til að
auka hróður Islands og Valdimar
nýtti ekki færi sín í hominu. Hin-
um megin er Konráð Iítið notaður
en náði þó aó skora úr eina færi
sínu. Ljóst er að Rússar vaxa með
hverri raun og ef þeir halda áfram
á þessari braut liggur Ieið þeirra
beint í úrslitaleikinn.
[slendingar voru heillum horfnir í gærkvöld og fátt um fina drætti í sóknar-
lciknum. Sigurður Sveinsson náði sér ekki á strik, frekar en aðrar skyttur
íslands og skoraði aðeins eitt mark í leiknum. Mynd: Robyn
Island - Rússland 12:25
Gangur Ieiksins: 1:1, 3:3, 4:4, 4:7, 6:7, 9:6, 8:9, 8:11 - 10:12, 10:15, 11:21,
12:25.
ísland:
Mörk/skot: Geir Sveinsson 4/5, Patrekur Jóhannesson 3/6, Valdimar Grímsson
2/7, Siguröur Sveinsson 1/4, Júlíus Jónasson 1/4, Konráö Olavsson 1/1.
VariíVskot: Guðmundur Hrafnkelsson 12/31.
Rússland:
Mörk/skot: Dmitriy Filippov 10/11, Oleg Koulechov 5/6, Dmitriy Karlov 3/5,
Serguei Pogorelov 3/4, Dmitriy Torgovanov 2/2, Lev Voronin 1/3, Vasily Kud-
inov 1/4.
Varið/skot: Andrey Lavrov 11/23.
Stórleikir í 8-liöa úrslitum í dag:
Svíar mæta Tékkum í
Höllinni á Akureyri
Nú er spennan farin að magnast
í baráttunni um Heimsmeistara-
titilinn. Átta Iið eru enn með í
baráttunni og í dag heltast fjög-
ur þeirra úr lestinni. Þau lið sem
enn eru eftir í baráttunni eru
Svíþjóð, Tékkland, Króatía, Eg-
yptaland, Rússland, Þýskaíand,
Sviss og Frakkland.
Svíar halda áfram að leika á
Akureyri, þeirra heimavelli í
keppninni, og í dag mætir liðið
Tékkum í Höllinni kl. 17.00. Bú-
ast má við að Tékkar verði þeim
meiri fyrirstaða en Alsírmenn
enda hafa Tékkar staðió sig von-
um ftamar og lögóu Króata efiir-
minnilega að velli í riólakeppn-
inni. Svíar eru taplausir og stefna
ótrauðir á toppinn. Liðið sem sigr-
ar í þeirri viðureign mætir sigur-
vegurunum úr leik Króata og Eg-
ypta og væri enginn svikinn af því
að sjá Egypta og Svía leióa saman
hesta sína á ný í undanúrslitum.
Sá leikur sem sennilega flestra
augu beinast að í dag er leikur
Rússa og Þjóóverja í Laugardals-
höll kl. 13.00 og ekki ólíklegt að
sigurlið þess leiks leiki komist alla
leió í úrslitaleikinn. Rússar fá
væntanlega meiri mótspymu en í
gærkvöld gegn Islendingum þar
sem Þjóðverjar virðast vera með
sitt besta lið í langan tíma. Sigur-
lióið úr þessum leik mætir sigur-
Iióinu úr leik Sviss og Frakklands
þar sem Frakkar teljast sigur-
stranglegri.
ísland leikur í kvöld kl. 20.00
mikilvægan leik gegn Hvít Rúss-
um í Laugardalshöll. Keppt er um
sæti 9-12 en Islendingar eiga enn
möguleika á að komast á næsta
Heimsmeistaramót með góðum
lokasprett í keppninni. Ef sigur
næst í þeim leik leikur Island gegn
sigurvegurum úr leik Kúbu og
Spánar á föstudag. Á Akureyri
keppa Alsír og Kórea kl. 20.00 og
sigurvegarar úr þeim leik mæta
sigurvegurum úr leik Túnis og
Rúmeníu á föstudag.