Dagur - 17.05.1995, Blaðsíða 16
Komst mest í 40%
á aflametsárunum
Hver á hlutur íslendinga aö vera í veiðum
á norsk-íslenska síldarstofninum?
Akureyri, miðvikudagur 17. maí 1995
Hlutur íslendinga hefur hæst
komist í 41% af heildarafla
úr norsk-íslenska síldarstofnin-
um, en það var á árunum 1965
og 1966 þegar íslendingar
veiddu mest af síldinni. Arið
1965 var afli íslendinga 540 þús-
und tonn og 41% af heildarafl-
anum en 691 þúsund tonn ári
scinna, eða 40% af heildinni, og
hefur aldrei orðið meiri.
Þessar upplýsingar eru frá Al-
þjóðahafrannsóknaráðinu, sem
birtar voru í nýútkomnum
Fiskifréttum.
Þessar upplýsingar eru athygl-
isverðar í ljósi þeirrar deilu sem
Trygging á flotkví
frá Litháen:
Hörmuleg
- segir Þórarinn
B.Jónsson
Þórarinn B. Jónsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
gagnrýndi á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær hvernig staðið
var að málum varðandi trygg-
ingu flotkvíar, sem Hafnarsjóð-
ur Akureyrar hefur fest kaup á í
Litháen, á leiðinni yfir hafið til
Akureyrar.
Þórarinn sagði að þetta mál
væri þegar á heildina væri Iitið
hörmuleg saga og hann undraðist
þau vinnubrögð sem viðhöfð hafi
verið af hálfu Akureyrarbæjar
varðandi tryggingar á flotkvínni.
Þórarinn sagði að tilboð Sjóvá-Al-
mennra og Vátryggingafélags ís-
lands hafi verið sambærileg og til-
boð Sjóvá-Almennra hafi reyndar
náð lengra. Engu að síður hafi
tilboði Sjóvá-Almennra verið
hafnað. óþh
uppi er milli íslendinga og Norð-
manna vegna kvótasetningar á
síldveiðum í Síldarsmugunni, sem
Norðmenn kalla Smutthavet en
Kanadamenn Atlantic domestic
hole. Á árunum 1950 til 1960 var
hlutur íslendinga ákaflega rýr, eða
frá 1% upp í 5%. Árið 1961 fer
aflinn upp í 17%, eða 85 þúsund
tonn, og er síðan hraðvaxandi allt
upp í 41% árið 1965, en þá var
aflinn 1,7 milljón tonna og hefur
aldrei verið meiri. Á árunum 1967
og 1968 er hlutfall heildarafla
32% og 27% eða 360 þúsund tonn
fyrra árið en aðeins 75 þúsund
tonn seinna árið. Þá var síldin elt
allt norður undir Bjarnarey og
Svalbarða þar sem megnið af afl-
anum fékkst. Dæmi voru þess að
sigling í land með aflann tæki
fjóra sólarhringa.
Hjá Hafrannsóknastofnun eru
uppi hugmyndir um að eðlilegast
væri að láta kvótaskiptinguna
milli landanna taka mið af því
hversu marga mánuði síldin er í
hverri lögsögu fyrir sig á 10 til 12
ára ferli. Þeirri aðferð var beitt
þegar skipting loðnustofnsins var
ákveðin og áhugi íslendinga
stendur til að beita sömu aðferð
við skiptingu síldarstofnsins.
Á næsta ári kemur feiknastór
árgangur inn í veiðina og ennþá
stærri árgangur ári seinna. í
Fiskifréttum segir að þar með auk-
ist líkur á síldin taki upp fyrra
göngumynstur og hafa vetursetu
hér. Á sjötta og sjöunda áratugn-
um var síldin komin upp að norð-
urströnd íslands í maímánuði og
dvaldi hér fram á haust er hún leit-
aði í kaldari sjó út af Austfjörðum,
t.d. á Rauða torginu. Eftir áramót-
in hélt hún svo til hrygningar-
stöðvanna við Noreg og því hefur
fullorðna síldin haldið sig í allt að
átta mánuði á slóðum sem nú til-
heyra íslenskri fiskveiðilögsögu.
GG
Þaö er óhætt aö segja aö umræöur á bæjarstjórnarfundi á Húsavík í gær hafi veriö í lengri kantinum enda veriö aö
fjalla um stórt mál sem skiptar skoöanir er um á Húsavík. Á þessari mynd er oddviti sjálfstæöismanna, Sigurjón
Benediktsson, aö lýsa afstööu sinni á bæjarstjórnarfundinum í gær. Mynd: IM
Maraþonfundur um
Fiskiðjusamlagsmálið
Langar umræður urðu um
Fiskiðjusamlagsmálið á
fundi Bæjarstjórnar Húsavíkur í
gærkvöldi, og stóðu þær enn er
Dagur fór í prentun. Nokkrir
tugir áheyrenda mættu á fund-
inn, en voru flestir farnir aftur
er íeikur íslands og Rússlands
hófst. Ekki var útvarpað frá
fundinum og spurðist Sigurjón
Benediktsson (D) fyrir um mál-
ið. Bæjarstjóri, Einar Njálsson
sagði að tækjabúnaður hefði
verið fenginn að láni til að út-
varpa frá fundinum en er hann
hefði verið reyndur um morgun-
inn hefði annar búnaður ekki
reynst í lagi. Fram kom að út-
varpsklúbbur FSH hefði fengið
leyfi til að útvarpa frá bæjar-
stjórnarfundum, en það væri
ekki á ábyrgð bæjarsjtórnar að
standa fyrir útsendingum.
Bæjarstjóri lagði fram tillögur
um hlutafjáraukningu í Fiskiðju-
samlaginu og samninga við ís-
lenskar sjávarafurðir. Hann sagði
farsælla að taka langtímamarkmið
fram yfir skammtímahagsmuni, en
fylgja ekki bara þeim er hæst
hefði á hverjum tíma. Hann rakti
forsögu málsins, viðræður við ÍS,
greindi frá tilboði SH og viðræð-
um sínum við forsvarsmenn fyrir-
tækisins. Hann sagði að til
skamms tíma litið gæti verið gott
að losa um hlutafé bæjarins í FH
og nýta til annarra hluta, en ef illa
færi yrði skammt í það að aðrar
eignir bæjarbúa yrðu verðminni.
Hann sagði ótímabært að selja
hlut bæjarins þar sem staða fyrir-
tækisins væri ekki nógu traust, en
að fjármögnun og sameiningu lok-
inni mundu menn standa eftir með
sterkt fyrirtæki. Hann sagði mikil-
vægt að menn stæðu saman að af-
greiðslu lokinni.
Sigurjón Benediktsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að aðgerðir
minnihlutans hefðu orðið til þess
að ÍS hefði hækkað boð sitt úr 30
Viðamikið samkomu- og sýningahald í undirbúningi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit í sumar:
Iðnsýning, handverkssýning og
ættarmót Helga magra I ágúst
Síðsumar í Eyjafjarðarsveit*'
er yfirskrift á sýninga- og
samkomuhaldi að Hrafnagili í
ágúst í sumar. Hátfðin hefst með
VEÐRIÐ
Það er ekki beint bjart yfir veð-
urspá næstu daga. í dag og á
morgun er spáð norðan eða
norðvestan átt með slydduélj-
um úti við sjóinn og 0-5 stiga
hita. Á föstudag og laugardag
er síðan spáð hvorki meira né
minna en „allhastarlegu norð-
an hreti", svo notað sé orðalag
Veðurstofunnar. Ekki gæfuleg-
ur boðskapur síðari hluta maí-
mánaðar!
fjölskyldusamkomu um verslun-
armannahelgina sem ber nafnið
„Ættarmót Helga magra“,
næstu helgi þar á eftir verður
sýningin „Handverk ’95“ og
dagana 16.-20. ágúst verður sýn-
ingin „Iðnaður ’95“. Það er fyr-
irtækið Lifandi land hf. í Eyja-
fjarðarsveit sem sér um þessa
dagskrá, ef frá er talin sýningin
„Handverk ’95“ sem Samstarfs-
hópur um handverkssýningu
annast.
Óhætt er að segja að komin sé
góð reynsla á sýningarhald að
Hrafnagili. Tvö síðustu ár hafa ver-
ið þar handverkssýningar og í fyrra
stóð Lifandi land hf. fyrir landbún-
aðarsýningunni Auðhumlu ’94.
Gestir á handverkssýningunni voru
í fyrra um 5000 og um 12000 á
landbúnaðarsýningunni.
Aðstandendur þessara viðburða
hafa nú tekið höndum saman um
samstarf undir einni yfirskrift og
kynntu sínar fyrirætlanir í gær. El-
ín Antonsdóttir hjá Samstarfshópi
um handverkssýningu, segir að nú
þegar séu komin viðbrögð við
sýningunni enda er sýningarhaldið
að verða fastur liður í starfi hand-
verksfólks. Á sýningunni kynnir
og selur handverksfólk sína fram-
leiðslu.
Svipaða sögu sagði Jóhannes
Geir Sigurgeirsson hjá Lifandi
landi hf. af undirbúningi „Iðnaðar
’95“ og viðtökum aðila á því
sviði. „Iðnaður ’95“ verður sýning
á framleiðslu og möguleikum ís-
lensks iðnaðar og iðnaðarmanna
og sagði Jóhannes Geir að sýning-
in væri hugsuð á landsvísu þannig
að búast má við sýnendum víðs
vegar að af landinu.
Aðstandendur sýninganna telja
miklu skipta að flétta saman sýn-
ingarhaldi og fjölskyldusamkom-
um og þar fari saman almenn
fræðsla, fagleg umfjöllun og sölu-
starfsemi við menningar- og
skemmtiatriði. Varla sé hægt að
hugsa sér betri aðstæður en á
Hrafnagili til að ná þessu mark-
miði. Fram kom á kynningarfund-
inum í gær að stórt tjald sem uppi
var á landbúnaðarsýningunni í
fyrra, sem og veitingaaðstaða og
torg verða sett upp á ný í sumar
og verður þessi aðstaða miðpunkt-
ur í sýningunum tveimur og dag-
skránni um verslunarmannahelg-
ina. JÓH
milljónum í 90, en það hefði
aldrei verið athugað hvað hægt
hefði verið að ná langt, hætt hefði
verið áður en vinirnir þyrftu að
borga of mikið. Allt starf minni-
hlutans hefði verið unnið í óþökk.
Hann sagði að lánum hefði verið
breytt í hlutafé af hálfu bæjarins
og niðurstaðan væri sú að nýtt
hlutafé yrði aðeins 60 milljónir,
fjárhagsstaða ÍS hefi ekki verið
könnuð og vinnubrögð meirihlut-
ans væru slæm. Málið hefði aldrei
komist á vitrænt viðskiptastig.
Stefán Haraldsson (B) sagði að
þau markmið sem menn hefðu sett
sér hefðu gengið eftir og sölumál-
um hefði ekki verið teflt í tvísýnu.
Los og gönuhlaup þjónuðu engum
tilgangi.
Katrín Eymundsdóttir (D)
sagði að aðallega hefði verið deilt
um vinnubrögð og minnihluti teldi
meirihlua brotlegan hvað varðaði
lýðræðisleg vinnubrögð og óskrif-
aðar siðareglur. Minnihlutinn
hefði aldrei lagt til að skipt yrði
um söluaðila^
Kristján Ásgeirsson (G) sagði
að Húsavík væri 1300 þorskígild-
istonnum fátækari í dag ef tillögur
Sigurjóns hefðu náð fram að
ganga á árum áður, og áfram
ræddu menn málið og sýndist sitt
hverjum. IM
r Innanhúss- "*
málning
10 lítrar
kr. 4.640,
KAUPLAND
Kaupangi • Simi 23565