Dagur - 13.07.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 13.07.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1995 FRETTIR 13.-17. JÚLÍ Bacon búðingur kr. 198,- kg iSjfcí Létt popp kr. 29,- stk. Ópal kossar 6 stk. la. 99,- Wasa stick’s kr. 110,- Bláber 453 gr. kr. 139,- Jarðarberjaskyr 500 gr. kr. 98,- Mysingur 250 gr. kr. 65,- Afli norðlenskra frystitogara fyrstu fjóra mánuði ársins: Málmey SK með mestan afla en Arnar HU með mesta aflaverðmætið Afli norðlenskra frystitogara fyrstu fjóra mánuði ársins var misjafn, allt frá 2.103 tonnum hjá Málmey SK-1 niður í 267 tonn hjá Akureyrinni EA-110, en þess ber að geta að stóran hluta umrædds tíma var skipið í lengingu og öðrum breytingum í Póllandi. Meðalafli á úthaldsdag er einnig mestur hjá Málmey SK, eða 18,94 tonn, en meðalskipta- verðmæti á úthaldsdag er mest hjá Arnari HU-1, eða 1478 þús. kr., og Arnar HU er einnig með mest aflaverðmæti, 222,1 milljón króna sem jafnframt er það mesta á landinu. Nokkrir fyrstitogaranna voru á sl. vetri á loðnufrystingu, Stakfell ÞH-360 lengst þeirra eða í 25 daga og var aflaverðmæti þess 21,8 milljón króna en einnig voru Arnar HU-1 (6 daga), Örvar HU- 21 (7 daga) og Siglfirðingur SI- 150 <11 daga) og Málmey SK-1 (10 daga) á loðnufrystingu. A meðfylgjandi töflu er í fremsta dálki úthaldsdagar, síðan afli í tonnum og aflaverðmæti í milljónum króna. GG Úthalds- Afli í Aflaverð dagar tonnum mæti í millj. kr. Akureyrin EA-110 30 267 57,9 Arnar HU-1 112 1.653 222,1 Baldvin Þorsteinss. EA-10 113 1.743 203,4 Björgvin EA-311 101 756 147,7 Hjalteyrin EA-310 96 655 122,7 Júlíus Havsteen ÞH-1 90 397 67,8 Margrét EA-710 96 1.043 138,2 Mánaberg ÓF-42 108 1.209 161,1 Oddeyrin EA-210 106 800 88,9 Siglfírðingur SI-150 95 520 78,9 Sigurbjörg ÓF-1 89 1.080 131,9 Málmey SK-1 111 2.103 141,9 Sléttbakur EA-304 92 789 140,9 Sólbakur EA-307 112 939 122,3 Stakfell ÞH-360 81 325 54,1 Svalbakur EA-2 83 594 121,1 Víðir EA-910 105 1.237 160,7 Örvar HU-21 55 612 75,1 Nýjar línur hf. gjaldþrota Með úrskurði héraðsdóms Norðurlands eystra, sem kveð- inn var upp 31. maí sl, var bú Nýrra lína hf., Hafnarstræti 88 á Akureyri, tekið til gjaldþrota- skipta. Benedikt Ólafsson, hér- aðsdómslögmaður á Akureyri, er skiptastjóri í þrotabúinu. Fyrsti skiptafundur verður haldinn 22. ágúst nk. ÁTVR á Akureyri í fimmta sæti Af áfengisútsölum ÁTVR á Norðurlandi er „Ríkið“ á Ak- ureyri að vonum með lang- mestu söluna, þar var selt fyrstu sex mánuði ársins fyrir 265 milljónir króna, sem er 7,25% allrar áfengissölu í landinu á þessu tímabili. Aðeins í fjórum áfengisút- sölum í Reyícjavík var meiri sala fyrstu sex mánuði ársins, í söludeildinni Stuðlahálsi, Holtagörðum, Kringlunni og Heiðrúnu. Á Sauðárkróki nam áfengis- salan fyrstu sex mánuði ársins 45,7 milljónum króna (1,25%), á Húsavík 36,5 milljónum króna (1,0%), á Blönduósi 25,1 milljónum króna (0,69%) og Siglufirði 19,3 milljónum króna (0,53%). Færri kaupa sterku vinin Af sölutölum fyrir fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við sömu mánuði í fyrra má ráða að aukning í sölu á rauð- og hvítvínum nemur 7-8%. Einnig er töluverð aukning f sölu á freyðivínum og líkjörum. Hins vegar hefur sala á sterkum drykkjum dregist umtalsvert saman. Mestur er samdráttur- inn í sölu á apertífum, brenni- víni, séneveri og rommi. McWitie’s súkkulaðikex 200 gr. kr. 78,- Ýsu sítrónustautar 398 kr. kg Frönsk smábrauð 95 kr. polcinn Þú sparar 15-25% t KEA Nettó Þegar þú verslar ódýrt Opið Mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30 Laugardaga kl. 10-16 • Sunnudaga ld. 13-17 íslandsmótib 2. deiíd Akureyrarvöllu fimmtudaginn 13. júlí kl. 20. adidas^ Jrv '.Cv. '/•••* 1 m

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.