Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. júlí 1995 - DAGUR - 5 Einn, tveir, áfram hlaup! - Bjargvættir spretta úr spori Vinsældir skokksins sem almennings- íþróttar hafa vaxið jafn og þétt hin síðari ár og er Akureyri þar ekki undanskilin. í sumar hefur hraustur hópur kvenna og ins og vakið nokkra athygli sökum þess hve fjölmennur hann er. Hópurinn heitir * Bjargvættir og það eru hjónin Olafur Ólafsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir karla hlaupið rösklega um götur bæjar- sem eru leiðbeinendur hópsins. Ólafur og Aðalbjörg, sem reka líkamsræktarstöðina á Bjargi, byrjuðu fyrst með vísi af hlaupa- hóp sumarið 1993. „Hópurinn var eiginlega afsprengi af líkamsrækt- inni sem við stjómum og þá var þetta ekkert skipulagt. Síðan vatt þetta upp á sig og í fyrra var um 30-40 manna hópur að æfa. I vor auglýstum við formlega hlaupa- hóp og það voru 100 manns á hlaupum í júlí og líklega um 80- 90 sem eru enn að, þannig að þetta gengur vel,“ segir Ólafur. - En hvers konar fólk skyldi vera í Bjargvættum? „Við erum með fólk frá 15 ára og allt upp í 54-55 ára gamalt. Það er sorglegt aö segja frá því en það er líklega um 95% kvenfólk. Við karlmenn erum þannig að í hugan- um erum við eins og við séum tví- tugir alveg fram til fimmtugs,“ segir Ólafur og finnst greinilega að kynbræður sínir mættu vera duglegri að dusta rykið af hlaupa- skónum. Stefnt á almenningshlaupin Ólafur segir að þau hafi ákveðiö strax í upphafi að vera ekki með gönguhóp heldur hreinan hlaupa- hóp og æfa með almenningshlaup- in í huga. „Innan um er samt nátt- úrulega fólk sem er bara að hugsa um heilsurækt og hefur ekki áhuga á að vera neitt í aimenn- ingshlaupunum. En oft vill það verða þannig að fólk leiðist út í það með tímanum þegar það fmn- ur hvernig því gengur enda eru al- menningshlaup náttúrulega aðal- lega fyrir trimmara og þá sem eru í hreyfingu en ekki endilega fyrir keppnismenn.“ - Hvað ætla margir að taka þátt Erfítt en gott María Pétursdóttir byrjaði að hlaupa meó Bjargvættum í júní. „Ég hef aldrei á ævinni hlaupið áður og ætlaði bara að labba en svo hlaupa alllir hér.“ Hópurinn æfir 3-4 sinnum í viku og segist María reyna að mæta eins oft og hún geti. Stundum hlaupi hún 5-6 km en stundum er hlaupið styttra og gerðar leikfimisæfmgar á eftir. María ætlar ekki í Akureyrar- maraþonið þar sem hún veróur í Reykjavík. Én hversvegna tók hún sig til og fór að hlaupa? „Bara til að hreyfa mig og vera úti. Ég er í þessu sem leikfimi en ekki til að keppa og mér finnst þetta gott en einnig erfitt. Ég finn mikinn mun á mér og svo er þetta gaman, sér- staklega þegar maður er búin því þá fyllist maður vellíðan.“ AI í Akureyrarmaraþoninu? „Ég hugsa að það verði milli 50-60 manns. Við vorum með rétt um 30-40 í fyrra og um 30 fóru í Reykjavíkurmaraþonió." Ólafur segir að Bjargvættir sé einn af nokkrum hlaupahópum í bænum, en hann sé sýnu stærstur og sennilega með stærri hlaupa- hópum á landinu. En hvaða kosti hefur það að hlaupa í hóp fremur en einn? „Þú hefur leiðbeinendur með reynslu. Ég er íþróttakennari og hef verið í kring um frjálsar íþrótt- ir í tuttugu ár. Aðalheiður, konan mín, er búin að vera í þessu nærri frá því hún fór að ganga, keppti og var í landsliðinu í millivega- lengdarhlaupum,“ segir Ólafur en telur einnig að mjög margir komi í hópinn því hann setji ákveðna pressu og ýti á menn að mæta. Þegar fólkið sé farið að kynnast innbyrðis verði félagsskapurinn þó mikilvægari og þá sé hvatinn ekki síður aó mæta á æfingu bara til að hitta allt liðið og og hlaupa með því enda andinn í hópnum mjög góður. Hægt, hægt og hægt - Er eitthvað sérstakt sem þeir sem eru aó byrja að skokka ættu að hafa í huga? „Það sem þarf helst að hafa í huga er að fara nógu varlega af stað. Ég segi alltaf við hlaupara sem ég er að byrja með að það séu bara þrjár reglur: hægt, hægt og hægt. Það sem ég rek mig á er að maður þarf yfirleitt að halda að- eins aftur af fólki. Það er eitthvað í hugum fólks sem segir því að það að hlaupa hljóti að vera eitt- hvað ógurlega tignarlegt og hratt en skokk er náttúrulega bara mjög hægt og rólegt. Hraðinn kemur af sjálfum sér. Nokkrar konur sem byrjuðu í vor voru alveg ákveðnar í að þær ætluðu bara að ganga. Þær hafa alveg skipt um skoðun síðan. Við byrjuðum fyrsta tímann á einum og hálfum kílómetra og skokkuðum hægt. Þessar konur eru famar að fara 7-8 kílómetra og það eru sex vikur síðan. Þannig að þetta er mjög fljótt aö koma.“ AI A „Ég flnn mikinn mun á mér eft- ^ ir að ég byrjaði að hlaupa,“ segir María. Ætlar í hálft maraþon um helgina Lúðvík Áskelsson er einn af 1992. Lúövík segist hlaupa 3-4 lengra komnum í hópnum, hefur sinnum í viku, oftast 5-10 km í verið á hlaupum síðan í janúar senn. „Síðustu tvö skiptin hef ég reyndar hlaupið lengra, 18 og 17 kílómetra en ég stefni á 21 kíló- metra í Akureyrarmaraþoninu um helgina.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Lúð- vík tekur þátt í hálfmaraþoni en frá áramótum hefur hann þó tekió þátt í nokkuð mörgum almenn- ingshlaupum. í fyrra tók hann hvorki þátt í Ákureyrar- né Reykjavíkurmaraþoni en ætlar að bæta það upp í sumar með þátt- töku í báðum hlaupunum. En hvað er það sem dregur Lúðvík af stað út að hlaupa? „Það er fyrst og fremst félagsskapurinn, þetta er gífurlega skemmtilegur hópur. Svo líður manni líka betur ef maður er í formi. En þetta er ofsalega gaman og vel þess virði.“ ◄ Lúðvík Áskelsson: „Þetta er gíf- urlega skemmtiiegur hópur.“ Hlaupagikkir á fullri ferð... ...og ekki má gleyma að gera æflngar eftir hlaupin. Myndir: AI IS m Lindin sími 461 3008 VOLVO Hjá B.K. bílaverkstæði Húsavík. Bíllinn verður hjá okkur næstu daga Komið, skoðið og reynsluakið. B.K. bílaverkstæði Garðarsbraut 48, Húsavík, sími 464 1060.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.