Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 22. júlí 1995 Ein stutt, ein löng - Mundu, sjö stafa símanúmer - gamli og nýi tíminn á Pósti og síma Fáu tökum við sem sjálfsagóari hlut en aó geta lyft tólinu af símanum og hringt heiminn á enda, og að fá póstinn okkar inn um bréfalúguna. Sjaldan leiöum vió hugann að því sem gerist innan fyrirtækisins, en í Noróurlandsumdæmi einu vinna hátt í tvö hundruð manns; vió afgreiðslu, útburð, flokkun, viðgerðir og hvaó sem nöfnum tjáir að nefna. Arió 1906 urðu tímamót í sögu samskipta á Islandi, en þá voru fyrstu símstöðvamar settar upp, meðal annars á Akureyri. Þriðja júní 1950 urðu aftur stór tímamót, þegar sjálfvirk sím- stöð var tekin í notkun á Akureyri en hún hefur þjónaó símnot- endum allar götur síðan þá. Nákvæmlega 45 árum seinna, upp á dag, uróu öll símanúmer sjö stafa og enn ein tímamót veróa í næstu viku, þegar síóustu tvö þúsund símanúmerin í umdæm- inu veróa stafræn. Gott að vinna hjá Póstí og síma Fjöldi fólks hefur unnió hjá Pósti og síma um áratuga skeið. Gísli J. Eyland stöóvarstjóri hefur þó trú- lega hæsta starfsaldurinn innan fyrirtækisins en hann hefur unnió þar síðan 1942, þá sextán ára gamall. Umdæmisstjórinn á Norð- urlandi, Arsæll Magnússon, fylgir fast á hæla honum en hann hóf störf 1947. Gísli hefur unnið sam- fleytt hjá fyrirtækinu síðan, en Ár- sæll sveik lit í eitt ár, þegar hann gegndi starfi verslunarstjóra í Reykjavík. Þeir hafa starfað á tveimur sviðum, Gísli í póstinum og Ár- sæll hjá símanum, en þó í dag sé þetta eitt og sama fyrirtækið og sviðin hafi haft starfsemi á sama stað síóan 1923, voru þau aðskilin til ársins 1978. Gísli byrjaði sem bréfberi, fyrst sem nokkurs konar verktaki hjá Guðmundi B. Ámasyni sem sá um útburð fyrir allan bæinn, en síðan formlega hjá Póstinum. Á þessum tíma var Guðmundur orðinn gam- all maóur og þurfti aðstoð, enda bar hann út á tveimur jafnfljótum. „Guðmundur fékk 250 krónur fyr- ir útburðinn og ég fékk 75 krónur af þeirri upphæð fyrir að aðstoóa hann. Þetta þóttu alveg gríðarlega miklir peningar á þessum tíma.“ Þegar Gísli hætti í bréfberastarf- inu fór hann að vinna í afgreiðsl- unni á pósthúsinu og svo lá leiðin smá saman upp mctorðastigann, þangaó til hann varð stöðvarstjóri árið 1980. Gísla hefur alltaf þótt gott að vinna hjá Pósti og síma, og segir það að hann er búinn að vera hjá fyrirtækinu í 53 ár allt sem segja þarf. Ársæll var lengst af hjá tækni- deild Pósts og síma í Reykjavík, síðast sem yfirdeildarstjóri línu- framkvæmda. Hann var orðinn vel kunnugur Akureyri og Norður- Reglur fyrir notk- un talfæranna (frá 1906) 1. Komið jafnskjótt að talfær- inu og hringt er. 2. Talið greinilega og hæfilega nærri inn í talopið, hagið röddinni eptir þeirri fjar- lægð, sem talað er í. 3. Haldió hlustaropi máltólsins fast aó eyranu, meöan á samtalinu stendur. Þegar tækið er eigi notað, skal það jafnan hanga á sínum stað. 4. Ef ekki er hægt að talast við vegna annmarka á samband- inu skal strax hringt af og stöðinni skýrt frá því. 5. Munið eptir að hringja af (hringt stutt og snöggt) þeg- ar samtali er lokið, því ann- ars er svo álitið, sem samtal- ið haldi áfram. 6. Notið helst ekki talsímann í þrumuveðri. Arsæll Magnússon og Gísli J. Eyland. landi löngu áður en hann flutti til Akureyrar til að taka við starfi umdæmisstjóra 1977, því sumrin 1948-’50 gisti hann í tjaldi nálægt þar sem Hagkaup stendur núna og vann við jarósímatengingar og -lagnir. Ársæll á góðar minningar frá þessum ferðum noróur. Flokk- urinn hans var á Akureyri frá júní fram í október, og kom fyrir að vatnið í vaskafatinu fraus á nótt; unni, þegar líða tók á haustið. í minningunni er þessi tími sveip- aóur dýrðarljóma, ekki síst vegna þess að hér kynntist Ársæll eigin- konu sinni. Síúnaskrááá... Margir hafa hringt 103 og fengið rödd í eyrað sem auðvelt var aó þekkja frá öllum öðrum, enda gekk hún undir nafninu „Konan á símanum" í vinahóp blaða- manns. Röddina á Jóhanna El- íasdóttir sem aldrei hefur verið kölluð annað en Lilla á Pósti og síma og fólk þar þarf aó hugsa sig um ef spurt er eftir Jóhönnu. Lilla hóf störf á símanum í byrjun ágúst 1947 og á því 48 ára starfsafmæli eftir nokkra daga; er ein af þeim elstu í starfí eins og Ársæll og Gísli. Hún læt- ur af störfum 1. september og verður þá örugglega skarð fyrir skildi. „Það er búió að vera gott aó vinna héma, annars hefði ég ekki verið svona lengi. Starfsandinn hefur alltaf verið alveg sérstakur og yfírmennimir góðir. Mér finnst þetta vera eins og fjöl- skyldan mín.“ Lilla segir að hún hafi eignast marga víni í gegnum símann áð- ur fyrr þegar þjónustan var pcr- sónulegri, stundum án þess einu sinni að vita hvað þeir hétu eða hvemig þeir litu út. Þetta vom fastakúnnar sem hringdu oft til að spjalla eða fá góð ráð. „Fólk hringdi oft ef það var í vandræð- um, og bar sig upp við okkur um allt mögulegt Maður var bara orðinn hálfgerður sálusorgari." I frétt sem birtist í Degi 6. ágúst 1981 segir í fyrirsögn: „Póstur og sími tölvuvæðist - Hætta að veita upplýsingar um veðurfar og kökugerð“ og lýsir þessi fyrirsögn vel upplýsinga- deildinni fyrir tölvuvæóinguna. Lilla við símann. Hún iætur af störfum innan skamms og verður þá ör- ugglcga skarð fyrir skildi. Eftirsjá að sveitasúnanum Margar sögur eru til um gömlu sveitasímana og hversu vinsælt var að vera „inná“. Ekki er mjög Iangt síðan síðustu sveitasímunum var lagt, þeir síðustu duttu út fyrir um tíu ár- um og söknuðu þeirra margir. Sérstaklega kvörtuðu menn undan því að geta ekki haft margra manna fund í síma, en með tilkomu stafræna kerfisins fá þeir nokkra sárabót, þar sem er þriggja manna tal. Fræg er sagan af konu nokkurri sem var þekkt fyrir að vera „inná“. Eitt sinn voru tvö að tala saman og má vel gera sér í hugarlund aó eitt- hvað sem ekki var ætlað allra eyrum hafi farið þar á milli; í það minnsta sagði annað þeirra skyndilega: „Heyrðu, við skul- um ekki segja of mikið, þú veist að kerlingin hangir alltaf inná.“ Mikið hneykslunarhljóð heyrðist á línunni og var hróp- að: „Þaó er ansvítans lygi, ég er ekkert inná!!!“ Texti: Svanhildur Hóim Valsdóttir Myndir: Björn Gíslason Fröken sjálívirknin Það þótti mikill viðburður þeg- ar sjálfvirka símstöðin var tek- in í gagnið á Akureyri, laugar- daginn 3. júní 1950. í Degi var sagt frá nýju símstöðinni og vinkonu hennar, „fröken klukku", sem varð feikilega vinsæl. í Fokdreifum, sem var spjalldálkur blaðsins, sagði um fröken klukku: „Síödegis á sunnudag hafði „frökenin" fengið 1640 upphringingar og munu fáar dömur eftirspurðari. Sumir segja: „Þakka yöur fyrir, fröken“ og hneigja sig, er þeir hafa fengið aó vita hvað klukk- an er, en vafasamt er að frök- enin heyri það.“ Fröken klukka hætti störfum fyrir nokkrum áruni, og er nú til húsa ofan í kassa í kjallara símstöövarinnar. „Halló, halló“ Ýmsir áttu erfitt með að átta sig á nýjá sjálfvirka kerfinu og man Ársæll Magnússon um- dæmisstjóri vel eftir vandræö- um þeirra. „Þegar handvirka kerfinu var skipt út fyrir það sjálfvirka lentu sumir í vand- ræðum. Yfirleitt var það eldra fólk sem var útlært í gömlu að- ferðinni; að snúa fyrst sveifinni til að fá samband við miöstöó, lyfta sióan tólinu, og biðja um númer. Þetta fólk reyndi að beita gömlu aðferöinni á nýju símana, sneri fyrst skífunni til aó velja símanúmer, lyfti síðan af og sagði „Halló, halló“ og skildi hreint ekkert í því hvers vegna það fékk ekki samband. Símamenn uróu að fylgjast vandlega með þessu fólki og kenna því nýju aðferðina og meðal annars voru leióbeining- ar látnar fylgja símunum, þar sem rakið var skref fyrir skref hvemig hringja átti úr þessum nýtísku apparötum! Egill Egiisson, starfsmaður í „bilun“. Hann hefur unnið hjá Pósti og síma síðan 1967. Bilun Margt breytist með tilkomu staf- ræna kerfisins og meðal annars starf bilanadeildar. Þar er tekið við kvörtunum og bilanatilkynn- ingum og hingað til hefur starfið þar verió handvirkt. Ef kvörtun kom vegna ákveðins síma var far- ið inn á línu, og mælt. Línunni var beinlínis stungið í samband við mælitæki, en með stafræna kerf- inu er starfiö oróið einfaldara og fljótlegra. Símanúmerið er slegið inn í tölvu og þar getur starfsmað- ur um leið séð ástandið á línunni, teljarastöðu og þá þjónustu sem er í notkun. Á bilun á Akureyri er svarað frá kl. 8-6 en eftir það í Reykja- vík, þannig að hægt er að koma kvörtunum áleiðis allan sólar- hringinn. Kvartanir sem berast til Reykjavíkur eru myndsendar jafn- óðum til Akureyrar og kannaðar strax næsta morgun. Nú er heldur ekki lengur hægt að fara inn á línu og hlusta en það var nú hvort sem er stranglega bannað og allir þeir sem vinna í bilanadeildinni hafa undirritað skriflegan þagnareið. Auóvelt er þó að gera sér í hugarlund að áköfustu kjaftakerlingar bæjarins hefðu viljað gefa mikiö til að komast í vinnu á bilun, en hver fer nú að verða síðastur til þess þar sem allt verður orðið lokað og læst í næstu viku, þegar síðustu símanúmerin verða stafræn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.