Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 22. júlí 1995
Bæjar-
skiltið!
Lifandi auglýsing
sem hittir
beint í mark.
Ódýrari en þig grunar.
Uppl. í símum
462 1848 og 461 2080
EKKJA
Draupnisgötu 5,603 Akureyri
Si'mi 462 3002, fax 462 4581
Bænduri
Verktakari
Við eigum til á lager
úrval búvéla- og vinnuvéla-
dekkja ó hagstæðu verði,
beint frá framleiðanda.
(ISO 9002 gæðastaSall)
ZSALUANŒ
Ærmm JO+ÍckJt*Zt AJcurtfjyrJ
Munið
söfnun Lions
fyrir endurhœfmgarlaug
í Kristnesi
Söfnunarreikningur
í Sparisjóði
Glœsibœjarhrepps
á Akureyri
nr. 1170-05-4018 98
ORÐ
DAGSINS
462 1840
Kajakmót Flólu Vd-
serðarsonar um
verslunarmannahelgma
Sveitahótelið Flókalundi í Vatns-
firði í samvinnu við þrjá einstak-
linga, sem eru reyndir í siglingum
og ferðalögum á sjókajökum, efna
til kajakmóts Flóka Vilgerðarson-
ar um verslunarmannahelgina,
dagana 4.-7. ágúst nk.
Þetta er í fyrsta skipti sem efnt
er til sjókajakmóts á íslandi. Þeim
sem ekki geta komið með eigin
sjókajak gefst kostur á að leigja
eins og tveggja manna báta og er
þá allur aukabúnaður innifalinn,
leigugjald er kr. 500 fyrir eina
klukkustun og kr. 1500 fyrir dags-
ferð. Hótel Flókalundur býður
mótsgestum 20% afslátt af gist-
ingu í þrjár nætur og verður einnig
boðið upp á sérstakan kajakmat-
seðil í tilefni helgarinnar. Tjald-
svæðið í Vatnsfirði er einnig opið
meðan á mótinu stendur. Vestur í
Vatnsfjörð er hægt að komast ak-
andi landleiðina eða með Breiða-
fjarðarferjunni Baldri sem leggur
upp frá Stykkishólmi í Brjánslæk
með viðkomu í Flatey.
Dagskrá kajakmótsins er eftir-
farandi:
Föstudagur 4. ágúst
Kl. 19.30 - Flókalaug - öryggi á
sjókajak. Stuttnámskeið í félaga-
björgun fyrir byrjendur sem
lengra komna. Farið yfir nokkur
öryggisatriði og björgun á sjó.
Umsjón hefur Óttar Kjartansson
kajakleiðbeinandi hjá Ferðamönn-
um. Verð kr. 500.
Kl. 23.30 Flókalundur - mótssetn-
ing.
Laugardagur 5. ágúst
Kl. 9 - Róið í úteyjar og sker.
Dagsferð um Vatnsfjörð um eyjar
og sker Breiðafjarðar. Gott tæki-
færi til ljósmyndunar enda mikið
dýralíf, selir og fuglar og mikil
náttúrufegurð. Ferðin er opin öll-
um 12 ára og eldri (sundkunnátta
nauðsynleg). Þátttökugjald er kr.
2000 - með léttum veitingum í út-
eyjum. Bátaleiga er möguleg.
KI. 23 - Varðeldur í fjörunni við
Flókalund.
Kajakmót Flóka Vilgeröarsonar um verslunarmannahelgina er fyrsta sjó-
kajakmótið sem efnt er til hér á landi.
Sunnudagur 6.ágúst
Kl. 13 - Kappleikar. Keppt í ýms-
um greinum á sjókajak með gott
grín og keppnisskapið að leiðar-
ljósi. Góð tilþrif í hávegum höfð
enda hafa áhorfendur úrslitavaldið
í einkunnagjöf. Þátttökugjald kr.
1000. Bátaleiga möguleg.
Kl. 21.30 - Á sjókajak með strönd-
um íslands. Erindi um sjókajak-
ferðir og skemmtileg svæði til
ferðalaga. Baldvin Kristjánsson hjá
Ferðamönnum kynnir nokkrar
ferðir og sýnir myndir.
Kl. 22.30 - Rabbstund og móts-
iok. Tækifæri til að setjast niður
og fara yfir mótið, verðlaun veitt
fyrir kappleika og að lokum móts-
slit.
Mánudagur 7. ágúst
Opin dagskrá. Bátaleiga og stutt-
ferðir. óþh
Fjölbreytt dagskrá á Vopna-
Qarðardögum 29. júIí-6. ágúst
Hinn 29. júlí næstkomandi hefjast
Vopnafjarðardagar og munu þeir
standa til 6. ágúst. Að vanda verð-
ur boðið upp á fjölbreytta dagskrá
í tali og tónum auk ýmiskonar
skemmtana og dægradvalar við
flestra hæfi og fyrir alla fjölskyld-
una.
Dagskráin hefst 29. júlí kl.
16.30 með opnun sýningar á verk-
um Sigfúsar Halldórssonar list-
málara og tónskálds. Listamaður-
inn mun leika frumsamin lög við
opnunina, en einnig mun Frið-
björn Jónsson syngja nokkur lög
eftir Sigfús. Sýningin verður opin
til 6. ágústfrá lOtil 12 og 16-19.
Um kvöldið verður Sagna-
meistarakvöld í félagsheimilunu
Miðgarði. Þar munu nokkrir kunn-
ir sagnamenn segja skemmtisögur
af sér og öðrum.
Deginum lýkur síðan með
sveitaballi í Syðri-Vík.
Þann 30. júlí verður haldin há-
tíð í tilefni 150 ára afmælis
Skeggjastaðakirkju í Bakkafirði.
Þar verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá frá kl. 10 til 22.
Mánudaginn 31. júlí verður far-
ið í gönguferð á sjónvarpshæð í
fylgd leiðsögumanns, en af hæð-
inni er einstakt útsýni yfir þorpið
og nágrenni þess. Einnig er hægt
að komast í hestaferð undir leið-
sögn frá Syðri-Vík.
Þriðjudaginn 1. ágúst verður
boðið upp á gönguferð meðfram
Gljúfursá undir Ieiðsögn. Auk
þess er hægt að komast í hestaferð
undir leiðsögn frá Syðri-Vík.
Miðvikudaginn 2. ágúst verður
farið í siglingu í Fuglabjargarnes
og Skjólfjörur. Þá er hægt að
komast í hestaferð undir leiðsögn
frá Syðri-Vík.
Fimmtudaginn 3. ágúst. „Með
íslenskuna að vopni“. Hagyrð-
ingamót undir stjórn Ómars Ragn-
arssonar. Þátttakendur eru allir
helstu hagyrðingar landsins, svo
sem Hákon Aðalsteinsson, Elías
Kjaran og Jón í Skollagróf.
Þann 4. ágúst hefst Vopnaskak
með fjölskylduhátíð í Hafnar-
byggð og þar verður fjölbreytt
dagskrá. Um kvöldið verður ung-
lingadansleikur í Miklagarði og
loks almennur dansleikur á sama
stað. Hljómsveitirnar Sixties og
Bananas leika á unglingadans-
leiknum en Sixties á almenna
dansleiknum.
5. ágúst verður Burstafellsdag-
ur með lifandi safni frá kl. 14 til
17. Gestum er gefinn kostur á að
skyggnast til fortíðar og kynnast
gömlum vinnubrögðum og heimil-
isstörfum svona eins og þegar
amma var ung. Þá verða fjöl-
skyldutónleikar með Stjórninni í
Miklagarði og loks dansleikur þar
sem Stjórnin leikur fyrir dansi.
6. ágúst fer fram hið áriega
opna sjóstangveiðimót Hótels
Tanga. Síðar um daginn fer fram
lokahátíð Vopnaskaks á fjörunni í
Sandvík. Endahnúturinn verður
síðan hnýttur á dansleik í Mikla-
garði með Páli Óskari og Millj-
ónamæringunum.
Forsala á dansleikinn veðrur í
söluskálum Esso og Shell. Einnig
er hægt að kaupa miða á öll 3
böllin um verslunarmannahelgina.
Gjafír í orgelsjóð Akureyrarkírkju
HLAÐBORÐSKAFFI
Við höfum heitt á könnunni
á sunnudaginn frá kl. 14.30
Allt heimabakað á fjölbreyttu hlaðborði
Verið velkominn!
Gistiheimilið Engimýri
öxnadal, sími 462 6838
30. mars 1995 Margrét Bóasdóttir 5.000 Verkfræðistofa Norðurlands 10.000
Til minningar um Jón Þórarinsson Arkitekta- og verkfræðistofa Bjöm Rögnvaldsson -
10.000 Hauks hf. 40.000 tannlæknastofa 10.000
15. maí 1995 Máni hf. trésmiðja 5.000 Sigríður Olgeirsdóttir 5.000
N.N. 5.000 Ásprent hf. 5.000
14. júlí 1995 Fyrirtæki Lögmannastofan hf. 5.000
Lúðvík Jónsson 60.000 Útgerðarfélag Akureyringa 1.500.000 Café Karolína 3.000
Sala á gömlum orgelpípum íslandsbanki 300.000 Guðmundur Heiðar Frímannsson 3.000
Matthias Gut 3.000 Ragnheiður Torfadóttir 2.500
N.N. 1.400 Fjáröflun Kórs Akureyrarkirkju Sigurlaug Vigfúsdóttir 2.500
Elías Óskarsson 5.000 Höldur hf. 25.000 Hrefna Jóhannesdóttir 2.500
Haraldur H. Thorlacíus 4.000 Tölvutæki-Bókval 20.000 Magnús Aðalbjömsson 2.500
Laufey Júlíusdóttir 2.000 Endurskoðun Akureyrar 10.000 Hannyrðaverslunin Hnotan 2.500
Jón Þórarinsson 3.000 Fasteignasalan hf. 10.000 Fríður Leósdóttir 2.500
Panschow 2.000 Viking hf. 10.000 Blómabúðin Laufás 2.500
Elvar Þrastarson 1.000 Höndin hf. 10.000 Sápubúðin Akureyri 2.000
Ragnhildur Hallgrímsdóttir 3.000 Alprent hf. 10.000 Helga Vilborg Pétursdóttir 2.000
Elisabeth Meier - Myder 2.000 Greifinn hf. 10.000 Hárgreiðslustofan Ena 1.000
Birgir Andrésson 1.500 Fatahreinsun Vigfúsar og Árna 10.000 Gluggatjaldaþjónustan 2.000
Göta Ehlich 2.000 Tryggingamiðstöðin hf. 10.000 Hárgreiðslustofan Snyrtihúsið 2.000
Páll Sólnes 1.500 Straumrás hf. 10.000
Per Jessen 1.000 Sandblástur og málmhúðun sf. 10.000 3.033.399
Fiðlarinn á þakinu 20.000 Bílasalan Stórholt 10.000
James Artur Feberg 500 Strýta hf. 10.000 Hér birtist í annað skipti í Degi
skrá yfir gefendur í orgelsjóð Ak-
ureyrarkirkju. Þeirra gefenda sem
áður hefur verið greint frá í blað-
inu er ekki getið hér.
Rétt er að geta þess að í orgeli
Akureyrarkirkju hafa verið 3100
pípur. Skipta þurfti um 200 pípur.
Við viðamiklar endurbætur fjölgar
röddum orgelsins um 4 og verða
pípumar þegar upp verður staðið
3394 talsins.
Akureyrarkirkja færir öllum
gefendum innilegar þakkir og bið-
ur blessunar Guðs.