Dagur - 22.07.1995, Side 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 22. júlí 1995 - DAGUR - 15
UMSIÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Rotaðist
í ruminu
Söngvari hljómsveitarinn-
ar Simply Red, MICK
HUCKMÁLL var svo
æstur þegar hann var í rúminu
með táningsstúlku að hann
rotaðist í látunum. Það segir
Michelle Mitelman, 19 ára
ljóska, sem hefur lýst sam-
bandi sínu við rokkarann í
smáatriðum fyrir lesendur
dagblaðs í Englandi. Hún seg-
ir að Mick hafi óseðjandi kyn-
hvöt og nokkrar skemmtilegar
sérþarfir. „Hann vildi að ég
stjómaði honum, festi hendur
hans við rúmstokkinn og setti
olnbogann að hálsi hans.
Hann vildi líka hafa smá átök
í rúminu og við löðrunguðum
hvort annað í atlotunum. Einu
sinni var hann svo æstur að
hann rotaði sjálfan sig þegar
hann stökk upp og rak höfuð-
ið í náttborðið við lendinguna.
Hann vaknaði morguninn eftir
og mundi ekkert hvað gerð-
ist.“
Mick Hucknall er ekki
beint glæsilegur á velli.
Heimitisíms
%ðurblökumaður
I yndin Batman Forever nýtur
mikilla vinsælda um þessar
I mundir og peningarnir streyma
í kassann. VAL KILMEK fer fyrir stjörnu-
prýddu leikaraliði og hefur tekið við af
Michael Keaton í hlutverki Leðurblöku-
mannsins. Hann segir að örlögin hafi komið
því þannig fyrir að hann fengi hlutverkið.
Kilmer segir að þegar hann var í Afríku til
að undirbúa aðra mynd hafi hann hringt í
umboðsmann sinn sem spurði hvort hann
hefði áhuga á hlutverkinu ef Keaton hafnaði
því. Því játaði Kilmer og fannst það nokkuð
skondið því skömmu áður hafði hann verið
staddur í helli í Afríku þar sem allt var mor-
andi í leðurblökum. Hann spurði því umb-
ann hvaða dag hann hefði fyrst verið orðað-
ur við hlutverkið og kom þá í ljós að sama
dag og Kilmer sá leðurblökur í fyrsta sinn
datt einhverjum stórjaxlinum í Hollywood í
hug að láta hann leika Leðurblökumanninn.
Val Kilmer þykir einkar snjall í hlutverki
Leöurblökumannsins og hefur aldrei
verið vinsælii en þessa dagana.
Svarar til saka
Söngkonan MADOMMA óttast að hafa fengið kynfæraherpes frá fyrrum kærasta sín-
um, körfuboltabolanum DEMMIS RODMAM- Madonnu varð órótt eftir að klappstýra
ein ákærði Rodman um að hafa haft óvarin kynmök við sig þrátt fyrir að hann hafi
vitað að hann væri smitberi sjúkdómsins. Klappstýran heitir Lisa Beth Judd og er tvítug.
Hún kynntist Rodman eitt sinn þegar hann kom með Iiði sínu til Atlanta þar sem hún dillaði
sér fyrir framan aðdáendur Atlanta Hawks. Rodman mætti fyrir dómstól í Atlanta fyrir
skömmu til að svara til saka. Lisa Beth segist hafa fengið sjúkdóminn í janúar 1993, þegar
hann var enn leikmaður Detroit Pistons. I vitnastúkunni talaði Rodman um samskipti sín
við gangstæða kynið og sagðist aðeins hafa verið með sex konum á undanförnum fimm ár-
um. Hann segist aldrei hafa haft sjúkdóminn og fékk lækni sér til fulltingis í þeim málum.
Dennis Rodman
og Madonna
á meðan allt
lék í lyndi.
Keanu Reeves þykir öllu snjallari kvikmynda-
leikari en bassaleikari en hann lætur það ekki
á sig fá.
A Brátt fara að hefjast tökur á myndinni Striptease þar sem Demi Moore
fer með aöalhlutverkið. Þegar er búið að gera veggspjald til að auglýsa
verkið þó svo myndin komi ekki fyrir manna sjónir fyrr en á næsta ári. I
síöustu viku var ráðinn mótleikari stúlkunnar og var það Armand Assante
sem varö fyrir valinu. Hann mun leika löggæslumann sem reynir að vernda
stripplinginn Demi eftir að hún veröur vitni aö morði. Þess ber að geta aö
Burt Reynolds fer einnig með stórt hlutverk í myndinni þó svo hann fái ekki
12 milljónir dollara fyrir vinnuna, líkt og Demi.
Björt framtíð
Hæstlaunuðu leikkonu veraldar, DEMI MOORE, er margt til lista lagt og nú
hefur hún fengið þá flugu í höfuðið að hún sé afburða söngkona. Eftir að
hafa brugðið sér á sviðið með eiginmanni sínum Bruce Willis og hljómsveit
hans, The Accelerators, sér hún fram á bjarta framtíð sem söngkona. Hún hefur nú
brugðið sér í söng- og píanókennslu og vonast til að geta unnið sér fast pláss í
hljómsveitinni, sem reyndar þykir ekki líkleg til stórafreka.
K
í Hottuulood
EAMU REEVES er ekki eins og flestar
hinar stjörnurnar í Hollywood. Al-
k.vanalegt er þegar leikari slær í gegn
og kemur sér í hóp þeirra hæstlaunuðu að
hann kaupi sér glæisvillu í Beverly Hills og
lifi ríkmannlega það sem eftir er ævinnar.
Keanu er þó ekki þannig því þessi þrítuga
stjarna er í raun heimilislaus milljóneri.
Þrátt fyrir að fá 7 milljónir dala fyrir hverja
mynd á hann sér hvergi fastan samanstað og
ferðast á milli hótela með helstu nauðsynjar
í ferðatösku. „Þetta bara æxlaðist svona,“
segir hann í viðtali við Vanity Fair. í tösk-
una sem hann hefur meðferðis hvert sem
hann fer er hann með nokkra boli, sokka,
nærbuxur, stakk, jakkaföt og útslitna skó.
Keanu hefur að mestu tekið sér hvíld frá
leiklistinni yfir sumartímann en í stað þess
að fara í frí ferðast hann um Japan með
hljósveit sinni, Dogstar.