Dagur - 01.08.1995, Blaðsíða 1
I <ÍÍSKLÍV
: \iísmá
78. árg. Akureyri, þriðjudagur 1. ágúst 1995 145. tölubiað
Sveitarstjórinn á Raufarhöfn ósáttur við ummæli samgönguráðherra í Degi:
Algjörlega óvið-
unandi ástand
Við hér fyrir austan erum
mjög undrandi á þessum
viðbrögðum samgönguráðherra.
Við erum hissa á því að okkur sé
gert að bíða þar til hringvegin-
um sé lokið, okkur finnst
ástandið vera orðið algjörlega
óviðunandi,“ sagði Gunnlaugur
A. Júlíusson, sveitarstjóri á
Raufarhöfn, vegna ummæla
Halldórs Blöndal, samgönguráð-
herra, í Degi sl. fostudag þar
sem hann sagði m.a. að röðin
kæmi að Norður-Þingeyjarsýslu
í vegaframkvæmdum þegar
hringveginum ljúki.
„I umræðu meðal þingmanna
kjördæmisins og sveitarstjórnar-
manna á níunda áratugnum var
talað um fjögur meginverkefni í
vegamálum. I fyrsta lagi lagning
vegar og slitlags milli Akureyrar
og Húsavíkur, Öxnadalsheiðin og
Öxnadalurinn, vegurinn út með
Eyjafirði vestanverðum til Ólafs-
fjarðar og síðan leiðin frá Húsavík
til Þórshafnar. Rætt var um að far-
ið yrði í þessa síðastnefndu leið
þegar hinir kaflarnir væru frá-
gengnir. Síðan er okkur tjáð það
núna að hringvegurinn sé aðalat-
riðið og við eigum að bíða þar til
að honum Ijúki.
Ég bendi á það að það er mikið
að gerast í vegaframkvæmdum
annars staðar á landinu jafnhliða
Söfnun hafin til
styrktar ábúendum aö
Þormóðsstöðum:
Hjónin
hyggjast flytja
búferlum
Hjónin Petrea Hallmanns-
dóttir og Egill Þórólfs-
son að Þormóðsstöðum í
Sölvadal í Eyjafirði hyggjast
flytja búferlum og stofna
heimili á öðrum stað. Sem
kunnugt er féll gífurleg aur-
skriða við bæinn 29. júní sl.
sem hreif með sér mikið af
túnunum að Þormóðsstöðum
og rafstöð bæjarins.
Fullyrða má að ófremdar-
ástand hafi ríkt í þeirra bústað
síðan en þau hafa jörðina og
kvótann á leigu. í gær, liðlega
mánuði eftir náttúruhamfarirn-
ar, voru ráðunautar staddir að
Þormóðsstöðum að meta
skemmdirnar.
Vinir þeirra hjóna og aðrir
sem leggja vilja þeim lið hafa
m.a. stofnað tékkareikning í
sparisjóði Vestur-Húnavatns-
sýslu númer 1533 þar sem
framlögum verður veitt mót-
taka en einnig er hægt að
koma framlögum til skila í öll-
um bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum landsins. GG
uppbyggingu hringvegarins og er
nærtækast að horfa til Vestfjarða í
þeim efnum. Fyrir utan Vest-
fjarðagöngin, sem eru sérverkefni,
er á stuttum tíma búið að byggja
brýr í Önundarfirði og Dýrafirði,
búið að Ieggja bundið slitlag á
leiðina milli Þingeyrar og Flateyr-
ar og sömuleiðis frá Bíldudal og í
Patreksfjarðarbotn. Þá er alltaf að
lengjast kaflinn með bundnu slit-
lagi á Barðaströndinni og vegur-
inn í austursýslunni hefur verið
bættur stórlega á undanfömum ár-
um. Þá er Gilsfjarðarbrú í burðar-
Iiðnum og mikið hefur verið fram-
kvæmt á leiðinni frá Brú og út á
Hólmavík. Með öðrum orðum;
það þarf engan hringveg til þess
að unnið sé að vegasamgöngum
og ég sætti mig ekki við að Norð-
ur-Þingeyingar eigi að bíða þar til
hringveginum er lokið,“ sagði
Gunnlaugur.
Hann sagði að Norður-Þingey-
ingar takist ekki á um forgangs-
Akureyri og nágrenni:
Methelgi
á tjald-
stæðum
Mikill fjöldi gisti á tjaldstæði
Akureyrar og tjaldstæðinu
Húsabrekku um helgina og hef-
ur aðsókn aldrei verið meiri í
sumar. Undanfarin ár hefur
fjöldinn á báðum tjaldstæðum
verið mestur um verslunar-
mannahelgina og því líklegt að
þessi helgi hafi einungis verið
upphitun fyrir næstu helgi.
Á tjaldstæði Akureyrar voru
um 530 manns hvora nótt um
helgina og að sögn Ingvars ívars-
sonar, tjaldvarðar, var þetta góð
helgi og róleg þrátt fyrir fjölda. í
fyrra um verslunarmannahelgi
gistu yfir 700 manns á svæðinu.
Þá eru ótaldir þeir sem voru inn í
Kjarna en þar var opið fjölskyldu-
tjaldstæði þessa helgi og svo verð-
ur einnig í ár. ívar segir að fjöl-
skyldutjaldstæðið í Kjarna verði
opnað á fimmtudag. „Við vísum
fjölskyldum þangað og þeim sem
vilja sofa því við getum ekki
ábyrgst svefnfrið hérna miðað við
hvernig þetta hefur verið síðustu
tvær verslunarmannahelgar. En
það verður örugglega mikil
stemmning."
Á Húsabrekku á Svalbarðs-
strönd var helgin líka methelgi
það sem af er sumars en um 180
manns gistu þar laugardagsnóttina
og fjöldinn var svipaður föstu-
dagsnóttina. Þar hefur verslunar-
mannahelgin verið sú fjölmenn-
asta síðustu sumur og því búist
við mörgum gestum næstu helgi
svo framarlega sem veðrið verði
þokkalegt. AI
röðun vegaframkvæmda innan
sýslunnar, stóra málið sé að ráðist
verði sem fyrst í framkvæmdir.
„Það má nefna tvo einkar slæma
kafla; annars vegar Tjörnesveginn
og hins vegar Brekknaheiði milli
Bakkafjarðar og Þórshafnar. Á
sínum tíma var búið að veita fjár-
munum í Brekknaheiðina en þeir
síðan færðir í aðrar framkvæmdir.
Ég fullyrði að í þessu máli sem
mörgum öðrum virðist atkvæða-
magnið telja,“ sagði Gunniaugur
A. Júlíusson. óþh
Ágústa Gunnlaugsdóttir
100 ára í dag
Ágústa Gunnlaugsdóttir, sem býr nú á Hlíö - dvalarheimili aldraöra á Ak-
ureyri, er hundrað ára í dag. Ágústa er vel hress og lék á alls oddi á niöja-
móti sem efnt var til sl. laugardag á Svalbaröseyri, en þar komu saman af-
komendur hennar og eiginmanns hennar, Árna Valdemarssonar, sem nú er
látinn. Meðfylgjandi mynd af Ágústu var tekin viö þaö tækifæri. Á afmælis-
daginn veröur afmæliskafTi á Hlíö. Dagur sendir Ágústu árnaöaróskir á ald-
arafmælinu. Á blaösíöu 10 í blaöinu í dag er frásögn í máli og myndum af
niöjamótinu á Svalbaröseyri. óþh/Mynd: BG.
Mývatnssveit:
Harður arekstur
- þrennt flutt á sjúkrahús
Það fór betur en á horfðist í
hörðum árekstri tvcggja
bfla á afleggjaranum að Heiði í
Mývatnssveit sl. laugardag.
Þrennt var í bflunum og voru
þau öll flutt til skoðunar á
sjúkrahúsið á Húsavík, tvennt
fékk síðan að fara heim en
kona var flutt á sjúkrahúsið á
Akureyri. Eftir frekari rann-
sókn kom f ljós að um slæmt
mar og skrámur var að ræða.
Áreksturinn varð á blindhæð
við ristarhlið. Bflarnir eru ónýtir
eða mjög illa skemmdir. IM
Árni Rúnar Magnússon, starfs-
maöur KEA-Nettó, setur lamba-
kjöt á lágmarksveröi i kæliborð-
iö. Mynd: BG
Mun meiri
lambakjöts-
birgðir
en í fyrra
T ambakjötsbirgðir í land-
.L/inu eru nú umtalsvert
meiri en á sama tíma í fyrra.
Þann 1. júlí sl. voru birgðir af
dilkakjöti 3.392 tonn og þá
voru óseld 527 tonn af kjöti
af fullorðnu. Samtals voru
því kindakjötsbirgðir 3.919
tonn en sl. haust komu 8.700-
8.800 tonn á markað. Því
voru enn tæp 45% af því
kjöti óseld þann 1. júlí, þegar
rúmir tveir mánuðir eru í að
nýtt kjöt fari að koma á
markað. Miðað við sama
tíma í fyrra eru birgðir af
dilkakjöti nú 33% meiri en
19% meiri í kindakjöti.
Jón Ragnar Bjömsson, hjá
Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins, sagði menn ekki vera
farna að spá alvarlega í hvað
mikið af kjöti kemur á markað
í haust, en þar geta breytingar
á fallþunga dilka valdið nokkr-
um sveiflum frá ári til árs.
Hann sagðist ekki vita um sér-
stakar söluherferðir á næstunni
til að minnka birgðir, en í sum-
ar hefur talsvert verið í gangi í
þeim efnum. Eins er alltaf ein-
hver útflutningur í gangi og í
júní fóru tæp 77 tonn erlendis.
Salan innanlands var 702 tonn
í júní sem er ívið minna en í
fyrra. Salan á 12 mánaða tíma-
bili er rétt rúm 7.000 tonn. HA
Harður
árekstur á
Melrakkasléttu
Fjórir voru fluttir til læknis á
Raufarhöfn eftir umferðar-
óhapp á Sléttu sl. fimmtudag.
Harður árekstur varð er fólks-
bíll og lítill pallbíll skullu saman.
Fólkið hlaut ekki alvarleg meiðsli
en fólksbíllinn skemmdist mikið.
Pallbíllinn var á öfugum vegar-
helmingi þegar óhappið varð þar
sem ökumaðurinn var upptekinn
við náttúruskoðun. IM