Dagur - 01.08.1995, Qupperneq 11
VEIÐIKLÓ
Við Æðarfossa
Veiðistaðirnir eru rnargir fallegir og hægt að taka undir með veiðimönnum að náttúran er ekki síður aðdráttarafl
ánna en veiðivonin. Hér sést Sigurður Hermannsson á leið út í Laxá í Aðaldal í síðustu viku á fallegum stað við Æð-
arfossa.
Laxveiði:
Tuttugu á dag í
Hofsá í Vopnafírði
Veiði hefur verið góð í Hofsá í
Vopnafirði síðustu dagana og seg-
ir Daniel Lee Davids, leiðsögu-
maður í ánni, að þar á land komi
að jafnaði tuttugu fiskar á dag.
Alls eru komnir 250 fiskar úr ánni
og er sá stærsti 18 pund en smá-
fiskur er fyrirferðamikill í veið-
inni. „Jú, þetta er mikið betra en
hefur verið í sumar,“ sagði Daniel.
Sama uppsveifla hefur ekki
skilað sér í nágrannaá Hofsár,
Selá. Nú munar 100 fiskum á án-
um en fyrir hálfum mánuði var
veiðin svipuð. Samkvæmt upplýs-
ingum sem fengust í veiðihúsinu
Hvammsgerði virtist þó heldur
lifna yfir veiðinni um helgina en
aftur á móti var hún síðri í gær.
Dagamunur í Aðaldal
„Þetta mjakast hægt en þó,“ sagði
Þórunn Alfreðsdóttir í veiðihúsinu
Vökuholti við Laxá í Aðaldal þeg-
ar Dagur hafði samband þangað.
Hún sagði að dagamunur hafi ver-
ið á veiðinni en það jákvæða segir
hún vera að veiðin sé jafnt á efri
sem á neðri svæðunum. Enginn
veiðistaður standi því öðrum
framar.
Fnjóskáin með seinna móti
Bleikja er byrjuð að veiðast í
Fnjóská en það er töluvert seinna
en í fyrra. Að sögn Páls Pálssonar
hjá versluninni Veiðisporti á Ak-
ureyri hefur laxveiðin verið lítil
það sem af er sumri og virðist sem
áin sé í heild mun seinni til en áð-
ur. Svipaða sögu er að segja af sil-
ungsveiðinni í Eyjafjarðará og
Hörgá. Alla jafna er orðið líflegt á
þessum tíma en stóra spurningin
nú er sú hvort síðsumarið verði
þeim mun bera í ár. JÓH
Blanda:
Félagar í Flugunni á Akureyri
eru ánægðir með það sem af er
fyrsta af þremur veiðitímabilum
sem þeir sömdu um við veiði-
réttarhafa ( Blöndu fyrir þetta
sumar. Veiðin hefur verið góð í
ánni og nú þegar er komið meira
af efra veiðisvæðinu en allt
veiðitímabilið í fyrra og er þó
besti veiðitíminn eftir, sam-
kvæmt því sem heimamenn
segja.
Veiðifélagið Flugan á Akur-
eyri hefur undanfarin ár verið
með Ormarsá á leigu en fyrir
veiðitímabilið skipti félagið yfír
í Blöndu og hafa félagar spreytt
sig þar í sumar. Karl Magnús-
son, einn Flugumanna, segir alla
mjög káta með veiðina í Blöndu
og persónulega segist hann
ánægður með að veiða þar.
Veiðin er nú nálægt 500 fiskum
og þar af eru tæpir 400 á neðra
svæðinu.
„Það komu ekki nema um
300 á fyrsta svæðinu í (yrra og
núna er komið jafn mikið á efra
svæðinu eins og í allt fyrrasumar
þannig að við getum verið
ánægðir með þetta. Ekki síst
þegar besti mánuðrinn er eftir á
efra svæðinu,“ sagði Karl en þar
verður veitt til 20. september en
5. september á neðra svæðinu.
Eins og gefur að skilja gefur
flugan minnst í Blöndu enda áin
oft á tíðum mikið lituð. Helsti
árangurinn í flugunni hefur
náðst með túbu en annars er
veitt með maðk og spón. JÓH
Þriðjudagur 1. ágúst 1995 - DAGUR - 11
Allt fyrir
veiðimanninn
MITCHELL
j^Abu
Garcia
Daiwa
Opið á laugardögum
ÆM
SPORT hf.
Kaupvangsstræti 21
Sími 96-22275
Veiðileyfi
Laxá í Aðaldal
Múlatorfa
Staðatorfa
Fnjóská
Eyjafjarðará
Hörgá
Reykjadalsá
Húseyjarkvísl
Presthvammur
Blanda
Litlá í Kelduhverfi:
Hrafhhildur með
15 punda urriöa
Fimmtán punda urriði veiddist á
dögunum í Litlá í Kelduhverfi og
er það stærsti silungurinn sem þar
hefur veiðst í sumar. Það var
Hrafnhildur Þorleifsdóttir á Þórs-
höfn sem landaði þessu flykki sem
kemst á blað meðal þeirra stærstu
sem komið hafa úr ánni.
Margrét Þórarinsdóttir í Lauf-
ási í Kelduhverfi segir að byrjunin
í ánni hafi lofað góðu en síðan
kom daufur kafli í lok júní og
byrjun júlímánaðar. Að undan-
förnu hefur lifnað yfir veiðinni á
ný og gefur það vonir um að síðari
híuti sumarsins verði góður.
Stærstu fiskarnir sem hafa
komið úr Litlánni eru þrír ríflega
19 punda urriðar og tveir 17
punda fiskar hafa komið. Stærstur
hluti veiðinnar er samt á bilinu 2-
3 pund.
Litláin gaf um 750. fiska í fyrra
og þar af voru 13 laxar. Nú þegar
eru nokkrir laxar komnir úr ánni,
t.d. kom einn 15 punda á dögun-
um. Margrét segir suma veiði-
menn afskaplega hrifna af því að
setja í lax í ánni en aðrir kjósi
heldur glímu við væna urriða.
Vöðlur
Spúnar
Hjól
Flugur
Maðkar
rfy j 3 l
1 llyjjl ; i ff; SÁ Wf \