Dagur - 01.08.1995, Síða 16
Reykjahlíðarskóli
í Mývatnssveit:
Ein umsókn
um skóla-
stjórastöðuna
Umsóknarfrestur um stöðu
skólastjóra í Reykjahlíðar-
skóla í Mývatnssveit rann út á
fimmtudaginn í síðustu viku, en
fresturinn hafði þá verið fram-
lengdur einu sinni.
„Það verður fjallað um málið á
fundi skólanefndar í kvöld“, sagði
Hinrik Ami Bóasson, formaður
skólanefndar Skútustaöahrepps í
gær, en hann vildi að svo stöddu
ekki gefa neinar upplýsingar.
Að sögn Trausta Þorsteinsson-
ar, fræðslustjóra Norðurlands
eystra, hafði einungis ein umsókn
borist þegar umsóknarfresturinn
rann út og því var ákveðið að
framlengja hann. Umsækjandinn
dró þá umsókn sína til baka, en
önnur barst frá Hólmfríði Guð-
mundsdóttur, sérkennara við Þela-
merkurskóla.
Hvort skólanefnd nær sam-
stöðu um að ráða Hólmfríði verð-
ur trúlega ljóst í dag. shv
Blönduós:
12 ára gamall
ökumaður
á leiö til
Reykjavíkur
Um hádegisbil á laugar-
dag lenti lögreglan á
Blönduósi í eltingarleik við
heldur ungan ökumann. For-
saga málsins er sú að 12 ára
drengur sem verið hafði í vist
á bæ skammt frá Blönduósi
var farið að lengja eftir að
komast heim til höfuðborgar-
innar og greip á það ráð að
taka gamlan afskráðan
rússajeppa traustataki.
Drengnum tókst að aka um
30 km. áleiðis til Reykjavíkur
áóur en lögreglunni, með góðri
hjálp vegfarenda tókst loks að
stöðva aksturinn. Ekki var þó
eltingaleiknum þar með lokið
því stráksi tók á rás út í móa
þar sem loks tókst að koma
höndum yfir hann.
Að öðru leyti er það aó
segja að mikil umferð var á
Norðurlandi um helgina en
gekk hún þó stórslysalaust fyr-
ir sig. A Blönduósi voru þó um
50 ökumenn teknir fyrir of
hraðan akstur. Sá er greiðast
ók mældist á um 146 km.
hraða rétt sunnan við Blöndu-
ós. GH
Samkvæmt _ veðurspá frá
Veðurstofu íslands er útlit
fyrir að í dag þykkni upp með
sunnankalda norðvestan-
lands. Búast má við rigningu
í kvöld en nokkuð hlýtt verð-
ur í veðri eða allt að 17 stig.
Norðaustanlands verður
sunnan- og suðvestan gola
eða kaldi og skýjað með
köflum. Hitastigið helst áfram
nokkuð hátt eða 12-19 stig.
VEÐRIÐ
Allt fyrir garðinn
Áhafnaskipti
meö þotuflugi:
íslenskir
sjómenn
til Nýfundna-
lands með
Rugleiðaþotu
Fjörutíu íslenskir sjómenn
stíga í kvöld um borð í Bo-
eing-737 þotu Flugleiða og
halda til St. Johns á Ný-
fundnalandi. Ekki er um
skemmtiferð að ræða heldur
er um áhafnaskipti að ræða á
Qórum íslenskum togurum að
ræða sem stunda rækjuveiðar
á Flæmska hattinum við Ný-
fundnaland.
Flugvélin fer frá Keflavíkur-
ílugvelli klukkan 20.30 og er
væntanleg aftur á miðvikudags-
morgun klukkan 07.00 með
álíka fjölda sjómanna sem leyst-
ir eru af með þessum hætti. Um
er að ræða áhafnir á togarana
Dalborgu EA-317 og Blika EA-
12 frá Dalvík, Ottó Wathne NS-
90 frá Seyðisfirði og Andvara
VE-100 frá Vestmannaeyjum.
Það er Snorri Snorrason, út-
gerðarmaður Dalborgar EA sem
á frumkvæðið að þessari aðferð
við áhafnaskiptin, en ekki er tal-
ið hagkvæmt að sigla heim til
löndunar og áhafnaskipta vegna
fjarlægðar og landa skipin því
yfirleitt í Argencia á Nýfundna-
landi.
Auk áðumefndra skipa eru
Svalbakur __ EA-2, Hákon ÞH-
250, Jöfur ÍS-172, Klara Sveins-
dóttir SU-50, Blængur NK-117,
Hafrafell ÍS-222, Amames SI-
70, Sunna SI- 67, Helga II RE-
373, Sigurfari ÓF-30 og Pétur
Jónsson RE-69 á rækjuveiðum í
Flæmska hattinum. Brimir kom
til landsins á sunnudag. GG
IJapan
Stefán, en fyrir liggur að vinna
stærri sendingu af þurrkaðri loðnu
hjá Stöplafiski. Ef sölusamningar
takast mun framleiðsla geta hafist
fyrir alvöru eftir næstu vetrarver-
tíö, en fyrr veróur hráefni ekki fá-
anlegt.
Um fjórir starfsmenn eru hjá
Stöplafiski sem starfrækir harð-
fiskvinnslu. Stígandi sala er í
harðfiskinum sem nú er farið að
dreifa á útsölustaði víða um land.
IM
Hafliði Hallgrímsson, tónlistar- og myndlistarmaður, ræðir hér við íris
Gunborg Kristinsson og dóttur hennar, Kristínu Gunnlaugsdóttur, mynd-
listarmann, við opnun sýningar Hafliða s.l. laugardag í Listasafninu ó Akur-
eyri. Mynd: B.G.
Hafliði sýnir í Listasafninu
Síðastliðinn laugardag var
opnuð í Listasafninu á Akur-
eyri sýning á verkum tónlistar-
og myndlistarmannsins Hafliða
Hallgrímssonar.
Eins og kom fram í viðtali Dags
viö Hafliða sl. laugardag er mynd-
listin einskonar „hliðarbúgrein“ hjá
Hafliða, sem á ættir að rekja til
Akureyrar en býr í Skotlandi.
Á sýningunni í Listasafninu,
sem verður opin til 27. ágúst nk.,
eru grafíkverk.
Fleiri myndir frá opnun sýning-
ar Hafliða Hallgrímssonar eru á
bls. 6. óþh
í Perlunni við
[3 KAUPLAND
^ J Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
Dansað i Laufási
Mikill fjöldi fólks lagói leið sína í Laufás við Eyja-
fjörð sl. sunnudag þar sem efnt var til starfsdags.
Leitast var við að sýna daglegt líf fyrr á öldinni.
Kveikt var upp í hlóðareldhúsinu og bakaðar Iummur,
húslestrar voru lesnir í baðstofunni og þar einnig
spunnið og ofið. Uti fyrir gamla bænum var heyskap-
ur með gamla laginu, slegið með orfi og Ijá og snúið
með hrífum. Ekki má gleyma harmonikuleik, sem
skapaði skemmtilega stemmningu, og dansarar frá
Dalvík, sem einmitt sjást á meðfylgjandi mynd, fengu
fólk með sér í dansinn.
óþh
Dalvík:
Rskverkun Jóhannesar og
Helga hf. í greiðslustöðvun
Héraðsdómur Norðurlands
vestra samþykkti sl. föstu-
dag greiðslustöðvunarbeiðni
Fiskverkunar Jóhannesar &
Helga hf. á Dalvík og gildir hún
til klukkan 11.00 18. ágúst nk.,
eða í þrjár vikur.
Fresturinn er veittur til þess að
ná saman kröfuhöfum og kynna
þeim stöðu mála og hvað forsvars-
menn fyrirtækisins hyggjast taka
sér fyrir hendur meðan á greiðslu-
stöðvunartímabilinu stendur.
30. júní sl. var öllu starfsfólki
Fiskverkunar Jóhannesar & Helga
hf. sagt upp störfum með tilskild-
um fyrirvara, og taka þær fyrstu
gildi nú um mánaðarmótin. I gær
var verið að vinna fisk hjá fyrir-
Loðnan
Viðbrögðin virðast lofa góðu,
sýnin sem send voru falla að
smekk Japana og gefa fyrirheit
tækinu sem keyptur var á markaði
en vegna greiðsluerfiðleika hefur
hráefnisöflun reynst torsótt, m.a.
vegna þess að staðgreiða hefur
þurft öll viðskipti. GG
Stöplafiskur:
líkar vel
um að framleiðslan sé markaðs-
hæf,“ sagði Stefán Jónsson, full-
trúi hjá Atvinnuþróunarfélagi
Þingeyinga, en svör eru að byrja
að berast frá Japan um hvernig
þurrkuð loðna frá Stöplafiski
hafi líkað.
Stöplafiskur hf. í Reykjahverfi
sendi í sumar sýnishom af til-
raunaframleiðslu á þurrkaðri
hrognafullri loðnu. Slík vara mun
þykja lostæti í Japan og á japönsk-
um veitingastöðum í öðrum
heimshlutum. Þurrkaða loðnan er
grilluð og þykir æskilegt fæði
hana bömum auk þess sem hún er
notuð sem snakk með bjór.
„Þetta er allt á réttri leið,“ sagði
Bílvelta á Sléttu:
Mikið
eignatjón
Dráttarbíll með vatnstank
á vagni valt á Sléttu eftir
hádegi í gær.
Engin meiðsli urðu í óhapp-
inu en mikið eignatjón á bíl og
vagni. Ökumaður vann að því
að bleyta veginn er hann ók út-
af og bíll og vagn ultu. IM