Dagur - 09.09.1995, Síða 2

Dagur - 09.09.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 9. september 1995 FRÉTTIR Rífandi gangur hjá Sæplasti 20,1 milljón í hagnað fyrstu 6 mánuðina Af uppgjöri fyrstu sex mánuði ársins að dæma er rekstur Sæ- plasts hf. á Dalvík á góðu róii á þessu ári. Að teknu tillitli til af- skrifta, fjármagnsliða og óreglu- legra liða skilar rekstur Sæplasts hf. 20,1 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins, sem er 10,5% af veltu. Heildartekjur Sæplasts hf. á fyrri árshelmingi voru 191 milljón króna, sem er 18% aukning miðað við sama tíma í fyrra. Rekstrar- gjöld voru 162 milljónir króna og var framlegð upp í afskriftir og fjármagnsliði 29 milljónir króna, eða 15,2%. í lok júní voru heildareignir Sæplasts hf. bókfærðar á 404,4 milljónir króna og námu skuldir 129,9 milljónum króna. Eigið fé var 274,4 milljónir króna og eig- infjárhlutfalllið því 0,68. Veltu- fjárhlutfallið var 2,35. Verðmæti útflutnings fyrirtæk- isins fyrstu sex mánuðina jókst um 30% miðað við sömu mánuði 1994. Verðmæti útflutningsins nam 102 milljónum króna eða 54% af heildarveltu fyrirtækisins. í frétt frá Sæplasti hf. kemur fram að sala fiskkerja fyrstu sex mánuðina hafi aukist um 17,5% Héraðsskólinn að Reykjum í Hrútafirði: Skólabúðirnar njóta stöðugra vinsælda 33 ENGIN HUS ÁN HITA 33 1 Blöndunar- tæki Héraðsskólinn að Reykjum í Hrútafirði hefur undanfarin ár verið rekinn sem skólabúðir, þ.e. nemendur koma víðs vegar að af landinu til a.m.k. vikudvalar við leik og störf. Nemendur eru yfir- leitt úr 6. bekk en sumir skólar sækja aðeins um vist annað hvert ár og fara þá með nem- endur úr 6. og 7. bekk. Kennslan er mjög umhverfis- væn því nemendur ganga fjörur og skoða það fjölbreytta lífríki sem þar er að finna við nánari skoðun auk ýmissa annarra verk- efna, innan dyra sem utan. Mikil aðsókn er að skólabúðunum og er bókað fram eftir desembermánuði, og síðan kemur fyrsti hópurinn á árinu strax í byrjun janúar og sá síðasti í maímánuði, þannig að starfstíminn er orðinn svipaður að lengd og starfstími grunnskóla. Skólastjóri er Bjami Aðalsteins- son. Fyrstu nemendumir á þessu hausti hófu skolatímabilið með því að fara í skólabúðimar að Reykjum. Það vom nemendur frá Borgamesi og Snælandsskóla í Kópavogi. Nýr skólastjóri, Ingólfur Kjart- ansson, hefur verið ráðinn að grunnskólanum að Reykjum, en þar stunda í vetur 20 böm nám en kennt er upp í 7. bekk. Ingólfur er ættaður frá Unaðsdal á Snæfjalla- strönd en hann hefur kennt á Hvammstanga en þar áður á Tálknafirði, Eiðum og Reykjanesi við Djúp. GG milli ára, en sala á trollkúlum dregist saman um 5%. Mest aukn- ing hefur verið í sölu á kerjum til fjarlægri heimsálfa. Munar þar mest um sölu til Suðaustur-Asíu, S-Amenku og S-Afríku. Sala á plaströrum hefur fimm- faldast milli ára og nemur sá framleiðsluliður nú ríflega 8% af heildarveltu Sæplasts hf. Munar þar mest um sölu á hitaþolnum plaströrum til Hitaveitu Öxarfjarð- arhéraðs. Þá má geta þess að hita- þolin plaströr frá Sæplasti hf. verða notuð í lagningu hitaveitu í Kína, í tengslum við nýgerðan samning Virkir Orkint við þarlend yfirvöld. Framundan er góð verkefna- staða hjá Sæplasti og fyrirsjáan- legt að áfram verði unnið um helgar. óþh Stofnun hlutafélags til að bæta aðstöðu knattspyrnumanna: Misjafnar undirtektir Nýjar gerdir Gott verb Okkar verð er alltaf betra Lrffiíj Verslið við fagmann. AKUREYRI DRAUPNISGOTU 2 B SÍMI 462 2360 E Opið á laugardögum kl. 10-12. BBHBBBBBHHBHHHBQQHQBUBBHHQHSQBE Héraðsskólinn að Reykjum. f Degi í gær var greint frá þriggja ára áætlun íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar. Það atriði áætlunarinnar sem íjallar um úrbætur fyrir knattspyrnu- menn hefur vakið mikla athygli. Ekki það að úrbætur séu fyrir- hugaðar, heldur sú aðferð sem lögð er til, þ.e. að Akureyrarbær hafi forgöngu um stofnun hluta- félags, sem hafl það að mark- miði að bæta aðstöðu til knatt- spyrnuiðkunar á Akureyri, t.d. með yflrbyggingu. Á hlutafélag- ið að leita eftir að fá sem flesta til liðs við sig. Haft var samband við formenn knattspyrnudeilda KA, Þórs og Leifturs og þeir spurðir hvernig þeim litist á hugmyndina. „Mér finnst mjög jákvætt að bæjaryfirvöld ætli sér að leggja peninga í að bæta aðstöðu fyrir knattspymumenn og þó aðeins sé verið að tala um hálft hús í upp- hafi má segja að hálfnað er verk þá hafið er. Hins vegar hefur regl- an verið sú að bæjaryfirvöld byggi og reki íþróttamannvirki og því finnst mér þessi hugmynd um stofnun hlutafélags í þessu sam- bandi ekki nógu góð. Mér dettur helst í hug að með þessu vilji íþróttaráðsmenn komast hjá því að taka ákvörðun um staðsetningu hússins,“ sagði Kristján Kristjáns- son, formaður knattspyrnudeildar Þórs. „Á fundi sem ég sat á Hótel KEA fyrir nokkuð mörgum mán- uðum síðan með forsvarsmönnum KSÍ, KA og Akureyrarbæjar, kom skýrt fram hjá fundarmönnum að besta staðsetningin fyrir knatt- spymuhús væri á félagssvæði Þórs,“ sagði Kristján ennfremur. „Ég hafði auðvitað heyrt þessa hugmynd og það er bara hið besta mál ef þetta verður til þess að koma málinu loksins af stað. Mér finnst aukaatriði hvaða form verð- ur á þessu. Höfuðmálið er að drífa verkið í gang og koma húsinu upp. Það sjá allir að það er löngu tímabært að koma svona húsi í gagnið," sagði Ámi Jóhannsson, formaður knattspymudeildar KA. Hann taldi ekki að hugsanleg tog- streita um staðsetningu slíks húss milli KA og Þórs hefði skemmt fyrir málinu. Hins vegar hafi sú krafa Þórs að vilja íþróttahús í for- gang skemmt fyrir framgangi úr- bóta fyrir knattspymumenn. Einn af mögulegum stöðum fyrir knattspymuhús sem rætt hef- ur verið um er þar sem Malar- og steypustöðin var á árum áður, nið- ur með Glerá nokkru fyrir neðan Möl og Sand. Ámi sagði að sér litist nokkuð vel á þá staðsetn- ingu. „Það er staður sem við hjá KÁ getum allavega^ sætt okkur mjög vel við,“ sagði Ámi. Þorsteinn Þorvaldsson, formað- ur knattspymudeildar Leifturs í Ólafsfirði, tók undir það með hin- um tveimur að afar brýnt væri að koma upp betri aðstöðu fyrir knattspyrnumenn og taldi nokkuð víst að Ólafsfirðingar myndu að einhverju leyti nýta sér slíka að- stöðu sem staðsett væri á Akur- eyri. Með þátttöku í hlutafélagi um uppbygginguna var hann hins vegar meira efins. „Málið hjá okk- ur er auðvitað að við erum að berjast í ýmsum framkvæmdum, t.d. þökuleggja völlinn og horfum einnig til þess að koma upp fé- lagshúsi. Síðan er verið að byggja skíðaskála og hestamenn ætla að fara að koma upp reiðskemmu, þar sem knattspymumenn gætu hugsanlega fengið aðstöðu. Verk- efnin em bara svo mikil heima fyrir,“ sagði Þorsteinn, en ítrekaði að menn væm mjög jákvæðir fyrir bættri aðtöðu knattspymumanna á Norðurlandi. HA 2 Ballettskólinn FIMI Kynningartímar í salarkynnum skólans í Iþróttahöllinni: 6-9 ára, laugardaginn 16. sept. kl. 13-14. 10-13 ára, laugardaginn 16. sept. kl. 14.15-15.15. 14 ára og eldri, sunnudaginn 17. sept. kl. 16-17. Akureyri: Vetrarstarfið hefst með Fálkafellsveislu - 20 dróttskátar vígðir í kvöld I Sími 462 5266 I Mánudagur Þriðjudagur Miðuikudagur Fimmtudagur Föstudagur Kl. 19.15 Modem 0.16.00 Ballett, 6-9 ára XL16.00 JaZZ, 10-13 ára Kl. 16.00 Ballett, 6-9 ára Kl. 20.15 Ballett, konur KL 19.15 Ballett, 14 ára og eldri a. 20.15 JaZZ, 14 ára og eldri Kl. 17.00 Ballett, 10-13 ára I I Að venju munu skátar á Akur- eyri helja starf sitt með Fálka- fellsveislu sem verður í kvöld. Eldri skátar félagsins hittast í Fálkafelli og eiga þar saman kvöldstund í veislu sem haldin er vegna opnunar á skálanum fyrir veturinn. Mæting er við Pásustein kl. 20.15 og samkvæmt upplýsingum frá skátunum eru eldri skátar hvattir til að mæta. Skömmu síðar mun svo verða fylkt liði upp í Fell. Áður en veislan hefst munu um 20 skátar vígjast inní drótt- skátana, sem starfað hafa undan- farin ár í hinum almennu skáta- sveitum en hafa nú náð þeim aldri að starf þeirra breytist og þau fara að vinna að nýjum verkefnum inn- an dróttskátanna. Samkvæmt venju sér dróttskátasveitin Draco um veisluna og vilja Draco-menn koma þeim skilaboðum til þeirra sem hyggjast mæta að gott geti verið að hafa meðferðis útbúnað til að stunda þjóðaríþrótt Finna (þ.e. sundföt). í veislunni verður boðið upp á veglegar kræsingar og skátakakó, svo verður að sjálf- sögðu sungið fram á rauða nótt. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.