Dagur


Dagur - 09.09.1995, Qupperneq 8

Dagur - 09.09.1995, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 9. september 1995 KVI KMYNDI R ELSA JÓHANNSDÓTTIR Skosk þjódhetja 15. september: Borgarbíó, Regnboginn og Háskólabíó: Braveheart Ástralski leikarinn Mel Gibson kemur hér á stökki í mynd sinni „Braveheart" sem hann leikstýrir sjálfur og fer auk þess með aðal- hlutverkið. Sögusviðið er Skot- land og England á síðari hluta 13. aldar þegar konungur Skota deyr og enginn er til að erfa krúnuna. Játvarður 2. konungur af Eng- landi, þekktur fyrir að vera grimmur og vægðarlaus maður, nýtir sér aðstöðuna og nær fljótt yfirráðum. Wallace er staðráðinn í því að frelsa þjóð sína úr klóm Englendinga og safnar miklum her og upphefst mikil og blóðug barátta fyrir frelsinu. „Sir William Wallace var einn af þeim mönnum sem breyttu mannkynssögunni. Þetta er ótrú- leg saga um hugrekki, trú- mennsku, heiður og hrottalegar styrjaldir. En þetta er einnig áhrifamikil ástarsaga,“ segir Mel Gibson um mynd sína. „Ofbeldið í Mad Max-myndunum kemst ekki einu sinni nálægt því að vera eins og í þessari mynd, menn eru gjör- samlega slitnir í sundur," bætir hann við. Með önnur hlutverk fara Sophie Marceau, Patrick McGoo- han og Catherine McCormack sem leikur Murron, stóru ástina í lífi Wallace. „Þau kynnast fyrst þegar þau eru böm að aldri og þegar hann kemur aftur til hennar eftir nokkurn tíma verða þau ást- fangin og giftast í laumi. En fram- tíð þeirra varð ekki eins og þau höfðu óskað sér og það er fyrst og fremst ást Wallace á Murron sem veitir honum þessa miklu hvatn- ingu til að berjast fyrir frelsi þjóð- ar sinnar," segir Catherine McCormack um hlutverk sitt. Það má svo til gamans geta þess í lok- in að þeir sem unnu að myndinni dunduðu sér við að búa til 10.000 örvar úr tré með gúmmíoddi fram- an á og hlýtur það hafa verið mjög Öðruvísi lögga 22. september: Borgarbíó og Laugarásbíó: Judge Dredd Þá er Sylvester Stallone kominn af stað inn í 22. öld, nánar tiltekið staðsettur í Mega City 1, þar sem hann túlkar nýja útgáfu af verði laganna, þ.e.a.s. hann er allt í senn lögga, dómari, kviðdómari og sá sem sér um að lífláta þá sem óhlýðnast hafa settum lögum. Hér þeytist hann um í vígalegum ein- kennisbúningi með ægileg tól og tæki og er satt að segja algjör nas- isti í myndinni. Að sjálfsögðu hafa óvinir hans komið sér upp samsæri gegn honum og það mun svo koma í ljós hvemig Judge Dredd mun taka á því máli. Aðrir leikarar í myndinni eru Armand Assante, Diane Lane (sem heillar Kanana í rauða leðurgallanum sín- um) og Rob Schneider. Myndin er byggð á teikni- myndasögupersónunni Judge Dredd úr hinu vinsæla breska blaði 2000AD. Það þykir hafa tek- ist vel að útfæra þetta í kvikmynd, allavega flýtur blóð og innyfli velta um í jafnmiklu magni og lýst er á síðum myndasögublaðsins. Það hafa víst gengið einhverjar sögur um að Stallone hafi svindl- að svolítið og fengið eitthvað lán- að af sílikoninu hjá Pamelu And- ersson og sprautað því í varirnar á sér... en það má svo aftur dæma um það þegar að því kemur. Mad Max undirdjúpanna 29. september: Borgarbíó og Háskólabíó: Waterworld Þá fer að koma að því að bíógestir á íslandi fái að líta dýrustu mynd allra tíma en síðustu tölur sem borist hafa eru í kringum 200 milljónir dollara. Til að standa undir öllum þessum kostnaði þarf Waterworld að hljóta þá mestu að- sókn sem um getur, og ekki eru það neitt litlar kröfur. Kevin Kostner, aðalleikari og einn fram- leiðenda myndarinnar hefur verið mjög umtalaður í Hollywood og óspart verið gert grín að allri um- gjörð þessa vatnsævintýris. En svo farið sé eitthvað í söguþráðinn þá á hún að gerast einhvem tíma í framtíðinni þegar gróðurhúsa- áhrifin fara að virka svo um mun- ar. Veðurfarið hitnar, heimskautin bráðna og yfirborð sjávar hækkar það mikið að hvergi virðist vera hægt að finna þurra þúfu. Mann- kynið berst fyrir lífi sínu og leitar að þurru landi til að lifa á og Kostner fer þar fremst í flokki. Með önnur hlutverk fara Jeanne Tripplehom (The Firm) og Dennis Hopper (Speed) en Hopper leikur núna víst enn meiri skíthæl en nokkru sinni fyrr, svo segir hann sjálfur að minnsta kosti. Þegar Kostner var spurður að því hvernig hann gæti réttlætt notkun þessara gífurlegu fjár- muna, sagði hann að það væri af- stætt hversu miklir peningar færu í að skapa mynd, sumir væru að leggja í það 6 milljónir dollara og stundum jafnvel 150 milljónir. „Það þurfti mikla peninga til að vinna neðansjávar með 3000 manns, ég þarf ekkert að réttlæta það neitt. Og af þessuml50 millj- ónum eða hvað það nú var sem fór í þetta fara 30 milljónir í skatta. Eg hef miklu meiri áhyggjur af því hvað stjómmálamennirnir í landinu gera við þær 30 milljón- ir... Týndir í geimnum 13. október: Borgarbíó, Háskólabíó og Laugarásbíó: Apollo 13 30. apríl 1970 sendu Bandaríkja- menn geimfarið Apollo 13 á braut til tunglsins, aðeins átta mánuðum eftir að fyrsti maðurinn steig þar fæti sínum. För þessi átti einnig eftir að verða söguleg líkt og hin fyrri og nú hefur verið gerð mynd þar sem reynt er að lýsa þeim ótrúlegum aðstæðum sem geim- faramir á Apollo 13 lentu í. Myndin er sannsöguleg og byggð á bókinni „Lost Moon“ þar sem Jim Lovell, yfirmaður og stjóm- andi geimfarsins, lýsir því sem hann og tveir aðrir félagar hans gengu í gegnum og hvemig til tókst við björgun þeirra. Spreng- ing í stjómhylki geimfarsins olli því að það varð stjórnlaust og missti afl. Eina von mannanna til að bjargast var að færa sig yfir í tunglferjuna og freista þess að stýra henni aftur í átt til jarðar jarðar, en stóri gallinn var sá að tunglferjan var aðeins hönnuð fyr- ir tvo menn ásamt súrefnisbirgð- um og eldsneyti til tveggja sólar- hringa. Fyrir þeim lá því aðeins það að kafna úr súrefnisskorti, frjósa í hel eða brenna upp í loft- hjúpi jarðar. Tom Hanks fer með hlutverk Jim Lovell en Bill Paxton og Ke- vin Bacon leika hina geimfarana tvo, Fred Haise og Jack Swigert. „Þetta er draumahlutverkið, mig hefur dreymt um það síðan ég var strákur hvemig það væri að vera geimfari. Ég fylgdist alltaf náið með öllum geimferðum, vissi hvað allar áhafnir og geimferjur hétu. Mér þótti þessi leiðangur alltaf sá dramatískasti af öllum og er reyndar hissa á því af hverju var ekki búið að gera mynd um þetta fyrr. En nú er það orðið að veruleika og ég bara trúi því varla að ég sé sjálfur að leika í henni,“ varð Hanks að orði er hann var spurður út í myndina. Leikararnir voru meðal annars þjálfaðir í að venjast þyngdarleysinu við tökur myndarinnar og fannst það eigin- lega allt annað en gaman. „Þetta var ótrúlega erfitt, maður sveif um í lausu lofti sem gerði það að verkum að aldrei var hægt að taka öll atriði upp nákvæmlega eins. Okkur varð því oft óglatt og æld- um eins og múkkar,“ sagði leikar- inn frægi. ' d y-i&j * Tffy. >'-3ivvJr í æ *

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.