Dagur - 09.09.1995, Side 9
Laugardagur 9. september 1995 - DAGUR - 9
MANNLIF
Brosmildir á opnunardaginn Sverrir Ragnarsson, afgreiðslumaður, Birkir
Sigurðsson, málari og Ásgeir Ólafsson, afgrciðslumaður.
Nokkrir af gestunum fyrsta daginn, Grétar Jónson, Gunnar Smári Svein-
björnsson og Jón Lúðvíksson. Að baki þeim stendur Steindór Steindórsson.
Samtímis á Akureyrí og í Stokkhólmi
Um síðustu helgi var opnuð á Akureyri verslunin Joe’s sem er í eigu Ragn-
ars Sverrissonar, kaupmanns í JMJ. Verslunin er ein af sjö Joe’s verslunum í
Skandinavíu en þrjár þeirra voru opnaðar á sama tíma, þ.e. verslunin á Akur-
eyri, önnur í Kringlunni í Reykjavík og sú þriðja í Stokkhólmi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við opnun verslunarinnar.
Iðnaðarmennirnir stinga saman nefjum að verki loknu við standsetningu
verslunarinnar. Ævar Jónsson, múrari og Björn Garðarsson, járniðnaðar-
maður, ræðast við.
Það er ekki á hverjum tíma sem fimm systkini afgreiða samtímis í verslun
en þetta gerðist á opnunardegi Joe’s. Þetta er afgreiðslufólkið og frá vinstri
talið: Ólafur Ragnarsson, Ragnar Þór Ragnarsson, Hulda Ragnarsdóttir,
Ásgeir Ólafsson, Sverrir Ragnarsson, Jón M. Ragnarsson og Steindór Stein-
dórsson. Systkinin fímm eru börn Ragnars kaupmanns Sverrissonar.
Starfsfræðsla
í Akureyrar-
prestakalli
Tveir guðfræðikandidatar eru nú í
starfsfræðslu í Akureyrarpresta-
kalli, þau Amaldur Bárðarson og
Bára Friðriksdóttir.
Þau fylgjast með starfi sóknar-
prestanna og því sem fram fer í
söfnuðinum. Eins taka þau þátt í
starfinu og þjálfa sig þannig fyrir
starf í kirkjunni. Áður hafa nokkr-
ir guðfræðikandidatar hlotið slíka
þjálfun hér á Akureyri og mikil
ánægja fylgt veru þeirra. Þau Arn-
aldur og Bára eru boðin velkomin.
Sunnudaginn I0. september
mun Bára Friðriksdóttir prédika í
messu, sem hefst kl. 11 og Arn-
aldur mun aðstoða við messu-
flutninginn. (Frá Akureyrarkirkju)
í UMFERÐINNI
ERU ALLIR
í SAMA LIÐI
yUMFERÐAR
RÁÐ
Akureyrarvöllur
íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild
sunnudaginn 10. sept. kl.13.30
Þórsarar
Mætum á völlinn og hvetjum okkar
menn til sigurs í síðsta heimaleiknum
Ath. Leikurinn hefst kl. 13.30
ISLANDSBANKl
Kaffibrennsla
Akureyrar
Sýslumaðurinn á Húsavík
Utgarði 1, 640 Húsavík,
sími 464 1300.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Útgarði 1, Húsavík,
miðvikudaginn 13. september 1995
kl. 10 á eftirfarandi eignum:
Aðalbraut 7, Raufarhöfn (Sólris),
eftir hæð, þingl. eig. db. Þórarins
Guðnasonar, gerðarbeiðandi Vá-
tryggingafélag Islands hf.
Ásgata 8, Raufarhöfn, þingl. eig.
Kristján Þ. Þórhallsson, gerðar-
beiðandi Raufarhafnarhreppur.
Baldursbrekka 9, Húsavík, n.h.,
þingl. eig. Hermann Jóhannsson,
gerðarbeiðandi Samvinnulifeyris-
sjóðurinn.
Birkihraun 12, Skútustaðahreppi,
þingl. eig. Hermann Kristjánsson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður
ríkisins.
Fjarðarvegur 1, Þórshöfn, þingl.
eig. Einar Valur Einarsson, gerðar-
beiðendur Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Olíufélagið hf.
Fjarðarvegur 31, Þórshöfn, þingl.
eig. Pétur Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins
og Sýslumaðurinn Húsavík.
Garðarsbraut 67, íb. á 2. hæð,
Húsavík, þingl. eig. Halidór Hákon-
arson og Anna Björg Stefánsdóttir,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður versl-
unarmanna.
Langanesvegur 19, Þórshöfn,
þingl. eig. Magnús Jónsson, gerð-
arbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna
og Lífeyrissjóður starfsm. ríkisins.
Langholt 1, norðurendi, Þórshöfn,
þingl. eig. Hafspil hf., gerðarbeið-
endur Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Sameinaði lífeyrissjóðurinn
og Sýslumaðurinn Húsavík.
Lóð úr landi Knútsstaða í Aðal-
dælahreppi, þingl. eig. Harpa Jóna
Jónasdóttir og Guðmundur K. Jó-
hannesson, gerðarbeiðandi Bygg-
ingarsjóður ríkisins.
Lundarbrekka 4, Bárðdælahreppi,
þingl. eig. Sigurður Baldursson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Suður-
Þingeyinga.
Lækjamót í Ljósavatnshreppi,
ásamt húsum, gögnum og gæðum,
þingl. eig. Ríkissjóður, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður starfsmanna rík-
isins.
Miðás 3, Raufarhöfn, þingl. eig.
Sigrún Björnsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Pálmholt 15, Þórshöfn, þingl. eig.
Jón Hermannsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Skógahlíð, Reykjahreppi, þingl. eig.
Björn Ó. Jónsson, gerðarbeiðandi
Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Sýslumaðurinn Húsavík.
Stórhóll 69, Húsavík, þingl. eig.
Vigfús Þór Leifsson og Sigrún Elín
Brynjarsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Sýslumaöurinn Húsavík,
7. september1995.
Bœjar-
skiltið!
Lifandi auglýsing
sem hittir
beint í mark.
Ódýrari en þig grunar.
Hamar
sími 462 1848 og 461 2080