Dagur - 09.09.1995, Síða 13
Laugardagur 9. september 1995 - DAGUR - 13
POPP
MAÚNÚS GEIR CUÐMUNDSSON
/
/
ÞRR FDiMTUGR FELAGAR
Það er víst óhætt að fullyrða að ár-
ið 1995, sé mikið tímamótaár hjá
mörgum þekktum tónlistarmann-
inum. Þeir eru nefnilega ófáir sem
fagna hálfrar aldar lífstíð á þessu
ári, en það þykir víst alltaf merki-
legur áfangi í lífi hvers manns.
Kappar á borð við Gunnar Þórð-
arsson og Rúnar Júlíusson eru
dæmi um íslenska poppara sem
orðið hafa fimmtugir fyrr á árinu
og af erlendum eru t.d. Eric
Clapton og Johnny Winter. A síð-
ustu vikum hafa svo þrír til við-
bótar, tveir íslenskir og einn er-
lendur, bæst í hópinn og eru þeir
ekki síður merkir en hinir fyrr-
nefndu. Reyndar hefur það áður
verið skýrt tekið fram að þessi
síða er ekki ætluð undir „eilífar
afmæliskveðjur", en þegar slíkir
garpar eiga í hlut, er það enginn
stórglæpur.
VAN MORRISON
Fyrstan af þremur sem hér eiga í
hlut, skal frægan telja Van Morri-
son, sem varð fimmtugur 31.
ágúst sl. Fæddist hann í Belfast á
N-írlandi, sonur mikils áhuga-
manns um djass- og blústónlist og
blús- og djasssöngkonu. Má því
segja um Morrison með sanni að
sjaldan falli eplið langt frá eikinni,
en blús og djass auk sálartónlistar
og popps í bland hafa einkennt
feril þessa vinsæla tónlistarmanns.
Hann var aðeins um 13 ára gamall
þegar hann stofnaði fyrstu hljóm-
sveitina og var aðeins tæplega
átján ára þegar fyrstu skrefin til
frægðar voru stigin. Var það með
stofnun Them sem það gerðist
1963. Hljómsveitin sló strax í
gegn með fyrstu smáskífunni, Ba-
by please don’t go (sígildum
Muddy Waters-slagara) í ársbyrj-
un 1964 og náði lagið áttunda sæti
breska vinsældalistans. A bakhlið-
inni var hins vegar annað lag,
Gloria, sem síðar átti eftir að slá
rækilega í gegn og telst líklega í
dag vera vinsælasta lag Van
Morrison. Lifði Them í um rúm
tvö nokkuð stormasöm ár, en árið
1966 hóf Morrison, fullt nafn
George Ivan Morrison, sinn eigin
feril eftir að hafa hætt í sveitinni.
Sá ferill hefur reynst einkar glæsi-
legur allt fram á þennan dag og
Morrison almennt talinn með
fremstu söngvurum og lagahöf-
undum í sögu rokksins. Dæmi um
meistaraverk hans eru plötur á
borð við Astral Weeks, Moon-
dance, St. Dominic’s Preview og
lög eins og Brown Eyed Girl,
Moonshine og Dornino. Margt
fleira mætti hér segja um Morri-
son, en þetta látið nægja að sinni.
MAGNÚS EIRÍKSSON
Sá mæti lagahöfundur og gítar-
leikari, Magriús Eiríksson, er
tæpri viku eldri en Van Morrison,
fæddur 25. ágúst 1945. Þótt hann
teljist ekki vera söngvari á borð
við Morrison, eiga þeir tveir það
sameiginlegt auk aldursins að tón-
listarræturnar liggja djúpt í blús-
fiinmtugur og líklega
Van Morrison orðinn
sjaldan vcrið betri.
Magnús Eiríksson 50 ára stórtón-
skáld.
tónlistinni og undir áhrifum þess
hafa þeir báðir samið mörg af sín-
um bestu og vinsælustu lögum. Er
engum blöðurn um það að fletta
að Magnús er einhver allra besti
lagahöfundur þjóðarinnar á seinni
árum og án efa sá sem hefur átt
hvað inesta virðingu skilið. Eru
lög hans og leikur með Manna-
komum, Blúskompaníinu og
mörgum fleiri, stór þáttur í ís-
lenskri poppsögu síðustu þrjá ára-
tugina og það eru ekki margir
tónlistarmenn sem státa af slíku.
Magnús hefur þó aldrei verið
þekktur fyrir að sækjast mikið eft-
ir athyglinni heldur látið lögin og
gítarinn tala en félögum sínum
^ Hörður Torfa. „Hálfrar aldar trúbador“.
I ÞAGU BARNANNA
Ef ailt hefur gengið samkvæmt
áætlun, var á mánudaginn var
staðið fyrir allsérstæðri plötuupp-
töku, sem síðan mun sjá dagsins
ljós á mettíma. Um er að ræða
upptöku á plötu til styrktar stríðs-
hrjáðum börnum í Bosníu sem
rjóminn af breskum popp- og
rokkhljómsveitum stendur að,
þ.á m. Blur, Suede, Boo Radleys,
Portishead, Terrorvison, Oasis,
The Levellers, Radiohead, Charl-
atans og Manic Street Preachers,
sem gleyma þarna áhyggjunum
af hvarfi Richey James um stund
í þágu barnanna. Eiga tónlistar-
mennirnir allir að skila sínu á
þessum eina degi, en aðeins
fimm dögum síðar, í dag, á plat-
an að koma út. Nefnist hún Help
og er það fyrirtækið Go! Discs
sem gefur hana út. Krist Novo-
selic, sem rætur á að rekja til
Bosníu, ritar aðfararorð með
plötunni og gítarleikari Stone
Roses, John Squire, hannar útlit
hennar.
Terrorvision styður börnin í
Bosníu.
TALEVNAF
Nú er liðið hálft ár frá því að
gítarleikari Manic Street Pre-
achers, Richey James, hvarf
nánast sporlaust frá hóteli í
London. Hefur gríðarlega um-
fangsmikil leit að honum lítinn
sem engan árangur borið og
telja lögregluyfirvöld nú að
flest bendi til þess „að hann sé
ekki lengur meðal vor”. Frá
því James hvarf hefur enginn
haft af honutn spurnir og hann
ekki reynt að taka út fé sem
hann á í bönkum. Telur lög-
reglan þetta nær óyggjandi
sönnun þess að rokkarinn sé
ekki lengur í tölu lifenda.
eftir að baða sig í sviðsljósinu, t.d.
Pálma Gunnarssyni. Kemur þar á
nokkurn hátt samanburður við
Van Morrison aftur til sögunnar,
en sá írski öðlingur hefur aldrei
þótt berast ntikið á þrátt fyrir alla
frægðina. Það var því engin tilvilj-
un að plata þar sem írskættaðir
tónlistarmenn túlkuðu lög hans og
kom út í fyrra, kallaðist No Prima
Donna, sem snara mætti sem
„Enginn Allsherjar". Sá Morrison
meira að segja sjálfur um upp-
tökustjórnina. Færi vel ef íslenskir
tónlistarmenn heiðruðu Magnús
einhvem daginn á svipaðan hátt.
Ætti liann það meira en skilið.
HÖRÐUR TORFASON
Á mánudaginn var, 4. september,
varð Hörður Torfason fimmtugur.
Það er frægara en frá þarf að
segja, er Hörður gekk fram fyrir
skjöldu fyrir um tveimur áratug-
um og játaði samkynhneigð sína í
viðtali við tímaritið Samúel. Hafði
slík játning vart heyrst fyrr og
stóð ekki á viðbrögðunum. Hrakt-
ist Hörður, sem þá þegar hafði um
nokkurt skeið verið í fararbroddi
trúbadora á íslandi, hreinlega úr
landi í kjölfarið, svo hart var að
honum vegið. Fyrir nokkrum ár-
um þegar um hafði hægt, snéri
Hörður hins vegar heim og hefur
síðustu 4-5 árin verið býsna at-
kvæðamikill bæði í tónlist og leik-
list. Því til staðfestingar er að á
síðasta ári sendi hann frá sér tvær
plötur og eina bamasnældu að
auki og á þessu ári hefur hann
heldur ekki verið aðgerðarlaus. í
tilefni af 50 ára afmælinu eru nú
að koma út tvær fyrstu plötur
kappans á einni geislaplötu og
kallast hún Hörður Torfa ’70.
Komu þær út 1970 og 1973 og
hafa lengi verið ófáanlegar.
"■k'Tú með haustinu er von á
Py tveimur plötum helguð-
JL Ni um minningu Kurts
Cobain, báðum frá hendi lítilla
útgáfa í Bandaríkjunum. Ann-
ars vegar er urn að ræða Ang-
els Bleed, þar sem finna má
lög sem orðið hafa til undir
áhrifum lrá dauða Cobains
með ýmsum flytjendum, m.a.
Frank cox úr Lovemongers
(sveitinni sern Wilsonsystur úr
Heart settu saman í hjáverk-
um) en hins vegar um plötu
þar sem lög kappans verða
túlkuð. Sú plata hefur ekki
fengið nafn enda enn verið að
safna saman hljómsveitum fyr-
ir hana.
Krist Noveselic, fyrrum
bassaplokkari Nirvana,
seni líka er nefndur
annars staðar á síðunni, hefur
nælt sér í útgáfusamning fyrir
nýju sveitina sína. Sweet 75.
Er það við risann Epic og er
fyrsta platan í undirbúningi.
Ministry, sú margræða
sveit, kann nú e.t.v. að
verða að fresta útgáfu
nýjustu plötu sinnar, Fifth Pig,
fram á næsta vor. Upphafiega
átti hún að koma út í október,
en vegna tæknilegra erfiðleika
með hljóðver, hefur verkið taf-
ist úr hófi fram.