Dagur - 09.09.1995, Qupperneq 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 9. september 1995 - DAGUR - 15
SÆVAR HREIÐARSSON
x''
Lafði
Hollywood
Leikkonan Jamie Lee Curtis
mun verða þekkt sem Lafði Ha-
den-Guest þegar eiginmaður
hennar, leikarinn og leikstjórinn
Christopher Guest, erfir baróns-
titil föður síns. Hann er sonur
enska lávarðarins Peter Haden-
Guest, sem nú er 82 ára og verð-
ur Christopher fimmti Haden-
Guest baróninn. Jamie verður
því barónessa þó svo að oftast sé
titilinn „Lafði“ notaður. Hún get-
ur ekki kallað sig Lafði Lee
Curtis en getur notast við sitt
gamla sviðsnafn ef hún hefur
hug á að leika í fleiri kvikmynd-
um. Það þykir þó ólíklegt því
hún hyggur nú á að flytjast til
London ásamt eiginmanni og
átta ára dóttur þeirra. „Leiklistin
hefur aldrei verið mér mjög kær
og það er ekki eins og ég sé svo
hæfileikarík að mín verði sárt
saknað í Hollywood,“ er haft eft-
ir Jamie. Hún er sjálf komin af
merkisættum því faðir hennar er
leikarinn óútreiknanlegi, Tony
Curtis og móðirin er leikkonan
Janet Leigh. Eitt er það sem
Jamie hefur heitið að gera aldrei
en það er að skrifa bók um ævi
sína og sinna nánustu.
◄ Jamie Lee Curtis segir að sín
verði ekki sárt saknað í Holly-
wood.
Lafliræddur í
Vatnaveröldinni
Þó myndin Waterworld þyki til þá stendur einn leikari upp úr
ekki eins merkileg og efni standa og sannar enn einu sinni getu
Dennis Hopper í hlutverki sjóræningjans Deacon á sjósleðanum sínum.
sína á hvíta tjaldinu. Dennis
Hopper leikur Deacon, illan leið-
toga klíku einnar sem ruplar og
rænir og lætur ekkert hindra sig í
leit að þurru landi. En það var
ekki átakalaust fyrir Hopper að
leika í myndinni sem var að
mestu tekin í stórfenglegri sjáv-
arborg sem byggð var sérstak-
lega og sjósett undan strönd
Hawaii. „Það sem reyndist mér
erfiðast,“ segir hinn 59 ára
Hopper „var að þegar ég hafði
sett leppinn fyrir augað skynjaði
ég ekki fjarlægðimar rétt. Bara
að fara um borð í þetta fljótandi
ferlíki var meðal þess hættuleg-
asta sem ég gerði. Eg var í
brynjuklæðum sem vógu 35 kíló.
Eg var með belti úr blýi, jám-
sporð og stóran járnkrók á hend-
inni. Ég hugsaði bara að ef ég
félli einhvern tíma útbyrðis þá
gæti ég kvatt þennan heim,“ er
haft eftir Hopper.
Vegleg kveðjugjöf
Vandræðagemsinn Sean Penn hef-
ur undanfama mánuði leikið í
fangelsismyndinni Dead Man
Walking. Þegar tökum lauk fyrir
skömmu kvöddu samstarfsmenn
hans aðalstjömuna með veglegri
gjöf - nefnilega klósettskálinni úr
fangaklefa kappans. Ekki bar sér-
fræðingum saman um hvort þetta
væri gert af ánægju eða óánægju
Sean Penn í fylgd eiginkonu
sinnar, leikkonunnar Robin
Wright.
með samstarfið. Penn hefur oft
lent í vandræðum og lætur jafnan
finna fyrir sér þegar honurn er
misboðið. Fyrir skömmu var hann
á listaverkasýningu í New York og
kunni því illa þegar tekin var
mynd al' honum fyrir framan eitt
listaverkið. Hann skvetti úr vín-
glasi sínu yfir myndavélina og lét
myndasmiðinn heyra það. Síðar
komst hann að því að þama var
listamaðurinn sjálfur að taka mynd
af eigin verki áður en það var selt.
Antonio Banderas segist hafa fundið hina sönnu ást í örmum Melanie Grif-
fith en hún hefur látið hafa eftir sér að sönn ást sé ekki til.
Ofsóttur elskhugi
Latneski elskhuginn hennar Mel-
anie Griffith hefur sætt ofsóknum.
Spænska leikaranum Antonio
Banderas, sem lék ástmann Tom
Hanks í myndinni Philadelphia,
hafa borist ógnvænleg hótunar-
bréf. „Ég hef fengið illkvittin
skilaboð á hótelum þar sem ég hef
dvalist og heim til mín. Þessir
menn segjast vilja hitta mig á götu
og „ræða“ málin,“ segir Antonio.
„Af bréfunum að dæma virðast
þeir hættulegir og ég vil helst ekki
hafa frekari kynni af þeim. Það eru
svo margir ruglhausar í heiminum
að maður veit aldrei hvað gæti
gerst. Þau skilaboð sem ég hef
fengið frá þeim eiga best heima í
mynd á borð við The Silence Of
The Lambs,“ segir hjartaknúsar-
inn. Antonio sagðist ekki vita
hvort mennimir væm öfundsjúkir
vegna þess að hann tók saman við
Melanie eða hvort þetta stafaði af
hommahlutverkinu hans í Phila-
delphia. Antonio er 34 ára og
skiptir tíma sínum á milli Madrid
og Los Angeles. Hann skildi ný-
lega við eiginkonu sína, leikkon-
una Anita Leza, til að geta hafið
sambúð með Melanie eftir að þau
höfðu kynnst við tökur á myndinni
„Two Much“ fyrr á þessu ári.
Næsta hlutverk hans verður í
myndinni Evita þar sem hann mun
leika á móti Madonnu. Lengi hafa
verið á kreiki sögur um að þau hafi
átt í ástarsambandi en því harð-
neitar Antonio. „Madonna er
nterkiskona en ég sver fyrir það að
við höfum aldrei átt í ástarsam-
bandi.“
Nicole Kidman fékk ríkulega borgað fyrir leik sinn í Batman Forever.
Vel skóuð leikkona
Nicole Kidman fór með hlutverk eins fallegasta sálfræðings sem sögur
fara af í myndinni Batman Forever. Hún var vel launuð fyrir hlutverkið
en það voru ekki einungis peningar sem hún hafði upp úr krafsinu. í
myndinni notaði hún 35 pör af skóm og þegar tökum var lokið heimtaði
hún að fá að eiga alla skóna. Að sjálfsögðu var það látið eftir þessari
„klassakonu."