Dagur - 23.09.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 23. september 1995
FRÉTTIR
Dalvíkurbær seldi Snorra Snorrasyni hluta af Hafnarbraut 7:
Einnig heimiluð vegarlagn-
ing að Böggvisstöðum
Dalvíkurbær hefur heimilað
Snorra Snorrasyni útgerðarmanni
á Dalvík að leggja vegarslóða eða
stíg, ökufæran, frá syðstu og efstu
byggðinni á Dalvík við Skógar-
hóla að Böggvisstöðum þar sem
Snorri hefur aðstöðu fyrir útgerð-
ina auk þess sem rekin er þar lík-
amsræktarstöð.
Vegarslóðin kemur neðan nú-
verandi slóðar þar sem bæjaryfir-
völd telja að hann komi best út
með tilliti til snjóalaga og án þess
að grípa þurfti til verulegra breyt-
inga á landinu. Með þessari vegar-
lagningu styttist aðkoman til
Böggvisstaða verulega og tenging
við bæinn verður betri. Tveir skál-
ar eru í landi Böggvisstaða í eigu
Dalvíkurbæjar.
Bæjarráð Dalvtkur hefur einnig
samþykkt að selja Snorra Snorra-
syni 440 fermetra hlut í neðri hæð
svokallaðs Haraldarhúss að Hafn-
arbraut 7 sem bærinn eignaðst eft-
ir gjaldþrot samnefndar útgerðar.
Snorri Snorrason segist hafa keypt
húsið til að tryggja framtíðarstöðu
líkamsræktarinnar að Böggvis-
stöðum, og þessi umsókn hafi ver-
ið lögð inn áður en afgreiðsla bæj-
Þessi mynd var tekin fyrir nokkru og sýnir vegarframkvæmdirnar. Fjær sést til syðstu husa a Dalvík. Mynd: BG
arins á vegamálum hafi verið sam- verður m.a. rekin hreinlætisvöru- hefur verið frá Reykjavík til Dal-
þykkt. í húsinu að Hafnarbraut 7 verksmiðjan Hreinn hf. sem keypt víkur. GG
Laxá í Aðaldal:
Sandurinn
eyðileggur hrygn-
ingarstóðvar
- segir Stefan Skaftason, ráðunautur
„Sandurinn er að eyðileggja
allt í Laxá. Á sínum tíma var
búið að gera samning um að
byggð yrði stífla við Laxár-
virkjun en Náttúruverndarráð
eyðilagði þann samnig fyrir
okkur,“ sagði Stefán Skafta-
son, ráðunautur í Aðaldal.
Stefán segir að nú séu uppi
hugntyndir um að byggja stítiu
við Laxárvirkun til að stöðva
sandburðinn og einnig hug-
myndir um að byggja stíflu-
mannvirki við Kráká, en hún ber
allan sandinn í Laxá. „Ekkert af
þessu er fastákveðið því það
þarf ýmis leyfi, samninga við
landeigendur og leyft Náttúru-
vemdarráðs fyrir stíflunni í
Laxá,“ sagði Stefán.
Hann sagði að ef framburður
sandsins yrði stöðvaður mundi
áin hreinsa sig á nokkurra ára
bili og þá mundi ástandið
væntanlega lagast aftur. „Þetta
er búið að vera slæmt lengi og
við erum búin að berjast í þessu
í mörg ár. Við erum með heil-
miklar aðgerðir til uppgræðslu á
Katlasvæðinu og upptökukvísl-
um Krákár. Það er búið að girða
þar af og græða hátt í 2000 hekt-
ara,“ sagði Stefán.
Hann sagði að sandurinn
legðist yfir hrygningarstöðvam-
ar og fyllti í allt skjól, einnig
dræpi hann gróðurinn í botnin-
um á ánni og slýgróðurinn sem
verið hefði með öllurn löndum
væri nú horfinn.
Ef stffla verður byggð við
virkjunina er hugsunin að dæla
upp sandinum ofan hennar á
nokkurra ára fresti. En einnig er
rætt um að stífla við Kráká svo
sandur berist síður í efri hluta
Laxár. IM
Meiri ásókn í vinnu
hjá frystihúsi KEA
á Dalvík en mörg
undanfarin ár
Betur hefur gengið að ráða fólk
til vinnu hjá frystihúsi Kaupfé-
lags Eyfirðinga á Dalvík undan-
farin misseri en oft þar áður og
má rekja það m.a. til vaxandi at-
vinnuleysis á staðnum. Gunnar
Aðalbjörnsson frystihússtjóri
segir að fólk vant fiskvinnslu
hafi verið ráðið til starfa af og til
að undanförnu.
Ekki hefur verið auglýst eftir
starfsfólki og ekki standi til að
leita eftir erlendu vinnuafli enda
hafi frystihúsið ekki verið betur
mannað til margra ára. Ásókn sé
auk þess meiri til vinnu nú en oft
áður, sem rekja megi fyrst og
fremst til aukins atvinnuleysis á
Dalvík.
„Það eru til karlmenn sem geta
unnið við snyrtingu á fiskflökum,
það er engin spuming, en þeir ætla
sér hins vegar ekki að vinna við
það til frambúðar. Það er okkar
reynsla. Karlmenn koma í neyð,
þ.e. þegar þeir hafa ekki mögu-
leika á annarri vinnu, en það tekur
marga mánuði að þjálfa upp óvan-
an starfsmann með kennara. Það
er einfaldlega of dýrt fyrir fyrir-
tækið ef starfsmaðurinn er svo
horfinn fyrirvaralaust til annarra
starfa ef þau bjóðast.
Ég minnist þess hins vegar ekki
að hér hafi karlmanni verið neitað
um vinnu, en hér geta legið að
baki ástæður þess að ekki vanti
starfsmenn,“ sagði Gunnar Aðal-
bjömsson, frystihússtjóri.
Félagsmálaráðherra, Páll Pét-
ursson, hefur sagt að hann muni
styðja við bakið á því fólki sem
telji sig vera beitt misrétti vegna
Gunnar Aðalb jiirnsson.
kynferðis þegar um ráðningu er að
ræða við fiskvinnslustörf en haft
hefur verið á orði að frystihús vilji
ekki ráða karlmenn til starfa við
snyrtingu og fleiri störf sem til
þessa hefur fyrst og fremst verið
litið á sem hefðbundin kvenna-
störf. Ennfremur hafa sumir for-
svarsmenn frystihúsa talið karl-
menn lakari vinnukraft.
Hráefnisöflunin hefur gengið
þokkalega hjá frystihúsi KEA á
Dalvík, en Rússafiskur fyllir upp í
dauð tímabil. Nokkmm erfiðleik-
um hefur verið bundið að fá
keyptan Rússafisk úr Barentshafi
en nk. föstudag kemur skip frá
Litháen til Dalvíkur og losar um
100 tonn en áður hefur það losað á
ísafirði. Kaupin em gerð fyrir
milligöngu Marbakka hf. í
Reykjavík. GG
Akureyri:
Punktar úr
bæjarráði
Staðgreiðsluskylda
Á fundi bæjarráðs sl. fimmtu-
dag var bókað að það tæki
undir þá skoðun félagsmála-
ráðs að leitað skuli allra leiða
til þess að afnema stað-
greiðsluskyldu af fjárhagsað-
stoð. Jafnframt fól bæjarráð fé-
lagsmálastjóra að taka saman
greinargerð um málið og
leggja fyrir bæjarráð.
Afnám tvísköttunar
Bæjarráð Akureyrar telur af-
nám tvísköttunar lífeyris-
greiðslna réttlætismál, 'én tekur
jafnframt undir þá kröfu
stjómar Sambands íslenskra
sveitarfélaga að sveitarfélög-
unum verði bættur sá tekju-
missir, sem af þessu hlýst.
Ullarverksmiðja í Narsaq
Jakob Bjömsson, bæjarstjóri,
kynnti á bæjarráðsfundinum sl.
fimmtudag bréf sem hann hef-
ur sent bæjarstjóranum í
Narsaq á Grænlandi í tilefni af
erindi sem greint var frá í bæj-
arráði 3. ágúst sl. I bréfi bæjar-
stjóra kemur fram að Akureyr-
arbær getur ekki lagt fram bein
fjárframlög til stofnunar ullar-
verksmiðju í Narsaq, en er
reiðubúinn að veita upplýsing-
ar og rágjöf svo sem kostur er.
Malbikunarmengun
Með bréfi dags. 12. september
s.l. frá Heilbrigðiseftirliti Eyja-
fjarðar eru ítrekaðar ályktanir
frá heilbrigðisnefnd um að
komið verði upp mengunar-
vamabúnaði á malbikunarstöð
bæjarins. Á bæjarráðsfundinn
kom yfirverkfræðingur og
ræddi við bæjarráð um málið.
Bæjarráð fól honum að svara
bréfinu og upplýsa bréfritara
um framtíðaráform bæjarins
um endurnýjun malbikunar-
stöðvarinnar.
Jón hættir í nóv.
Með bréfi dags. 21. september
sl. segir Jón Björnsson félags-
málastjóri upp starfi sínu hjá
Akureyrarbæ og fer þess á leit
að mega láta af störfum 15.
nóvember nk. Bæjarráð sam-
þykkti að verða við ósk Jóns
um styttan uppsagnarfrest.
Jarðvatnsvandamál
Á bæjarráðsfundinum sl.
fimmtudag var tekið fyrir bréf
frá Kirkjugörðum Akureyrar
þar sem óskað er úrbóta vegna
jarðvatns, sem fram hefur
komið í kirkjugarðinum við
Þórunnarstræti. Bæjarráð fól
tæknideild að kanna hvemig
gmnnvatnsstöðu og grann-
vatnsrennsli sé háttað á kirkju-
garðssvæðinu og hvort raun-
hæft sé að framræsa landið
frekar en þegar hefur verið
gert. Leitað verði sérfræðiráð-
gjafar jarðfræðings. Greinar-
gerð um málið verði lögð fyrir
bæjarráð, en að öðra leyti var
erindinu vísað til gerðar fjár-
hagsáætlunar fyrir næsta ár.