Dagur - 23.09.1995, Page 9
Laugardagur 23. september 1995 - DAGUR - 9
«æn-!-! »*
Það var líf og fjör í Sundlaug Akureyrar á fimmtudaginn þegar danskir og ísienskir unglingar skemmtu sér þar
saman. Myndir: BG
Skólakrakkar frá Randers
í heimsókn á Akureyri
10. bekkingar í Gagnfræðaskóla
Akureyrar fengu góða heimsókn í
vikunni en hópur danskra jafn-
aldra þeirra dvelur nú á Akureyri
og stendur heimsóknin fram á
mánudag.
Þegar krakkamir, sem nú em í
10. bekk, vom í 8. bekk byrjuðu
þeir að skrifast á við dönsku
krakkana sem em frá Randers.
Mörg þeirra héldu áfram að skrif-
ast á og út frá þessum bréfaskrift-
um þróaðist sú hugmynd að
dönsku krakkamir kæmu til ís-
lands í heimsókn og sú hugmynd
er sem sagt orðin að vemleika. '
Að sögn Baldvins Bjamasonar,
skólastjóra Gagnfræðaskólans, eru
10. bekkingar búnir að undirbúa
heimsóknina vel. „Þau em búin að
vera á bólakafi í þessum undir-
búningi síðustu daga. Hafa unnið
ýmis verkefni á dönsku og þýddu
t.d. upplýsingar um Akureyri yfir
á dönsku. Sérstök skemmtinefnd
sér um að halda dansleik á föstu-
dagkvöldið (í gær) og þar ætla ís-
lensku krakkarnir að flytja leikrit-
ið „Mjallhvít og dvergarnir sjö“ á
dönsku og em búnir að hafa fyrir
að þýða leikritið,“ sagði Baldvin.
Allir krakkamir í 10. bekk taka
þátt í dagskránni með dönsku
krökkunum og auk þess gista
Danimir, sem eru 36, á heimilum
nema sem em í 10. bekk.
Fjölbreytt dagskrá
Á fimmtudag var farið í heimsókn
í Minjasafnið og elsti hluti bæjar-
ins skoðaður en seinni hluta dags-
ins fóru allir í sund eins og sjá má
á meðfylgjandi myndum. Á föstu-
dag var hópferð í Listasafnið og
Deigluna á dagskrá og skóla-
skemmtun og ball um kvöldið.
Dagurinn í dag, laugardagur, er
frjáls dagur og ætlast til að gest-
gjafarnir hafi ofan af fyrir gestun-
um en á morgun er skipulögð ferð
í Mývatnssveit og einnig er ætlun-
in að kíkja í heimsókn í Laxár-
virkjun. „Bæjarstórn Akureyrar
hefur boðið Dönunum í Mývatns-
sveitartúrinn og er það framlag
bæjarins til að styrkja þessi sam-
skipti. Islendingarnir fara með,
þeir sem vilja, en þeir borga sjálf-
ir,“ sagði Baldvin Bjamason. AI
Þær Gunný, Sigga, Arna, Sólveig og Rósa létu sér nægja að fylgjast með
þeim sem voru í sundlauginni.
Spennandi
að kynnast
einhverju nýju
Dönsku krakkamir komu til Ak-
ureyrar á miðvikudaginn og á
fimmtudag brugðu þau á leik í
Sundlaug Akureyrar og voru 10.
bekkingar í Gagnfræðaskólanum
að sjálfsögðu mættir á staðinn
líka. Þegar blaðamaður og ljós-
myndari Dags mættu upp í sund-
laug stóð leikurinn sem hæst.
Nokkrir hressir krakkar voru í
boltaleik, aðrir notfærðu sér
rennibrautimar sem búið er að
setja upp við sundlaugina en
einhverjir létu sér nægja að
horfa á. Þær Ziva og Malene frá
Randers og Aldís frá Akureyri
gerðu stutt hlé á leiknum og
gáfu sér tíma til að spjalla við
blaðamann.
Ziva Möller og Malene Krist
voru sammála um að mjög gam-
an væri á Akureyri. „Við erum
hér í bekkjarferð með skólanum
okkar. Við erum 36 og með okk-
ur em 4 kennarar. Það er spenn-
andi að koma hingað, kynnast
einhverju nýju og sjá hvemig
fólk býr á öðmm stöðum. Margt
er öðruvísi hér en við héldum.
Húsin eru t.d.öðmvísi og svo em
það öll fjöllin hér í kring,“
sögðu þær stöllur. Og þar með
vom þær roknar, enda hrópin og
lætin í sundlauginni lokkandi.
Rosalega gaman
Aldís Ösp Sigurjónsdóttir er í
10. bekk í Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar og hún sagði að heim-
sókn dönsku krakkanna væri í
framhaldi af bréfaskriftum milli
þeirra og íslensku krakkanna.
„Það var síðan ákveðið að þau
kæmu til íslands í heimsókn og
við förum ömgglega í apríl til
Danmerkur til að endurgjalda
heimsóknina,“ sagði Aldís.
„Þetta er rosalega gaman og
góð tilbreyting. Við erum búin
að vera að undirbúa þetta í heila
viku og heimsóknin gengur
ofsalega vel.“
Aldís sagði að dönsku krakk-
amir gistu hjá krökkunum sem
þeir hefðu skrifast á við.
„Nokkrir gengu af þar sem þeir
höfðu engan til að skrifa og var
auglýst eftir sjálfboðaliðum til
að hýsa þá. Það gekk mjög vel
og allir fengu heimili.“ AI
Malene (t.v.), Ziva og Aldís voru allar sammála um að heimsókn dönsku
krakkanna til Akureyrar væri hið besta mál.
Hvammstangi:
„Það hefur verið jafn stígandi í
þessum rekstri hjá mér, á þeint
tveimur árum sem liðin em síðan
ég fór af stað. Það hefur hjálpað
mér talsvert að Hvammstangi er
miðjustaður á landinu, ef svo má
að orði komast. Er miðja vegu
milli meginbyggðar á Norðurlandi
og Reykjavíkursvæðisins. Fyrir
mörgum er nánast trúarlegt atriði
að versla sem minnst við fyrirtæki
fyrir sunnan,“ segir Jóhanncs Er-
lendsson, bílasali á Hvammstanga,
í samtali við biaðið.
Blaðamaður hitti Jóhannes á
ferð sinni á Hvammstanga á dög-
unum og var viðmælandi brattur
og bjartsýnn á framtíðina. Bíla- og
búvélasalan heitir fyrirtæki Jó-
hannesar og það hefur hann starf-
rækt í tvö ár, sem fyrr segir. Jafn-
framt því að selja notaða bíla hefur
talsvert verið umleikis í sölu bú-
véla og hefur Jóhannes umboð fyr-
ir flestar búvélainnflytjendur
landsins. Að hafa öll þau umboð
segir Jóhannes vera sér og sínum
viðskiptavinum gott; þannig geti
hann miðlað bílum og búvélum
sitt á hvorn vænginn og hvað
styrki annað.
Jóhannes settist að á Hvamms-
tanga fyrir um þremur árum síðan,
en lengst af þar áður hafði hann
búið á Selfossi. Starfað þar meðal
annars við bílasölu, þannig að
hann er ölium hnútum kunnugur í
starfsemi sent þessari.
Jóhannes segir að aukin sam-
keppni sé á þessurn markaði hér
norðanlands og fleiri bílasölur hafi
fremur en hitt styrkt þá sem verið
hafa í þeim rekstri fyrir. Þegar úr-
valið sé meira á heimaslóð leiti
færri suður til Reykjavíkur.
„Markaðurinn hjá mér nær alveg
héðan úr Hrútafirði og austur um.
Mikið af viðskiptavinum mínum í
landbúnaðarvélunum eru úr Eyja-
firði og Þingeyjarsýslunum. Það
hygg ég að sé vegna þess að á
þeim slóðum eru menn með stærri
bú en víða annarsstaðar og þurfa
því fremur að vera ( vélakaupun-
um en hinir. En síðan eru líka við-
skiptavinir úr öðrum landshlutum
og auglýsi ég í Degi eru menn al-
veg austan af Homafírði og raunar
víðar að hringja í mig,“ sagði Jó-
hannes, bfla- og búvélasali. -sbs.
Jóhannes Grlendsson, hílasali á Hvammstanga. „Fyrir mörgum er nánast trúarlegt atriði að versla sem minnst
við fyrirtæki fyrir sunnan,“ scgir hann.