Dagur - 23.09.1995, Blaðsíða 11
Laugaraagur sepierriDer iyeo - umuuii - 11
Ragnar Þorgrímsson með 8,3 kg þungan og 85 cm langan sædjöful.
Fiskurinn var færður útibúi Hafrannsóknastofnunar á Akureyri.
Sigurbjörn Kristinsson
að kríulappa trollið.
Einar Geirdal kampakátur
með ýsuflökin.
Þorgeir Baldursson heldur hér á vel stórum gullkarfa.
Verslun til sölu!
Verslunin Hestasport í Kaupangi,
Akureyri, er til sölu
Verslunin er meb vörur fyrir hestafólk, allt fyrir
gæludýrin auk þess aö hafa fatnað fyrir
útivistarfólk.
Nánari upplýsingar eru gefnar í versluninni í
Kaupangi vib Mýrarveg.
m LAIMDVERIMD
Landgræðslu- og náttúruuerndarsamtök íslands
Aðalfundur
Landverndar
verður haldinn á Hótel Flúðum dagana 14. og 15.
október 1995.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Umfjöllun um fjölbreytileika náttúrunnar í tilefni af
náttúruverndarári Evrópu 1995.
Nánari upplýsingar verða sendar til aðildarfélaga.
Landvernd.
Löggildingarpróf
fyrir þýðendur
Dagana 14. og 21. október 1995 verður haldið
próf fyrir þýðendur sem vilja öðlast löggildingu
sem skjalþýðendur og dómtúlkar.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í
síðasta lagi föstudaginn 29. september 1995.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
21. september 1995.
Barnastarf í Glerárkirkju
Sunnudaginn 1. október kl. 11
hefst bamastarfið í Glerárkirkju
en næstkomandi sunnudag kl. 11
verður fjölskylduguðsþjónusta,
þar sem fræðsluefni vetrarins
verður kynnt.
Eins og áður hefur fræðsludeild
kirkjunnar látið vinna vandað efni
fyrir börnin, sem nota á í kirkju-
skólanum í vetur. Efnið er sjálf-
stætt framhald af fræðsluefni
barnastarfs undanfarinna ára þar
sem áhersla er lögð á vináttuna.
Yfirskrift þess er sem áður Litlir
lærisveinar og felur efnið meðal
annars í sér spennandi sögur og
skemmtileg verkefni. Fræðsluefn-
ið verður að vera bæði vandað og
aðgengilegt því börnunum hæfir
aðeins það besta því þau eru
kirkja framtíðarinnar. Umsjónar-
maður bamastarfsins í vetur verð-
ur Aðalsteinn Þorsteinsson.
Hver samvera hefur ákveðið
þema og einnig uppbyggingu er
samanstendur af fræðslu, sögu-
stundum og bæn. Öll bömin fá
síðan ætíð heimaverkefni, en slík
verkefni geta orðið tilefni góðra
stunda í faðmi fjölskyldunnar þeg-
ar heim er komið.
Dýrasti fjársjóðurinn sem okk-
ur er trúað fyrir hér í heimi eru
börnin okkar. Þegar við bámrn
þau til skímar gengumst við undir
þá skyldu að þau fari ekki á mis
við þá gjöf sem felst í því að
þekkja Guð og eignast samfélag
við hann. Meginmarkmiðið með
efninu sem stuðst verður við í vet-
ur, Litlum lœrisveinum, sem og
öllu barnastarfi kirkjunnar er:
- að bömin kynnist Guði sem
algóðum og almáttugum og læri
að leita til hans undir öllum kring-
umstæðum.
- að börnin læri hvemig hægt
er að breyta rétt samkvæmt kristi-
legu siðgæði og kærleika.
- að börnin kynnist siðum og
boðskap kirkjunnar og finni að
þau tilheyra henni.
Fátt er foreldrum mikilvægara
og meiri gleðigjafi en að eiga góð-
ar stundir með bömum sínum.
Margir eiga dýrmætar minningar
úr bernsku af ferðum með foreldr-
um til gleðistunda í kirkjunni. Slfk
reynsla styrkir okkur og eflir fjöl-
skylduna í hvívetna. Með ósk unt
að sem flestir sjái sér fært að eign-
ast slíkar stundir á komandi vetri.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Höfundur er sóknarprestur í Glerárhverfi á Ak-
ureyri.
IHsala
i Vín
Pottablóm - Leirpottar
Blómaker og fleira
30-50% afsláttur
Ódýrír
haustlaukar
Blómaskáli við Hrafnagil
RFLTIN %na
I IMFFRfl A R
UMFERÐAR
RÁÐ