Dagur - 23.09.1995, Qupperneq 20
Ekki leikur lengur vafi á því að
haustið er komið á íslandi. í
dag verður þokkalegt veður
norðanlands, hæg breytileg átt
en hangir sennilega þurrt og
sólskin með köflum. Á sunnu-
daginn snýst hinsvegar í norð-
læga átt og spáð er slydduélj-
um. Hiti verður á bilinu 1-5
stig. Á mánudag kemur lægð
upp að landinu og vindátt
verður suðaustlæg. Rigning um
allt land. Þessi mynd var tekin
á Akureyri í gærmorgun og
eins og sjá má var heldur
kuldalegt um að litast, snjóað
hafði til fjalla og menn klæddu
sig í vetrarfatnaðinn. Mynd: bc
Bílvelta
á Akureyri
Bíll valt út af Klettaborgar-
vegi á Akureyri, rétt við
gömlu Glerárbrúna, laust eftir
klukkan átta í gærmorgun.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður missti vald á bflnum
með þeim afleiðingum að bfllinn
valt út af veginum. Þrír voru í
bflnum og kvartaði einn undan
eymslum í hálsi en hinir tveir virt-
ust ómeiddir. Bfllinn mun vera
mikið skemmdur. AI
Kristileg sjónvarpsstöð:
Omega íhugar
útsendingar norðanlands
Kristilega sjónvarpsstöðin Erlend og innlend dagskrá
Omega hefur sjónvarpað Efnið á Omega sjónvarpsstöðinni
kristilegu efni á höfuðborgar- er bæði erlent og innlent og hefur
svæðinu í þrjú ár eða frá árinu innlenda dagskráin verið að efl-
1992. Töluverð þensla er hjá ast undanfarið. Erlenda efnið er
stöðinni um þessar mundir, til frá öðrum kristilegura sjónvarps-
stendur að setja upp sendi í stöðum, m.a. frá Bandaríkjunum
Vestmannaeyjum, og einnig 0g SvíþjÖð og hefur verið mikið
eru uppi hugmyndir um að um umræðu-og spjallþætti. „Við
hefja útsendingar á Norður- förum líka fljótlega að vera með
landi. fjölskyldumyndir og bamaefni,"
Eiríkur Sigurbjörnsson, sem segir Eiríkur.
er í forstöðu f'yrir Omega sjón- Eiríkur segir að stöðin hafi
varpsstöðina, segir að verið sé eflst að undanförnu og mikið
að skoða þann möguleika að áhorf sé í borginni. Dagskráin sé
heija sjónvarpsútsendingar á líka létt og enginn jarðarfarar-
Norðurlandi og yrði þá fyrst og bragur á dagskránni. „Við erum
fremst um Akureyri, Húsavík og byrjuð með beinar útsendingar á
nærliggjandi sveitir að ræða. miðvikudags-, fimmtudags- og
Það er kristið fólk sem stend- föstudagskvöldum, þar sem við
ur að Omega sjónvarpsstöðinni erurn með frásögur og fræðslu
en hún er óháð að því leyti að og eins þjónustu fyrir fólk sem
hún tengist ekki neinni ácveð- getur hringt inn. í gær (fimmtu-
inni kirkjudeild eða trúarsöfn- dagskvöld) vorum við t.d. með
uði. Dagskráin er opin en rekst- útsendingu á sama tíma óg eitt-
urinn er byggður upp á stuðn- hvað mikið var um að vera hjá
ingsmannakerfi. Eitthvað hefur hinum stöðvunum. En það hafði
einnig verið um auglýsingar en engin áhrif á okkar áhorfun því
Eiríkur segir að þær séu þó af línurnar hjá okkur voru rauðgló-
skornum skammti og aðal tekju- andi og ég hugsa að þetta hafi
lindin sé í formi frjálsra fram- verið bestu viðbrögð sem við
laga frá stuðningsmannakerfínu. höfum fengið fram að þessu.“ AI
Guðmundur Stefánsson:
Verktakar veröa
að geta leitaö
réttar sins
Guðmundur Stefánsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknar-
flokks í bæjarstjórn Akureyrar,
segir að í sínum huga sé fráleitt
að verktakar, hvaða nafni sem
þeir nefnast, séu útilokaðir frá
því að vinna fyrir Akureyrarbæ
ef þeir leiti til dómstóla vegna
ágreinings um verk sem upp
kunni að koma milli viðkom-
andi verktaka og bæjarfélagsins.
Guðmundur lét þessi orð falla
við Dag vegna viðtals sem blaðið
birti í gær við eigendur Teikni-
stofunnar Forms á Akureyri, en
þar segja þeir orðrétt; „en okkur
var tjáð það undir rós eða með
beinum orðum af ákveðnunt bæj-
arfulltrúa, að þá myndi það rýra
okkar möguleika í framtíðinni til
þess að fá verkefni hjá Akureyrar-
bæ.“ Guðmundur Stefánsson tekur
það fram að hann sé ekki bæjar-
fulltrúinn sem eigendur Forms
vitni þarna til.
„Hafnarstjórn og Akureyrarbær
töldu að Form hefði brotið á sér
og þessi umframkeyrsla á reikn-
ingum er ekki meginástæða þess
að verksamningi var rift, heldur sú
að hafnarstjóm mat það svo að
skipulagshönnuðir væru að vinna
með Flutningamiðstöð Norður-
lands, sterkum hagsmunaaðila, á
sama tíma,“ sagði G.uðmundur.
„Eg vil í þessu sambandi leggja á
það áherslu að Teiknistofan Form
hlýtur að verða að geta treyst því
að hún geti skotið þessu máli til
dómsstóla, án þess að hún eigi á
hættu að verða útilokuð frá verk-
um hjá Akureyrarbæ í framtíðinni.
Eg segi fyrir mig að ég myndi
aldrei ljá á þvt máls að útiloka
einn aðila, eða klekkja með einum
eða öðrum hætti á honum, þótt
hann fari í mál við Akureyrarbæ.
Aðili eins og Akureyrarbær gerir
einfaldlega ekki slíkt,“ sagði Guð-
mundur. óþh
Tveir norðienskir stóðhestar til sölu:
Tilboð komin
i
Hjört og Gassa
Hrossaræktarsambandi Ey-
firðinga og Þingeyjarsýslna
hefur borist tilboð í stóðhestinn
Hjört frá Tjörn, en fulltrúaráð
sambandsins hafði áður ákveðið
að selja þennan öfluga hest. Til-
boðið er innlent en Guðmundur
Birkir Þorkelsson, formaður
sambandsins, kvaðst í samtali
við Dag í gær ekkert vilja segja
um hve hátt tilboðið væri.
Fyrir nokkru var jafnframt
ákveðið að selja stóðhestinn
Gassa frá Vorsabæ II og hefur
þegar borist þriggja milljóna
króna tilboð í hestinn frá erlend-
um aðilum. Hérlendir aðilar hafa
Styrkir til
Viðars og HA
Meðal þeirra 30 aðila sem
hljóta styrk á þessu ári úr
Menningarsjóði fslands og Finn-
lands er Háskólinn á Akureyri
og Viðar Eggertsson, leikhús-
stjóri LA.
Að þessu sinni bárust 97 um-
sóknir um styrk úr sjóðnum, þar af
55 frá Finnlandi og 42 frá íslandi.
Úthlutað var 120.900 finnskum
mörkum sem jafngildir um 1,8
millj. íslenskra króna.
Háskólinn á Akureyri hlýtur
4000 ntarka styrk til að bjóða fyr-
irlesara frá Finnlandi á ráðstefnu.
Þá hlýtur Viðar Eggertsson, leik-
hússtjóri LA, ferðastyrk til að
kynna sér finnska leiklist. óþh
þó forkaupsrétt og nú er beðið
viðbragða þeirra. Búist er við að
sala þessara hesta skýrist alveg á
næstunni. Almennur vilji er fyrir
því að selja tvo áðurnefnda stóð-
hesta að sögn Guðmundar Birkis,
og kveðst hann líta svo á að nauð-
synlegt sé fyrir hrossarækt í Eyja-
firði og Þingeyjarsýslum að fá
nýtt blóð í hrossaræktina. Einnig
fáist allgott verð fyrir þá nú. Hann
neitar því hinsvegar ekki að ekki
séu allir sammála um að selja beri
þessa hesta.
Þriðji stóðhesturinn sem er í
eigu Hrossaræktarsambandsins er
Baldur frá Bakka. Hann er ekki
falur, að sögn Guðmundar Birkis
Þorkelssonar. -sbs.
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565