Dagur - 07.10.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 7. október 1995 - DAGUR - 3
Sveini Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings, sagt upp:
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Vill fa 32 milljonir
fyrir sinn hlut
Rættum
gangstéttagerð
Stjórn útgerðarfélagsins Skag-
strendings hf. á Skagaströnd
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
Ráðið í Kelduna
Fjórar umsóknir bárust um störf
við félagsmiðstöðina Kelduna á
Húsavík. Bæjarráð hefur sam-
þykkt tillögu æskulýðs- og
íþróttanefndar um að Friðbjörn
Oskarsson og Haukur Gunnars-
son verði ráðnir í störfin.
Listaverkakaup
Bæjarráði hefur borist bréf frá
raenningarmálanefnd með ósk
um ljárveitingu til að styrkja
kaup á listaverki sem Framhalds-
skólinn á Húsavík hyggst standa
fyrir. Farið er fram á 400-500
þúsund krónur og var erindinu
vísað til gerðar ijárhagsáætlunar.
Heimilishjálp
Bæjarráð hefur samþykkt erindi
frá Félagsmálaráði Húsavíkur
um að auglýsa 50% starf við
Heimilishjálp Húsavíkur. Stöðu-
gildi eru nú I.5 og anna starfs-
menn ekki aukinni þörf fyrir
þjónustu.
Kauptilboð í Prýði
Nýtt kauptilboð frá Jóni Her-
manni Óskarssyni hefur borist í
hlutabréf Framkvæmdalánasjóðs
í Prýði hf. Tilboðið hljóðar upp á
þrjár milljónir og er með fyrir-
vara um að aðrir eigendur
saumastofunnar taki einnig til-
boðum hans í hlutabréf. Stjórn
sjóðsins er sammála um að hafna
tilboðinu en í bæjarráði bar Sig-
urjón Benediktsson fram tillögu
um að gera bjóðanda gagntilboð,
sem aðrir bæjarráðsmenn voru
ekki tilbúnir að samþykkja. Mál-
ið fer því fyrir bæjarstjóm.
Rækjuverksmiðja
Sigurjón Benediktsson lét bóka í
bæjarráði að hann væri ósam-
mála skoðun meirihluta stjómar
Framkvæmdalánasjóðs að ekkert
væri við störf stjómar og/eða
framkvæmdastjóra FH hf. að at-
huga, því við endurskipulagn-
ingu rækjuverksmiðju FH hafi
komið í ljós misbrestur í áætl-
anagerð og framkvæmdastjórn.
Byggt við banka
íslandsbanki, Stóragarði l, hefur
fengið leyfi bygginganefndar
fyrir 71,4 m2 steinsteyptri við-
byggingu til austurs. Bygginga-
fúlltrúi kynnti bókun bygginga-
nefndar frá 1964 um að byggja
eigi tvær hæðir ofan á núverandi
byggingu bankans og er við-
byggingin samþykkt með söniu
kvöðum.
ákvað nýlega að segja Sveini
Ingólfssyni framkvæmdastjóra
upp störfum og tekur uppsögnin
gildi um næstu áramót. Sveinn
fékk ársleyfi frá störfum um síð-
ustu áramót og hefur Óskar
Þórðarson gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra útgerðarfyrirtæk-
isins í ijarveru hans.
í framkvæmdastjóratíð Sveins
Ingólfssonar tók Skagstrendingur
hf. stórstígum framförum og á í
dag tvo frystitogara og einn ísfisk-
togara. Fyrsti frystitogari landsins,
Örvar HU, var í eigu Skagstrend-
ings hf. Á árinu 1994 var Skag-
strendingur hf. 14. stærsta sjávar-
útvegsfyrirtæki landsins með
1.018 milljóna króna veltu; launa-
greiðslur námu 372 milljónum
króna og meðallaun 3,9 milljónum
króna.
„Þessi ákvörðun kemur mér
ekki svo mjög á óvart. Ég fann
það seinni hluta síðasta árs að inn-
an stjómarinnar voru menn sem
vildu hafa hlutina öðru vísi en ég
og voru óánægðir með mín störf í
ýmsu, bæði smáu og stóru. Ég
taldi það því rétt að fara fram á
ársleyfi frá störfum og láta reyna á
það hvort það breyttti einhverju en
það hefur greinilega ekki breytt
neinu og því ofur eðlilegt að þeir
segja mér upp störfum nú,“ sagði
Sveinn Ingólfsson.
Hlutafé í Skagstrendingi hf. er
að nafnvirði 177 milljónir króna
og á Sveinn Ingólfsson 5% af því
eða 8,8 milljónir króna. Hlutabréf
hans eru til sölu hjá verðbréfafyr-
irtæki og segist Sveinn vilja fá 32
milljónir króna fyrir þau, eða á
genginu 3,6, sem hann telji sann-
gjarnt. Tilboð hefur þegar borist í
bréfin á genginu 3,2 eða um 28
milljónir króna, en Sveinn segist
ekki vita hvaðan það tilboð sé eða
hver sé uppruni þess.
Hjá Kaupþingi Norðurlands
fengust þær upplýsingar að besta
salan á hlutabréfum f Skagstrend-
ingi að undanfömu væri á genginu
Kælismiöjan Frost:
Góð verk-
efnastaða
Mikið hefur verið að gera í sum-
ar hjá Kælismiðjunni Frost á
Akureyri og góð verkefnastaða
framundan. Þá mun fyrirtækið
innan skamms flytja í annað og
rúmbetra húsnæði við Fjölnis-
götu. Vöxtur fyrirtækisins hefur
verið mjög ör. Á einu og hálfu
ári hefur starfsmönnum fjölgað
úr 18 manns í 55 og hafa verið
upp í 70 manns í vinnu fyrir fyr-
irtækið þegar undirverktakar
eru meðtaldir.
Þessa dagana er fyrirtækið að
smíða frystikerfi sem verður í
nýju frystihúsi sem er í byggingu í
Namibíu. Af öðrum stórum verk-
efnum má nefna að fyrirtækið
smíðaði frystikerfi í togarann Eng-
ey frá Reykjavík, sem er í breyt-
ingum í Póllandi. Er maður frá
Kælismiðjunni Frost staddur ytra
til að flygjast með niðursetningu
þess. Að sögn Elíasar Þorsteins-
sonar hjá Kælismiðjunni Frost, er
frekar að menn verði að stíga á
bremsuna þessa daga og taka ekki
of mikið af verkefnum að sér til
þess að geta sinnt því sem fyrir
liggur. HA
3,10 og hefðu selst bréf í septem-
bermánuði fyrir 1,5 millj. króna
að nafnverði.
„Það er ómögulegt að segja
hvað ég tek mér fyrir hendur í
ljósi þessara staðreynda en ég er
ekki með neitt í sigtinu. Ég vissi
að það gat brugðið til beggja vona
hvort ég færi aftur norður að
loknu leyfinu og er því nú á lausu
ef einhver vill nýta mína starfs-
krafta,“ sagði Sveinn Ingólfsson.
Stjóm Skagstrendings hf. mun í
þessum mánuði taka ákvörðun um
það hvemig á málum verður hald-
ið; þ.e. hvort Óskar Þórðarson
verður ráðinn áfram eða starfið
auglýst laust til umsóknar. Stjóm-
arformaður er Gylfi Sigurðsson.
GG
Á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur sl. fimmtudag var rætt
um gangstéttagerð í bænum.
Það var Katrin Eymundsdótt-
ir (D) sem kvaddi sér hljóðs og
vitnaði til greinar um gerð gang-
stétta og reynslu sinnar af gang-
stéttafyrirkomulagi vegna búsetu
erlendis. Taldi hún hefðbundnar
gangstéttir, eins og verið er að
gera á Húsavík um þessar mund-
ir, oft óþarfar nema við mestu
umferðargötumar. Þessar gang-
stéttir væru dýrar og einnig oft
farartálmi fyrir hjólandi börn og
fleiri. Sagði hún að erlendis
tíðkaðist að mála einfaldlega
línu á malbikaða götu og af-
marka gangstétt á þann máta.
Arnfriður Aðalsteinsdóttir
(B) tók jákvætt í hugmyndina og
fleiri tóku til máls og rætt var
um að vísa hugmyndinni til
skipulags- og tæknimanna bæj-
arins.
Öskur Þorkels
Umræður bæjarfulltrúa dmkkn-
uðu síðan gjörsamlega í ógurleg-
um öskmm Þorkels Bjömssonar,
fréttaritara útvarpsins, í næsta
sal. Þar mun Þorkell hafa verið
að túlka viðbröð meindýraeyðis
bæjarins við býflugnastungum,
en Dagur greindi í vor frá
óskammfeilinni árás þeirra inn á
heimili hans. Fréttin mun komin
í leikgerð sem verið var að taka
upp fyrir Sjónvarpið og sýnd
verður í skemmtiþætti frá Húsa-
vík í næstu viku. IM
l apríl 1970 héldu þrít geimfarar til tunglsins
Á þrettántiu stuntiu.
á þrettántiu mínútu.
var apollo 13 skotið á loft
Og 13. dag mánaðarins... fór allt úrskeiðis
sem úrskeiðis gat farið.
Tom Hanks, Kevin Bacon, Bill Paxton, Kathleen Quinlan,
Ed Harris og Gary Sinise í mynd Rons Howard.
Myndin er f orsýnd samtímis í Borgarbíói,
Laugarósbíói og Hóskólabíói.
laugardaginn kl. 23.13