Dagur - 07.10.1995, Page 15

Dagur - 07.10.1995, Page 15
UTAN LAND5TEINA Laugardagur 7. október 1995 - DAGUR - 15 UMSJÓN: ELSA JÓHANNSDÓTTIR Ung og ástfangin... Ferðalag Jackson ásamt litlu vinunum sínum varð til þess að eiginkona hans þoldi ckki meira. ...og ári síðar er annað uppi á tcningnum ef marka má svip- inn á Lisu. lisck viCC sfyChað í RveCCi ú er allt komið í bál og brand milli hjónakomanna MICHAEL JACK- SOM og USU MARIE PRESLEY Yfirvöld halda áfram að rannsaka Michael og furðuleg sambönd hans við unga drengi og það keyrði um þverbak í hjónabandinu þegar Michael skrapp í frí til Frakklands í júlí sl. og hafði með sér bræðuma Eddie og Frank Cascio sem eru 11 og 14 ára. Lisa Marie hefur verið yfirheyrð vegna samskipta Michaels við ungviðið en lætur lítið uppi. Ferðalag Michaels var hins veg- ar það sem fyllti mælinn og nú vill Lisa skilnað og það ekki seinna en strax. Heyrst hefur að Michael sé búinn að bjóða henni 15 milljónir dollara og reynir nú ákaft að sættast við hana með aðstoð ráðgjafa sinna. Þótt Lisa eigi sand af seðlum hefur mamma hennar, Priscilla Presley, samt yfimmsjón með flestöllu sem snertir fjár- mál dótturinnar. Auk þess hafði Priscilla verið andvíg þessu hjónabandi frá upphafi og vill að það taki enda sem fyrst. Fjöl- skylda Mikka er farin að hafa miklar áhyggjur og er sannfærð um að yfirvöld muni ekki hætta fyrr en búið sé að koma honum undir lás og slá. Mamma Michaels grátbað hann um að flytja úr landi til að komast burt frá þessu öllu, en enginn veit í augnablikinu hvað goðið hyggst gera í málinu. Jackson neitar öllu harðlega og segir nákvæmlega ekkert athugavert við að taka litlu vini sína með sér í frí. „Ég hef þekkt Eddie og Frank árum saman, síðan þeir voru pínulitlir. Við höfurn ferðast mikið saman og það er ekkert óvenjulegt við okkar samband," sagði hann í viðtali en þykir samt ekki nógu trúverðugur. Rannsókninni lauk aldrei á sínum tíma þegar Jackson var fyrst sakaður um að hafa misnotað ungan strák og lögreglan hélt áfram að herja á hann. Saksóknari bíður nú þar til nógu áreiðanleg vitni gefa sig fram til að geta ákært Jackson og Gull- drengurinn er því vægast sagt í slæmum málum. Sértrúarsöfnuður leikur nú lausum hala í Mexfkó og myrðir unga og myndarlega karlmenn í hrönnum. Söfnuður þessi samanstendur af forríkum kvensum, sem flestar gegna hárri stöðu í þjóðfélaginu. Þær munu vera grun- aðar um að lokka til sín karla á afskekkta staði, bjóða þeim vín og alls kyns ástarlyf og drepa þá síðan sam- kvæmt ævafom- um siðum ef þeim þykir fórnarlömbin ekki standa sig í stykkinu, þ.e.a.s. við kynmök. Lögreglan hefur nú fundið fjögur lík hálf- grafin út í auðnum Yucat- an Pen- Því miður, ekki nógu góður... Þessi náði að komast snemma heim úr „partý- inu“, dálítið kramhúlcraður þó. insula í Mexíkó, sem bera þess merki að mennimir hafi bæði verið stungnir og skotnir til bana. Fjórar konur sitja nú í varð- haldi vegna þessa máls og rannsókn þess gerist nú æ víðtækari. „Þær tæla þá af bör- um og kaffihúsum og bjóða þeim í gleðskap og taka síðan til sinna ráða ef þeir reynast svo óheppnir að geta ekki fullnægt kynferð- islegum þörfum þeirra,“ sagði rannsóknar- lögreglumaður í málinu. Það komst fyrst upp um þessi óðu morðkvendi þegar tveir unglingsstrákar urðu vitni að því þegar einn þessara ólánsömu elskhuga var stunginn í einu „partýinu.“ Eins gott að standa sig! Ellismellurim Fmnkie Stórsöngvarinn FRANK SIMATRA er nú farinn að láta á sjá og sást fyrir skömmu á frumsýningarkvöldi í óperunni í Los Angeles. Konu nokkurri brá illilega í brún þegar hún sá hann koma inn, studdan af Barböru konu sinni og öðrum dyggum vini. „Ég hefði aldrei trú- að því að þetta væri hann,“ kjökraði kon- an með tárin í augunum og hefur líklegast Hjartaknúsarinn kominn til ára sinna. verið dyggur aðdáandi. „Hann var svo veikburða og þessi frægu, bláu augu voru sljó og starandi, skeggið rytjulegt og svo var hann næstum alveg sköllóttur. Fólk tók andköf þegar það sá hann koma.“ En hvað er svo sem við öðru að búast, kall- anginn lifði svo sannarlega hátt á yngri ár- um og var nánast á útopnu allt sitt líf. Menn er nú farið að gruna að Frankie gamli muni nú draga sig út úr sviðsljósinu fyrir fullt og allt og tilkynna það á hátíðar- höldum, sem hafa verið skipulögð í tilefni af 80 ára afmæli hans þann 12. desember næstkomandi. „Frank er orðinn það veik- burða í dag að það er nær enginn mögu- leiki að hann geti staðið á sviði lengur, hvað þá munað söngtexta. Það er vart hægt að kannast við hann sem hinn fjör- uga og sveiflandi Sinatra, sem við þekkt- um hér einu sinni. Hann hefur farið „sína eigin leið“ í nær 80 ár og það er kominn tími til að hann kveðji feril sinn sem söngvari,“ varð vini hans að orði. Jáýja pnmmm a£Mánafti Prinsinn féll kylliflatur fyrir Campell og er varla enn staðinn upp... ^■^urstaríkið Mónakó stóð bókstaflega á S#*öndinni þegar fréttist að ALBERT RRIMS og súpermódelið MAOMI CAMPELL hefðu í hyggju að gifta sig í vor. Hin 25 ára gamla fegurðardís er þekkt fyrir allt annað en að hafa rólegt og fágað yfir- bragð, sem sæma ætti sannri prinsessu. í stað þess lifir hún villtu næturlífi og hefur verið bendluð við kappa eins og Sylvester Stallone, Robert De Niro, Jean-Claude Van Damme, Mike Tyson, Eric Clapton o.fl. Auk þess hefur hún verið að berja mann og annan á næturklúbbum í New York og síð- ast setti hún punktinn yfir i-ið þegar hún hélt smá nektarsýningu á lesbískum bar á sömu slóðum. Sjónarvottur hélt því fram að hún hefði bara viljað njóta athyglinnar og bætti við: Því ekki það? Hún er búin að gera nánast allt annað... Prinsinn kynntist Naomi í maí sl. á AIDS-góðgerðarsamkomu á frönsku Rívíer- unni og féll kylliflatur. „Ég vissi um leið og ég sá hana að þetta væri konan sem ég vildi eiga,“ sagði hinn 37 ára gamli piparsveinn. „Eg hef aldrei kynnst konu með eins stór- brotinn persónuleika, hún heillaði mig upp úr skónum!“ Albert er samt ekki alsaklaus í kvennamálum og átti meðal annars í sam- bandi við aðra fræga stjörnu í tískuheimin- um, Claudiu Schiffer. Hann henti öllu frá sér og æddi af stað til Parísar til að hitta Naomi þar sem hún var við módelstörf. í lok júlí bauð hann henni svo í rómantíska siglingu á snekkju sinni og bar upp bónorð- ið. „Hún sagði að henni fyndist Monte Carlo einhver fallegasta borg í heimi. Og ég sagði: Það er leið til að gera hana enn fal- legri. Hvemig þá? spurði Naomi. Ef þú kæmir og settist hér að. Viltu verða konan mín? Þetta kom svolítið flatt upp á hana í fyrstu og svo svaraði hún, einfalt og stutt: Já.“ Rainier fursti virðist ekki síður hrifinn af konuefni sonarins. Hann var í sjöunda himni þegar hann veitti þeim blessun sína og nú stefnir allt í brúðkaup áratugarins en það mun að öllum líkindum fara fram í sömu kirkju og brúðkaup furstans og Grace Kelly fór fram á sínum tíma. Athöfnin fer fram að kaþólskum sið og Naomi, sem er mótmælandi, hyggst lagfæra það með því að skipta bara um trú. Talsmaður furstafjöl- skyldunnar sagði að nýja prinsessan ætti svo sannarlega eftir að setja Mónakó á hvolf þegar hún sést trítla að altarinu. „Naomi er kærkomin tilbreyting fyrir Mónakó, staðurinn er orðinn svo daufur. Brúðkaupsdagurinn verður alþjóðlegur frí- dagur og þessi viðburður verður sá stærsti síðan Grace Kelly kom hingað frá Hollywood fyrir 40 árum.“ Og nú er bara að bíða og sjá hvort þau Albert eigi eftir lifa hamingju- söm til æviloka... Setur Naomi fursta- dæmið á annan end- ann...?

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.