Dagur - 10.10.1995, Page 1
78. árg.
Akureyri, þriðjudagur 10. október 1995
194. tölublað
í STAKKAR
! , í
| URVALI
Tólf sækja
um forstööu-
mann atvinnu-
skrifstofu
Atvinnumálanefnd Akur-
eyrarbæjar bárust 12 um-
sóknir um stöðu forstöðu-
manns atvinnuskrifstofu.
Hallgrímur Guðmundsson,
núverandi forstöðumaður,
mun sem kunnugt er láta af
störfum innan skamms að
eigin ósk.
Að sögn Guðmundar Stef-
ánssonar, fonnanns atvinnu-
málanefndar, verða umsóknir
teknar til skoðunar á fundi at-
vinnumálanefndar í dag. í aug-
lýsingu um starfið kemur fram
að viðkomnadi þurfi að geta
hafið störf sem fyrst og því lfk-
legt að niðurstaða um hver
hlýtur starfið liggi fyrir innan
ekki mjög langs tíma. Ráðning-
artími er til 15. júní 1998, þ.e.
út yfirstandandi kjörtíabil. HA
Aukafundur
Búnaðarþings
hefstídag
Idag kl. 10.30 verður settur í
Súlnasal Hótels Sögu auka-
fundur Búnaðarþings til þess
að Jjalla um samning Bænda-
samtaka fslands og landbún-
aðarráðherra um breytingar á
gildandi búvörusamningi í
sauðfjárframleiðslu, sem und-
irritaður var l.október sl.
Aukafundinn sitja 28 fulltrú-
ar búnaðarsambandanna og 11
fulltrúar einstakra búgreinafé-
laga og búgreinasambanda.
Við upphaf fundarins mun
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka íslands, gera grein fyr-
ir þeim breytingum sem gerðar
hafa verið á gildandi búvöru-
samningi. óþh
íslandsmót í
einmenningi í bridds:
Þing Alþýöusambands Noröurlands ályktar um uppsögn kjarasamninga:
Algjör samstaða
Norðanmaður
stóð uppi sem
sigurvegari
Islandsmótið í einmenningi í
bridds var haldið í Reykjavík
um helgina. Spilaðar voru þrjár
lotur og varð Magnús E. Magn-
ússon frá Bridgefélagi Akureyr-
ar sigurvegari í einmenningi
með 2785 stig en næsti maður,
keppandi frá Brigefélagi
Reykjavíkur, hlaut 2720 stig.
Þetta er í annað skiptið á fjórum
árum sem Magnús vinnur titil-
inn, í fyrra skiptið var það árið
1992.
Magnús hefur einnig orðið ís-
landsmeistari í yngri flokkum í
sveitakeppni árið 1994 og spilar í
yngra landsliðinu í bridds og hef-
ur farið til keppni með því til Nor-
egs og Hollands. Næsta sumar
verður haldið Evrópumót í Wales
og stefnir Magnús að þátttöku á
því móti. Fyrir liðlega hálfum
mánuði síðan varð Magnús Vest-
fjarðameistari í tvímenningi ásamt
Sigurði Vilhjálmssyni, sem spilað
hefur fyrir Bridgefélag Reykjavík-
ur. Þátttakendur á íslandsmótinu í
einmenningi voru 112 talsins og
var spilað í sjö sextán manna riðl-
um. Spiluð voru forgefin spil og
skorin borin saman yfir allan sal-
inn.
I fjórða sæti á einmennings-
mótinu var Reykvíkingurinn Guð-
laugur Níelsen með 2669 stig en
hann spilaði fyrir Bridgefélag
Húnvetninga en í því félagi spila
aðallega félagar í Átthagafélagi
Húnvetninga. í 3. sæti var kepp-
andi frá Kópavogi, í 5. sæti kepp-
andi frá Breiðfirðingum og í 6.
sæti hafnaði ísfirðingur. GG
Akureyri:
Tveir grunaöir um ölvun við akstur
Tveir ökumenn voru teknir af
lögreglunni á Akureyri sl.
föstudagskvöld, vegna gruns um
ölvun við akstur.
Þá gistu sjö í fangageymslum á
Akureyri um helgina vegna
óspekta og ölvunar. Að öðru leyti
segja lögreglumenn á Norðurlandi
liðna helgi hafa verið almennt ró-
lega og næsta tíðindafáa.
-sbs.
- segir Valdimar Guömannsson, nýkjörinn formaður Alþýðusambands Norðurlands
Kjaramál voru eins og gefur
að skilja efst á baugi á 24.
þingi Alþýðusambands Norður-
lands á Illugastöðum um helg-
ina. Kjarninn í ályktun þingsins
er að forsendur kjarasamninga
séu brostnar, þeim beri að segja
upp þannig að þeir verði lausir
um næstu áramót og grundvall-
arkrafa við næstu samningagerð
sé að krefjast eingöngu verulegr-
ar hækkunar lægstu launa,
ásamt fullri tryggingu fyrir því
að sá kaupmáttur sem um verði
samið haldi.
Valdimar Guðmannsson, ný-
kjörinn formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands, sagði að sér
væri nú að þinginu loknu efst í
huga sú samstaða sem var á þing-
inu í sambandi við kjaramálin.
Hún hafi verið 100%. „Það er auð-
vitað svo lengi búið að draga okk-
ur á asnaeyrunum að það er fyrir
löngu kominn tími til að eitthvað
verði gert. Forsendur kjarasamn-
inga teljum við vera margbrostnar.
Það sem fyllti mælinn var þessi 40
þúsund króna úthlutun til þing-
manna, en það er ekki bara það eitt
og sér. Síðan koma fjárlögin eins
og skrattinn úr sauðarleggnum á
móti okkur líka. Margt í þeim sjá-
um við ekki betur en virki þvert á
það sem um var talað.“
Hann sagðist ekki trúa öðru en
menn fari í kjarasamningaviðræð-
ur nú þegar. „Verkamannasam-
bandið er með sitt þing nú síðast í
mánuðinum og þar verður endan-
lega tekið á þessum málum af okk-
ar hálfu. Samstaða verkafólks er
mjög góð um þessar mundir. Það
virðist loksins vera búið að fylla
mælinn og verkalýðshreyfinginn
hlýtur að nýta sér það. Verkafólk
Valdimar Guðmannsson.
hefur á undanförnum árum tekið
afskaplega mikinn þátt í að byggja
upp þann stöðugleika sem ríkir í
landinu og mál til komið að eitt-
hvað komi á móti,“ sagði Valdi-
mar.
I ályktun þingsins um kjaramál
kemur m.a. fram að ekki verði
lengur unað við þá láglaunastefnu
sem atvinnurekendur og stjórn-
völd hafi rekið á undanförnum ár-
um. Mörg heimili séu komin á
vonarvöl, fólksflótti úr landi,
vextir allt of háir og skattbyrði
hafi stóraukist. Milljarðasköttum
hafi verið létt af atvinnurekstrin-
um og velt yfir á launþega. Verka-
fólki beri full hlutdeild í þeim af-
komubata sem orðið hefur hjá fyr-
irtækjum. HA
Heilsuskór til Þýskalands
Að undanfornu hafa farið tvær sendingar frá
skóverksmiðjunni Skrefinu á Skagaströnd
til Þýskalands og er það fyrsti útfiutningurinn
frá verksmiðjunni síðan rekstur hennar hófst, en
verksmiðjan var keypt frá Akureyri eftir gjald-
þrot skóverksmiðjunnar Striksins á Gleráreyr-
um. Framleiðslan fram að þessu hefur eingöngu
verið heilsuskór en á næstunni koma á markað-
inn nýir klossar.
Bryndís Guðjónsdóttir verksmiðjustjóri segir að
salan til Þýskalands hafi verið í bígerð í rúmt ár en
upphafið var það að umboðsskrifstofa, sem er bæði
starfrækt í Þýskalandi og Bretlandi, hafði samband
fyrir alllöngu síðan en síðan gerðist ekkert í málinu
fyrr en fyrir nokkru síðan er pöntunin barst. í
hverri sendingu fara um 500 pör en framleiðsluget-
an er mun meiri en nýtt hefur verið til þessa og því
auðvelt að auka framleiðsluna berist stórar pantanir
í hana. Verksmiðjan er starfrækt í húsnæði sem áð-
ur hýsti plastverksmiðjuna Mark hf. og hefur nægj-
anlegt rými til að bæta við starfsfólki og auka
framleiðsluna gerist það nauðsynlegt. GG