Dagur - 18.10.1995, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 18. október 1995
FRÉTTIR
Atvinnuástand á Norðurlandi í september:
Batnar milli mánaða
Atvinnuleysi dróst saman í báð-
um kjördæmum Norðurlands
milli mánaðanna ágúst og sept-
ember, samkvæmt yfirliti frá
Vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytis, sem sent var út
í gær. Á Norðurlandi vestra
voru í september 2,6% vinnu-
færra manna án atvinnu og
3,1% á Norðurlandi eystra. A
nokkrum stöðum er fólk skráð
atvinnulaust, enda þótt þar sé
auglýst eftir fólki í fiskvinnslu.
Að meðaltali voru 144 manns
án atvinnu á Norðurlandi vestra í
september. Það gerir 2,6% af
heildarfjölda vinnufærra manna;
4,7% kvenna og 1,3% karla. í
ágúst voru 3,8% vinnufærra í
kjördæminu án atvinnu. Þá kemur
jafnframt fram í skýrsku félags-
Aðeins þrjú íslensk skip á veiðum i Smugunni:
Stakfelliö og Hólma-
drangur á landleið
- Þórshafnartogarinn fer á rækjuveiðar
Varðskipið Óðinn kom til
Reykjavíkur á þriðjudagsmorg-
un úr Smugunni og hafði skipið
Háskólinn á Akureyri:
Stjórn Rannsókna-
stofnunar skipuð
Háskólinn á Akureyri hefur
skipað stjórn Rannsóknastofn-
unar skólans til næstu þriggja
ára.
Stjómin er þannig skipuð: Jón
Þórðarson, forstöðumaður sjávar-
útvegsdeildar HA, formaður,
Finnbogi Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri, tilnefndur af sjáv-
arútvegsdeild, Ingi Bjömsson,
framkvæmdastjóri, tilnefndur af
rekstrardeild, Ingun St. Svavars-
dóttir, sveitarstjóri, án tilnefningar
og Kristján Kristjánsson, dósent,
tilnefndur af kennaradeild. Eftir er
að skipa fulltrúa heilbrigðisdeildar
HA í stjóm Rannsóknastofnunar
HA. óþh
þá verið þar nær átta vikur. Sex
íslenskir togarar eru í Smugunni
og hefur aflinn verið þokkalegur
undanfarna daga, raunar var
mokveiði fyrir liðlega viku síð-
an.
Tveir norðlenskir togarar eru í
Smugunni, Akureyrin EA-110 frá
Akureyri, Hágangur II frá Vopna-
firði og Sléttanes ÍS-808 frá Þing-
eyri. Þrjú skip eru á landleið úr
Smugunni, þ.m.t. Stakfell ÞH-360
frá Þórshöfn og Hólmadrangur
ST-70 frá Hólmavík. Stakfellið
landar Smuguaflanum, um 20
milljóna króna virði, nk. fimmtu-
dag í Reykjavík en þar fer skipið í
slipp í fyrirbyggjandi viðhald,
m.a. vélarupptekt og málningu.
Sævaldur Gunnarsson, útgerðar-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafn-
ar hf., segir að togarinn hafi með
veiðskapnum í Smugunni í sumar
og haust aflað sér varanlegrar
kvótareynslu að verðmæti 20
milljónir króna, jafnvel meira.
Stakfell ÞH fer á rækjuveiðar hér
við land að lokinni slipptökunni í
Reykjavík. GG
málaráðuneytisins að á Hvamms-
tanga séu 21 laust starf í boði við
fiskvinnslu. Og þar var aðeins
einn maður atvinnulaus á skrá all-
an síðasta mánuð.
Af áætluðum mannafla í Norð-
urlandskjördæmi eystra eru nú
3,1% án vinnu, en í ágúst voru
það 3,9%. Skiptingin milli karla
og kvenna er 4,6% konur og 2,0%
karlar. Alls voru 290 manns á Ak-
ureyri skráðir atvinnulausir í síð-
asta mánuði og það gerist á sama
tíma og þar vantar fólk til starfa
við fiskvinnslu, - sem og í Hrísey
og á Raufarhöfn. I Hrísey voru
tveir skráðir atvinnulausir í sept-
ember en á Raufarhöfn, í Öxar-
fjarðarhreppi og á Þórshöfn var at-
vinnuleysi á núllpunkti.
-sbs.
Sisimiut, fyrrum Arnar HU, í flotkvínni á Akureyri.
Mynd: Brynjólfur Brynjólfsson.
Arnar heitir nú Sisimiut
- er með mest aflaverðmæti íslenskra togara
Togarinn Arnar frá Skagaströnd
er þessa dagana í flotkvínni á
Akureyri þar sem fram fer á
honum skoðun vegna sölu Skag-
strendings hf. á skipinu til Royal
Greenland as.
Auk hefðbundinnar botnskoð-
unar verður skipið öxuldregið og
er gert ráð fyrir að því verki ljúki í
lok þessarar viku. Jafnframt er
verið að útbúa nýtt nafn á Amar
HU sem mun heita Sisimiut eftir
eigendaskiptin. Hann verður gerð-
ur út á rækjuveiðar frá Grænlandi.
Amar HU var fyrstu átta mánuði
þessa árs með mesta aflaverðmæti
allra íslenskra togara, eða 372
milljónir króna og aflinn 2.842
tonn auk þess sem fryst vom 220
tonn af loðnu um borð í togaran-
um fyrir austan land að verðmæti
6,3 milljónir króna. GG
Deiliskipulag Hveravalla gerir ráð fyrir að annar skáli Ferðafélagsins hverfi:
Forráðamenn Ferðafélags íslands
hafa skapað upphlaup í fjölmiðlum
- segir Jóhann Guðmundsson, oddviti Svínavatnshrepps
Svínavatnshreppur í Austur-
Húnavatnssýslu lét vinna aðal-
skipulag fyrir hreppinn fyrir
nokkrum árum og var aðal-
skipulagið auglýst og kynnt á
árinu 1992. Unnið er nú að deili-
skipulagi fyrir Hveravelli sem
tilheyra hreppnum samkvæmt
afsali fyrir Auðkúluheiði frá
1917 þegar hreppurinn keypti
heiðina af ríkinu. Deiliskipulag-
ið verður auglýstum lögum sam-
kvæmt í haust, en þar gerir
sveitarstjórn Svínavatnshrepps
ráð fyrir að á Hveravöllum rísi
þjónustumiðstöð sem gerir það
að verkum að nýrri skáli Ferða-
félags íslands á svæðinu þurfl að
víkja. Skálinn, ásamt snyrtingu,
var reistur árið 1980 án undan-
genginnar samþykktar bygg-
inganefndar. Engin byggingar-
leyfí voru veitt fyrir eldri skála
Ferðafélagsins, sem reistur var
kringum 1935, en samkvæmt
deiliskipulaginu mun hann
ásamt baðpolli fá að standa
áfram.
Jóhann Guðmundsson í Holti,
oddviti Svínavatnshrepps, segir
forráðamenn Ferðafélagsins hafa
skapað töluvert upphlaup í fjöl-
miðlum út af málinu.
„Það eru ekki fyrirliggjandi
neinar tímasetninga um byggingu
þjónustumiðstöðvarinnar og við
erum fyrst og fremst að huga að
vemdun Hveravalla og uppbygg-
ingu svæðisins og skila aftur því
sem tekið hefur verið frá því.
Náttúran hefur töluvert látið á sjá
á þessu svæði,“ segir Jóhann Guð-
mundsson.
Forsvarsmenn Svínavatns-
hrepps telja að það fé sem inn-
heimt hefur verið af Ferðafélaginu
af þeim sem um Hveravelli fara
og gista hafi ekki nema í óveru-
legum mætti skilað sér aftur til
uppbyggingar svæðisins. Engir
samningar hafa tekist milli Svína-
vatnsrepps og Ferðafélagsins um
þetta mál en af hálfu hreppsins er
lögsaga hreppsins á landinu óum-
deilanleg.
„Leiga fyrir tjaldsvæði hefur
alfarið verið tekin af okkar landi
en heildarupphæð innheimtu
Ferðafélagsins af landinu er mér
ekki tiltæk. Við vitum að ekki fer
nema lítill hluti af því sem þama
innheimtist til reksturs og við-
halds á staðnum, hitt fer til rekst-
urs félagsins eða annarra sæluhúsa
á þess vegum. Unnið er að gerð
umhverfismats og deiliskipulags
og þegar það er frá verður farið að
huga að öðmm þáttum. Þá förum
við að leita að samstarfsaðilum á
Hveravöllum um uppbyggingu,
þjónustukjama o.fl. og þar verður
engum aðila úthýst. Þessir þættir
eru meira aðkallandi nú með auk-
inni umferð um Kjöl eftir að brú
kom á Seyðisá," sagði Jóhann
Guðmundsson.
Páll Guðmundsson, formaður
Ferðafélags Islands, segir í frétta-
bréfi félagsins að verði deiliskipu-
lagið að vemleika muni félagið
þurfa að þola vemlegt eigna- og
rekstrartjón, auk annars skaða og
hneisu, vegna vanhugsaðra skipu-
lagsaðgerða á Hveravöllum, sem
eru mörgum íslendingum hjart-
fólgnir. Síðan segir: „Lögfræðileg
könnun á vegum Ferðafélagsins
hefur leitt í ljós að líklegt verður
að telja að enginn einstakur aðili -
og þar á meðal ekki sveitarfélagið,
sem þó heldur öðru fram - geti
gert tilkall til beins eignarréttar yf-
ir Hveravallasvæðinu eða Auð-
kúluheiði yfirleitt. Málaferli
standa nú yfir um það atriði án
þess að Ferðafélagið sé aðili þess
máls. Hins vegar er upprekstrar-
réttur (beitarréttur) á Auðkúlu-
heiði óumdeildur.“
Ferðafélagið fór síðsumars á
leit við hreppsnefnd Svínavatns-
hrepps að hún veitti stöðuleyfi
fyrir núverandi aðstöðu félagsins
til allmargra ára en henni var vís-
að til byggingamefndar sem ekki
hefur tekið afstöðu til hennar.
Verði svar sveitarfélagsins nei-
kvætt mun Ferðafélagið kæra þá
niðurstöðu til umhverfisráðuneyt-
isins og krefjast þess að það veiti
félaginu stöðuleyfi. GG
3WWC
Ólafsfjörður:
Bæjarmála-
punktar
Húsnæðismál í brennidepli
Á fundi bæjaiTáðs 5. október sl.
mættu þeir Gunnar L. Jóhanns-
son, skólastjóri Barnaskólans,
og Jakub Kolosowski, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Ólafsfjarð-
ar. Rætt var um hugsaniega sölu
á Sigurhæðum og flutningi á
þeim stofnunum sem þar starfa.
Fram kom í máli Gunnars að
hann teiji ekkert því tii fyrir-
stöðu að Bókasafnið flytjist í sal
Bamaskólans skv. þeim hug-
myndum að gera loft í salinn.
Jakub óskaði eftir að fá að skoða
aðstöðu á Hótelinu undir Tón-
listarskóla.
Á fundi bæjarráðs 12. októ-
ber lagði Þorsteinn Bjömsson,
bæjartæknifræðingur, fram
frumgögn varðandi viðbyggingu
við Gagnfræðaskólann. I við-
byggingunni komi til með að
vera aðstaða fyrir bókasafn og
tónlistarskóla auk viðbótarað-
stöðu fyrir GÓ. Jafnframt var
lögð fram kostnaðaráætlun varð-
andi breytingar á sai Bamaskól-
ans í aðstöðusköpun fyrir bóka-
safnið.
Lokapunktur afmællsárs
Á bæjarráðsfundi 12. október
gerði Hálfdán bæjarstjóri grein
fyrir viðbrögðum stjórnar Tjam-
arborgar varðandi þá hugmynd
að árshátíð Ólafsfirðinga í tilefni
50 ára afmælis Ólafsfjarðarbæj-
ar yrði haldin í íþróttamiðstöð-
inni. Tjamarborg mun halda ár-
legan vetrardagsfagnað og telur
því bæjarráð ekki forsendur fyrir
því að halda árshátíð eins og ráð
var fyrir gert í dagskrá afmælis-
ársins.
Vegleg gjöf
Náltúrugripasafninu hefur borist
gjöf frá Rögnvaldi Möiler, upp-
stoppuð Vepja og Brandugla.
Báðir þessir fuglar voru felidir í
Ólafsfirði, Bæjarráð færir Rögn-
valdi bestu þakkir fyrir.
í skólamálanefnd
Bæjarráð hefur tilneft Óskar Þór
Sigurbjömsson, skólastjóra
Gagnfræðaskólans, og Rúnar
Guðlaugsson, félagsmáiastjóra, í
nefnd varðandi skólamál, sbr.
samþykkt á samráðsfundi fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaga við
utanverðan Eyjafjörð.
ÚÍÓ þakkar
Ú.Í.Ó. hel'ur með bréfi dags. 12.
október sl. þakkað bæjaryfír-
völdum viðbrögð varðandi hug-
myndir samtakanna um bygg-
ingu félagshúss fyrir íþrótta-
hreyfinguna í Ólafsfirði og býð-
ur Ólafsfjarðarbæ að tilnefna
fuiltrúa í byggingarnefndina.
Bæjarráð samþykkti að tilnefna
Hálfdán Kristjánsson, bæjar-
stjóra.
Úrbóta er þörf
Á byggingarnefndarfundi 13.
október sl. benti Gunnlaugur
Jónsson á að úrbóta væri þörf á
gatnamótum Ægisgötu og Ólafs-
vegar. Erindinu var frestað og
kemur fram í bókun að nefndin
mun ræða þetta á sérstökum
fundi.