Dagur - 25.10.1995, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 25. október 1995
FRÉTTIR
Snarpar umræður í bæjarstjórn Akureyrar um Krossanesmalið:
Hörð gagnrýni minnihlutans
Sigurður J. Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
gagnrýndi harðlega á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í gær
fréttaflutning af því að vaxandi
líkur væru á sameiningu Laxár
hf. og Krossaness hf. sem birt-
ist í Degi í gær. Sigurður sagði
fréttir af samningaumræðum
ekki hafa borist inn á borð bæj-
arráðs, bæjarstjórnar eða fram-
kvæmdasjóðs bæjarins og það
væri mjög ámælisvert.
Hann spurði einnig hvort
meirihlutavilji væri fyrir sölu á
Krossanesverkmiðjunni og hvort
nýjum aðilum sem tekið hefðu
þátt í nýrri hlutafjáraukningu í
verksmiðjunni hefði verið gerð
grein fyrir hugsanlegri sölu
hennar. Kostir hennar hefðu að
undanfömu verið nokkuð
þrengdir í ljósi þess að nýjar
verksmiðjur væru að rísa á Fá-
skrúðsfirði og í Helguvík í
Reykjanesbæ. Sigríður Stefáns-
dóttir, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, tók undir orð Sig-
urðar og sagði það sérkennileg
vinnubrögð hjá meirihluta bæjar-
stjómar að bæjarfulltrúar læsu
um væntanlega sölu á fyrirtæki í
eigu bæjarins á síðum Dags.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri,
sagði að fyrir ári hefði verið
skipaður starfshópur með sölu á
hlutabréfunum að markmiði en
jafnframt yrði tryggt að starfsem-
in yrði áfram í bænum. Ekkert
yrði gert í málinu án undangeng-
is samþykkis bæjarráðs og bæj-
arstjómar og nýjum hlutafjáreig-
endum væri kunnugt um að verk-
smiðjan yrði hugsanlega seld.
í umræðum um úthlutun lóða
sagði Heimir Ingimarsson, bæj-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins,
að dæmi væru þess að þeir sem
hefðu fengið úthiutað lóðum í
Hindar- eða Hörpulundi hefðu
boðið öðrum lóðirnar gegn því
að þeir fengju að reisa húsið.
Heimir vildi að nöfn þeirra yrðu
birt en Gísli Bragi Hjartarson,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins og
formaður skipulagsnefndar, neit-
aði þeirri ósk. Gísli Bragi upp-
lýsti ennfremur að deiliskipulag
norðurhluta miðbæjar kæmi til
endanlegrar afgreiðslu á næstu
dögum.
Kjarasamningar verkfræðinga
Sigríður Stefánsdóttir vakti at-
hygli á því að í kjarasamningum
við verkfræðinga væri ákvæði
um að deildarverkfræðingar
bæru 10,1% hærri laun en aðrir
verkfræðingar og með því væri
verið að auka launamismun hjá
starfsmönnum bæjarins sem ekki
væri æskileg þróun. Áður var
þessi munur 7,4%. Samingurinn
var samþykktur með 9 atkvæð-
um, tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
í lok bæjarstjómarfundarins var
konum óskað til hamingju með
daginn, 24. október. GG
Kappklædd
grunnskólabörn
Þessa dagana er um að gera að
klæða sig vel, því veðrið skiptir
oft á dag um ham. Eins og sjá má
á þessari mynd, sem Björn Gísla-
son, Ijósmyndari Dags, tók í gær
af grunnskólabörnum á Akureyri
ásamt fylgdarmanni, eru þau vel
klædd og við öllu búin á leið í
og úr skóla. óþh
r-------------^
Canon
faxtækl
með fax/símdeili
Verð frá kr. 29.900
LVUTÆICI
L
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
A
Ingolfur Margeirsson fær úthlutaö úr
Menningarsjóði útvarpsstööva:
Heimildamynd
um sögu og mann-
líf í Hrísey
A dögunum var úthlutað
styrkjum úr Menningarsjóði
Útvarpsstöðva. Auglýst var
eftir styrkjum í ágúst sl. og
var sótt um styrki til 96 verk-
efna auk þess sem áréttaðar
voru 118 umsóknir vegna
verkefna sem sótt var um á
síðasta ári, en þá var ekki út-
hlutað úr sjónum þrátt fyrir
að auglýst væri eftir umsókn-
um. Einn þeirra sem hlaut
styrk að þessu sinni er Ingólf-
ur Margeirsson, rithöfundur.
Styrkinn, 1,5 milljón króna,
fær hann til undirbúnings og
framleiðslu efnis fyrir sjón-
varp, og ber verkefni lngólfs
heitið, Sögur úr Hrísey.
„Ég hef haft sumarsetu í
Hrísey undanfarin ár og kynnst
fólkinu í eyjunni ágætlega. Ég
var mjög hrifinn af fóikinu sem
þama býr, ekki síst eldra fólk-
inu, og hef haft mikinn áhuga á
að gera sjónvarpsmynd um
þetta fólk, við gctum sagt rosk-
ið alþýðufólk í Hrísey. Hug-
myndin er að bregða upp mynd
af eyjunni, sögu hennar og tím-
anum fyrr á árum. Þetta er um
margt sérstakt samfélag og sem
útgerðarstaður á Hrísey mjög
merkilega sögu,“ sagði Ingólf-
ur, aðspurður um efni myndar-
innar.
Kynni sín af Hrísey og Hrís-
eyingum segir Ingólfur mega
rekja til ársins 1990 þegar hann
skrifaði ævisögu Áma Tryggva-
sonar, en Ámi hefur sem kunn-
ugt er lengi verið með sitt ann-
að heimili í Hrísey. „Þetta end-
aði með því að við hjónin
keyptum okkur þarna lítið hús
og síðan hef ég dvalið þar á
hverju sumri og meira til. Ég
skrifa mikið í Hrísey. Það má
segja að ég hafí tekið ástfóstri
við eyjuna og lít eiginlega á
mig sem hálfgerðan Norðlend-
ing núorðið,“ sagði Ingólfur.
Hann segir hadritið rétt að
vera að fæðast þessa dagana en
til stendur að taka myndina upp
og ganga frá henni í suntar.
„Þetta er hugsuð sem heimilda-
mynd fyrir sjónvarp, kannski
svona 40 mínútur á lengd eða
svo,“ sagði Ingólfur, og ekki er
að efa að margir bíða spenntir
eftir útkomunni. IIA
STAFF kaupir
Oddeyrargötu 1
í nýjasta tölublaði Flugleiðafrétta
kemur fram að Starfsmannafélag
Flugleiða hafi fest kaup á húsinu
nr. 1 við Oddeyrargötu á Akur-
eyri, sem er á meðfylgjandi mynd.
Starfsmannafélagið keypti húsið
fyrir 5.9 milljónir króna. I Flug-
leiðafréttum kemur fram að húsið
þarfnist nokkurra endurbóta. óþh
Færri farþegar
norður
í sama tölublaði Flugleiðafrétta
segir frá því að 200 færri farþegar
hafi ferðast með Fokker vélum
Flugleiða frá Reykjavík til Akur-
eyrar á tímabilinu maí-ágúst í ár
miðað við sama tíma 1994. Fram
kemur að helsti orsakavaldurinn
hafi verið samdráttur hjá sviss-
nesku ferðaskrifstofunni Saga reis-
en, sem hafi nýtt sér innlandsflug í
miklum mæli til Akureyrar undan-
farin sumur. Þá nefnir Gunnar Már
Sigurfinnsson, sölustjóri innan-
landsflugs, það í Flugleiðafréttum
að bundið slitlag alla leiðina norð-
ur á Akureyri valdi því að fólk
kjósi í auknum mæli að fara land-
leiðina milli landshluta í stað þess
að fara með flugi. óþh
Framsóknar-
konur vilja
kvennabanka
Á landsþingi Landssambands
framsóknarkvenna í Kópavogi
um síðustu helgi var samþykkt
tillaga þar sem því er beint til
Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, að komið
verði á fót sérstökum kvenna-
banka.
Meðal annarra samþykkta á
þinginu má nefna að konumar
hvöttu þingflokk framsóknarmanna
til að hafa forystu um að sunnudag-
ar verði virkir fjölskyldudagar í
þjóðfélaginu. Þá samþykktu fram-
sóknarkonur að skora á landbúnað-
arráðherra að bæta hlut kvenna inn-
an félagskerfis bænda. óþh
Sauðárkrókur:
Bæjarmála-
punktar
Rafveitan gefur
í tilefni 70 ára afmælis Raf-
veitu Sauðárkróks samþykkir
veitustjórn að gefa Sjúkrahúsi
Skagfirðinga nýja lampa á lóð
Sjúkrahússins. Jafnframt hefur
veitustjórn samþykkt að setja
upp lýsingu á malarvelli á
íþróttasvæðinu.
Viðurkenningar fyrir
endurbyggingu
Bygginganefnd hefur sam-
þykkt að óska eftir því við
bæjarstjóm að heimila nel'nd-
inni að veita, þegar ástæða
þyki til, viðurkenningu þeim
húseigendum, sem staðið hafi
fyrir endurbyggingu gamalla
húsa í bænum.
Systkinaafsláttur
Félagsmálaráð hefur samþykkt
systkinaafsiátt á leikskólum
bæjarins og verði hann sem
hér segir: 25% með öðru bami
og 50% með þriðja bami.
Þessi gjaldskrárbreyting tekur
gildi 1. janúar á næsta ári.
Eftirlit við ieikskólana
Félagsmálaráð samþykkti á
l'undi fyrr í þessum mánuði að
beina þeim tilmælum til lög-
reglu að auka eftirlit við leik-
skóla bæjarins og þá sérstak-
lega um helgar.
Guðmundur til Kölnar
íþrótta- og æskulýðsráð hefur
samþykkt að styrkja Guðmund
Jensson, forstöðumann sund-
laugarinnar, um tæp 80 þúsund
krónur auk dagpeninga í fimm
daga til þess að sækja íþrótta-
sýningu í Köln í Þýskalandi
25.-28. október.
Erindi Stjána hafnað
Atvinnumálanefnd sér sér ekki
fært að verða við beiðni Krist-
jáns Jónssonar („Stjána rneik")
þess efnis að skoðað verði
hvort unnt sé að smíða fjöl-
notajeppa á Sauðárkróki í sam-
vinnu við heimamenn eftir
teikningum hans. í bókun at-
vinnumálanefndar segir að hún
telji að bæjarfélagið hafí ekki
fjármagn til verkefnisins auk
þess sem umbeðin aðstaða sé
ekki fyrir hendi.
„Mat á skólastarfí“
Skólanefnd grunnskóla hefur
samþykkt tillögu Bjöms Sigur-
björnssonar um að nefndin fari
þess á leit við bæjarráð að það
fjármagni aðstoð við „Mat á
skólastarfi“ við Grunnskóla
Sauðárkróks.