Dagur - 25.10.1995, Blaðsíða 16
Vetraríþróttamiðstöð Islands á Akureyri:
Úr litlu að
spila fyrsta árið
Veitustjórn Sauðárkróks:
»M •• ^ M ■ I
Konnuna pokkun
og útflutningi
vatns haldið áfram
til áramóta
Veitustjórn Sauðárkróks
hefur samþykkt að halda
áfram athugunum á mögu-
leikum á útflutningi á fersk-
vatni, t.d. til Bandaríkjanna,
en bæði er að ekkert hús hefur
verið tii staðar til að hýsa
þessa starfsemi og eins er öll
markaðskönnun og eftirfylgja
hennar mjög kostnaðarsöm.
Bæjarstjóm Sauðárkróks
hefur samþykkt að verkefnið
haldi áfram til næstu áramóta.
Tiltölulega auðvelt mun vera að
koma vatninu t verslanir t
Bandaríkjunum en markaðs-
setningin þarf að vera mjög
markviss til þess að salan detti
ekki niður tiltölulega fljótt eftir
að nýjabrumið hefur farið af.
Auk þess yrðu Sauðkræking-
amir í umtalsverðri samkeppni
við innlcnda aðila, m.a. Kaup-
félag Eyfirðinga, sem hefur ver-
ið að markaðssetja ferskvatn
vestan hafs undir vörumerkinu
AKVA en kostnaður við mark-
aðssetningu og annan undirbún-
ing er orðinn um milljarður
króna. Eins hafa aðilar á höfuð-
borgarsvæðinu verið að kanna
útflutning á vatni. GG
Fundaö vegna gjaldþrots A. Finnssonar hf.:
Sumir treystu sér
ekki til að koma
- segir Vilhjálmur Ingi Árnason
Fyrsti fundur stjórnar Vetrar-
íþróttamiðstöðvar íslands á
Akureyri (VMÍ) var haldinn á
dögunum. Vetraríþróttamiðstöð-
in er samstarfsverkefni Akureyr-
arbæjar, íþróttabandalags Akur-
eyrar, menntamálaráðuneytisins
og íþróttasambands íslands.
Skrifað var undir samning þessa
efnis í mars sl. og rættist þá
gamall draumur margra, ekki
síst Hermanns Sigtryggssonar,
íþrótta- og tómstundafulltrúa
Akureyrarbæjar, sem barist
hafði fyrir málinu um árabil.
I reglugerð um VMI segir að
hún sé þjónustustofnun, sem hafi
það megin hlutverk að efla vetrar-
íþróttir, íþróttafræðslu og útivist
og stuðla þannig að heilbrigðu lífi
og heilsurækt meðal almennings.
Á sínum fyrsta fundi skipti stjórn-
in með sér verkum. Þórarinn E.
Sveinsson, bæjarfulltrúi á Akur-
eyri, er formaður og Tómas Ingi
Olrich, alþingismaður varafor-
maður. Benedikt Geirsson er
gjaldkeri og Steingrímur Birgis-
son, ritari.
Þórarinn E. Sveinsson, sagði
þennan fyrsta stjómarfund hafa
verið tíðindalítinn. Menn hafi tal-
að vítt og breitt um málið og
stefnt að því að ráða starfsmann í
hálft starf og útbúa rekstraráætlun.
Ljóst er að ekki verður úr miklum
fjármunum að spila á næsta ári og
Þórarinn segir að ekki hafi verið
búist við öðru. „Það er Ijóst að
Akureyrarbær er með hefðbundna
áætlun varðandi vetrarfþrótta-
Akureyri:
Dularfullt
heyrúlluhvarf
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur nú til rannsóknar
heyrúlluhvarf á Akureyri um
síðustu helgi.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, rannsóknarlögreglumanns, er
um það að ræða að sl. laugardag
eða sunnudag var stolið sjö hey-
rúllum af túni norðan Hlíðarbraut-
ar og austan Hörgárbrautar.
Greinileg merki eru á túninu eftir
kerru og dráttarvél og hefur lík-
lega ekki af veitt, því hver rúlla er
fleiri hundruð kfló að þyngd.
Gunnar biður alla þá sem
kynnu að geta gefið upplýsingar
er varpað gætu ljósi á þetta dular-
fulla heyrúlluhvarf, að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna á
Akureyri. óþh
O VEÐRIÐ
Um allt norðanvert landið er
í dag, miðvikudag, spáð
norðan hvassviðri með rign-
ingu, slyddu eða éljum.
Veðrið verður sýnu verst á
Norðurlandi vestra. Hiti
verður yfirleitt á bilinu eitt til
fjögur stig. Veðri í þessum
dúr er spáð út vikuna.
mannvirki og ríkið er ekki með
okkur inn á ljárhagsáætlun 1996,
eins og reyndar var vitað. Við
þurfum hins vegar að vera tilbúnir
með rekstraráætlun í mars-aprfl á
næsta ári, áður en fjárlagagerð
fyrir 1997 byrjar. Sumir voru með
væntingar um að fá umtalsverða
peninga frá ríkinu strax á fyrsta
ári, en slíkt er algerlega óraun-
Igær hófust æfingar á jólaverk-
efni Leikfélags Akureyrar;
Sporvagninum Girnd. Leikritið,
sem verður frumsýnt 27. desem-
ber, er eftir Tennessee Williams
og hefur notið mikilla vinsælda
frá því það kom fyrst fram.
Með hlutverk Blanch og Stan-
ley, sem eru aðalhlutverkin í sýn-
ingunni, fara þau Rósa Guðný
Þórsdóttir og Valdimar Flygenring
en margir telja þessi hlutverk ein-
hver þau best skrifuðu sem leikar-
ar geta glímt við. Auk Rósu og
Valdimars kemur fram fjöldi ann-
arra leikara.
Leikstjóri verður Haukur J.
hæft. Áður en hægt er að gera sér
vonir um fjármuni frá ríkinu verð-
ur a.m.k. að liggja fyrir rekstrar-
áætlun. Það er vissulega skiljan-
legt að menn séu orðnir óþolin-
móðir því margir eru búnir að
bíða ansi lengi eftir að eitthvað
gerist, en menn verða að sýna þol-
inmæði aðeins lengur,“ sagði Þór-
arinn E. Sveinsson. HA
Gunnarsson og leikmynd gerir
Svein Lund-Roland. Haukur hefur
undanfarin 15 ár starfað sem leik-
stjóri í Noregi og víðar og hefur
verið leikhússtjóri Samíska Þjóð-
leikhússins undanfarin ár. Svein
Lund-Roland er meðal þekktustu
leikmyndateiknara Norðurlanda
og starfar jafnframt í Bandaríkjun-
um og Englandi. Þeir Haukur og
Svein unnu saman að rómaðri
sýningu á Akureyri fyrir 12 árum
á leikritinu Bréfberinn frá Arles,
sem fjallaði um síðustu æviár Van
Goghs. Leikfélagsmenn vænta því
mikils af samstarfinu við þá fé-
laga. AI
Eins og frá hefur verið greint
boðaði Vilhjálmur Ingi
Árnason til fundar sl. sunnudag
vegna gjaldþrota fyrirtækjanna
A. Finnssonar hf. og forvera
þess, Aðalgeirs Finnssonar hf.
Þar var m.a. lögð fram ýtarleg
greinagerð um ýmislegt sem Vil-
hjálmur Ingi og fleiri telja stór-
Rjúpnaveiði:
Reytingsveiði
hjá Húsvíkingum
Menn sjá töluvert af rjúpu en
hún er ljónstygg. Þeir hafa
verið að fá 10 rjúpur og minna.
Hæsta sem ég hef heyrt á Húsa-
vík var að einn hefði fengið 30
einn daginn í síðustu viku,“
sagði Trausti Gunnarsson hjá
Hlaði sf., skotfæragerðinni, að-
spurður tíðinda af rjúpnaveið-
inni.
Trausti sagði að leiðinlegt veð-
ur, snjór og erfið færð hafi hamlað
rjúpnaveiðinni. Menn hafi lítið
farið í Gæsafjöll og á Þeistareyki
en fengið reytingsveiði í nágrenni
Húsavíkur og í Búrfellshrauni.
Árni Logi Sigurbjömsson,
veiðimaður og meindýraeyðir,
sagði aðspurður um rjúpnaveiðina
að skásta veiðin hefði verið rétt
við bæinn. Þokkalegt hefði verið
fyrstu dagana og menn verið að fá
frá 1 til 25 rjúpur yfir daginn.
Veiðin hefði síðan verið léleg um
helgina, bleytuhríð og grámi væri
eins vont veiðiveður og hugsast
gæti. Hann sagði að náttúran sæi
um að friða rjúpuna sem ætti auð-
velt með að fela sig. Hún væri
snjöll og færi þangað sem erfitt
væri að ná til hennar. IM
lega athugavert í sambandi við
gjaldþrotin og tengist það m.a.
afskiptum íslandsbanka af mál-
unum.
„Fundurinn var ekki mjög fjöl-
mennur, en það komu skilaboð frá
mönnum um að þeir treystu sér
ekki til að koma vegna þess að
það myndi skapa þeim óþægindi.
Þegar átti að bera upp á fundinum
tillögu til bústjóra um að setja
málið til Ríkissaksóknara, þá báð-
ust a.m.k. tveir kröfuhafar sem á
fundinum voru undan því, vegna
þess að þeir myndu lenda í vand-
ræðum í bankakerfinu ef þeir
styddu þetta,“ sagði Vilhjálmur
Ingi. Tillagan var því dregin til
baka en Vilhjámur mun í eigin
nafni beina þessari áskorun til bú-
stjóra. Gögnin sem búið er að
safna vegna málins verða einnig
send fleiri aðilum, s.s. Seðlabank-
anum og Skattrannsóknarstjóra.
HA
Innimálning
á ótrúlegu verði
Fyrsti samlestur á lcikritinu Sporvagninn Girnd, sem er jólaverkefni Leikfé-
lagsins, var í gær. Myndin er af leikurum, leikst jóra og öðrum sem að sýn-
ingunni standa. Mynd: BG
Leikfélag Akureyrar:
Æfingar hafnar á
Sporvagninum Girnd