Dagur - 25.10.1995, Blaðsíða 4

Dagur - 25.10.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 25. október 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285), LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 LESENDAHORNIÐ LEIÐARI----------------------- Hörmungar umferðarinnar Hörmuleg slys á þjóðvegum landsins síðustu vikurnar hljóta að vekja upp spurningar um hvort ekki sé þess þörf að sest verði niður og skoðað hvort íslenskt vegakerfi í heild ber þá þungu umferð sem orðin er. Þetta þarf ekki aðeins að skoða út frá umferðarþunganum heldur einnig þeim aðstæðum sem oft skapast á vegunum vegna snöggra veðrabreytinga. Mannslíf eru dýrmætasta eign hverrar þjóðar og tölur um dauðaslys í umferðinni á þessu ári segja meira en allt annað um að nú er nauðsyn að fara í gegnum öll mál sem lúta að umferðinni. Á þessum vettvangi hefur þess áður verið getið að taka þurfi miklu fastari tökum á hrað- akstri á þjóðvegunum enda má benda á veg- arkafla á landinu þar sem ökuhraði er að jafn- aði til muna hærri en heimildir segja til um. Hraðakstur þarf að skoða, sem og vegina sjálfa, hönnun þeirra og viðhald. Öll atriði sem geta orðið umferðinni til bóta og hafa um leið áhrif til fækkunar á slysum hljóta að vera af hinu góða. Margir eiga um sárt að binda eftir hörmu- legt banaslys í Hrútafirði um helgina, sem og önnur banaslys í umferðinni síðustu vikur. í framhaldi af rútuslysinu í Hrútafirði hefur dómsmálaráðherra skipað nefnd til að rann- saka slysið og fyrir liggur áskorun Slysavarna- félags íslands um að beltanotkun í hópferða- bílum verði leidd í lög. Þrjú hópferðabílaslys hafa orðið á tiltölu- lega skömmum tíma í umferðinni og sýna þau að kominn er tími til þess að litið sé á hóp- ferðabílana sömu augum og aðra bíla. Aldrei er hægt að fullyrða um hverju beltin geta bjargað en ef einungis er horft til slysa í um- ferðinni á íslandi þá má finna fjölmörg skýr dæmi þess að beltin hafi komið til bjargar. Undir áskorun SVFÍ þarf þess vegna að taka jafnframt því sem farið væri yfir önnur atriði í umferðinni sem til bóta geta verið. í ljósi hörmulegra afleiðinga umferðarslysa á árinu þurfa alhr að leggjast á eitt. Hugkvæmni í skattheimtu Vegna lélegra almenningssam- gangna neyðist ég til að eiga bíl og þar með greiða þá margvíslegu skatta sem á þau tæki eru lagðir. Bíleigendur eru afar nytháar mjólkurkýr hins háa dómsmála- ráðuneytis og úr þeim er nytin líka býsna trygg, þar eð mörgum er bíllinn nauðsyn. Hugkvæmni hug- myndasmiða hins háa ráðuneytis eru lítil takmörk sett þegar um er að ræða að finna skatta á bfla. Lengi hefur verið greiddur af þeim þungaskattur, „kflóagjald" - eða hvað það nú heitir. Ég man þá tíð að gjald þetta fékkst endur- greitt, ef númer voru tekin af bfl, í hlutfalli við tímann sem þau voru í vörslu lögreglu. Sú endur- greiðsla var svo afnumin og sam- kvæmt upplýsingum tollstjóra- embættisins í Reykjavík var litið á gjaldið sem eignaskatt. Mér fannst skatturinn sá ama ansi hátt hlutfall af minni bílaeign, eða um 25% síðast þegar ég greiddi hann. Ég held mig fara rétt með það að á síðasta ári var aftur upp tekin sú regla að endurgreiða „eigna- skattinn" í hlutfalli við innistöðu bfls, og þá þurfti að finna eitthvað upp í staðinn. Ekki brást hug- kvæmnin hjá starfsmönnum hins háa dómsmálaráðuneytis frekar en fyrri daginn: Þegar númer er tekið af bfl skal koma því í geymslu hjá Bifreiðaskoðun íslands hf. sem innheimtir „geymslugjald“ (les: geymsluskatt). Á síðasta ári var gjaldið kr. 600 - sex hundruð krónur - fyrir tvær númeraplötur, reyndar óháð tíma sem þær voru í geymslu. Það hlýtur að vera yfir- sjón að hafa ekki „geymslugjald- ið“ stighækkandi í hlutfalli við geymslutíma, en það hljóta skatt- smiðimir að sjá og færa til hæfis. Undanfarin þrjátíu ár hef ég búið í Ólafsfirði, sem er um 1200 manna pláss við utanverðan Eyja- fjörð. Staðurinn er snjóþungur og mér hefur jafnan fundist bfll held- ur til trafala á vetrum og því af- skráð hann og lagt inn númer til geymslu, fyrstu árin hjá bæjar- fógeta og hin síðari hjá lögreglu staðarins. Þá var meira að segja hægt að taka númerin út einn eða tvo daga til að bregða sér bæjar- „Bíleigendur eru afar nytháar mjólkurkýr“, segir Þórir m.a. í bréfí sínu um hagkvæmni í skattheimtu. leið, ef þannig viðraði og færi var, án þess að glata endurgreiðslurétti hjá tryggingum og fógeta. Þetta þótti bæði mér og öðmm gott fyr- irkomulag. Nú er hins vegar öldin önnur. Séu númer tekin af bfl héma í Ól- afsfirði skal senda þau til Bif- reiðaskoðunar íslands hf. á Akur- eyri. Sendingarkostnaður í ábyrgð - sem er nauðsynlegt ef númer glatast til að geta sannað sendingu - er kr. 235. Þegar ég svo ætla að skrá bflinn aftur þarf ég að hringja í Bifreiðaskoðunina og fá númerin send gegn póstkröfu, sem væntan- lega hljóðar upp á geymslu- og sendingargjald. Hvað það kemur til með að kosta veit ég ekki en hitt veit ég að það er enginn „meðaljón“ sem lætur sér detta í hug jafnheimskulegt fyrirkomu- lag. Þórir Jónsson. Hvað er Reikí? Slysið í Hrútafirði: Fólk hvatt til að nýta sér áfallahjálp Yfirstjóm almannavama óskaði ( gær birtingar á eftirfarandi vegna bílslyssins í Hrútafirði síðastliðið sunnudagskvöld: „Yfirstjóm björgunarmála í Vestur-Húnavatnssýslu vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra er veittu aðstoð sína við aðhlynningu og björgun á vett- vangi, er hópbifreið valt út af þjóðveginum í Hrútafirði sunnu- dagskvöldið 22. október sl. Þeim tilmælum er beint til þeirra sem komu að slysinu á einn eða ann- an hátt, að leita sér andlegrar að- hlynningar sem fyrst. Áfallahjálp er í boði hjá ýmsum aðilum og fer það eftir aðstæðum í hverjum bæ eða hverri sveit, með hvaða hætti hún er veitt. í flestum hér- uðum hafa læknar og hjúkrunar- fólk fengið þjálfun til að veita þessa þjónustu og fólki er bent á að leita sér upplýsinga á heilsu- gæslustöð sinni. Einnig er fólk hvatt til að leita til presta og nýta sér þjónustu þeirra. Mikilvægt er að leita sér hjálpar strax fyrstu dagana eftir atburðinn því al- mennt er talið að hún skili best- um árangri innan þriggja daga frá því að áfallið átti sér stað. Söntu tilmælum er beint til aðstandenda þeirra mörgu sem lentu í slysinu. Björgunarfólk sýslunnar vill auk þess votta þeim samúð sína er misstu ástvini í slysinu og vonar að þeir sem urðu fyrir áverkum nái bata og Iíði sem minnstar þrautir.“ Reiki-aðdáandi skrifar. Nú þegar tveir Reikimeistarar auglýsa námskeið í Reiki-heilun á Akureyri, þá eru nokkuð margir sem spyrja, „Reiki - hvað er nú það?“ Reiki er ævagömul heilunarað- ferð, að mestu framkvæmd með handayfirlagningu og hefur verið notuð með góðum árangri gegn mörgum erfiðustu sjúkdómum okkar tíma. Reiki er mjög einfalt og allir geta tileinkað sér það, því allt sem þarf er viljinn til að hjálpa sjálfum sér og öðrum. Það er kennt þannig að það er flutt af Reikimeistaranum til nemendans með svokallaðri dulvígslu, sem beinist að höfði hjarta og lófum og eru áhrifin varanleg. Trúar- brögð skipta næsta litlu máli í þessu efni, þrátt fyrir að Reikið kemur frá Guði. Áður var verðið allhátt, en þró- un mannsins hefur verið mikil á undanfömum ámm, tíðnisvið jarð- arinnar hefur aukist, svo nú er hægt að kenna 1. og 2. stig jafn- hliða á einni helgi. Við þetta upp- haflega Reikikerfi, sem kennt er við Búddatrúarmanninn Dr. Mikao Usui, hefur síðan verið bætt áhrifaríkum aðferðum til vit- undarútvíkkunar og tíbeskum heil- unaraðferðum. Áætlanir um katta- hald út í hött Kona á Eyrinni hringdi: „Mig langar til að þakka honum Brynjólfi Brynjólfssyni fyrir greinina sem hann skrifaði í Dag um ketti. Mér finnst áætlanir um- hverfisnefndar bæjarins varðandi kattahald í bænum dálítið út í hött. Það eru fjórir mánuðir á ári sem kettir vilja vera lengur utandyra, en hina mánuði ársins fara þeir rétt út fyrir dymar til að pissa, og ekkert annað. Það er hins vegar í góðu lagi að fjarlægja ómerkta ketti og flækingsketti."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.