Dagur - 25.10.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 25.10.1995, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 25. október 1995 - DAGUR - 7 Fjórar konur eru verslunarstýrur Hagkaups á Akureyri: Aherslur í stjómun ráðast ekki af kynferði Þegar viðskipavinir koma inn í verslun Hagkaups á Akureyri blasa þar við myndir af fjórum konum sem veita þessari verslun forstöðu. Þetta vakti athygli blaðamanns og við ákváðum að taka þessar fjórar valkyrjur tali, sem sýna og sanna að þær gefa karlmönnum ekkert eftir. Það er kannski engin ástæða að tala um jafnréttismál þegar valkyrj- ur Hagkaups eiga í hlut. Kynferði skiptir litlu máli. Að sögn þeirra sjálfra hafa þær unnið sig upp, frá því að gegna almennum störfum í versluninni og eru nú komnar í stjórnunarstörf. Starfsmannastefna fyrirtækisins er í þessum dúr, að starfsmenn vinna sig upp stig af stigi, líkt og gengið sé upp tröppur. Karlmenn á sitt hvorum enda. Frá vinstri talið eru á þessari mynd; Einar Sigurjónsson lagerstjóri, Þórhalla Þórhallsdóttir verslunarstjóri, Elísabet Karls- dóttir aðstoðarverslunarstjóri, Jóhanna Hjaltalín deildarstjóri í sérvöru, Harpa Hjaltested deildarstjóri í inatvörudeild og á hægri enda raðarinnar er Eiður Stefánsson öryggisvörður. Myndir: -sbs. Samræmd stefna „Nei, ég held að engu breyti í rekstri verslunar hvort henni stjórn- ar karl eða kona. Allir stjórnendur hjá fyrirtækinu vinna eftir sam- ræmdri stefnu, sem á jafnt við í öll- um verslununum," sagði Þórhalla Þórhallsdóttir verslunarstjóri, þegar blaðamaður Dags ræddi við hana. Elísabet Karlsdóttir, aðstoðarversl- unarstjóri, tók í sama streng. „Ég held að áherslur í starfi hvers stjórn- anda séu fyrst og fremst persónu- bundnar, fremur en að kynferði segi þar til um,“ sagði Elísabet. Þórhalla hóf störf hjá Hagkaup árið 1980. „Fyrst starfaði ég tvær eða þrjár vikur við kjötborðið, en fékk síðan stöðu sem deildarstjóri í matvörudeild," segir Þórhalla. Hún hefur verið verslunarstjóri frá árinu 1985. Elísabet Karlsdóttir hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1983, þá við af- greiðslukassa en fór síðan í tröppu- ganginn. Við starfi aðstoðarverslun- arstjóra tók hún á síðasta ári. Harpa Hjaltested hefur síðasta árið verið deildarstjóri í matvörudeild, en hún hefur starfað hjá Hagkaup allt frá 1983. Loks ber að nefna Jóhönnu Hjaltalín. Hún hefur starfað hjá Hagkaup í fjórtán ár, byrjaði fyrst störf við að raða vörum í poka. Nú er hún deildarstjóri sérvörudeildar. Miðgengisfundir Að sögn Þórhöllu hittast verslunar- og deildarstjórar einu sinni í viku á sameiginlegum fundi og fara yfir helstu mál líðandi stundar í rekstri verslunarinnar. Einu sinni í mánuði er sameiginlegur fundur með öllum starfsmönnum. Hann er haldinn í kaffistofunni og þar geta allir reifað þau mál sem lúta að versluninni. Komið með hugmyndir um hvað betur megi fara og hvað skuli taka fyrir. „Síðan erum við jafnframt með svonefnda miðgengisfundi," segir Þórhalla kímin. „Gengin eru tvö á þessum fundum; fastagengi, sem yfirmenn verslunarinnar skipa, í flotgengi eru nokkrir almennir starfsmenn, sem skipt er út reglu- lega. Starfsmannastjóri Hagkaups, sem staðsettur er í Reykjavík, kem- ur norður á þessa fundi og stjómar þeim. Allt á fundum þessum er í anda þjónustustefnu sem Hagkaup hefur í rekstri sínum, en hún miðar fyrst og síðast að því að fara að ósk- um viðskiptavinanna," segir við- mælandi okkar. Hörgull á fólki í heilar stöður En vinna engir karlmenn hjá Hag- kaup á Akureyri? Jú, þó það nú væri. Einn karlmaður er þar í hópi stjóra, það er Einar Sigurjónsson, lagerstjóri. Hann vinnur með þess- um valkyrjum og líkar með ágæt- um. Segir að ekki sé hægt að alhæfa um hvernig sé að vinna undir stjóm kvenna með því að miða alfarið út frá því starfi sem hann gegnir nú. Meta verði hvert starf fyrir sig og við hvað sé unnið. I sama streng tekur Eiður Stefánsson, öryggis- vórður verslunarinnar. Alls 70 manns vinna hjá Hag- kaup á Akureyri í 34 stöðugildum. Að sögn verslunarstýranna leita margir vinnu hjá þeim. „Það sem stendur uppúr er hins vegar að hörg- ull er á fólki sem ekki er tilbúið að koma í hálfar stöður eða heilar og höfum við leitað eftir fólki hjá vinnumiðlunum og Félagi verslun- ar- og skrifstofufólks á Akureyri. í gegnum þessa aðila hefur okkur ekki gengið nógu vel að fá það starfsfólk sem við viljum. Hins veg- ar vilja margir koma hér til starfa síðdegis og um helgar. Mér finnst þetta svolítið skrýtið á meðan at- vinnuleysi er skráð hér í bænum. Jú, ég hef mínar skýringar á þessu en nú segi ég ekki meira,“ sagði Þór- halla Þórhallsdóttir verslunarstjóri að síðustu. -sbs. Verslunarhús Hagkaups á Akureyri, er að Furuvöllum 17. KÆRKOMIN NÝJUNG Á DISKINN ÞINN BRACÐCÓÐIR , H O L L I R OC FRÁBÆRI R MEÐ HVERSKONAR MEE3LÆTI, S EM C E R I R FRAMREIÐSLUMÖCU L E I K A NÆ STUM Ó Þ RJ ÓTAN D I . ♦ * • FORSTEIKTI LAMBAKJÖTSBITAR R R A $ P I EFTIR AÐEINS 10 MÍNÚTUR i HEITUM BÖKUNAROFNI ERU NACCARNIR TILBÚNIR FULLKOMIN MÁLTÍÐ Á AÐEINS BROTI A F ÞEIM TIM A SEM ÞÚ ÁTT AÐ VENJAST! FLOKKS NORPLENSK A NÁTTÚRUAFURÐ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.