Dagur - 25.10.1995, Page 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 25. október 1995
Hraundrangi en
ekki Hraundrangar
í kynningu á gestabókum á fjallatindum
læddist inn villa, sem aldurhniginn Öxndæl-
ingur benti mér á. Gefur þetta mér kærkomið
tilefni til að fjalla lítillega um þetta náttúru-
fyrirbæri. í fyrrnefndri grein er talað um
Hraundrangana í fleirtölu, en á auðvitað að
vera Hraundrangi í eintölu, enda er Hraun-
dranginn bara einn. Mönnum hættir til að
tala um Hraundranga í fleirtölu, enda eru
margir drangar í fjallinu, en þeir munu flestir
ónefndir. Fleirtölumyndin, Hraundrangar,
læðist inn vegna þess að fimm af átta beyging-
armyndum nafnsins í eintölu og fleirtölu er
„Hraundranga“ . Pegar talað er um Hraun-
dranga er ekki ljóst hvort átt er við einn
Hraundranga eða marga Hraundranga.
Þverbrekkuhniúkur Kiðlingshnjúkur Sandskálarhnjúkur
Horft úr Öxnadal í átt að Vatnsdal.
Tindurinn hefur líklega fyrst verið
nefndur Drangi en síðan kenndur
við Hraun í Öxnadal og þess
vegna nefndur Hraundrangi en
fjallið í heild er kennt við Drang-
ann og nefnist Drangafjall Öxna-
dalsmegin. Fjallið og hálsinn
norðan þess aðskilja Öxnadal og
Hörgárdal. Hálsinn er kenndur við
bæina sem undir honum standa.
Sunnan hálsins tekur svo tígulegt
fjallið við. Yst er það fremur slétt
og allvel gróið og nefnist sá hluti
þess Hallok. Undir Hallokinu er
lítið fell nefnt Einbúi. Sunnan
Halloksins tekur við þunn og tind-
ótt eggin með Dranganum, en
sunnan hennar verður fjallið flatt
og breitt. Þar skerst inn í það all-
mikil skál sem nefnist Sandskál
og sunnan hennar er Sandskálar-
hnjúkur. Sunnan Sandskálar-
hnjúksins er dalverpi nefnt Kiðl-
ingsdalur og þar má fara yfir í
Grjótárdal og Hörgárdal. Ég tel
eðlilegt að heitið Drangafjall nái
allt suður að Kiðlingsdal. Kiðl-
ingshnjúkurinn er austan Kiðl-
ingsdalsins og skagar hann fram í
Vatnsdalinn (kenndur við
Hraunsvatnið) en austan Vatns-
dalsins er Þverbrekkuhnjúkur-
inn. í botni Vatnsdalsins er all-
mikil jökulfönn sem blasir við
neðan úr Möðruvallasókn og að
baki hennar er hæsta fjall svæðis-
ins (1261 m). Hef ég stundum
nefnt það Hallgrím eftir föður
✓
Fö gnum vetri með
kinum eldfjörugu
Miáald
a
• •
monnum
frá Siðlufirái
*
Hraunsvatn séð af Þverbrekkuhnjúki. Frá vinstri: Sandskál (með skugga),
Drangafjall (með Hraundranga og Halloki yst). Undir Halloki má greina
Einbúa.
Bjarni E. Guðleifsson, MöðruvöIIum.
Jónasar sem drukknaði í Hrauns-
vatninu, en efnið sem varð honum
að aldurtila, vatnið í Hraunsvatni
er að mestu komið úr jökulfönn-
inni undir þessu fjalli.
A flestum málum eru að
minnsta kosti tvær hliðar. Svo er
einnig um Drangafjallið. Drang-
inn er líka tígulegur að vestan-
verðu, úr Hörgárdal, og þar er
hann yfirleitt bara nefndur Drangi
(ekki Hraundrangi), og fjallið er
þeim megin nefnt Háafjall allt
norðan frá Halloki og suður í
mynni Grjótárdals. Fjall þetta er
einnig nefnt Nýjabæjarfjall eftir
eyðibýli undir fjallinu, rétt norðan
við Staðarbakka, og á gangnaseðli
er ætíð talað um Nýjabæjarfjall.
Má því segja að Háafjall og Nýja-
bæjarfjall séu samnefni, nema ef
vera skyldi að Háafjall sé nafnið á
fjallinu en Nýjabæjarfjall á fjalls-
hlíðinni, en slíkar nafngiftir á
fjallshlíðum eru nokkuð algengar í
Éyjafirði. Framhald Háafjallsins
eða Drangafjallsins til suðurs sem
aðgreinir Kiðlingsdal og Grjótár-
dal mun vera ónefnt og hef ég
hneigst til að kalla það áfram Háa-
fjall, enda er það, úr Grjótárdaln-
um séð, lítið aðgreint frá Háafjall-
inu og endar í 1222 m hæð syðst.
Dranginn er 1075 m hár og var
lengi talinn ókleifur en sagt var að
þar á toppnum væri peningakútur,
en flöturinn uppi er víst einungis
um hálfur fermetri. Dranginn var
fyrst klifinn 1956 og kom enginn
peningakútur í leitimar. Það er
einungis á færi klifurmanna að
Vetrardagfstilboá
Kampavínsbœtt humarsúpa
Hvítlauksristaðar lambalundir
með kartöflukörfu og koníakspiparsósu
„Frost og funi“
Verð aðeins l?r. 2.500,-
Borðapantanir í síma 4Ó2 2200
Mynd af Vatnsdalnum tekin úr flugvél. Lengst til vinstri sést í Þverbrekkuhnjúk, þá kemur snævi þakinn Vatnsdal
ur með Hallgrími fyrir botni, Kiðlingshnjúkur og Kiðlingsdalur og Sandskálarhnjúkur lengst til hægri.