Dagur - 04.11.1995, Side 3
FRETTIR
Laugardagur 4. nóvember 1995 - DAGUR - 3
Raufarhöfn:
Londunarbryggja SR-mjols hf. logð i rust
- flutningaskipið Haukur sigldi á hana og stöðvaðist inni í miðju iöndunarhúsinu
Flutningaskipið Haukur sigldi
um sjöleytið í gærmorgun á
löndunarbryggju loðnuverk-
smiðju SR-mjöis hf. á Raufar-
höfn og stöðvast skipið ekki fyrr
en inni í miðju löndunarhúsinu
sem er á bryggjunni og hýsir
m.a. vogirnar. Líklegt er að eitt-
hvað hafi bilað í skiptingu, því
þegar setja átti á fullt afturábak
svaraði ekki og skipið hélt
áfram á sama skriði. Skipið
kom til Raufarhafnar til að Iesta
mjöl.
Tjónið er tilfinnanlegt fyrir
loðnuverksmiðjuna, löndunarhús-
ið nánast í rúst og bryggjan stór-
skemmd. Þetta óhapp kemur á
versta tíma fyrir verksmiðjuna;
mikil loðnuveiði er um 70 mflur
norður af Straumnesi og er að fær-
ast austur eftir sem eykur líkur á
löndun á Raufarhöfn.
Ami Sörensson, verksmiðju-
stjóri SR-mjöls hf., segir tjónið
umtalsvert, skipið hafi keyrt alveg
inn að mæni á húsinu og eyðilagt
húsið. Tjalda verður fyrir það til
að byrja með en óvíst er með
bryggjuna, hún lítur út eins og
eldspýtnamsl. I fyrstu virðast vog-
imar hafa að mestu sloppið við
tjón, en tvær dælur eru brotnar og
eitthvað af lögnum hefur slitnað
og eyðilagst. Það kemur ekki í ljós
fyrr en hægt verður að prófa tæírin
en Ami sagðist vongóður um að
bráðabirgðaviðgerð lyki um helg-
ina og þá væri hægt að taka á móti
loðnu. GG
Sauðárkrókur:
Maður lést af
völdum brunasára
í fyrrinótt lést maður frá
Sauðárkróki af brunasárum
sem hann hlaut eftir að eldur
kom upp í einbýlishúsi í bæn-
um.
Það var um kl. 16 í fyrradag
sem eldsins varð vart en hann
kom upp í eldhúsi hússins.
Ekki var um mikinn eld að
ræða, að sögn lögreglu, greið-
lega gekk að ráða niðurlögum
hans og skemmdir urðu ekki
miklar. í húsinu var auk
mannsins sem lést, móðir hans
en hún slapp ómeidd. Maður-
inn hlaut mikil bmnasár og var
fluttur til Reykjavíkur þar sem
hann lést. Ekki er hægt að
greina frá nafni hins látna að
svo stöddu. HA
Loðnubátar með fullfermi 70 mílur norður af Straumnesi:
Loðnuverksmiðjurnar greiða
5.500 krónur fyrir tonnið
Mjög góð loðnuveiði var í fyrri-
nótt um 70 mílur norður af
. Straumnesi í góðu veðri og fengu
fimm bátar þar fullfermi. Loðnu
hefur orðið vart allt austur að
Kolbeinsey. Tveir bátar fóru til
Siglufjarðar; Albert GK með 704
tonn og Háberg GK með 700
tonn. Tveir bátar fóru til Bol-
ungarvíkur; Örn KE og Sunnu-
berg GK og Víkingur AK fór
suður á Akranes auk Austfjarða-
báta á leið til löndunar í heima-
höfn. Fleiri bátar eru á leið norð-
ur eftir og gætu þeir orðið um
tveir tugir um helgina.
Júpíter ÞH landaði 1.400 tonn-
um á Þórshöfn í gær en skipið fer
ekki inn með fullfermi nema á
flóði, gæta þarf sjávarfalla. Láms
Grímsson skipstjóri segir loðnuna
stóra og feita en hún fari öll til
bræðslu en ástand loðnunnar gæti
Iiins vegar hentað til frystingar sem
fóður fyrir háhyminga ef falast
yrði eftir því. Rússar hafa hins veg-
ar falast eftir 30 til 50 þúsund tonn-
um af frystri loðnu til manneldis
og eru tilbúnir að borga 25 krónur
fyrir kílóið. Þessu væri betur hægt
að sinna ef fleiri bátar væru með
sjókælingu í lestum auk þess sem
mörg frystihúsanna séu ekki að
kafna í vinnu og gætu sinnt þessum
markaði.
Loðnusjómenn gerðu sér vonir
um að verksmiðjumar mundu
greiða um 6 þúsund krónur fyrir
tonnið vegna góðs afurðaverðs á
lýsi og mjöli en fyrir fyrstu farm-
ana voru greiddar 5.500 krónur.
Undanfarin ár hefur verið um
2.000 króna munur á verði milli
sfldar og loðnu, í fyrra voru greidd-
ar 6.500 kr./tonn fyrir sfld og 4.500
kr./tonn fyrir loðnu. í haust vom
greiddar 8.500 kr./tonn fyrir sfld og
því gerðu sjómenn sér vonir um að
greiddar yrðu allt að 6.500 kr./tonn
fyrir loðnuna nú. GG
Akureyrarprestakall:
Séra Sigurður settur
sóknarprestur
Veður til ad fara út að ganga
Síðustu daga hefur verið gott veður um allt land til þess að fara út að ganga og samkvæmt veðurspánni virðist svo
ætla að verða áfram næstu daga. Veðurstofan spáði í gær ákveðinni suðaustlægri átt um allt land, sem ætti að þýða
ágætis veður á Norðurlandi. Um miðja næstu viku eru síðan horfur á einhverjum breytinguin, langtímaspár gera þá
ráð fyrir norðvestlægri átt. óþh/Mynd: BG
Séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, hefur verið settur
sóknarprestur á Akureyri við
hlið séra Birgis Snæbjörnsson-
ar, en eins og fram hefur komið
í blaðinu hefur verið auglýst
staða aðstoðarprests á Akureyri
og í Grímsey og er umsóknar-
frestur til 30. nóveinber nk.
í tilkynningu frá Biskupsstofu
kemur fram að séra Sigurður Guð-
mundsson muni væntanlega gegna
stöðunni þar til nýr prestur hafi
verið ráðinn. Séra Sigurður hefur
aðstöðu sína í safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju og heimasími hans
er 462 7046. óþh
Víða skemmdir á hafnarmannvirkjum á Norður- og Norðausturlandi:
Bryggja við norðurgarð Ólafsfjarðarhafnar brotin
- smábátahöfnin opin fyrir fyllum
Umtalsvert tjón varð á sumum
hafnarmannvirkjum á Norður-
landi í norðaustanhvassviðrinu,
sem gekk yfír landið í síðustu
viku. Stórstreymt var er veðrið
gekk yfír og sjávarhæð mjög
mikil og verður það á stór-
straumsfjöru næsta árið.
Á Hvammstanga hreyfðist til
grjót í grjótvöminni en ekki er tal-
ið að tjón hafi orðið á öðrum
mannvirkjum. Á Blönduósi tók
brimið að mestu 300 metra langa
sjóvörn en brimið gekk hátt yfir
hana sem er mjög óvanalegt. Eng-
ar skemmdir urðu á hafnarmann-
virkjum á Skagaströnd.
Á Sauðárkróki gekk sjór inn á
hafnargarðinn og flutti með sér
sand og grjót sem skemmdi
nokkra gáma sem þar stóðu.
Brimið dró út úr hafnargarðinum
að norðanverðu en þar er sand-
tjara en engin grjótvöm og því
viðbúið að eitthvað láti undan
þegar sjór stendur svona hátt.
Á Siglufirði skemmdist upp-
fylling fyrir nýja löndunarbryggju
verksmiðju SR-mjöls hf. og skol-
aðist uppfyllingin út. Eftir var að
ramma niður þilið og það verður
ekki gert í bili af fyrrgreindum
ástæðum. Verkið var hafið en erf-
iðleikum var bundið að reka þilið
niður vegna þess hve harður botn-
inn er og stóð til að dýpka á
svæðinu með krana eða dælu, en
það verður ekki gert fyrr en í maí-
mánuði 1996.
í Ólafsfjarðarhöfn gekk sjór
yfir norðurgtirðinn og færði til
grjótvömina og tók úr henni.
Bryggjan fyrir innan brotnaði
mikið, bæði klæðningin og undir-
stöður hennar sem bognuðu og
brotnuðu. Bryggjan er fyrst og
fremst notuð fyrir flutningaskip
og er talið útilokað að hún verði
notuð fyrir þau á komandi vetri.
Brimið braut einnig skarð í brim-
vöm í ósnum og við það opnaðist
leið fyrir óbrotna úthafsöldu, fyll-
umar, inn í vesturhöfnina, smá-
bátahöfnina, sem gæti skapað
mikið vandamál þar. Fyrirhugað
var að bæta grjótvörnina fyrir vet-
urinn en ekki var búið að korna
því í framkvæmd. Ekkert tjón
varð á Dalvík, og telja kunnugir
að nýi brimvamargarðurinn þar
liafi sitnnað ágæti sitt í þessu
veðri. Á Grenivík tókst að koma í
veg fyrir tjón, en verktaki við
höfnina var á varðbergi meðan
veðrið gekk yfir, tilbúinn til að-
gerða ef með þyrlti. Akureyrar-
höfn slapp við áföll, enda gætti
veðursins minna þar.
Mannvirki Húsavíkurhafnar
sluppu við skemmdir, en mikil
ólga var inni í höfninni og yfir að
líta eins og í ólgusjó. Á Húsavík
skemmdust einhverjir bátar er
þeir lömdust saman, en það rnál
skýrist ekki til fullnustu fyrr en
þeir verað teknir í slipp. Engar
skemmdir urðu á Kópaskeri.
Á Raufarhöfn losnaði flot-
bryggja í smábátahöfninni frá er
festingar brotnuðu en öðru tjóni
varð forðað að undanskildu því að
úr fyllingum skolaði en mjög
mikil hreyfing var inni í höfninni.
Ekkert tjón varð á hafnarmann-
virkjum á Þórshöfn.
Þrjú skörð komu í innri hafnar-
garðinn á Vopnafirði og var áætl-
að að tjónið næmi um 5 milljón-
um króna. Víða annars staðar
urðu smáskemmdir. Á Bakkafirði
gaf sig ytri klæðning á aðal hafn-
argarðinum á 80 metra löngum
kafla og því stendur garðurinn
eftir berskjaldaður ef hann fær á
sig annað brim í vetur. Brimið tók
grjótið út og stendur því aðeins
kjaminn eftir og því hætta á að í
öðru brimi sígi garðurinn saman
og falli fram fyrir sig. Sáralitlar
líkur eru á því að hægt verði að
laga garðinn í vetur; ekkert grjót
er að hafa í garðinn á staðnum og
þarf að sækja það um langan veg,
jalnvel allt til Vopnatjarðar.
Vandkvæðum gæti líka verið
bundið að koma við viðgerðum á
þessurn árstíma, treysta þarf stillu
í nokkra daga meðan ekið er í
garðinn, tækin þola ekki að fá á
sig brimskafla. GG