Dagur


Dagur - 04.11.1995, Qupperneq 10

Dagur - 04.11.1995, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Laugardagur 4. nóvember 1995 Lögleg vanabindandi lyf: Tæp 20% meðferðarsjúklinga misnota róandi lyf Guðbjörn Björnsson, læknir á Vogi, varar alkóhólista við að trúa því þegar auglýst sé að búið sé að finna upp hið fullkomna svefnlyf, eða róandi lyf, þar sem hætta á ávana sé minni. „Reynslan hefur sýnt mér að nýju lyfin eru síst betri að þessu leyti og við trúum engu fyrr en einhver reynsla er koinin á lyf- in.“ Mynd: AI Töluvert hefur verið fjallað um aukna fíkniefnaneyslu á Islandi í fjölmiðlum undanfarna mánuði. Þegar talað er um fíkniefni er yfirleitt átt við ólögleg efni sem einhver hefur smyglað inn til landsins. Sennilega eru þó afleið- ingar vegna neyslu á löglegum vímuefnum alvarlegra vandamál fyrir þjóðfélagið. Um 75% þeirra 2000 sjúklinga sem koma í með- ferð á Vogi á ári eiga við áfengis- vanda að stríða og um 19-20% eru þar vegna misnotkunar á annars konar löglegum efnum sem geta valdið vímu, aðallega róandi lyfjum eða svefnlyfjum. Guðbjöm Bjömsson, læknir á Vogi, var með fyrirlestur um lögleg ávanabindandi Iyf á göngudeild SÁÁ á Akureyri í vikunni. í fyrir- lestrinum lagði hann áherslu á að þó lögleg lyf, sem geta valdið vímu, séu hættuleg sumum sé nauðsynlegt að greina á milli þeirra sem era í vanda og ánetjast þessum lyfjum og hinna sem nota efnin í hófi. Guðbjöm skilgreinir ávanabind- andi lyf sem efni sem virka á heil- ann og valda vímu. Mörg efni virki á heilann en valdi ekki vímu og þau séu ekki ávanabindandi. Helstu flokkar ávanabindandi lyfja eru róandi lyf, svefnlyf, gigtar- lyf og ofnæmislyf en að sögn Guð- bjöms era þeir flestir sem misnota róandi lyf eða svefnlyf. Gott lyfjaeftirlit Guðbjöm segir lyfjaeftirlit á íslandi vera mjög gott. „Menn eru varkárir með að hleypa nýjum lyfjum á markað og lyf eru líka vel merkt. Öll lyf sem geta valdið vímu era sérstaklega merkt með rauðum þrí- hymingi og þessum merkingum er hægt að treysta.“ Mörg þeirra lyfja sem hafa verið lengi á markaðinum eru hættuleg vegna þess að bilið milli skammts sem hefur róandi áhrif og skammts sem er svo stór að hann veldur dauða er lítið og hafa orðið alvarleg slys vegna þessa. Guðbjörn segir að mikið af þessum gömlii lyfjum sé verið að taka út af markaðinum og í staðinn séu komin ný efni sem einnig séu ávanabindandi en hagi sér öðruvísi að því leyti að eftir því sem þolið gagnvart lyfinu eykst hækka líka banvænu mörkin og hægt sé að taka stærri skammta án þess að hljóta bana af. Eina lyfið sem sé undanskilið þessu sé áfengið en hins vegar falli menn yfirleitt í dá áður en þeir hafa drukkið ban- vænan skammt. Guðbjöm varar alkóhólista við að trúa því þegar auglýst sé að búið sé að finna upp hið fullkomna svefnlyf, eða róandi lyf, þar sem hætta á ávana sé minni. „Reynslan hefur sýnt mér að nýju lyfin eru síst betri að þessu leyti og við trúum Öll lyf sem geta valdið vímu eru sér- staklega merkt með rauðum þrí- hvrningi eins og þessum. engu fyrr en einhver reynsla er komin á lyfin. Þessi lyf eru yfirleitt prófuð á ungu, fullfrísku fólki, sem hefur ekki ánetjast neinum vímu- efnum og slík próf segja lítið um hvaða áhrif Iyfin hafa á alkóhól- ista.“ Mjög slæm fráhvarfseinkenni Fráhvarfseinkenni þeirra sem koma í meðferð vegna róandi lyfja eða svefnlyfja eru mjög slæm og senni- lega þau verstu sem til eru að mati Guðbjöms. „Það reynir mikið á þetta fólk og því líður mjög illa. Einkenni eins og hjartsláttur, hiti, lystarleysi, niðurgangur og minnis- trutlanir era algeng. Fráhvarfsein- kenni áfengissjúklinga og þeirra sem misnota t.d. kókaín eða heróín ganga yfirleitt yfir á nokkrum vik- um en þeir sem hafa misnotað svefnlyf eða róandi lyf era oft með minniháttar fráhvarfseinkenni allt upp í eitt ár þó verst séu einkennin fyrstu vikurnar." Guðbjöm bendir á að í blöðum og ljósvakamiðlum sé mikið fjallað um kókaín og ýmis ólögleg fíkni- efni. „Kókaín er ekkert sérstakt vandamál á íslandi. Þeir sem neita kókaíns era fáir einfaldlega vegna þess að efnið er of dýrt fyrir flesta,“ segir hann og þykir að fjölmiðlar blási þetta vandamál út. I Banda- ríkjunum hafí það t.d. verið fjöl- miðlamir sem ýttu undir vinsældir alsælu með sífeldri umfjöllun um að meðal unglinga hefði gripið um sig alsæluæði. „Vandamál vegna misnotkunar róandi lyfja era hins vegar miklu umfangsmeiri en vegna nokkurra kókaínfíkla og fráhvarfs- einkennin eru líka mun verri. Þó efni eins og kókaín og heróín séu mjög hættuleg að taka inn era frá- hvarseinkennin þegar neyslu þeirra er hætt ekki eins slæm og þeirra sem hafa misnotað róandi lyfin." Pumalputtareglur „Þegar vímuefni kemst í samband við boðefni í heilanum gerist eitt- hvað annað hjá alkóhólistum en öðra fólki. Það er alveg ljóst,“ segir Guðbjöm og hvetur alkóhólista til að taka enga áhættu. I því sambandi telur hann upp þrjár þumalputta- reglur sem allir sem hafa ánetjast vímuefnum ættu að hafa í huga. Sú fyrsta er að nota ekki lyf sem merkt era rauðum þríhyrningi. Lyf á Islandi era vel merkt og hægt að treysta því að öll vímuvaldandi lyf hafi á sér þríhyming að áfengi und- anskyldu. Önnur reglan felur í sér að alkó- hólistar eiga alltaf að segja til sín þegar þeir leita sér læknishjálpar, fara á spítala eða heilslugæslu- stöðvar. „Rétt eins og maður lætur vita ef maður er með sykursýki, slæman maga eða einhvem ætt- gengan sjúkdóm er einnig nauðsyn- legt að segja ef maður er alkóhólisti jafnvel þó ástæða heimsóknarinnar sé aðeins kvef eða bakverkur," seg- ir Guðbjöm, en ef þessi háttur er hafður á hjálpar það lækninum að velja hvaða lyf henta sjúklingi best. Þriðja reglan er að fikta ekki við lyf og alls ekki þiggja lyf frá ætt- ingjum eða vinum. „Það sem hentar öðram hentar ekki endilega þeim sem eru alkóhólistar,“ segir hann. Auk þessara þumalputtareglna varar Guðbjöm menn við að hlaupa á eftir töfralausnum. „Ef við þjá- umst af svefnleysi er mjög ólíklegt að það sé vegna skorts á gingsengi og best er að nota heilbrigða skyn- semi og eðlilegar lausnir lil að vinna sig frá vandanum." AI Körfuknattleikur - úrvalsdeild: Stólarnir höföu betur - sigruöu KR-inga 62:60 á Króknum Tindastólsmenn náðu sigri á lokamínútunum gegn KR-ing- um í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á Sauðárkróki sl. fimmtudagskvöld. Munurinn var aðeins tvö stig þegar upp var staðið, 62-60. Framan af leiknum einkenndist leikurinn af taugatitringi og mis- tökum á báða bóga. KR-ingar Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080 náðu þó fljótlega frumkvæðinu og héldu því nánast allan leikinn, þar til rétt í lokin þegar Tindastólsvél- in hrökk í gang. Og það dugði - tvö stig bættust við í stigasafn Sauðkrækinga og þeir eru nú komnir með 16 stig, jafnmörg stig og Haukar og Keflavík í A-riðli. Annað kvöld fara Stólamir suður til Grindavíkur og má búast við erfiðum róðri þar. Stig Tindastóls: Torrey John 31, Láras Dagur Pálsson 10, Hin- rik Gunnarsson 9, Ómar Sigmars- son 7, Pétur Guðmundsson 4 og Amar Kárason 1. Stig KR: Jonathan Bow 17, Hermann Hauksson 14, Ingvar Ormsson 12, Óskar Kristjánsson 8, Ósvaldur Knudsen 7, Atli Ein- arsson 2 og Láras Árnason 1. Tap Pórsara í Hafnarfirði Þórsarar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hauka í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í Hafnarfirði sl. fimmtudagskvöld. Þegar upp var staðið munaði tólf stigum á liðunum, 86-74, en stað- an í hálfleik var 51-34. Staða Þórsara er því allt önnur en góð, liðið hefur einungis sex stig að loknum 10 leikjum. Það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að Haukarnir ætluðu að selja sig dýrt. Þórsarar komust vart á blað á fyrstu mínútum leiks- ins á meðan Haukarnir höluðu inn stigin jafnt og þétt. Sá eini sem eitthvað lét til sín taka í liði Þórs í fyrri hálfleik var Fred Williams. Þórsarar komu mun ákveðnari til síðari hálfleiks en það dugði ekki til, munurinn frá í fyrri hálf- leik var of mikill til að gestirnir næðu að brúa bilið. Þessum leik verða Þórsarar að gleyma sem fyrst og bíta á jaxlinn fyrir leikinn gegn ÍR í íþróttahöllinni á Akur- eyri annað kvöld. Nú er að duga eða drepast. Stig Hauka: Jason Williford 25, Jón Amar Ingvarsson 22, Bergur Eðvarðsson 12, Sigfús Gizurarson 11, Ivar Ásgrímsson 5, Pétur Ing- varsson 4, Björgvin Jónsson 4 og Pálmar Sigurðsson 3. Stig Þórs: Fred Williams 30, Kristján Guðlaugsson 11, Haf- steinn Lúðvíksson 9, Konráð Ósk- arsson 8, Kristinn Friðriksson 7, Birgir Öm Birgisson 5 og Böðvar Kristjánsson 4. Litaleikur Dags og Borgarbíós: Fyrstu miöarnir á Leynivopnið dregnir út í laugardagsblaðinu fyrir viku var birt teikning af sögupersónum í teiknimyndinni Leynivopninu, sem Borgarbíó á Akureyri hefur nú til sýningar og yngstu lesend- umir hvattir til að lita hana og senda til blaðsins. Margar lit- skrúðugar og fallegar myndir bár- ust blaðinu í vikunni og nú er bú- ið að draga úr bunkanum 20 teikningar og höfundar þeirra fá miða á sýningu á Leynivopinu í Borgarbíói. Næsta sýning er á sunnudag kl. 15 og geta þeir sem taldir era upp hér á eftir vitjað um miða sinn í Borgarbíói. Eins og frani kom í síðasta helgarblaði verður lfka dregið út næsta fimmtudag úr teikningabunkanum þannig að nú er um að gera að finna blaðið, lita myndina, senda blaðinu og vinna miða á sýningu á Leynivopninu. Þeir sem höfðu heppnina með sér þessa vikuna voru: Saniúel Gunnarsson Vestursíðu 1 a, Akurevri Friðrik Gunnarsson Vestursíðu 1 a, Akureyri Þrúður Maren Einarsdóttir Borgarsíðu 37, Akureyri Jón Björn Þorsteinsson Skíðabraut 6, Dalvík Þórdís Inga Þórarinsdóttir Grenilundi 3, Akureyri Ambjörg Jónsdóttir Byggðavegi 99, Akureyri Alex Orrason Krabbastíg 1 b, Akureyri Kolbrún Dögg Tryggvadóttir Borgarsíðu 19, Akureyri Helga Margrét Clarke Grænumýri 6, Akureyri Skúli Einarsson Engimýri 14, Akureyri Ebba Hlíf Hlífarsdóttir Víðiholti, 560 Varmahlíð Iris Tanja Flygenring Kantbagerði 7, Akureyri Sara Svavarsdóttir Bjarkarstíg 1, Akureyri Þórdís Ragna Sigurbjömsdóttir Kleifargerði 5, Akureyri Margrét Einarsdóttir Engimýri 14, Akureyri Hulda Margrét Hallgrímsdóttir Tröllagili 10, Akureyri Júlfa B. Róbertsdóttir Stapasíðu 13a, Akureyri íris Bjömsdóttir Hjallalundi 13 h, Akureyri Grétar Már Axelsson Grundargötu 7, Akurcyri Audrey Freyja Clarke Grænumýri 6, Akureyri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.