Dagur


Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 3

Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 3
FRETTIR Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - 3 Hafísinn meiri og þétt- ari miðað við árstíma - litlar líkur á breytingum ískönnunarflug Landhelgisgæsl- unnar sl. miðvikudag leiddi í Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar Nýtt skíðasvæði Á fund bæjarráðs 26. október sl. kom íþrótta- og æskulýðsráð vegna erindis UMF Tindastóls um uppbyggingu nýs skíða- svæðis og kaup á snjótroðara. Niðurstaða umræðna varð sú að íþrótta- og æskulýðsráð fjalli frekar um málið. Nýtt gistiheimili Bygginganefnd hefur borist fyrirspum um starfrækslu gisti- heimilis í húsinu nr. 47 við Skagfirðingabraut. Bygginga- nefnd samþykkti að leita um- sagnar nágranna um niálið. Ákvörðun frestað Á fundi félagsmálaráðs 23. október sl. var rætt um stað- greiðsluskatt af framfærslu- styrkjum. Félagsmálaráð sam- þykkti að fresta ákvörðun um framkvæmd staðgreiðslu skatta af framfærslustyrkjum til 1. desember nk. Tilnefningar Á bæjarstjómarfundi 17.októ- ber sl. voru lögð fram bréf þar sem Gunnar Bragi Sveinsson og Sólveig Jónasdóttir sækja um leyfi frá skyldum sem bæj- arfulltrúar um óákveðinn tíma. Tilnefnd voru í stað Gunnars Braga: Varamaður í bæjarstjórn - Guðrún Á. Sölvadóttir, aðal- maður í félagsmálaráð - Sigur- björg Guðjónsdóttir, varamaður í félagsmálaráð - Guðrún Á. Sölvadóttir, varam. í íþrótta- og æskulýðsráð - Hjörtur Geir- mundsson og varam. í héraðs- nefnd - Guðrún Á. Sölvadóttir. ljós að hafísinn er meira en í meðallagi á þessum slóðum mið- að við árslíma og einnig er jaðar hans nokkuð þéttari. Þór Jakobsson hjá Veðurstof- unni segir að ekki sé búist við miklum breytingum á hafísnum, hann hvorki færist nær né í vestur- átt. Framundan séu fremur hægar áttir og ekki hagstæðar norðaust- anáttir sem hrekja hafísirin frá. Næst landi var ísbrúnin um 75 sjómflur norðvestur af Barða og 78 sjómílur norðvestur af Straum- nesi svo loðnubátamir ættu ekki að verða fyrir truflunum af hafísn- um. Veiðiskip djúpt út af Vest- fjörðum gætu hins vegar orðið fyrir óþægindum og eins skip sem væru á Dohrnbanka. Borgarísjaka varð vart í Vrkurál en þéttleiki ís- jaðarins var víðast um 4-6/10 og 7-9/10. GG Merkur árangur á Siglufirði í nýjasta tölublaði Streymis, fréttabréfs Rafmagnsveitna rík- isins, er getið um merkan árang- ur í rekstri Hitaveitu Sigluljarð- ar með því að breyta sölukerfi úr hemlum yfír í rennslismæla. Orðrétt segir í fréttabréfi RARIK: „RARIK fór þá leið að breyta sölukerfi úr hemlum yfir í rennslismæla. Árangurinn varð sá að með breyttu fyrirkomulagi sölu og góðu samstarfi við viðskipta- vini tókst ekki aðeins að stórbæta nýtingu vatnsins, heldur einnig að auka framboð, koma hitaveitu- svæðinu í jafnvægi að nýju og spara útgjöld við virkjunarfram- kvæmdir. Samkvæmt niðurstöðum RARIK og Orkustofnunar varð vatnsspamaður í kjölfar aðgerð- anna um 25% og nú er hægt að gefa nýjum viðskiptavinum kost á að njóta hitaveitunnar. í lok breyt- inganna var viðskiptavinum veitt- ur afsláttur með hliðsjón af því hversu heitt vatn þeir fá heim lil sín. Þessi viðmiðun er nýjung í gjaldtöku hitaveitna hérlendis, en auk RARIK hafa tvær bæjarveitur tekið hana upp.“ óþh Olafsfjöröur: Ráðherra staðfestir reglur um útivist Félagsmálaráðherra hefur stað- fest samþykkt bæjarstjórnar Ól- afsfjarðar um útivistartíma barna og ungmenna í Ólafsfirði. í samþykktinni segir að böm, 11 ára og yngri, megi ekki vera á Dalvík: almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum eða á heim- ferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Böm á aldrinum 12-16 ára mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir því sem hér segir: 12 ára eftir kl. 21, 13 ára eftir kl. 22.30 og 14-16 ára eftir kl. 23, nema þau séu á heim- ferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á föstudags- og laugardagskvöldum er unglingum 12-16 ára þó heimilt að vera lengur á almannafæri; 12 ára til kl. 22, 13 ára til kl. 24 og 14-16 áratilkl. 01. óþh Yfirlýsing „Að marggefnu tilefni, vegna fjölda fyrirspuma ónafn- greindra aðila, tek ég undirrit- aður, Friðrik Vestmann, eig- andi framköllunarfyrirtækisins Pedrómynda á Akureyri, það skýrt fram að sögusagnir um að fyrirtæki mitt tengist dreif- ingu á umræddri mynd af Heiðari Jónssyni á ekki við nokkur rök að styðjast. í upp- hafi var filma með umræddri mynd ekki framkölluð í mínu fyrirtæki, en síðar pantaði eig- andi hennar tvö eintök af tveim myndum á filmunni. Þessi eftirpöntun var afgreidd eins og hver önnur. Eg tel mig reka traust og gott fyrirtæki og vil því ekki á nokkum hátt vera viðriðinn slík mál.“ Friðrik Vestmann. Bæjarmála- punktar Styrkur-vÉgna Hreins hf. Stjóm Byggðastofnunar hefur samþykkt að greiða Dalvíkur- bæ st_Tk allt að 500 þúsund krónur vegna Hreins hf. Hausaþurrkun Hallgrímur Antonsson hefur sent bæjarráði erindi þar sem farið er fram á leyfi fyrir hausaþurrkun í húsi hans að Sandskeiði 10-12 á Dalvík. Bæjarráð samþykkti að heil- brigðisfulltrúi mæti á fund bæjarráðs. Umhverfisdeild Umhveifisnefnd hefur sam- þykkt að mæla með tillögu garðyrkjustjóra um stofnun umhverfisdeildar, sem sameini undir einum lið alla starfsemi umhvetfismála. Framtíðar gámasvæði Umhverfisnefnd hefur sam- þykkt að beina þeim eindregnu tilmælum til bæjaryfirvalda að nú þegar verði hafist handa um skipulagningu framtíðar gáma- svæðis og verði hafist handa strax næsta vor. Bakaríisbakkinn Þá hefur umhverfisnefnd bók- að að hún leggi ríka áherslu á að við gerð fjárhagsáætlunar 1996 verði ætlað fé til frágangs bakkans norðan við bakaríið. Umhverfisnefnd bendir á að þetta svæði sé í hjarta bæjarins og sé einhver ljótasti blettur sem bæjarbúar og ferðamenn reki augun í á leið um bæinn. Leikhús- stjórastaða Staða leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar er laus til umsóknar. Ráðningartími er frá 1. janúar 1996. Nánari upplýsingar í síma veita: Ingvar Bjömsson, vinnusími 462 5073, heimasími 462 5692. Rósa Guðný Þórsdóttir, vinnusími 462 5073, heima- sími 461 2635. Umsóknir skulu sendar fyrir 23. nóvember 1995 stílað- ar á Leikhúsráð Leikfélags Akureyrar, pósthólf 53, 602 Akureyri. Skattstjóri Staða skattstjóra í Norðurlandsumdæmi eystra er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hag- fræði, viðskiptafræði eða hlotið löggildingu í end- urskoðun. Æskilegt er að umsækjendur hafi jafnframt góða þekkingu á skattalögum og skattaframkvæmd. Laun skattstjóra eru ákveðin af kjaranefnd samkvæmt lögum nr. 120/1992, um kjaradóm og kjaranefnd. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 4. desem- ber 1995. Fjármálaráðuneytið, 10. nóvember 1995. Samhugur Leggðu þitt af mörkuin iun á bankareikning nr. '26'800 í Sparisjóði Önundartjarðar á FIatel'ri- LANDSSÖFNUN ll«gl cr að ltggja Inn á rcikninginn í iilltim iiiinkuni, sparisjöðuni og póslhúsuni á lumlimi. V l: G N A NÁTTÚ RUHAMFARA AUir IjölmiiMar landsins, Póstur og sími. A F LAT E Y R I lljálparstolnun kirkjunnar og Kauöi kross íslands.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.