Dagur - 11.11.1995, Blaðsíða 15

Dagur - 11.11.1995, Blaðsíða 15
UTAN LANDSTEINANNA Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - 15 UMSJÓN: ELSA JÓHANNSDÓTTIR Það virðist ótrúlegt við fyrstu sýn en þetta er engu að síður leikkonan fræga Demi Moore, eins og hún lítur út í nýjustu mynd sinni „Striptease". Þar fer hún með hlutverk óhamingjusamr- ar móður sem hefur misst umráðarétt- inn yfir dóttur sinni og vill gera hvað sem er til að fá bamið aftur. Því grípur hún til þess að fækka fötum á stripp- búllu í New York og vinna þannig inn pening fyrir lögfræðiaðstoð. Leikkonunni voru boðnar litlar 100 milljónir króna fyrir hlutverkið og hún var svo sem ekkert að slá hendinni á móti því, en þetta mun vera með því mesta sem boðið hefur verið fyrir kvenhlutverk í kvikmyndunum vestra. Um þessar mundir gengur yfir eins konar æði að búa til myndir sem ger- ast á nektarbörum í Ameríku, og næg- ir að nefna myndina „Show Girls“, sem Borgarbíó á Akureyri hefur ný- lega fengið til sýninga. o/j MUMAwéJm - friam/taM Þá skal haldið áfram þar sem frá var horfið og líta á fleiri sýnishom úr ljósmyndasafni leikarans vinsæla, Antonio Banderas. Hér er skemmtileg sería sem sýnir hversu hárfagur maðurinn er... Þeim virðist vera fleira til lista lagt en að sýna sig á sundbolum í Strandvörðum, þeim Pamelu Anderson, Alexöndru Paul og Yasmine Bleeth. Hér má sjá þær æfa sig að munda byssumar við gerð á þáttum sem stæla fræga leynilögguþáttaröð, „Charlie’s Angels'1, sem var geysivinsælt efni í Bandaríkjunum upp úr 1970. Tísk- an frá þessurn tíma spilar greinilega eitt af stóru hlutverkunum, enda er hún vinsæl einmitt í dag. Þær stöllur taka sig bara vel út og einbeitingin leynir sér ekki.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.