Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - 15
UMSJÓN: ELSA JÓHANNSDÓTTIR
Það virðist ótrúlegt við fyrstu sýn en
þetta er engu að síður leikkonan fræga
Demi Moore, eins og hún lítur út í
nýjustu mynd sinni „Striptease". Þar
fer hún með hlutverk óhamingjusamr-
ar móður sem hefur misst umráðarétt-
inn yfir dóttur sinni og vill gera hvað
sem er til að fá bamið aftur. Því grípur
hún til þess að fækka fötum á stripp-
búllu í New York og vinna þannig inn
pening fyrir lögfræðiaðstoð.
Leikkonunni voru boðnar litlar 100
milljónir króna fyrir hlutverkið og hún
var svo sem ekkert að slá hendinni á
móti því, en þetta mun vera með því
mesta sem boðið hefur verið fyrir
kvenhlutverk í kvikmyndunum vestra.
Um þessar mundir gengur yfir eins
konar æði að búa til myndir sem ger-
ast á nektarbörum í Ameríku, og næg-
ir að nefna myndina „Show Girls“,
sem Borgarbíó á Akureyri hefur ný-
lega fengið til sýninga.
o/j MUMAwéJm
- friam/taM
Þá skal haldið áfram þar sem frá var horfið og líta á fleiri sýnishom úr ljósmyndasafni leikarans vinsæla,
Antonio Banderas. Hér er skemmtileg sería sem sýnir hversu hárfagur maðurinn er...
Þeim virðist vera fleira til lista lagt en að sýna sig á sundbolum í Strandvörðum,
þeim Pamelu Anderson, Alexöndru Paul og Yasmine Bleeth. Hér má sjá þær æfa
sig að munda byssumar við gerð á þáttum sem stæla fræga leynilögguþáttaröð,
„Charlie’s Angels'1, sem var geysivinsælt efni í Bandaríkjunum upp úr 1970. Tísk-
an frá þessurn tíma spilar greinilega eitt af stóru hlutverkunum, enda er hún vinsæl
einmitt í dag. Þær stöllur taka sig bara vel út og einbeitingin leynir sér ekki.