Dagur


Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 13

Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 13
Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - 13 POPP MAÚNUS GEIR GUÐMUNDSSON Geirmundur Konungur ísiensku sveiflunnar úr Skagafirðinum, Geirmundur Valtýsson, hefur eins og allir vita verið að svo áratugum skiptir og enn er ekkert lát á. Nú er hins vegar að koma safnplata með honum á vegum Skífunnar, sem kallast Lífsdansinn. Verða þar flest ef ekki öll hans vinsælustu lög og er þessi útgáfa eflaust mörgum fagnaðarefni. Bubbi Nýja platan hans Bubba, sem reyndar hefur aðeins verið sagt frá hér áður og væntanleg er inn- an skamms, kallast f skugga Morthens og mun Bubbi þar syngja lög sem hans góði frændi, Haukur, gerði vinsæl. Það sem svo vekur nokkra athygli við plötuna er að nútímatækni er notuð til að láta þá frændur syngja saman dúett. Er þetta ekki ósvipað dæmi og með feðg- inin Nat King og Natalie Cole, sem sungu saman dúett á plötu þeirrar síðamefndu fyrir nokkr- um árum með þessari tækni. Piltur & Stúlka: Hipac Shakur látínn laus Ribbaldarapparinn Tupac Shakur, sem í desember síðastliðnum var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðislegrar árás- ar á kvenaðdáanda sinn, hefur nú verið látinn laus gegn tryggingu sem samsvarar um 65 milljónum íslenskra króna. Sat Tupac í átta mánuði inni, þar af í um tvo í ein- angrun í klefa sínum vegna eitur- lyfjaneyslu í fangelsinu, en fékkst laus fyrir þrákelkni lögfræðinga sinna og vilja plötufyrirtækisins Death Row Records til að greiða tryggingarupphæðina. í staðinn gerði Tupac samning við Death Row og mun hann nú vera í óða önn við að taka upp nýja plötu. En þótt kappinn sé laus vegna þessa kynferðisafbrotamáls, er hann ekki laus allra mála. Fór hann fljótlega eftir að hafa verið látinn laus í New York, til Los Angeles, þar sem hann hlýddi á málsókn á hendur sér vegna ólöglegrar vopnaeignar, sem hann varð uppvís að í aprfl í fyrra. Kann sá málarekstur að koma honum aftur bak við lás og slá, en fyrir aðdáendur hans gerist það vonandi ekki áður en að hann nær að klára nýju plötuna. Rapparinn Tupac. Gengur aftur laus. ístensktr píötM' punkwr PAPAR Hinir vestmannaeysku Papar, gleðigauramir með meiru, hafa fyrir nokkru gefið út plötuna í Góðum sköpum. Þar láta þeir gamminn geysa í 15 lögum og lagabrotum og skemmta sér og öðrum konunglega á sínum þjóðlaganótum. Papar gera glens og eru í „Góö- um Sköpum“. Eins og lesendur Dags hafa væntanlega orðið vel varir við, eru þau Tómas Hermannsson og Ing- unn Gylfadóttir nú að senda frá sér sína fyrstu plötu, Endist varla, undir nafninu Piltur og Stúlka. Þau skötuhjúin vöktu á sínum tíma mikla athygli er þau áttu tvö lög, Brenndar brýr og Eg bý hér enn, í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hér heima, en slíkt hafði vart gerst að sömu höfundar og flytjendur ættu þar tvö lög. Þóttu lögin að margra mati vera hin þokkalegustu, þó ekki væru þau í baráttunni um að sigra. Þetta var árið 1993, en síðan þá hefur lítið borið á þeim, þar til nú. Endist varla... geymir ein 13 lög, sem öll eru eftir þau Ingunni og Tómas, utan tveggja, sem Krist- ján Edelstein samdi. Kristján er líka nánast allt í öllu við gerð plötunnar, tekur hana upp og út- setur, spilar á gítar með meiru af sinni alkunnu snilld auk þess að vera eigandi hljóðversins sem platan er tekin upp í, Hljóðlist hér á Akureyri. Textana við lögin leggja margir góðir menn tíí, m.a. Þorvaldur Þorsteinsson, skáld „auglýsingarödd" og Akureyring- ur með meiru, sem á þrjá, Oddur Tómas Hermannsson og Ingunn Gylfadóttir vanda vel til verka á fyrstu plötunni sinni, Endist varla... Bjami Þorkelsson, annar Akureyr- ingur, sem á eina fjóra, skáldið Sjón, Sigurjón Sigurðsson tvo og Sverrir Páll Erlendsson kennari við MA (bestí íslenskukennarinn þar á bæ að sagt er) sem á einn. Syngur Ingunn öll lögin og spilar Tómas ýmist á kassa- eða rafgítar í þeim. Hjálparkokkamir við hljóð- færaleikinn eru síðan líkt og í textagerðinni, fríður flokkur valin- kunnra manna, m.a. þrír bassa- leikarar, Jóhann Asmundsson Mezzoforte og Stjórnarmaður, Pálmi Gunnarsson og Jón Rafns- son m.a. í tríóinu „Skipað þeim", Sigfús Óttarsson trommari, sem ekki þarf að kynna frekar og Magnús Eiríksson, „Stórmeistar- inn sjálfur", sem blæs í munn- hörpu í einu laganna. Góð útkoma Það kemur því ekki á óvart að með slíkar hjálparhellur sér við hlið, sem sjá má af ofantöldu, er útkoman góð hvað allan umbúnað plötunnar, ytri sem innri, snertir. Það færi hins vegar fyrir lítið ef ekki væri líka um að ræða boðlegt innihald, þ.e. sæmilega samin lög. Sú er sem betur fer raunin hjá þeim Tómasi og Ingunni og eru Manstu, Einleikur, Hugarsmuga og Söngur um tengsl, ágætis vitn- isburður um það auk þess sem Töfra dagsins eftir Kristján má líka nefna sérstaklega. í heild er annars andinn á Endist varla... rólegur og yfirvegaður og ber vitni um vand- virkni skapara sinna og töluvert mikla tjáningarþörf þeirra. Korn. „Góöir hlutir gcrast hægt“. Kom - uppskera - platan hefur selst í yfir 300.000 eintökum Þegar söngvarinn Jonathan Davis og félagar hans í hljómsveitinni Kom frá Kalifomiu í Bandaríkjun- um, náðu þeim áfanga fyrir vel rúmu ári að komast á mála hjá út- gáfurisanum Epic, töldu þeir sig heldur betur hafa himin höndum tekið. Skyldi líka engan undra, því þeir fimmmenningar (auk Davis, Fiedy bassaleikari, söngvarinn og gítarleikarinn Brian, gítarleikarinn J. Munky og trommarinn David) höfðu aðeins verið saman í nokkra mánuði áður en Immortalfyrirtæk- ið, sem er í tengslum við Epic, gerði við þá útgáfusamning. Fyrsta samnefnda platan þeirra kom svo út fyrir um það bil ári í Bandaríkj- unum og barst hún þaðan fljótlega hingað til lands. Voru væntingam- ar miklar, en þá brá svo við, eins og stundum vill verða við slíkar kringumstæður, að nánast ekkert gerðist. Fékk platan að vísu hina ágætustu dóma, en salan tíl að byrja með var ekki í samræmi við það. Þeir Korndrengir létu þó ekki bugast og voru duglegir að koma fram m.a. fengu þeir tækifæri að halda tónleika með Megadeth o.fl. stórrokknöfnum. Kann að vera að tónlist þeirra, harðneskjulegt rokk og áreitið, en jafnframt hugulsamt, hafi virkað heldur framandi og frá- hrindandi í upphafi, en með tón- leikahaldinu náðu þeir hins vegar að breyta því viðhorfi. Hefur plat- an nefnilega á síðustu vikum og mánuðum verið að sækja í sig veðr- ið jafn og þétt og hefur nú upp- skorið þá almenningshylli sem hún hefur þótt eiga skilið. Inn á topp 100 var náð fyrir nokkru og hefur platan selst í um 300.000 eintökum og er salan enn á uppleið. Má því segja að „komuppskeran" sé loks hafin hjá þessari athyglisverðu sveit. Viðbætir Varðandi fráfall söngvara Blind Melon, Shannon Hoon, sem sagt var frá í Poppi fyrir hálfum mánuði, er það frekar að segja að það var félagi Hoons frá bamæsku, enginn annar en Axl Rose söngvari Guns n' Roses, sem kom að honum látnum. Gerðist þetta nánar tiltekið kl. hálf tvö fimmtudaginn 26. októ- ber og var það í rútu Blind Mel- on, sem lagt hafði verið fyrir ut- an hótel í New Orleans, að Rose kom að Hoon. Sögusagnir um sjálfsmorð í anda Kurts Cobain hafa vaknað í Bandaríkjunum í kjölfarið, en sönnur fyrir því hafa ekki verið lagðar fram. Pönksveitarsafn Fyrir pönkaðdáendur er nú að koma út ansi hreint merkilegt safn með einni af þeim reyndari og áhrifameiri í bransanum, Bad Religion. Er um að ræða tvöfalda geislaútgáfu með „vinsælustu lögum" sveitarimiar og ber hún heitíð All Ages. Kemur safnið út á vegum hinnar nú margfrægu útgáfu Epitaph, sem einmitt var stofnsett og er enn í eigu fyrrum gítarleikara Bad Religion til margra ára, Brett Gruewitz. Ash til íslands Fregnir herma nú að írska ung- lingatríóið Ash, sé á leið hing- að til lands innan ekki langs tíma tíl tónleikahalds, en það hefur meðal annars vakið at- hygli með laginu Girl From Mars. Meira um það síðar. Róleg og yfírveguð

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.