Dagur - 11.11.1995, Side 13
Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - 13
POPP
MAÚNUS GEIR GUÐMUNDSSON
Geirmundur
Konungur ísiensku sveiflunnar
úr Skagafirðinum, Geirmundur
Valtýsson, hefur eins og allir vita
verið að svo áratugum skiptir og
enn er ekkert lát á. Nú er hins
vegar að koma safnplata með
honum á vegum Skífunnar, sem
kallast Lífsdansinn. Verða þar
flest ef ekki öll hans vinsælustu
lög og er þessi útgáfa eflaust
mörgum fagnaðarefni.
Bubbi
Nýja platan hans Bubba, sem
reyndar hefur aðeins verið sagt
frá hér áður og væntanleg er inn-
an skamms, kallast f skugga
Morthens og mun Bubbi þar
syngja lög sem hans góði frændi,
Haukur, gerði vinsæl. Það sem
svo vekur nokkra athygli við
plötuna er að nútímatækni er
notuð til að láta þá frændur
syngja saman dúett. Er þetta
ekki ósvipað dæmi og með feðg-
inin Nat King og Natalie Cole,
sem sungu saman dúett á plötu
þeirrar síðamefndu fyrir nokkr-
um árum með þessari tækni.
Piltur & Stúlka:
Hipac
Shakur
látínn
laus
Ribbaldarapparinn Tupac Shakur,
sem í desember síðastliðnum var
dæmdur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðislegrar árás-
ar á kvenaðdáanda sinn, hefur nú
verið látinn laus gegn tryggingu
sem samsvarar um 65 milljónum
íslenskra króna. Sat Tupac í átta
mánuði inni, þar af í um tvo í ein-
angrun í klefa sínum vegna eitur-
lyfjaneyslu í fangelsinu, en fékkst
laus fyrir þrákelkni lögfræðinga
sinna og vilja plötufyrirtækisins
Death Row Records til að greiða
tryggingarupphæðina. í staðinn
gerði Tupac samning við Death
Row og mun hann nú vera í óða
önn við að taka upp nýja plötu. En
þótt kappinn sé laus vegna þessa
kynferðisafbrotamáls, er hann ekki
laus allra mála. Fór hann fljótlega
eftir að hafa verið látinn laus í New
York, til Los Angeles, þar sem
hann hlýddi á málsókn á hendur
sér vegna ólöglegrar vopnaeignar,
sem hann varð uppvís að í aprfl í
fyrra. Kann sá málarekstur að
koma honum aftur bak við lás og
slá, en fyrir aðdáendur hans gerist
það vonandi ekki áður en að hann
nær að klára nýju plötuna.
Rapparinn Tupac. Gengur aftur
laus.
ístensktr
píötM'
punkwr
PAPAR
Hinir vestmannaeysku Papar,
gleðigauramir með meiru, hafa
fyrir nokkru gefið út plötuna í
Góðum sköpum. Þar láta þeir
gamminn geysa í 15 lögum og
lagabrotum og skemmta sér og
öðrum konunglega á sínum
þjóðlaganótum.
Papar gera glens og eru í „Góö-
um Sköpum“.
Eins og lesendur Dags hafa
væntanlega orðið vel varir við, eru
þau Tómas Hermannsson og Ing-
unn Gylfadóttir nú að senda frá
sér sína fyrstu plötu, Endist varla,
undir nafninu Piltur og Stúlka.
Þau skötuhjúin vöktu á sínum
tíma mikla athygli er þau áttu tvö
lög, Brenndar brýr og Eg bý hér
enn, í undankeppni söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva hér
heima, en slíkt hafði vart gerst að
sömu höfundar og flytjendur ættu
þar tvö lög. Þóttu lögin að margra
mati vera hin þokkalegustu, þó
ekki væru þau í baráttunni um að
sigra. Þetta var árið 1993, en síðan
þá hefur lítið borið á þeim, þar til
nú. Endist varla... geymir ein 13
lög, sem öll eru eftir þau Ingunni
og Tómas, utan tveggja, sem Krist-
ján Edelstein samdi. Kristján er
líka nánast allt í öllu við gerð
plötunnar, tekur hana upp og út-
setur, spilar á gítar með meiru af
sinni alkunnu snilld auk þess að
vera eigandi hljóðversins sem
platan er tekin upp í, Hljóðlist hér
á Akureyri. Textana við lögin
leggja margir góðir menn tíí, m.a.
Þorvaldur Þorsteinsson, skáld
„auglýsingarödd" og Akureyring-
ur með meiru, sem á þrjá, Oddur
Tómas Hermannsson og Ingunn Gylfadóttir vanda vel til verka á fyrstu
plötunni sinni, Endist varla...
Bjami Þorkelsson, annar Akureyr-
ingur, sem á eina fjóra, skáldið
Sjón, Sigurjón Sigurðsson tvo og
Sverrir Páll Erlendsson kennari
við MA (bestí íslenskukennarinn
þar á bæ að sagt er) sem á einn.
Syngur Ingunn öll lögin og spilar
Tómas ýmist á kassa- eða rafgítar í
þeim. Hjálparkokkamir við hljóð-
færaleikinn eru síðan líkt og í
textagerðinni, fríður flokkur valin-
kunnra manna, m.a. þrír bassa-
leikarar, Jóhann Asmundsson
Mezzoforte og Stjórnarmaður,
Pálmi Gunnarsson og Jón Rafns-
son m.a. í tríóinu „Skipað þeim",
Sigfús Óttarsson trommari, sem
ekki þarf að kynna frekar og
Magnús Eiríksson, „Stórmeistar-
inn sjálfur", sem blæs í munn-
hörpu í einu laganna.
Góð útkoma
Það kemur því ekki á óvart að
með slíkar hjálparhellur sér við
hlið, sem sjá má af ofantöldu, er
útkoman góð hvað allan umbúnað
plötunnar, ytri sem innri, snertir.
Það færi hins vegar fyrir lítið ef
ekki væri líka um að ræða boðlegt
innihald, þ.e. sæmilega samin lög.
Sú er sem betur fer raunin hjá
þeim Tómasi og Ingunni og eru
Manstu, Einleikur, Hugarsmuga
og Söngur um tengsl, ágætis vitn-
isburður um það auk þess sem
Töfra dagsins eftir Kristján má líka
nefna sérstaklega. í heild er annars
andinn á Endist varla... rólegur og
yfirvegaður og ber vitni um vand-
virkni skapara sinna og töluvert
mikla tjáningarþörf þeirra.
Korn. „Góöir hlutir gcrast hægt“.
Kom - uppskera
- platan hefur selst í yfir 300.000 eintökum
Þegar söngvarinn Jonathan Davis
og félagar hans í hljómsveitinni
Kom frá Kalifomiu í Bandaríkjun-
um, náðu þeim áfanga fyrir vel
rúmu ári að komast á mála hjá út-
gáfurisanum Epic, töldu þeir sig
heldur betur hafa himin höndum
tekið. Skyldi líka engan undra, því
þeir fimmmenningar (auk Davis,
Fiedy bassaleikari, söngvarinn og
gítarleikarinn Brian, gítarleikarinn
J. Munky og trommarinn David)
höfðu aðeins verið saman í nokkra
mánuði áður en Immortalfyrirtæk-
ið, sem er í tengslum við Epic,
gerði við þá útgáfusamning. Fyrsta
samnefnda platan þeirra kom svo
út fyrir um það bil ári í Bandaríkj-
unum og barst hún þaðan fljótlega
hingað til lands. Voru væntingam-
ar miklar, en þá brá svo við, eins og
stundum vill verða við slíkar
kringumstæður, að nánast ekkert
gerðist. Fékk platan að vísu hina
ágætustu dóma, en salan tíl að
byrja með var ekki í samræmi við
það. Þeir Korndrengir létu þó ekki
bugast og voru duglegir að koma
fram m.a. fengu þeir tækifæri að
halda tónleika með Megadeth o.fl.
stórrokknöfnum. Kann að vera að
tónlist þeirra, harðneskjulegt rokk
og áreitið, en jafnframt hugulsamt,
hafi virkað heldur framandi og frá-
hrindandi í upphafi, en með tón-
leikahaldinu náðu þeir hins vegar
að breyta því viðhorfi. Hefur plat-
an nefnilega á síðustu vikum og
mánuðum verið að sækja í sig veðr-
ið jafn og þétt og hefur nú upp-
skorið þá almenningshylli sem hún
hefur þótt eiga skilið. Inn á topp
100 var náð fyrir nokkru og hefur
platan selst í um 300.000 eintökum
og er salan enn á uppleið. Má því
segja að „komuppskeran" sé loks
hafin hjá þessari athyglisverðu
sveit.
Viðbætir
Varðandi fráfall söngvara Blind
Melon, Shannon Hoon, sem
sagt var frá í Poppi fyrir hálfum
mánuði, er það frekar að segja
að það var félagi Hoons frá
bamæsku, enginn annar en Axl
Rose söngvari Guns n' Roses,
sem kom að honum látnum.
Gerðist þetta nánar tiltekið kl.
hálf tvö fimmtudaginn 26. októ-
ber og var það í rútu Blind Mel-
on, sem lagt hafði verið fyrir ut-
an hótel í New Orleans, að Rose
kom að Hoon. Sögusagnir um
sjálfsmorð í anda Kurts Cobain
hafa vaknað í Bandaríkjunum í
kjölfarið, en sönnur fyrir því
hafa ekki verið lagðar fram.
Pönksveitarsafn
Fyrir pönkaðdáendur er nú að
koma út ansi hreint merkilegt
safn með einni af þeim reyndari
og áhrifameiri í bransanum, Bad
Religion. Er um að ræða tvöfalda
geislaútgáfu með „vinsælustu
lögum" sveitarimiar og ber hún
heitíð All Ages. Kemur safnið út
á vegum hinnar nú margfrægu
útgáfu Epitaph, sem einmitt var
stofnsett og er enn í eigu fyrrum
gítarleikara Bad Religion til
margra ára, Brett Gruewitz.
Ash til íslands
Fregnir herma nú að írska ung-
lingatríóið Ash, sé á leið hing-
að til lands innan ekki langs
tíma tíl tónleikahalds, en það
hefur meðal annars vakið at-
hygli með laginu Girl From
Mars. Meira um það síðar.
Róleg og yfírveguð