Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 22. nóvember 1995 FRÉTTIR Fyrirhugaöar vegarframkvæmdir á Möörudalsöræfum: Grænt Ijós frá skipulagsstjóra Skipulagsstjóri ríkisins hefur fallist á fyrirhugaða lagningu hringvegar Jökulsá á Fjöilum- Biskupsháls, en um er að ræða 13,3 km langan veg. Vegagerðin kynnti embætti skipulagsstjóra ríkisins umrædda vegarlagningu í ágúst sl. og lagði fram frummatsskýrslu. Síðan var skýrslan auglýst opinberlega 20. september sl. og lá hún frammi til kynningar hjá Skipulagi ríkisins, á skrifstofu Öxarfjarðarhrepps og hjá oddvita Jökuldalshrepps. Eng- in athugasemd barst á kynningar- tímanum. Hugmyndin er sú að færa nú- verandi vegarstæði um þrjá kíló- metra suðvestur fyrir Grímsstaði og stytta veginn um 4,3 kflómetra. Vegurinn liggur um Jökuldals- og Öxarfjarðarhreppa og hafa sveitar- stjórnir beggja hreppa samþykkt vegstæðið, en í umsögn Óxar- fjarðarhrepps er þó gerð athuga- semd við „...að þræða framhjá einu af örfáum byggðum býlum á þessum langa fjallvegi, öryggisins vegna.“ Við Jökulsá á Fjöllum er þekkt varpsvæði heiðagæsa, en sam- kvæmt frummatsskýrslu munu þessar væntanlegu vegarfram- kvæmdir ekki hafa áhrif á það. „Það mal byggir á upplýsingum Braga Benediktssonar á Gríms- stöðum um að varpsvæðið sé í um 100-200 nretra fjarlægð frá Jök- ulsá, en vegurinn fer næst ánni í 260 metra fjarlægð," segir orðrétt í gögnum Skipulags ríkisins. Grímsstaðir ekki lengur í aifaraleið Með þessum nýja vegi er ljóst að Grímsstaðir á Fjöllum verða ekki lengur í alfaraleið. Vegurinn kem- ur til með að færast frá hlaðinu á Grímsstöðum að Jökulsá og verð- ur heimkeyrslan að Grímsstöðum frá hringvegi 4,4 km löng. Hólsfjallavegur mun áfram liggja framhjá Grímsstöðum. í frum- matsskýrslu kemur fram það álit að nýi vegurinn muni hafa þau áhrif að dragi úr bensínsölu, versl- un og aðsókn að tjaldsvæðinu á Grímsstöðum, en hins vegar er færsla vegarins ekki talin hafa áhrif á aðsókn að bændagistingu á Grímsstöðum, þar sem flestir panti hana fyrirfram. I gögnum Skipulags ríkisins kemur fram að sveitarstjórn Öxar- fjarðarhrepps hafi óskað eftir því við Vegagerðina að hún kosti og aðstoði aðila á Grímsstöðum við uppbyggingu nýrrar þjónustuað- stöðu. Mótvægisaðgerðir vegna áhrifa á mannlíf eru skv. frummats- skýrslu: - Akvörðun um mótvægisað- gerðir vegna áhrifa á þjónustu á Grímsstöðum verður tekin í sam- ráði við ábúanda þar, Braga Bene- diktsson. - Heimkeyrslan að Grímsstöð- um verður rudd á opnunardögum Vegagerðarinnar. - Komið verður fyrir neyðar- skýli við veginn milli Mývatns- sveitar og Víðidals til að auka ör- yggi vegfarenda á vetrum. óþh Starfsmenn Trésmíðaverkstæðis Þorgilsar Jóhannessonar á Svalbarðsströnd vinna þessa dagana af kappi við bygg- ingu skolpdælustöðvar fyrir Akureyrarbæ. Mynd: bg. Ljóst að gera þarf átak í frárennslismálum á Akureyri: Framkvæma þarf fýrir tæpan milljarð fram til aldamóta - fari Akureyringar yfir 15.000 íbúa markið Starfsmenn Trésmíðaverkstæðis Þorgilsar Jóhannessonar á Sval- barðsströnd eru þessa dagana að vinna af fullum krafti að bygg- ingu skolpdælustöðvar fyrir Ak- ureyrarbæ. Nýja skolpdælustöð- in er við Torfunefsbryggjuna og mun taka við skoipi frá miðbæj- arsvæðinu. í framtíðinni verður því dælt að væntanlegri megin- útrás, sem verður við hreinsi- mannvirki út í Sandgerðisbót. í fyrstu atrennu mun nýja dælu- stöðin koma skolpinu út fyrir Oddeyrartangann, en framundan er mikil lagnavinna tengd dælu- stöðinni. Verktakinn á að skila af sér í lok apríl á næsta ári og þá verður byrjað á að tengja dælu- stöðina norðanfrá. Síðan þarf einnig að leggja til suðurs til að taka við því skolpi sem kemur t.d. niður Grófargil og enn sunnar. Það verður því mikil lagnavinna á svæðinu næsta sumar, að sögn Gunnars Jóhannessonar, verk- fræðings hjá Akureyrarbæ. Hann segir erfitt að svara þeirri spurningu hvenær málin komast síðan í endanlegt horf, þ.e. hvenær öllu skolpi verður dælt út í Sand- gerðisbót og þar grófhreinsað áður en það fer í sjóinn. Sjálf hreinsun- armannvirkin vera ekki byggð fyrr en allar útrásir verða komnar á þennan eina stað. „Ég á til margar áætlanir sem enda á mismunandi tímum. Við erum að tala um að eftir geti verið að framkvæma fyr- ir einar 900 milljónir og þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir 45 millj- ónum á ári. Þá sérðu að þetta mundi taka 20 ár, en síðan eru menn alltaf að láta sig dreyma um eitthvert átak í þessum efnum. Þetta fer allt eftir því hvað menn veita af fé í þetta og hvort pólitískur áhugi og vilji sé fyrir hendi til að gera átak,“ segir Gunnar. Hann segir að samkvæmt regl- um EES þá eiga sveitarfélög með yfir 15.000 íbúa að vera búin að þessum hlutum fyrir árið 2000 en sveitarfélög með færri en 15.000 íbúa fá 5 ára frest til viðbótar. „Eins og staðan er á Akureyri í dag, meðan við erum ekki komin yfir 15.000, þá höfum við frest til ársins 2005,“ sagði Gunnar og bætti við að menn gætu til gamans leikið sér aðeins með þessar tölur. „Þannig þarf því samkvæmt regl- um EES að setja í þetta 200 millj- ónir á ári fram til aldamóta, eða þá sjá til þess að Akureyringar fari ekki yfir 15.000 íbúa og þá fá menn aðeins lengri frest. Það má því velta sér upp úr því hvort ekki sé ódýrara fyrir Akureyri að íbú- um fjölgi ekki meira á næstu árum þannig að fresturinn lengist,“ sagði Gunnar. HA 4* Alþýðubandalagið á Akureyri Almennur félagsfundur verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Sagt frá nýafstöðnum landsfundi. 2. Kynning á áherslum nýrrar forustu og starfinu framundan. 3. Önnur mál. Margrét Frímannsdóttir formaður mætir á fundinn. Heitt á könnunni. Félagar fjölmennið. Stjórn ABA. Jólaskraut o.fl., úr grænlenskum perlusaumi eru mjög eigulegir munir. Mynd: GG Munir unnir úr grænlenskum perlusaumi Þessa dagana er til sýnis á Punktinum á Gleráreyrum mun- ir unnir úr grænlensicum perlu- saumi ásamt fjölda annarra fag- urlega unninna muna sem eru til sölu. Töluverður fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Punktinn að undan- fömu, en auðséð er á öllu yfir- bragði að jólin eru að nálgast. Þarna geta þeir sem vilja kaupa vandaða, ódýra en jafnframt eigu- í Punktinum lega muni fengið þá fyrir sann- gjarnt verð. Búast má við tölu- verðum straumi fólks í Punktinn fram undir jól og er ástæða til að hvetja fólk til að láta sjá sig þar. Ekki bara þá sem ekki hafa að neinni atvinnu að hverfa. Námskeið verður haldið eftir áramót í grænlenskum perlusaumi og verður námskeiðið í umsjón þeirra Fríðu Dóm og Jónu Osk Vignisdætra. GG Verkalýðsfélag Húsavíkur: Krafisl endurskoðunar fjárlagafrumvarpsins „Fjárlagafrumvarpið var mik- ar sjálfvirkar tengingar í al- ið til umræðu og fólk spurði mannatryggingakerfinu og at- mikið út í það á félagsfundin- vinnuleysisbótakerfinu. Það er um. í fjárlagafrumvarpinu er ráðist á mæðra- og feðralaun. gert ráð fyrir milljörðum í Afsláttur eftirlaunaþega vegna aukinni skattheimtu af launa- heilbrigðisþjónustu lækkar. Það fólki,“ sagði Aðalsteinn Bald- er enn og aftur aukin gjaldtaka ursson, formaður Verkalýðs- á sjúkrahúsum. Það á að lækka félags Húsavíkur, sem hélt útgjöld vegna atvinnuleysis- fund sl. fimmtudag. trygginga. Mörg mál skipta „Það eru ýmsir þættir sem miklu máli í frumvarpinu, en korna illa niður á verkafólki og þessi tek ég fram yftr önnur,“ fólki sem er með minna á milli sagði Aðalsteinn. Hann sagði handanna. Það er t.d. talað um að þetta væru rökin fyrir því að að skattleysismörk verði lækk- fundurinn krafðist end- uð í það sem var fyrir afnám urskoðunar fjárlagafrumvarps- tvísköttunar. Það er afnám á all- ins í ályktun sinni. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.