Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 15

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Miðvikudagur 22. nóvember 1995 - DAGUR - 15 FROSTI EIÐSSON Sambandsþing UMFI á Laugum: Breytingar á framkvæmd landsmóts mesta hitamálið Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA, verður á fullri ferð með félögum sínum í kvöld, gegn Gróttu. Handknattleikur: KA mætir Gróttu í kvöld Veigamiklar breytingar voru gerðar á reglugerð um Lands- mót á 39. sambandsþingi UMFÍ, sem haldið var á Laugum í S.- Þing. um síðustu helgi. Samþykkt var að á Landsmót- um yrðu fjórar kjamagreinar sem keppt yrði í á öllum landsmótum en framkvæmdaaðilum væri heim- ilt í hverju móti að velja allt að átta aukagreinum. Fulltrúar á þinginu, sem voru 85 talsins, deildu um ýmsa greinar reglu- gerðarinnar en svo fór að hún var Kristinn Björnsson tók ekki þátt í Heimsbikarmótinu í svigi á sunnudaginn eins og til stóð. Þess í stað hefur hann ákveðið að einbeita sér að alþjóðlegum stigamótum. Kristinn mun þó einnig verða meðal keppenda á fyrsta Heims- bikarmótinu sem fram fer í risa- svigsmóti en það er haldið um aðra helgi í Vail í Colorado en þar hefur Kristinn verið við æfingar síðustu þrjár vikurnar. Blak -1. deild karla: KAneðst Tveir leikir fóru fram um síðustu helgi í 1. deild karla í blaki. Stjaman og Þróttur áttust við í slag toppliðanna og þar höfðu Þróttarar betur, 2:3 með því að sigra 15:13 í oddahrinunni eftir að Stjarnan hafði leitt 2:0. Þá mátti KA þola 0:3 tap gegn Stúdentum Staðan er nú þessi: Þróttur R. 87 1 23:1023 Stjarnan 8 5 3 20:15 20 ÍS 954 19:14 19 HK 642 12: 9 12 Þróttur N. 82611:1911 KA 9 1 8 7:25 7 samþykkt. Kjarnagreinarnar verða frjálsar íþróttir, sund, glíma og starfsíþróttir. Helstu sjónarmið að baki því að setja hömlur á fjölda íþrótta- greina á landsmóti felst í því að mörgum greinum hefur verið bætt við á landsmóti og smærri félög- um kann að reynast erfitt, vegna aðstöðu sinnar, að standast þeim stærri samanburð. Það vekur at- hygli að knattspyrna er ekki ein kjarnagreinanna. Það stafar meðal annars af því að sögn talsmanns UMFÍ að þau Ungmennafélög Daníel Jakobsson, ísfirðingur, sem keppir undir merkjum Ólafs- fjarðar varð í 36. sæti á alþjóðlegu móti í skíðagöngu, sem fram fór í Kiruna í Svíþjóð á sunnudaginn. Keppt var í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð og var tími Daníels 45,46 mínútur, Gísli Einar Arnason keppti á sama móti og hafnaði í 72. sæti. sem átt hafa góðum liðum á að skipa hafa sýnt mótinu lítinn áhuga, vegna þess að þau hafa verið á fullri ferð á íslandsmótinu á sama tíma. Ekki ólíklegt að greinin verði byggð upp með öðru sniði, með sjö leikmönnum í liði á minni velli. Þá var samþykkt að hækka þátttökugjald verulega á Landsmóti, gert er ráð fyrir því að mótsgjaldið á næsta landsmóti, sem fram fer í Borgarnesi og ná- grenni eftir rúmt eitt og hálft ár, verði 3500 krónur. Stjóm samtakanna var öll end- urkjörin, að undanskildum Þóri Haraldssyni, sem ekki gaf kost á sér. Bjöm B. Jónsson HSK tók sæti hans en aðrir í stjórn eru þeir Jóhann Ólafsson UMSE, Kristín Gísladóttir HHF, Kristján Yngva- son HSÞ, Ólína Sveinsdóttir UMSK, Sigurlaug Þóra Her- mannsdóttir USAH og Þórir Jóns- son UMSB, sem er formaður. Valur-KA í beinni Sjónvarpið hefur hug á því að sýna leik Vals og KA á laugar- daginn í beinni útsendingu. Leik- urinn hefst klukkan 16.30. Hinir leikir umferðarinnar fara fram á sunnudagskvöldið. Atli Þór Samúelsson, sem verið hefur áttundi maður KA-Iiðsins í vetur, mun ekkert leika meira með liðinu fyrir jól. Atli úlnliðs- brotnaði í leiknum gegn Selfossi og þarf að vera sex vikur í gipsi áður en hann getur farið að æfa á nýjan leik. Það var bátsbeinið sem gaf sig, smábein sem lítið blóð rennur til, því eru þessi brot frekar lengi að gróa og meiðsl sem þessi oft frekar Akureyringnum sterka, Torfa Ólafssyni, hefur verið boðið að taka þátt í sterku aflraunamóti, sem haldið verður í Danmörku í næsta mánuði og hefur verið nefnt, „Sterkasti víkingur allra tíma.“ Margir af bestu aflraunamönn- KA mætir Gróttu í 8. umferð ís- landsmótins í handknattleik, sem fram fer í kvöld í KA-heimilinu og hefst leikurinn klukkan 20. Gróttuliðið er um miðja deild og hefur ekki verið sterkt á úti- völlum í vetur. KA er því óneitan- lega sigurstranglegra en Alfreð Gíslason, þjálfari liðsins, sagði Gróttu sýnda veiði en ekki gefna. „Þó við höfum unnið þá sannfær- andi í bikarnum, þá er þetta allt annar leikur og við þurfum að spila af alvöru til að vinna þennan leik. Þeir eru með ágætt lið og það hafði mikið að segja í bikarleik liðanna að Róbert Rafnsson, gekk ekki heill til skógar í leiknum. Þá má minna á að Valsmenn unnu þá með einu marki, með mikilli heppni svo við komum ekki til með að vanmeta liðið,“ sagði Al- þrálát hjá handknattleiksmönnum. „Ég var nýkominn inná, hopp- aði upp og sendi yfir til Bróa, þá kom Éinar Gunnar (Sigurðsson, leikm. Selfoss) og hrinti beint á bringuna á mér. Ég missti jafn- vægið og man ekki eftir lending- unni en hlýt að hafa lent á úlnliðn- um,“ sagði Atli Þór. „Maður kemst því ekki í slag- inn fyrr en í fyrsta lagi í janúar, en ég verð víst að taka því með þol- inmæðinni," sagði Atli Þór. um heims verða á meðal þátttak- enda og keppendur koma víðs vegar að. Torfi verður ekki eini ís- lendingurinn á mótinu því Magn- ús Ver Magnússon, sterkasti mað- ur heims, verður einnig meðal keppenda. Þeir munu halda utan miðvikudaginn 6. desember og mótið fer fram helgina á eftir. freð Gíslason. KA-menn hafa leikið sex leiki í deildinni og eru ennþá taplausir. Spurning er hvernig nýafstaðnir Evrópuleikir haft farið í liðsmenn þess en liðið á erfiða leiki fram- undan allt fram að jólafríi, sem hefst 14. desember. KA leikur til að mynda við Val um næstu helgi og fer leikurinn fram syðra. ■ Forráðamenn handknatt- leiksdeildar KA vinna að því að fá leikinn gegn ÍH í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar færðan í KA-heimilið. Fáir áhorfendur hafa komið á leiki ÍH-liðsins í Hafnarfirði og sennilega kæmi það betur út fyrir liðið tjárhagslega að leika fyrir norðan. Sá háttur er hafð- ur á að lið skipta með sér þeirri fjárhæð sem kemur í aðgangs- eyri. Leikurinn fer fram 13. desember. ■ Bikarleikir í 16-liða úrslitum KKÍ hafa verið settir á annað kvöld. Þórsarar mæta Snæfelli í fþróttahöllinni klukkan 20:30 og Tindastóll leikur við Grindavík á Suðurnesjum. Deildarkeppnin hefst síðan aft- ur eftir tíu daga hlé á sunnu- daginn. ■ Dregið verður í Evrópumót- unum í handknattleik í dag klukkan 11. Eitt íslenskt lið er í pottinum en það er Aftureld- ing sem sigraði Zagliebe Lu- bin frá Póllandi, samtals 59:41 í Borgjikeppninni. ■ KKÍ mun gangast fyrir dóm- aranámskeiði urn næstu heigi að Hamri, félagsheimili Þórs. Gert er ráð l'yrir því að nám- skeiðið standi frá klukkan 9-16 laugardag og sunnudag en því er ætlað að bæta úr þeim dóm- araskorti sem verið hefur á Norðurlandi. Þátttökugjald er kr. 5000 og skráning er hjá KKÍ í síma 568-5949. 1 HF^ Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080 ■ Nottingham Forest varð fyrir áfalli í leiknum gegn Blackburn um síðustu helgi þegar vamarmað- urinn Colin Cooper meiddist í fyiri hálfleik og varð að fara af leik- velli. Síðar í leiknum meiddist síð- an framherjinn Jason Lee. Hol- lendingurinn Bryan Roy er einnig meiddur og lék ekki með gegn Blackburn. ■ Steve Coppell þykir nú lfkleg- astur til að vera ráðinn næsti fram- kvæmdastjóri Wolves.. Coppell er nú hjá Crystal Palace en er ekki í hefðbundnu starfi stjóra þar á bæ og er ekki samningsbundinn. Fyrir helgi var Kenny Dalglish einnig nefndur til sögunnar og var haft eftir ónafngreindum fyrrum félaga hans í Liverpool að hann hefði mikinn áhuga, en sjálfur hefur Dalglish hvorki viljað neita né staðfesta þessar fréttir. Aðrir sem nefndir hafa verið eru t.d. Mark McGhee, Ron Atkinson, Gordon Strachan, Chris Waddle, Steve Brace, Kenny Hibbitt, Mike Wal- ker og Brian Clough. ■ Bolton bauð 2 milljónir punda í rúmenska landsliðsmanninn Ghe- orghe Hagi hjá Barcelona um helg- ina en hann þvertók fyrir að fara til Englands. Hagi er þrítugur og samningur hans rennur út í júní nk. Hann neitaði Manchester City fyrr á tímabilinu og sagði á sunnudag að hann hefði engan áhuga á að leika á Englandi. „Ég hélt að menn hefðu áttað sig á því þegar ég neit- aði tilboði frá Tottenham fyrr á ár- inu,“ sagði Hagi, sem kom inn í lið Barcelona í fyrsta sinn í sjö leikj- um um helgina og skoraði í 3:0 sigri á Albacete. ■ Manchester City hefur fest kaup á 19 ára kantmanni, Martin Phillips, frá Exeter City. Kaupverð var ekki gefið upp en talið er að úrvalsdeildarliðið hafi borgað um 500.000 pund fyrir kappann. Manchester United hafði einnig áhuga á stráksa. ■ Oldham hefur keypti Stuart Barlow frá Everton fyrir 350.000 pund auk þess sem Oldham borgar 100.000 til viðbótar þegar Barlow hefur skorað nokkur mörk fyrir liðið. Nauðsynlegur markafjöldi var ekki gefinn upp. sh Kristinn ekki meðal keppenda í svigi Handknattleikur: Atli sex vikur í gipsi Torfi keppir á aflrauna- móti í Danmörku

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.