Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 22. nóvember 1995 - DAGUR - 5 Áfengísneysla barna í tilefni af „Bindindisdegi fjöl- skyldunnar þann 25.11.1995“ verður hér á eftir farið nokkrum orðum um það, frá sjónarhóli lög- reglumanns, hvemig áfengismis- notkun getur birst sem böl fyrir böm og unglinga og síðar fyrir þjóðfélagið í heild. Eðli starfs síns vegna, sjá lög- reglumenn margar af skuggahlið- um mannlegs samfélags. Erjur, of- beldi, skemmdarverk, slys, inn- brot, fíkniefnaneysla, kynferðis- brot, sjálfsvíg og önnur dauðsföll eru dæmi um aðstæður og uppá- komur sem lögregla kemur að. Sumt venst, annað ekki. Eitt af því sem ekki venst er að sjá þegar böm verða fómarlömb vanrækslu og ofbeldis eða er misboðið á ann- an hátt. Ekki eru það bömin sem skapa aðstæðumar og ekki geta þau breytt þeim eða borið hönd fyrir höfuð sér. Því miður er það svo að allmörg böm mega í „frið- helgi heimilisins" þola ýmis konar andlegt og líkamlegt ofbeldi, sem aldrei vitnast um út fyrir veggi heimilisins. Svokallað „heimilis- ofbeldi" er enda dæmigerð dulin afbrot, þ.e. brot sem aldrei komast á skrá eða til vitorðs lögreglu eða annara yfirvalda. Umfang og tíðni brota af þessu tagi verða því ekki metin á neinn áreiðanlegan hátt. Það hefur þó verið reynt t.d. með spumingalistakönnunum og at- hugunum á skráningum á slysa- deildum og þannig fengist vís- bendingar um að tíðni „heimilis- ofbeldis“ er mun meiri en almenn- ingur almennt gerir sér grein fyrir. Þegar gerð er tilraun til að fínna skýringar á þessu ofbeldi finnst ekkert einhlítt svar. Þó er ljóst að áfengismisnotkun hefur hér mjög mikil áhrif. Ofbeldið er lang oftast framið af aðila sem er undir áfengisáhrifum. Það á reyndar ekki einungis við um „heimilisofbeldi", heldur eru ger- endur í ofbeldismálum sem kærð eru til lögreglu í yfir 80% tilfella ölvaðir á verknaðarstundu. Sama á við um marga aðra brotaflokka, þ.e. áfengi og afbrot fara saman hönd í hönd. Því er það áhyggjuefni að upp- hafsaldur drykkju hjá íslenskum bömum er stöðugt að færast neðar og verða almennari. Nú er svo komið að meirihluti þeirra bama sem er að ljúka sínu 14. aldursári, hefur neytt áfengis einu sinni eða oftar í þeim tilgangi að verða ölv- uð. Afengisnotkun er sem sagt orðin almenn meðal bama á grunnskólaaldri. I skýrslu sem gefin var út að tilstuðlan Félags- málaráðuneytisins og gefin var út í október 1992 segir m.a. að hluti íslenskra unglinga eigi við erfið- leika að stríða vegna vímuefna- neyslu sinnar. Neyslan sé orðin það mikil að hún sé farin að hafa verulegar og slæmar afleiðingar fyrir líf þeirra. Þessi ungmenni standi höllum fæti í skóla, þeim gangi illa í vinnu, eigi í sam- skiptaerfiðleikum við fjölskyldur sínar og sitt nánasta umhverfi og erfiðleikar tengdir neyslunni s.s. afbrot, séu farin að koma fram. Þannig sé um að ræða of stóran hóp unglinga á aldrinum 13-19 ára sem sýni áberandi einkenni vímu- efnaánetjunar og þurfi á meðferð að halda! Ábyrgðin er foreldranna Hver er þá skýringin á þessari auknu og almennari áfengis- neyslu? í þessu sambandi verðum við fyrst og fremst að líta til for- ráðamanna bamanna í leit að skýr- ingum. Rannsóknir hafa sýnt að það sem helst hefur áhrif á það hvort og hve snemma börn byrja að neyta áfengis er: a) afstaða foreldra til áfeng- is/drykkju Útflutnmgsverð- mæti sjávaraíiirða 89 mffljarðar - auðlindaskatti harðlega mótmælt á aðalfundi LÍÚ Fyrirsjáanlegt er að sjávarútvegur- inn haldi stöðu sinni sem helsta útflutningsgrein þjóðarinnar, þrátt fyrir mikinn niðurskurð botnfísk- veiðiheimilda í ár, segir í efna- hagsályktun aðalfundar LÍÚ 9. og 10. nóvember sl. Áætlað útflutn- ingsverðmæti sjávarafurða er um 89 milljarðar króna og hlutur sjáv- arútvegsins í vöruútflutningi landsmanna verður um 76% eða svipað hlutfall og mörg undanfar- in ár. I efnahagsályktuninni segir ennfremur að fátt vinti betur um hversu mikilvægur sjávarútvegur- inn er fyrir íslenskan þjóðarbú- skap og hve afkoma greinarinnar er samofin afkomu þjóðarinnar. Nú sé talið að greinin sé rekin með 2% hagnaði. Hugmyndum urn sérstakan auðlindaskatt er harðlega mótmælt og varað við af- leiðingum af slíkum séríslenskum skatti á helsta atvinnuveg þjóðar- innar. Jafnframt að horfið verði frá því að atvinnugreininni verði gert að greiða árlega 500 milljónir króna í Þróunarsjóð meðal annars vegna fyrri skuldbindinga, út- greiðslum hætt og hann lagður niður. Óróleiki á vettvangi kjaramála má ekki leiða til þess að efnahags- kollsteypur fyrri ára verði endur- teknar. Sé það einlægur vilji að byggja hér þjóðfélag sem stenst samanburð við lífskjör í nálægum löndum skiptir miklu máli að sam- staða í þjóðfélaginu haldist. Friður á vinnumarkaði og batnandi efna- hagsástand verði notað til þess að byggja hér upp kröftúgt atvinnulíf sem geti staðið undir bættum lífs- kjörum. Það er áhyggjuefni að það skuli vera hið opinbera og alþing- ismenn sem verða þess valdandi að hér á landi stefni í óróleika, missætti og skærur á vinnumark- aðnum. GG „Þetta tengist spurning- unni um drykkju foreldr- anna sjálfra því það gef- ur auga leid að foreldri sem sjálft misnotar áfengi á erfiðara með að setja öðrum hömlur á sama sviði. Ábyrgðin er fyrst og fremst foreldr- anna en ekki skólans eða lögreglunnar og því verða þeir að vera börn- um sínum gott fordæmi. b) drykkja foreldranna sjálfra og c) samband foreldra við bamið - fjölskyldutengsl. Það kemur af sjálfu sér að ef reglur heimilisins um notkun áfengis eru ekki fyrir hendi eða eru óskýrar eða mótsagnakenndar, því meiri líkur eru á að bamið hefji áfengisneyslu. Dæmi um mótsagnakennda reglu eða „hundalógik" sem stundum heyr- ist hjá foreldrum er að þeir vilji frekar kaupa áfengi fyrir bömin sjálf en að þau séu að fá einhverja hina og þessa til þess fyrir sig. Annað dæmi er að foreldramir horfi gegnum fingur með það að bamið drekki bjór en séu nei- kvæðari gagnvart neyslu sterkara áfengis. Staðreyndin er sú að áfengisneysla bama og unglinga jókst með lögleiðingu bjórs en bjór er jú líka vímugjafi með sömu afleiðingum og annað áfengi. Dæmi um eðlilega og skýra reglu er að það sé ekki samþykkt að unglingur á grunnskólaaldri neyti áfengis. Slík regla, sem fylgt væri eftir með viðurlögum s.s. skertum vasapeningum ef hún væri brotin, væri dæmi um eðli- legan og heilbrigðan aga á heimil- inu. Foreldrar mega ekki hika við að taka þessa afstöðu - annað lýsir ábyrgðarleysi. Taumlaust frelsi og regluleysi virðist ríkja í uppeldi margra barna og unglinga en slíkt á auðvitað alls ekki við þegar kemur að vímuefnanotkun. Þetta tengist spurningunni um drykkju foreldranna sjálfra því það gefur auga leið að foreldri sem sjálft misnotar áfengi á erfið- ara með að setja öðrum hömlur á sama sviði. Ábyrgðin er fyrst og fremst foreldranna en ekki skólans eða lögreglunnar og því verða þeir Jóhannes Sigfússun. að vera bömum sínum gott for- dæmi. Sterk fjölskyldutengsl skipta máli Loks er bent á að því meira og betra sem samband foreldra við bömin er, því minni hætta er á að bömin fari að neyta áfengis. Því miður er það nú svo að íslensk þjóðfélagsjrróun, með öllum sín- um hjónaskilnuðum og vinnu- álagi, hefur orðið til þess að „fjöl- skyldutengslin" hafa losnað og uppeldishlutverkinu því ekki skil- að eins vel af hendi og áður var. Reynslan sýnir að margir þeir unglingar sem hvað mest hafa komið við sögu lögreglu fyrir áfengisneyslu og afbrot, eru af heimilum þar sem samskiptin við foreldrana eru lítil eða neikvæð. Um afleiðingar aukinnar og al- mennari áfengisneyslu bama má segja það fyrst að hún eykur hættu á afbrotum af ýmsu tagi. Afbrot og áfengi em oft nefnd í sömu andrá og á það ekki síst við um unglinga, sem eiga drjúgan hlut í skráðum afbrotum. Helstu „ung- lingaafbrotin" eru þjófnaðir, skemmdarverk, innbrot og í seinni tíð ofbeldisbrot. Oft em um hóp- afbrot að ræða án þess að þau séu skipulögð. Þetta er eitthvað sem gerist í hita leiksins og óundirbú- ið. Viðkomandi er e.t.v. að kaupa sér athygli félaganna með þessu eða einfaldlega að leita sér að spennu, sem oftast nær virðist vera aðalástæðan. Unglingamir sækja styrk og þor í félagsskap- inn. Uppreisnarandi og andstaða gagnvart öllu yfirvaldi, hvort sem það heitir foreldrar, skóli eða lög- regla er stundum ríkjandi í ung- lingum og útrásin getur fengist með áfengisneyslu og afbrotum. Áfengið undanfari vímuefnaneyslu Eitt aðaláhyggjuefni lögreglunnar varðandi aukna og almennari áfengisneyslu unglinga er að áfengisdrykkja er næstum alltaf undanfari fíkniefnaneyslu. Því yngri sem einstaklingurinn er þeg- ar hann hefur neysluna og því meira sem hann drekkur, því meiri líkur eru á því að hann leiðist út í notkun á ólöglegum vímuefnum. Fíkniefni eru komin hingað og þau eru komin til að vera. Við get- um aðeins spomað við útbreiðslu fíkniefnanna og það gerum við best með því að spoma við áfeng- isneyslu unglinga. Um afleiðingar þess að fólk leiðist út í fíkniefna- neyslu þarf vart að fjölyrða. Þó má minna á að fíkniefnanotkun helst í hendur við önnur afbrot s.s. auðgunarbrot ýmis konar, ofbeld- isbrot og vændi. Sjúkdómar og auðnuleysi fylgja í kjölfarið með ómældum kostnaði fyrir almenn- ing í landinu, sem greiðir fyrir löggæsluna, dómskerfið, fangels- in, sjúkrastofnanimar, félagsmála- kerfið og aðra velferðarþjónustu. Umræða um hvort lækka skuli áfengiskaupaaldurinn niður í 18 ár kann að þykja hjákátleg þegar staðreyndin er að böm á grunn- skólaaldri em upp til hópa farin að neyta áfengis. Það þarf að byrja á því að útrýma áfengi úr grunn- skólunum. Tóbaksreykingum var á sínum tíma nánast útrýmt úr grunnskólum með samhentu átaki og áróðri. Sama getur gilt um áfengið. Sýnum því ábyrgð og tökum afstöðu með bömunum okkar gegn áfengismisnotkun og unglingadrykkju. Jóhannes Sigfússon. Höfundur er rannsóknarlögreglumaður á Akureyri. Millifyrirsagnir í greininni eru blaðsins. BULURAFT Þýsk gæði á ótrúlegu verði Dæmi: 12v hleðsluvél í tösku og fylgihlutir, aðeins 13.480,- Komdu og skoðaðu nýja og betri verslun Við tökum vel á mótí þér Alltaf heitt á könnunni

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.