Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 8

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 22. nóvember 1995 Bryndís hefur afar fallegt klassískt andlitsfall, há kinnbein og þykkar varir, og reynd- ist vera toppfyrirsæta segja þær stöllur Nanna, Sólrún og Sigríður Soffía um módelið sitt að þessu sinni. Þar sem Bryndís er mjög ung og þarf litla skyggingu valdi ég gulllitaðan lit á allt augnlokið og svarta mikla línu í kringum augun til að hafa augun sjálf dökk. Síðan valdi ég ljósbrúnan varalit með gyllingu yfir. <§fó(rún (táryreiclítft: Hárið var aflitað og skorið í styttur með hníf. Síðan var hárið blásið slétt og málað með geli. Ég skreytti bakgrunninn í samræmi við förðunina á Bryndísi og notaði síðan mjúka lýsingu til að hún nyti sín sem best. Andlit hennar virkar mjög skemmtilega fyrir ljós- myndun, sífellt eitthvað nýtt að koma í ljós og erfitt að hætta tökum og velja úr. Bryndís Ósk Brynjarsdóttir er fimmtán ára gömul og er í 10. bekk í Glerárskóla á Akureyri. Hún hefur einu sinni tekið þátt í módelnámskeiði og kom þá fram á tískusýningu en að öðru leyti hefur hún ekki setið fyrir áður. Henni fannst mjög gaman að vera módel í Útlitinu en skrýtið að sjá sig á myndinni þegar búið er að farða hana og greiða. „Ég er svolítið öðruvísi," viðurkennir hún. Bryndís segir að sér finnist fyrirsætu- störf nokkuð áhugaverð en gefur þó lítið út á hvort hún ætli að stefna inn á þær brautir í framtíðinni. AI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.