Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 11

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 22. nóvember 1995 - DAGUR - 11 Jóhann Steinar Jónsson, matsveinn á Akureyrinni EA, útdeilir rjómalerubitum. Honum á vinstri hönd sitja Þóra Hildur Jónsdóttir, kona Þorsteins Vilhelmssonar, Steinunn Sigurðardóttir, kona Árna Bjarnasonar 1. stýrimanns og Freyja Valgeirsdóttir, kona Sturlu Einarssonar skipst jóra. Eftir tveggja mánaða aðskilnað fagnar Freyja Valgeirsdóttir eignmanni sín- um, Sturlu Einarssyni skipstjóra. Akureyrin heim úr Smugunni Togarinn Akureyrin EA-110 kom í fyrrinótt úr Smugunni eftir tveggja mánaða túr, þar sem sett var „Islandsmet“ í aflaverðmæti. Þegar togarinn hélt norður eftir var íslandsmótinu í knattspymu að ljúka, sumir bændur að ljúka háarslætti og fyrsta skipið tekið upp í flotkvína. Astkæra fósturjörðin var kærkomin sjón eftir svo langa fjarveru enda voru það ánægðir skipverjar sem stigu á land eftir að eiginkonur, unnustur, börn og aðrir nákomnir höfðu fagnað þeim með viðeigandi hætti. Aður en haldið var heim höfðu þeir ásamt skylduliði og fleirum gætt sér á gómsætri rjómatertu sem útgerðin færði þeim. Togarinn fer nú í um þriggja vikna túr á heimaslóð áður en jólaleyfi hefjast. GG Þorsteinn Vilhelmsson, einn eigenda Samherja hf., færði áhöfninni rjóma- tertu við komuna til Akureyrar. Með honum á myndinni er Sturla Einars- son skipstjóri. Brynjar Már Andrésson fagnar innilega föður sínum, Andrési Einarssyni bátsmanni, við heimkomuna. Myndir: GG Fyrirlestur hjá Samtökum um sorg og sorgarviðbrögð: Heimahlyiming krabba- meinssjúklinga Annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 verður Elísabet Hjör- leifsdóttir, hjúkrunarfræðingur, með fyrirlestur í safnaðarheimili Akureyrarkirkju á vegum Sam- taka um sorg og sorgarviðbrögð. Elísabet vinnur í heimahlynningu Akureyrar, við hjúkrun krabba- meinssjúklinga í heimahúsum, sjúklinga sem eru með ólæknandi sjúkdóma eða eru deyjandi. „Þetta starf hefur verið að þró- ast síðustu árin og er þjónusta sem farið hefur mjög ört vaxandi síðan 1993. f fyrirlestrinum ætla ég að kynna þetta starf, ræða um þarfir sjúklingsins og sérstaklega um þarfir fjölskyldunnar og þeirra að- standenda sem sjá um umönnun sjúklingsins á heimilinu. Umönn- un sjúklinga sem dvelja heima hvflir mest á aðstandendum en við komum inn sem stuðningsaðili," sagði Elísabet. Hún segir þá sem sinni þessu starfi vinna samkvæmt svokallaðri Hospice-hugmyndafræði, sem byggist á því að hægt sé að upp- fylla þarfir og langanir deyjandi og mikið veikra einstaklinga og þeirra fjölskyldna. „Það eru fyrst og fremst hjúkrunarfræðingar sem þessu sinna en síðan fleiri sem koma þar að eins og læknar, fé- lagsráðgjafar og prestar. Prestar eru stór þáttur í þessu og prestarn- ir hér á Akureyri hafa starfað mik- ið að þessu með okkur og stutt okkur vel. Hugmyndafræðin byggist einnig á því að einblína Elísabet Hjörleifsdóttir. ekki bara á sjúklinginn heldur sinna einnig þörfum fjölskyldunn- ar,“ sagði Elísabet. Mörgum dettur sjálfsagt í hug að starfið geti verið sorglegt. En Elísabet segir það engu að síður vera svo, að þó þeir sem að þessu vinna séu að ganga í gegnum alla þessa erfiðleika með fjölskyldunni og reyna að styðja hana, þá sé starfið mjög ánægjulegt. Enda myndi enginn endast í því ef hann fengi ekki eitthvað til baka. „í þessari umræðu heyrist oft hugtakið „að sætta sig við“ og margir skilja ekki alveg við hvað er átt. Auðvitað sættir sig enginn við það að hann sé að deyja og enginn aðstandandi sættir sig við að sá sem honum finnst vænst um sé deyjandi. En það sem við eig- um við með því „að sætta sig við“ er að fólk geti aðlagast þessum erfiðu og breyttu aðstæðum og takist á við þær eins og mögulegt er, fari í gegnum þessa sorg en flýji hana ekki. Það er alltaf mikið áfall þegar sjúklingur deyr, en ef fjölskyldunni hefur tekist í sam- einingu að styðja og hlúa að þeim sjúka, þá segir fólk mér að það sé auðveldara að sætta sig við þetta,“ sagði Elísabet. HA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.