Dagur - 22.11.1995, Síða 3
FRETTIR
Miðvikudagur 22. nóvember 1995 - DAGUR - 3
Afkoma KEA fyrstu átta mánuði ársins kynnt á aðalfundi Akureyrardeildar KEA:
Níu milljóna rekstrartap fvrstu 8 mánuðina
Tap af rekstri Kaupfélags Ey-
firðinga, þar með talinna dótt-
urfyrirtækja, fyrstu átta mán-
uði þessa árs nam 9 milljónum
króna samanborið við 48 millj-
óna króna hagnað sömu mán-
uði 1994. Þetta kom fram í máli
Magnúsar Gauta Gautasonar,
kaupfélagsstjóra KEA, á aðal-
fundi Akureyrardeildar KEA,
sl. mánudagskvöld.
Brúttóvelta móðurfélags KEA
og dótturfyrirtækja fyrstu átta
mánuðina var 5.8 milljarðar
króna sem er uin 2% samdráttur
frá sama tímabili 1994. Launa-
greiðslurnar þessa fyrstu átta
mánuði ársins voru 1180 milljón-
ir króna og höfðu lækkað um 2%
milli ára.
Magnús Gauti sagði að sam-
drátt í veltu KEA mætti fyrst og
fremst rekja til samdráttar í fisk-
vinnslunni og sömuleiðis væri
olíusalan umtalsvert minni. Hann
sagði afkomuna í sjávarútvegin-
um afleita fyrstu átta mánuðina,
en greinileg batamerki væru nú
þegar togarinn Már væri byrjaður
að landa afla til vinnslu hjá KEA.
Þá sagði Magnús Gauti að af-
koma Mjólkursamlagsins væri
lakari það sem af er þessu ári en
á sama tíma í fyrra. Afkoma
Mjólkursamlagsins væri þó vel
viðunandi og réttu megin við
strikið. Hann nefndi einnig að
ennþá ætti KEA við erfiðleika að
etja varðandi verslun utan Akur-
eyrar og raunar hafi sigið á
ógæfuhliðina í þeim efnum og
rekstur Vöruhússins væri sem
fyrr þungur.
Bati í rekstrinum
Magnús Gauti sagði að eftir því
sem á árið hafi liðið hafi rekstur
KEA batnað, en hins vegar hafi
heldur sigið á ógæfuhliðina hjá
Magnús Gauti Gautason, kaupfé-
lagsstjóri KEA, á aðalfundi Akur-
eyrardeildar KEA sl. niánudags-
kvold. Myndir: BG
dótturfélögum. I heildina sagði
kaupfélagsstjóri þó að reksturinn
hafi batnað bæði frá fjögun'a
mánaða og sex mánaða uppgjöri.
„Ég vil á þessu stigi ekki segja
neitt um rekstramiðurstöðu í árs-
lok. Það er best að fullyrða sem
minnst um það. En vissulega
vona ég að þróunin verði áfram
sú að reksturinn batni og þegar
upp verður staðið skili samstæð-
an hagnaði í árslok," sagði
Magnús Gauti Gautason.
Rekstur Akva erfiður
Kaupfélagsstjóri upplýsti að
rekstur vatnsútflutningsfyrirtæk-
isins Akva sé erfiður um þessar
ntundir, tap á rekstrinum hafi
aukist umtalsvert síðla sumars í
kjölfar á kostnaðarsamri auglýs-
ingaherferð í Bandarrkjunum sem
ekki skilaði nægilegum árangri.
Hluti fundarmanna á aðaifundi Akureyrardeildar KEA.
Þó sagði hann að salan hafi auk-
ist og hún yrði töluvert nteiri á
þessu ári en í fyrra. Magnús
Gauti upplýsti að hann hafi verið
vestur í Bandaríkjunum í síðustu
viku vegna þessa máls og rætt
hafi verið við bandarískan aðila
urn hugsanlega aðild að Akva.
Allt of snemmt væri þó að segja
til ltvers þessar viðræður leiddu.
Stefnumótunarvinna
Á síðasta aðalfundi var samþykkt
að ráðast í umfangsmikla vinnu
er lyti að stefnumótun Kaupfé-
lags Eyfirðinga. Magnús Gauti
sagði að þessi vinna væri nú
komin af stað og hefði Rann-
sóknastofnun Háskólans á Akur-
eyri verið fengin til að hafa yfir-
umsjón með vinnunni. Magnús
Gauti orðaði það svo að um væri
að ræða skipulega naflaskoðun
og sagðist hann vera viss urn að
út úr þessari vinnu fengist skil-
virkara og markvissara fyrirtæki.
Gunnar Hallsson vakti máls á
því að nokkur ágreiningur hafi
verið uppi um það hvort til þess-
arar vinnu ætti að fá Rannsókna-
stofnun Háskólans eða annað
ónafngreint fyrirtæki sem hefði
nokkra reynslu á þessu sviði.
Gunnar sagðist undrast að Rann-
sóknastofnun HA tefldi fram
tveim sjávarútvegsfræðingum í
þessa vinnu en ekki rekstrar-
fræðimenntuðu fólki, sem ætti að
hafa meiri þekkingu á þessu
sviði.
Magnús Gauti svaraði þessari
athugasemd þannig til að í sínum
huga væri það jákvætt að leitað
væri til stofnunar á Akureyri til
þess að annast þessa vinnu. Hann
benti á að Rannsóknastofnun nyti
ráðgjafar doktors í þessunt fræð-
um við Háskóla íslands.
Ný verslun á Siglufirði
Kaupfélag Eyfirðinga hefur lagt f
umtalsverðar fjárfestingu í nýju
verslunarhúsnæði á Siglufirði og
upplýsti kaupfélagsstjóri á fund-
inum á Hótel KEÁ sl. mánudags-
kvöld að ætlunin væri að opna
nýja og endurbætta verslun um
næstu mánaðamót.
Gunnar kjörinn formaður
Fráfarandi formaður Akureyrar-
deildar, Magnús Jónsson, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs og í
hans stað var kjörinn formaður
Gunnar Hallsson, starfsmaður
tölvudeildar KEA. óþh
Hafís aðeins 17 sjó-
mílur frá Straumnesi
Hafísinn er nú nær landi út af
Vestfjörðum og Norðvesturlandi
en mörg undanfarin ár á sama
tíma og staða ísbrúnarinnar líkari
því sem er snemma vors. Út-
breiðsla er einnig óvenju mikil.
Næst landi er ísbrúnin 17 sjómíl-
ur norðvestur af Straumnesi og 28
sjómílur norðnorðaustur af Horni.
Þessari breytingu valda fyrst og
fremst vestlægar áttir sem þarna
hafa verið ríkjandi að undanförnu
en vindátt er nú hagstæð fram eftir
vikunni, þ.e. norðaustanátt á
Grænlandssundi, svó ísinn ætti
ekki að nálgast landið meira í bili,
jafnvel rekast vestur á bóginn.
ísinn er ekki korninn inn á sigl-
ingaleiðir þótt ísdreifar séu nær
landi en meginísjaðarinn en hann
er hins vegar mjög nærri veiði-
svæði loðnubátanna. GG
Skráningarskylda á kerrum
- undanþágur í gildi fram að áramótum
Um næstu áramót rennur út
frestur sem menn hafa til að
fullnægja skráningarskyldu á
aftaníkerrum fyrir bíla, sam-
kvæmt reglum sem verið hafa í
gildi um nokkurn tíma. Regl-
urnar snerta aðallega stærri
kerrur fyrir einkabfla, svo sem
hestakerrur, vélsleðakerrur o.fl.
Samkvæmt reglunum eru tjald-
vagnar og hjólhýsi skráningar-
skyld. Einnig eru kerrur skráning-
arskyldar ef heildarþyngd er yfir
750 kg. Þá skulu þær búnar heml-
urn, s.s. ýti- eða rafhemlum auk
stöðuhemils. Þessar reglur eru aft-
urvirkar, þ.e. eiga við urn allar
kerrur í umferð óháð aldri. Þó er
gefin varanleg undanþága varð-
andi hemlunarbúnað fyrir kerrur
sem færðar eru til skráningar fyrir
áramót, þ.e. komi rnenn með kerr-
una til skráningar fyrir þann tíma
losna þeir undan skyldunni um
hemlunarbúnað. Eftirvagnar sem
nær eingöngu eru gerðir fyrir
notkun utan vega, s.s. aftan í drátt-
arvélar, eru ekki skráningarskyld-
ir.
Kerrur með minni heildar-
þyngd en 750 kg eru hvorki skrán-
ingarskyldar né eru kröfur uni
hemlunarbúnað. Almenna reglan
er að heildarþyngd fari ekki yfir
helming af heildarþyngd dráttar-
tækis. Þá er vert að benda á að all-
ar kerrur, óháð þyngd, þurfa að
fullnægja ákveðnum kröfum um
Lambakjöt örveru- og sýrumælt
Kjöt í Sláturhúsi Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík var ör-
ve'-umælt af Rannsóknastofn-
un iandbúnaðarins í sláturtíð-
inni, en þetta er í fyrsta sinn
sem lambakjöt er örverumælt
í sláturtíð, að áliti Páls G.
Arnar, sláturhússtjóra.
„Kjötið var einnig sýrustigs-
mælt og niðurstöðumar komu
mjög vel út hjá okkur. Að mínu
mati undirstrikar þetta hvað
hangandi fláningskerfi hefur
mikið að segja í sambandi við
hreinleika á skrokkunum. Það
kemur líka í veg fyrir að fólkið
sé að vinna með hendurnar í ull-
inni og mengi þannig kjötið. Við
losnunt við alla ull af skrokkun-
um, óhreinindi úr henni, einnig
gor og annað sem borist getur á
kjötið. Mér finnst þetta mjög já-
kvæðar niðurstöður fyrir okkur,“
sagði Páll G. Arnar. 1M
Ijósabúnað, um hjólhlífar og varð-
andi hámarksbreidd. Þá þurfa bflar
sem draga kerrur að vera útbúnir
samþykktu dráttarbeisli, sem er
sérstaklega tilgreint í skráningar-
skírteini bifreiðar. HA
r i
Canon
Hósritunar-
vélar
Þú bekkir Canon
Þú þekkir Tölvutæki
LVUTÆICI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
A