Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 22.11.1995, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 22. nóvember 1995 - DAGUR - 7 Aldarminning þjóðskáldsins: Nýr diskur með lögum við ljóð Davíðs Stefánssonar - þrjú af lögunum tekin upp á Norðurlandi Lög Atla Guðlaugssonar á diskinum voru tekin upp í ágúst sl. í Stúdíó Hljóðlist á Akureyri. Pessi mynd var tekin viö það tækifæri. Frá vinstri: Atli Guðlaugsson, lagahöfundur, Guðjón Pálsson, píanóleikari, Birgir Karlsson, gítarleik- ari, Sigrún Hjálmtýsdóttir, söngkona, Kristján Edelstein, upptökustjóri, og Óskar Pétursson, söngvari. Út er kominn geisladiskur sem inniheldur 13 lög við Ijóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og er diskurinn gefinn út í tilefni af því að í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu skáldsins. Torfi Olafsson og Jó- hann Helgason höfðu umsjón með útgáfu disksins en alls eru 8 útgef- endur að honum, þar af þeir Atli Guðlaugsson, skólastjóri Tónlist- arskóla Eyjafjarðar og Hilmar Sverrisson, tónlistarmaður á Sauð- árkróki. I stúdíói Hilntars Sverrissonar Framhlið nýja hljómdisksins með lögum við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. á Sauðárkróki var tekið upp í sept- ember finnskt þjóðlag við Ijóðið „Til eru fræ“ en Hilmar útsetti lagið. Söngurinn er í höndum Ás- dísar Guðmundsdóttur á Sauðár- króki. í ágúst voru lög Atla Guðlaugs- sonar við ljóðin „Brúður söngvar- ans“ og „Vomótt“ tekin upp í Studíói Hljóðlist á Akureyri. Átli fékk til liðs við sig stórsöngvarana Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Óskar Pétursson sem syngja saman í báðum lögunum. Alls koma fram fimm ný lög við ljóð Davíðs á þessum diski og á Atli tvö af þeim. Aðspurður segir hann að „Vornótt“ hafi verið skrifað með þau Sigrúnu og Óskar í huga þannig að strax hafi verið undir- búið að fá þau sem flytjendur. Aðrir sent að lögum Atla komu voru undirleikaramir Birgir'Karls- son og Guðjón Pálsson. Upptöku- maður var Kristján Edelstein. Eins og áður segir eru 13 lög á diskinum og höfundar þeirra eru auk Atla Guðlaugssonar þau Torfi Ólafsson, Heimir Sindrason, Bergþóra Ámadóttir, Gullý Hanna Ragnarsdóttir, Sverrir Helgason, Jóhann Helgason og Páll Isólfs- son. Mörg af lögunum eru þekkt en í sumum tilfellum hefur útsetn- ingum verið breytt. Diskurinn Aldanninning Davíðs Stefánsson- ar er fáanlegur í öllum hljóm- plötuverslunum. JÓH Sandfell á Akureyri: Aukið úrval af kulda- fatnaði firá Max Verslunin Sandfell við Laufásgötu hefur nú starfað á Akureyri í 11 ár. I fyrstu var fyrst og fremst um veiðarfæaraverslun að ræða, en verslunin hefur alla tíð selt sér- hæfar vörur til sjómanna og út- gerðarmanna. Á seinni ámm hefur sala á vinnufatnaði aukist, sem og sala á sjófatnaði. í vetur hefur verið aukið verulega við úrval af íslenskum kuldafatnaði frá Max, s.s. kuldasamfestingum á böm og fullorðna, auk allskyns ódýrs vinnufatnaðar og stígvéla. Á myndinni er Þórður Helgason, verslunarstjóri, við sýnishom af kuldafatnaði frá Max. Mynd: Halldór. Lionsklúbbur Akureyrar: Peru- og jóladaga- talasala næstu daga Einn af föstum liðum í aðdrag- anda jólahátíðarinnar á Akureyri er peru- og jóladagatalasala Lionsklúbbs Akureyrar sem nú er hafin. Salan fer fram næstu daga og verður gengið í öll hús í bænum. Reiknað er með að félagar verði við söluna fram undir mánaðamót og verða þeir að á kvöldin og unt næstu helgi. Salan er eitt af meg- inverkefnum klúbbsins til fjáröfl- unar fyrir verkefni hans. félagsmaiuta afsláttur 16. nóvember til 2. desember kjallarinn wmmm (valdir vöruflokkar) Raflasnadeild (fatnaður oy busahold) í verslunum KEA utan Akureyrar gilda einnig sömu kjör á sömu vörum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.