Dagur - 13.12.1995, Síða 9
Miðvikudagur 13. desember 1995 - DAGUR - 9
Lúsíumessa í dag, 13. desember:
Lúsíuhátíð í Akur-
eyrarkirkju
- verður nk. föstudag í Glerárkirkju
Karlakór Akureyrar-Geysir hefur
um margra ára skeið boðið Akur-
eyringum sem og öðrum sem þess
vilja njóta upp á Lúsíuhátíð á að-
ventunni. Að þessu sinni verður
Lúsíuhátíð í Akureyrarkirkju í
kvöld kl. 20.30 og í Glerárkirkju
næstkomandi föstudagskvöld á
sama tíma.
Með kómum syngur Elín Ósk
Óskarsdóttir, sópran, lúsíuna
syngur Sigríður Margrét Ingimars-
dóttir og þernur hennar verða úr
kór Menntaskólans á Akureyri
auk þess sem kór Menntaskólans
syngur í hléinu.
Lúsíumessa, sem hátíðin er
kennd við, er 13. desember.
Heilög Lúsía naut töluverðrar
helgi um Norðurlönd áður fyrr og
á Islandi þekktust af henni bæði
myndir og sögur í kaþólskum sið.
Það kann að hafa dregið úr dýrkun
hennar að snemma á 12. öld var
Magnúsarmessa Eyjajarls sett á
sama daginn. Aðfaranótt Lúsíu-
messu var fram á 18. öld talin
lengsta nótt ársins.
Sænska glúntaskáldið Gunnar
Wennerberg skrifaði árið 1852
dægurlag um ítalskt fiskimanna-
þorp, sem bar nafn hinnar heilögu
meyjar, Santa Lucia. Lagið varð
síðan einni helsti Lúsíusöngurinn.
Samkvæm helgisögn var Lúsía
efnuð, kristin jómfrú á Sikiley um
aldamótin 300. Þegar hún skyldi
giftast gaf hún fátækum heiman-
fylgju sína. Það líkaði heitmanni
Lúsíu illa og kærði hana fyrir
rómverska landstjóranum. Honum
mistókst bæði að brenna hana og
koma henni í vændishús, en að
lokum var hún hálshöggvin. Yngri
sagnir herma að hún hafi rifið úr
sér augum og sent þau á diski
ungum manni sem hafði dáðst að
þeim. Einkenni hennar á myndum
eru því oft tvö augu í skál og talið
gott að heita á hana við augnveiki.
Á þessari öld var víða tekinn upp
sá siður að drekka jólaglögg og
borða piparkökur á Lúsíumessu.
GG
Okkar átár§lmile§ajálafiMharð
fááíudagjár og laiigardag&kvQld,
Salmonellumengun
í sviðahausum
Tingu Tydal
&ér iim aó fillkmnna
jálaótejnmmngiina.
'Nil er rétti tíminn til að panta ámímtíðina.
‘Enun með mlifyrir 10-200 manna 1iápa.
cAllar nánari upplýáingar
ííjá mitinga&tjára í dma 462 2200.
í fréttatilkynningu frá Hollustu-
vemd ríkisins um salmonellu-
mengun í sviðahausum er sérstök
áhersla lögð á eftirfarandi:
1. Taka frosin svið tímanlega
úr frysti, þannig að þau séu full-
þídd þegar suða hefst.
2. Þrífa vandlega öll flát og
áhöld sem notuð hafa verið við
meðhöndlun á hráum hreinsuðum
og óhreinsuðum sviðum.
3. Gæta þess vel að úrgangur
eða blóðvatn úr sviðum komist
ekki í snertingu við matvæli sem
eru fullsoðin eða tilbúin til neyslu.
4. Tryggja þarf að hrá svið séu
nægilega vel soðin. Salmonella og
flestir aðrir sýklar drepast í full-
soðnum sláturafurðum.
5. Gæta þess við geymslu við-
kvæmra matvæla að þau standi
ekki við stofuhita heldur geymist í
góðum kæli (undir 4 gráðum á
celsíus) og ef halda á tilbúnum
mat heitum, verði það gert við
hærra hitastig en 60 gráður á celc-
íus, þar til neysla fer fram.
Þá segir í lok tilkynningar frá
Hollustuvemd: „Tekið skal fram,
að í þeim tilvikum þar sem Salm-
onella hefur greinst í sviðum, hef-
ur dreifing þeirra verið stöðvuð.
Hluti þessara afurða er þó þegar
kominn á markað og því er ástæða
til að gera þær ráðstafanir sem
mögulegar eru til að fyrirbyggja
hættu á matarsýkingum."
sími 462 2200
Drcem-
inqt.
Ulfúb
DLm
o
pói
Slafn-
u m
/Esa
Gabba
þófinn
Gro&ur-
íeit
Trjá-
tegund'
Tala
’A
liíinft
Dsjcilclan
Klafa
Hloía-
ast
Söntk-
■ftoUk
Kamar
Rásc
Ctrcm
Déein s
betur
ii
ljIqó
Uppbf ■
iceLir
3enr\a
Görninq
R íki
Eiskar
Hatiurt
8
Miar-
kreistinii
T< ÓQn
Forseln
O
Sveifla
'Pt
fíefur
Síafur
Hoidtjr
Sproi-
Bólgnu
Tón •
Ver<
Snhiláf-
ctnar
Soil
Stein-
tegund
Horfa
Sveitir
10
Rai'x iat-
Land
Q.ona
Blása
tialt
Fjcer
\'or!itur
!iauein.
Tíl
Forsein
fhjtnpQi
Uppbr.
Mcmn
70
5 iarfk-
5 á- c r-
dúrln
11
Villa í helgargátunni
í helgarkrossgátu Dags síðastliðinn laugardag vantaði tölustafi sem
gefa til kynna lausnarorð gátunnar. Til að krossgátuunnendur geti
sent inn lausn gátunnar birtum við hér sömu gátu með tölusettu
reitunum. Beðist er velvirðingar á þessu. JÓH
RANNÍS
Rannsóknarráð Islands auglýsir
styrki úr eftirfarandi sjóðum með umsóknarfrest
til 15. janúar 1996:
* Vísindasjóði er hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir.
* Tæknisjóði er hefur það hlutverk að stýðja nýsköpun í
íslensku atvinnulífi með því efla tækniþekkingu, rannsóknir
og þróunarstarf.
Umsækjendur geta verið:
* Vísindamenn og sérfræðingar.
* Háskólastofnanir og aðrar vísinda- og rannsóknastofnanir.
* Fyrirtæki, einstaklingar og samtcík er hyggjast vinna að
rannsóknum og nýsköpun.
Veittir eru þrenns konar styrkir úr ofangreindum sjóðum sem hér
segir:
(1) „Verkefnastyrkir“ til fræðilegra og hagnýtra verkefna.
Miðað er við að upphæð styrkja geti numið allt að
5.000 þús kr.
(2) „Forverkefna- og kynningarstyrkir“ (umsóknarfrestur er
opinn)
* til undirbúnings til stærri rannsókna- og þróunarverkefna,
allt að 600 þús kr.
* til að fylgja eftir og koma framfæri niðurstöðum verkefna
sem lokið er
* styrkir til undirbúnings umsókna í 4. Rammaáætlun
Evrópusambandsins, allt að 300 þús kr.
(3) „Starfsstyrkir“
Veittar verða tvær tegundir starfsstyrkja:
* Rannsóknastöðustyrkir" eru veittir úr Vísindasjóði til
tímabundinna starfa vísindamanna, er nýlega hafa lokið
doktorsprófi eða hlotið samsvarandi menntun við viður-
kennda háskóla.
Styrkir eru veittir til allt að 3ja ára til starfa við innlenda
stofnun og nema launum sérfræðings.
* „Tæknimenn í fyrirtæki“ er heiti styrkja sem veittir eru úr
Tæknisjóði til fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða vísinda-
og/eða tæknimenntað fólk til starfa. Styrkir eru veittir til allt
að 3ja ára og nema hálfum launakostnaði sérfræðings.
Matsforsendur
Vísindasjóður:
Mat á umsóknum til Vísindasjóðs skal fyrst
og fremst byggja á eftirfarandi:
* Vísindalegu gildi viðfangsefnisins.
Hæfni umsækjenda til að leysa verk-
efnið samkvæmt mati á menntun
þeirra, reynslu og árangri.
* Raunhæfri verk- og kostnaðaráætlun.
* Aðstöðu umsækjenda til að ná settu
marki.
Að auki leggur Rannsóknarráð íslands áher-
slu á að verkefni stuðli að aukinni
samvirkni og leiði þannig til eflingar
vísindastarfsemi á viðkomandi sviði hér á
landi. Ennfremur njóta þau verkefni for-
gangs að öðru jöfnu, sem beinast að við-
fangsefnum þar sem líklegt er að
íslendingar getið náð góðum árangri.
Tæknisjóður:
Mat á umsóknum til Tæknisjóðs skal fyrst
og fremst byggja á eftirfarandi:
* Vísindalegu eða tæknilegu nýnæmi.
* Hagnýtu gildi viðfangsefnisins fvrir
íslenskt atvinnulíf.
* Hæfni umsækjenda til að leysa verk-
efnið samkvæmt mati á menntun
þeirra, reynslu og árangri.
* Raunhæfri verk- og kosnaðaráætlun.
* Aðstöðu umsækjenda til að ná settu
marki.
Eyðublöð og leiðbeiningar (einnig á tölvudisklingi) verða tilbúin 27. nóv. nk. og skal sækja til
Rannsóknarráðs íslands, Laugavegi 13, sími 562 1320, fax 5529814.