Dagur - 13.01.1996, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 13. janúar 1996
^ Guðmundur Arnar Jóns-
^ son: „Þetta er nóttúru-
lega ekki búið þótt vió höf-
um unnió Val. Við veróum
aö halda ófram að berjast
og taka hvern leik fyrir
SÍg." Myndir: BG
„Auðvitað verður helst alltaf að
vera einhver samkeppni milli manna
en þar sem ég hef klikkað hefur
Bjöm fylgt mjög vel eftir. Hann
hefur varið vel í þeim leikjum sem
ég hef ekki fundið mig. Þannig eiga
tveir markmenn helst að vinna sam-
an; ef annar klikkar tekur hinn við.
Annars erum við tveir mjög góðir
vinir.“
Fjöldi óhorfenda kom ó óvart
- KA-heimilið er orðinn frægur
heimavöllur. Hvernig upplifun er
það að spila í húsinu?
„Fyrst þegar ég kom upplifði ég
þetta sem þó nokkra pressu enda hef
ég ekki spilað með liðum sem hafa
haft fleiri en 100 árhorfendur á
leikjum og hef alltaf verið að berjast
í botnbaráttunni. Það kom mér því
mjög á óvart þegar um 300 áhorf-
endur voru að kaupa sig inn á æf-
ingaleiki hjá okkur,“ segir Guð-
mundur Amar. Hann jafnaði sig þó
fljótt á viðbrigðunum og segir
meiriháttar að spila fyrir fullu húsi
og tilfinningin sé ólýsanleg. Aðstað-
an fyrir norðan og sunnan sé líka
eins og svart og hvítt og lið fyrir
sunnan eigi í verulegum erfiðleikum
með að ná áhorfendum á leiki. Hér
sé stuðningurinn hinsvegar ótrúlega
mikill.
- Veistu um aðra heimavelli þar
sem stemmningin er jafnmikil og í
KA húsinu?
„Helstu húsin sem svona
stemmning gæti myndast í eru á
Selfossi, í Vestmannaeyjum og
kannski hjá Aftureldingu. En mér
finnst þau lið ekki ná jafn mörgum
áhorfendum. A KA-leikjunum eru
líka allir öskrandi. Oft sé ég ótrúleg-
ustu menn vera að öskra sig rauða
og þetta er ekki algeng sjón annars
staðar. Þessi stuðningur er auðvitað
mjög hvetjandi og ef maður stendur
sig ekki vel fyrir framan svona
áhorfendur hefur maður ekki mikið
í þetta að gera.“
Fjölskylduvænar æfingar
Oft er talað um að erfitt sé fyrir
íþróttamenn í keppnisíþróttum að
samræma æfingar og keppnir við
vinnutíma og fjölskyldulíf. Guð-
mundur Amar segir að æfingar hjá
KA séu á mun betri tíma en hann á
að venjast með félögunum fyrir
sunnan. „Ég er að vinna til þrjú í
Mjólkursamlaginu og við erum á
æfingum frá fimm eða hálf sex til
sjö. Ég get því farið beint heim til
fjölskyldunnar eftir sjö en fyrir
sunnan var ég að vinna frá átta til
sex, fór heim í klukkutíma, síðan á
æfingu klukkan átta og var kominn
heim klukkan tíu um kvöldið og fór
þá yfirleitt beint í rúmið. Þetta er
því tvennt ólíkt og mun fjölskyldu-
vænna að vera hér en fyrir sunnan,"
segir Guðmundur Amar. Hann segir
þó að erfiðara hafi verið fyrir kon-
una hans, Gerði Gunnarsdóttur, að
aðlagast Akureyri enda sé hún
heima hjá bömunum og því erfitt
fyrir hana að kynnast fólki. „Von-
andi kemst hún út á vinnumarkað-
inn fljótlega," segir Guðmundur
Amar, en er þó ekki of bjartsýnn
miðað við ástandið í þeim málum
um þessar mundir.
Én hvemig leggst framhaldið
með KA í Guðmund Amar?
„Við stefnum auðvitað á að tapa
ekki mörgum leikjum og ég vonast
til að við höldum sama dampi. En
þetta er náttúrulega ekki búið þótt
við höfum unnið Val. Við verðum
að halda áfram að berjast og taka
hvem leik fyrir sig. En þetta er
virkilega skemmtilegur hópur sem
stendur vel saman. Mórallinn er allt
öðruvísi en í öðram liðum sem ég
hef verið í enda er ég í sigurliði hér
en hef oftast verið hinum megin á
töflunni." AI
mund Arnar?
„Ég hef alltaf haft mikið álit á
Guðmundi sem markmanni
en aldrei fundist hann fá tæki-
færi til að sýna hvað hann
getur með almennilegu liði.
Hann var á sínum tíma aðal
markmaður landsliðs 21 árs
og yngri og var talinn fram-
tíðar landsiiðsmarkmaður.
Hann hefur verið að spila
með liðum í lægri kantinum
og því ekki orðið eins mikið
úr hans ferli og ég hefði vilj-
að sjá. En ég var sannfærður
um að hann gæti varið jafnvel
og okkar bestu markmenn,"
segir Alfreð Gíslason um
ástæðu þess að hann fékk
Guðmund Amar til liðs við
KA í haust.
Alfreð segist vera ntjög
ánægður með Guðmund Am-
ar í markinu það sem af er
þessu keppnistímabili en telur
jafnframt að enn eigi hann
eftir að vaxa og verða betri.
„Styrkur hans sem markmað-
ur er að hann er tæknilega
mjög góður. Hann kann það
sem kunna þarf í markinu.
Staðsetningar eru mjög góðar
og hann sést gera hluti sem
aðeins mjög góðir markmenn
hafa á valdi sínu. Hann nær
t.d. að drepa boltann vel, er
ekki að slá hann út í teig, og
heldur því flestum boltum
sem hann ver. Hann er líka
mjög stór og síðast en ekki
síst er hann góður félagi og
eins og sniðinn inn í KA lið-
ið.“ AI
Handboltalió KA hefur átt
gódu gengi ab fagna á þessu
keppnistímabili og hefur
ekki enn tapab leik á heima-
velli. Margir höfbu af því
nokkrar áhygcfjur ab skyndi-
l$g brottför Sigmars Þrastar
Oskarssonar, sem stób í
markinu í fyrra, hefbi slæm
áhrif á gengi libsins. Annab
hefur hinsvecjar komib á
daginn og nyi markmabur-
inn, Gubmunaur Arnar Jóns-
son, var einn af bestu mönn-
um libsins í frækilegum sigri
KA manna á Valsmönnum á
mibvikudaaskvöld þegar lib-
in áttust vlb í 8 liba urslitum
bikarkeppninnar.
Guðmundur Amar er stór og
stæðilegur og fellur ef til vill ekki
að þeirri ímynd sem ýmsir kunna að
hafa um kvika markmenn. Engu að
síður varði hann 16 skot í leiknum
gegn Val og þykir hafa verið vax-
andi í markinu hjá KA í vetur. Hann
er að vonum ánægður með leikinn
gegn Valsmönnum og segir sigurinn
mjög mikilvægan fyrir liðið, ekki
síst í ljósi þess að Valsmenn hafi
reynst KA mönnum erfiðir í skauti
það sem af er tímabilinu. f síðasta
leik KA liðsins gegn KR gekk Guð-
mundi Amari reyndar ekki eins vel
að verja og því er spurt hvort hann
hafi verið taugaóstyrkur fyrir leik-
inn á miðvikudag. „Jú, ég var farinn
að velta því fyrir mér hvernig jóla-
steikin hefði farið í mig,“ segir hann
„Á KA leikjunum eru allir
öskrandi. Oft sé ég ótrú-
legustu menn öskra sig
rauða og þetta er ekki aí-
geng sjón annars staóar,"
segir Guömundur Arnar.
og brosir í kampinn. „En auðvitað
var samt lítið að marka KR leikinn.
Liðið spilaði allt annan bolta og var
ekki mikið að hafa fyrir vörninni.
Vömin í leiknum gegn Val var hins-
vegar alveg frábær og þegar svo er
fær maður meira sjálfstraust. Þetta
var því tvennt ólíkt,“ segir hann.
Var á lei&inni að hætta
Guðmundur Amar er úr Reykjavík
og segist engin tengsl hafa við
Norðurland. Þegar á hann er gengið
viðurkennir hann þó að faðir hans,
Jón Guðnason, hafi verið mikið í
sveit í Svarfaðardalnum sem bam.
„Einhver skyldmenni á ég víst hér
um slóðir er mér sagt en tengslin
við þau eru ekki mikil."
Hann byrjaði að spila handbolta
12 ára gamall en hann verður þn-
tugur á þessu ári. Fyrstu árin spilaði
hann með Þrótti en var síðan sex ár
með Fram. Hann var aðal markmað-
ur í landsliði 18-21 árs og þótti
mjög efnilegur. Þegar hann hætti
með Fram ákvað hann hinsvegar að
hægja á sér og fór að spila með
Fjölni í Grafarvogi. Þaðan fór hann
í ÍH þar sem hann spilaði í tvö ár en
hafði ákveðið að hætta í handbolt-
anum þegar Alfreð Gíslason hringdi
í hann og vildi fá hann til að koma
til Akureyrar og spila með KA lið-
inu. Alfreð tókst að sannfæra Guð-
mund Amar og hann flutti ásamt
konu og tveimur ungum bömum
norður yfir heiðar. En hvemig
skyldi hafa verið að koma inn í lið
sem var bikarmeistari og taka við af
markmanni sem hafði staðið sig
mjög vel með liðinu?
„Kannski þótti mér það einmitt
erfiðast að þurfa að taka við af Sig-
mari því hann er mjög góður mark-
maður og litríkur. Mér fannst ég
vera borinn mikið saman við hann í
byrjun en það þýðir ekkert að láta
það á sig fá.“
Hvemig er samvinnan milli þín
og Björns Bjömssonar sem einnig
æfir mark hjá KA?
„Meiriháttar
að spila fyrir
fullu húsi"