Dagur - 27.01.1996, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. janúar 1996
FRÉTTIR
Fimm sveitarfélögð á norðausturhorni landsins:
Vilja sameinast
um sorpurðun
Fimm sveitarfélög á norðaustur-
horni landsins stefna að því að
koma á samstarf! um sorpurðun.
Nokkrir undirbúningsfundir um
þetta mál hafa verið haldnir og
fleiri eru fyrirhugaðir. Sveitarfé-
lögin sem um ræðir eru Vopna-
fjörður í suðri - til og með Rauf-
arhöfn í norðri.
„Við sveitarstjórar á þessu
svæði, það er á Raufarhöfn, Þórs-
höfn, Bakkafirði og Vopnafirði,
höfum komið tvisvar sinnum sam-
an að undanfömu og rætt mál
þetta. Þá hafa menn í Svalbarðs-
hreppi fylgst með málinu. Hug-
myndir okkar ganga út á stofnun
byggðasamlags um sorpeyðingu -
og verði af þessu yrðu næstu skref
að leita að urðunarsvæði, sem yrði
valið eftir kröfum um umhverfis-
mál. Einnig yrði að taka ákvaðanir
um hvort byggðasamlagið sjálft
myndi flyja sorpið á urðunarstað -
eða hvort sá rekstrarþáttur yrði
boðinn út,“ sagði Reinhard Reyn-
isson, sveitarstjóri á Þorshöfn.
Að sögn Reinhards hafa sorp-
urðunarmál á nefndu svæði ekki
verið í samræmi við þær almennu
kröfur sem gerðar eru. „Við vilj-
um vinna eftir lögum og reglum
sem gildandi eru - og ýtt er á okk-
ur að koma málum í lag,“ sagði
hann. Reinhard sagði móttöku
spilliefna af nefndu svæði í nokk-
uð góðu Iagi. Efni þau væru frá
flestum stöðum af nefndu svæði
send til Endurvinnslunnar hf. á
Akureyri, en öll spjót stæðu nú á
mönnum um að hin almenna sorp-
hirða kæmist í jafn gott lag.
„Nú ætlum við að vinna málið
hratt og gerum okkur vonir um að
Ijúka því á þessu ári. Nei, við höf-
um engar ákvarðanir tekið um
urðunarstað. Þau mál hafa ekki
verið skoðuð til fullnustu, en sé
allt landsvæðið jafn hæft þá mun
meðalflutningsvegalengd stjóma
valinu. En alla þætti eigum við
eftir að skoða og margt kemur inn
í dæmið,“ sagði Reinhard Reynis-
son, sveitarstjóri á Þórshöfn. -sbs.
Umræða um að breyta SH í hlutafélag:
Alfarið mál stjórnar
segir Friðrik Pálsson, forstjóri SH
Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
segir að reglulega komi upp um-
Gísli Gíslason hefur verið ráðinn
innkaupastjóri hjá Samlandi hf.
á Akureyri. Samland er sem
kunnugt er innkaupa- og dreif-
ingarfyrirtæki í eigu KEA, KÞ
og Kaupfélags Langnesinga.
Gísli er 42 ára gamall, fæddur
og uppalinn í Ólafsfirði. Hann út-
skrifaðist úr Samvinnuskólanum
1976 og hefur síðustu 19 ár verið
framkvæmdastjóri hjá J.S. Helga-
son hf. í Reykjavík. Gísli tekur
við af Ingva Guðmundssyni, sem
ræða innan stjórnar SH um að
breyta fyrirtækinu í hlutafélag.
Þessi umræða sé ekki ný af nál-
ráðinn hefur verið til að sjá um
innkaup hjá Búr hf., nýja inn-
kauparisanum sem Olíufélagið,
Nóatúnsbúðimar og flest stærstu
kaupfélög landsins standa að.
Samland er aðili að Búr, sem nú
annast hluta af þeim innkaupum
sem Samland sá um áður. Því seg-
ir Hannes Karlsson, framkvæmda-
stjóri Samlands, að reikna megi
með breytingum á starfi innkaupa-
stjóra fyrirtækisins þannig að
markaðs- og sölustarfsemi Sam-
lands muni aukast. HA
inni, málið hafi oft komið upp
innan stjórnar SH á undanförn-
um árum.
Friðrik segist ekki tjá sig um
það hvort honum finnist rétt að
SH verði gert að hlutafélagi, mál-
ið sé alfarið í höndum framleið-
enda innan Sölumiðstöðvarinnar.
„í stjóm SH eru margir menn,
flest allir stjómendur stórra sjáv-
arútvegsfyrirtækja vítt og breitt
um landið og þeir hafa mjög
ákveðnar skoðanir á þessu máli.
Niðurstaðan í stjóm SH hefur til
þessa verið sú að breyta fyrirtæk-
inu ekki í hlutafélag. Hlutafélaga-
forminu fylgja bæði kostir og gall-
ar. Ég ætla sjálfur ekki að hafa
skoðun á því hvort formið er
betra, ég starfa fyrir eigendur SH
og þeir ákveða hvaða rekstrarform
er heppilegast,“ sagði Friðrik. óþh
Gísli til Samlands
•v''
Fiðlarinn stækkar
Veitingahúsið Fiðlarinn við
Skipagötu á Akureyri hefur
fengið heimild til að stækka hús-
næði sitt til norðurs. Bætast þar
við um 100 fermetrar.
Að sögn Snæbjöms H. Krist-
jánssonar hjá Fiðlaranum fer um
30% af viðbótinni undir eldhúsað-
stöðu, kæli og frysti en afgangur-
inn fer undir nýjan bar og kon-
íaksstofu. Verður byggingin í
svipuðum stíl og að sunnanverðu.
Hægt verður að koma í koníaks-
stofuna og barinn án þess að
ganga inn í veitingasalinn en nýja
aðstaðan verður að sjálfsögðu
einnig notuð í tengslum við hann.
Snæbjöm segir áformað að hefja
framkvæmdir sem fyrst og stefnt á
að opna í vor eða sumar. HA
Kópasker:
Samningur við SÍM um
sumardvöl myndlistarmanna
Verið er að ganga frá samningi
við Samband íslenskra mynda-
listarmanna (SÍM) um sumar-
dvöl myndlistarmanna í grunn-
skólanum á Kópaskeri.
Að sögn Ingunnar St. Svavars-
dóttur, sveitarstjóra Öxarfjarðar-
hrepps, hafa viðbrögð myndlistar-
manna verið góð og er ætlunin að
strax á komandi sumri hefjist sam-
starf sveitarfélagsins og SÍM um
að myndlistarmenn fái alla að-
stöðu í grunnskólanum á Kópa-
skeri endurgjaldslaust frá 20. júní
til 20. ágúst gegn því að þeir sýni
list sína á Kópaskeri. óþh
Er deilan um Hveravelli forsmekkurinn að frekari hagsmunaárekstrum á hálendinu?:
Styttist í fyrstu tillógur um
skipulag miðhálendisins
Að undanförnu hefur nokkuð verið fjallað um skipu-
lagningu miðhálendisins. Inn í þá umræðu hafa blandast
fyrirhugaðar framkvæmdir á Hveravöllum á Kili, ekki
síst vegna mjög harðra mótmæla Ferðafélags íslands við
aðalskipulag Svínavatnshrepps, sem nær til Hveravalla.
Nú síðast í þessari viku samþykkti félagsfundur í FÍ
harðorða ályktun vegna deiliskipulags, sem hreppsnefnd
Svínavatnshrepps hefur látið gera vegna fyrirhugaðra
framkvæmda á Hveravöllum, en deiliskipulagið var aug-
lýst fyrir stuttu. Er m.a. gert ráð fyrir að nýrri skáli FÍ
verði fjarlægður af þeim stað sem hann er nú.
Svæðisskipulag vegna miðhálendisins er nú komið vel á
veg. Að því hefur verið unnið af nefnd sem í eiga sæti full-
trúar allra þeirra 12 héraðsnefnda er land eiga að hálendinu.
Leitað hefur verið eftir svörum frá ýmsum aðilum sem nýta
hálendið á einn eða annan hátt, s.s. ferðafélög, veiðifélög
o.fl., þannig að hægt sé að taka mið af sjónarmiðum sem
flestra. í samráði við fulltrúa heimamanna hefur verið dreg-
in lína sem skipulagssvæði miðhálendisins miðast við. Um
þessar mundir er verið að kynna sveitarfélögum fyrstu drög
að skipulagstillögu og stefnt er á að lokatillaga verði aug-
lýst á árinu 1997 og send til staðfestingar ráðherra. Þegar
síðan samþykkt svæðisskipulag fyrir miðhálendið liggur
fyrir er gert ráð fyrir að framkvæmd þess verði í höndum
viðkomandi sveitarfélaga þannig að hálendisskipulagið sé
rökrétt framhald af svæðis- og aðalskipulagi fyrir byggð, að
sögn Stefáns Thors, skipulagsstjóra ríkisins. Þá fyrst mun
reyna á hvemig sjálf framkvæmdin gengur en þá þarf að
liggja fyrir hver fer með stjómsýslu á svæðinu og þar með
einnig framkvæmd svæðisskipulagsins, að hans sögn.
Deilan um Hveravelli
Deilan um Hveravelli er e.t.v. dæmi um það sem getur átt
eftir að koma upp og undir það tekur Stefán. Ferðafélag ís-
lands hefur efast um eignarrétt Svínavatnshrepps á Hvera-
völlum en Stefán segir spuminguna um eignarrétt ekki
skipta öllu máli í sambandi við skipulagið. „Það liggur ekki
fyrir lögformleg ákvörðun um skiptingu miðhálendisins
milli sveitarfélaga og í aðalskipulagi Svínavatnshrepps frá
1993 eru ekki staðfest nákvæm mörk sveitarfélagins á há-
lendinu. Hins vegar er viðurkennd stjórnsýsla Svínavatns-
hrepps á þessu svæði og við gerum verulegan greinarmun á
eignarrétti eða hver fer með skipulags- og byggingamál.
Sveitarstjórn getur tekið ákvörðun um landnotkun o.fl. þó
svo að hún eigi ekki landið," sagði Stefán. Hann bendir á að
sveitarfélög em skipulagsskyld þannig að það er þeirra
skylda að marka stefnu um landnotkun innan marka síns
sveitarfélags.
Sem fyrr segir hefur Svínavatnshreppur nú einnig aug-
lýst deiliskipulag fyrir Hveravelli og einnig auglýst eftir at-
hugasemdum við skýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna
fyrirhugaðra framkvæmda við þjónustumiðstöð. Stefán seg-
ir að á það hafi réttilega verið bent að óeðlilegt sé að deili-
skipuleggja á Hveravöllum áður en svæðisskipulag miðhá-
lendisins liggi fyrir. Á sama hátt megi segja að óeðlilegt sé
að taka ákvörðun um lagningu háspennulíu yfir Ódáðahraun
áður en fyrir liggur svæðisskipulag. Hann sagðist þó ekki
telja að Svínavatnshreppur væri of fljótur á sér að auglýsa
deiliskipulag. „Það má frekar segja að svæðisskipulag mið-
hálendisins sé of seint á ferðinni. Það er ekkert óeðlilegt að
sveitarfélög vilji taka ákvarðanir um ýmsar framkvæmdir á
miðhálendinu en hins vegar hefur dregist allt of lengi að
marka stefnu fyrir svæðið í heild. Það má segja að stefnu-
markandi ákvarðanir eins og þessi, að byggja þetta mikla
þjónustumiðstöð, eru auðvitað fordæmisgefandi þannig að
æskilegast væri að almenn stefna fyrir allt miðhálendið lægi
fyrir. Þessi umræða nú gæti auðvitað orðið til þess að end-
anlegri ákvörðun um deiliskipulag Hveravalla yrði frestað,“
sagði Stefán. Hann reiknaði með að nefndin sem unnið hef-
ur að skipulagningu miðhálendisins myndi segja álit sitt á
þessu máli.
„Þessi umræða sem orðið hefur út af Hveravöllum er af
hinu góða því hún sýnir þá hagsmunaárekstra sem eiga ör-
ugglega eftir að koma upp víðar á miðhálendinu," sagði
Stefán Thors að lokum. HA