Dagur


Dagur - 27.01.1996, Qupperneq 9

Dagur - 27.01.1996, Qupperneq 9
Laugardagur 27. janúar 1996 - DAGUR - 9 Dásamlegt á Dalbæ „Ég hef ekki frá neinu að segja,“ segir Sigmundur Sigmundsson, einn vistmanna á Dalbæ, þegar falast er eftir viðtali. Blaðamaður gefst þó ekki upp enda sannfærður um að maður sem lifað hefur í áttatíu ár hljóti að hafa frá mörgu að segja og að lokum tekst að tala Sigmund til. Sigmundur fæddist í Þingeyjar- sýslu, nánar tiltekið í Miðvík f Grýtubakkahreppi, árið 1916. Sextán ára gamall fór hann að heiman og segist ekki hafa komið aftur á æskuslóðirnar síðan. „Ég flutti til Akureyrar og bjó þar í 40 ár,“ segir hann. Þann tíma sem Sigmundur bjó á Akureyri var hann á sjónum. „Ég var dálítið blautur á þessum árum, drakk Sigmundur Sigmundsson hefur búið á Dalbæ síðan í nóvember og w kann vel við sig. W mikið, en ég vann samt alltaf mitt starf.“ Til Dalvíkur flutti Sigmundur ásamt konu sinni árið 1965. Þau hjónin keyptu hús sem heitir Framnes og þar átti hann heima þar til hann fluttist á Dalbæ í nóv- ember síðastliðnum. Sigmundur er þó býsna sprækur og segist alltaf hafa verið heilsugóður en erfitt hafi verið fyrir hann að búa áfram í Framnesi, sérstaklega á vetuma þegar kuldinn var mikili. „Stór- hríðin í fyrra gerði útslagið. Ég komst ekki neitt," segir hann. Sigmundur segist lítið taka þátt í félagslífinu á Dalbæ. Hann er mikið úti, fer oft niður á bryggju, og er vel ferðafær. Hann þekkir þó nokkra karla á Dalbæ sem hann spjallar við af og til og hann unir sér hið besta í nýjum vistar- verum. „Það er alveg dásamlegt að vera á Dalbæ og hér líður mér prýðilega." AI Ó1 upp fjölda barna Heimsending 462 5950 Akureyrarmót í handbolta 5, flokkur drengja UMFERÐAR RÁÐ í Höllinni sunnudagkl. 13.00 Þór unglingaráð Sýslumaðurinn á Húsavík Utgarði 1, 640 Húsavík, sími 464 1300 Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Lindarholt 8, Raufarhöfn, þingl. eig. Páll G. Þormar og Angela Ragn- arsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður verkamanna, fimmtu- daginn 1. febrúar 1996 kl. 13.30. Pálmholt 1, Þórshöfn, þingl. eig. Snævar Árdal Hauksson, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður verka- manna, fimmtudaginn 1. febrúar 1996 kl. 14.30. Sýslumaðurinn á Húsavík, 25. janúar 1996. Berglind Svavarsdóttir, ftr. Þrefaldur 1. vinningur I UMFERÐINNI ERU ALLIR í SAMA LIÐI Engar húnvetnskar fréttir í Útvarp Kántrýbæ að sinni: Utsendingar nást aðallega í Húnaþingi á FM 96,7 & 100,7 Útsendingar Útvarps Kántrýbœjar á Skagaströnd teygja sig stöðug lengra um byggðir Húnaþings, en meðan aðeins var einn sendir á Skagaströnd heyrðust sendingar mjög takmarkað inn í dali, t.d. í Svartárdal og Vatnsdal, en með tilkomu sendis á Blönduósi næst útsending víðar. Sendingar hafa einnig náðst upp á Holtavörðuheiði, um Strandasýslu og inn í ísafjarðar- djúp. Kántrýútvarpið hefur fengið 100 þúsund króna styrk frá Blönduósbæ til starfseminnar auk þess sem skólaböm þaðan hafa komið til Skagastrandar og tekið þátt í útsendingum útvarpsins. Einnig hefur Kántrýútvarpið feng- ið 150 þúsund króna styrk frá Höfðahreppi (Skagaströnd). Hall- bjöm Hjartarson, kántrýkóngur og útvarpsstjóri, segir að vel komi til greina að vera með húnvetnskar fréttir í útvarpinu, en áður en til þess komi þurfí að treysta betur fjárhagsgmndvöllinn. Hallbjöm segir einnig að innheimta STÉF- gjalda sé mjög ósanngjöm, for- svarsmenn á þeim bæ telji að mun fleiri hlusti á þetta útvarp en nokkur möguleiki sé á að ná til. Hann væri mjög ánægður ef út- sendingin næðist jafn víða og þeir telji, en því miður sé staðreyndin allt önnur. GG Hallbjörn Hjartarson í útsendingar- herbergi Útvarps Kántrýbæjar á Skagaströnd. Á neöri hæð hússins er veitingarekstur og þar svífur kántrýandinn að sjálfsögðu w einnig yfir vötnum. Mynd: GG W Unnur Sigurðardóttir hefur búið á Dalbæ í tæp 13 ár en áður bjó hún á bænum Svæði, nálægt Dalvík. Hún kann ágætlega við sig á Dal- bæ og segir að sér líki vel að vera innan um fólk. Unnur fæddist 12. júlí 1908 og því komin vel á níræðisaldur. Hún hefur alltaf búið á Dalvík að und- anskildum nokkrum árum í æsku þegar hún bjó á Langanesi. Árið 1920 keyptu foreldrar hennar Svæði en þá var þar torfbær. Torf- bærinn eyðilagðist í jarðskjálftan- um árið 1934 og var þá byggt íbúðarhús á staðnum. Unnur bjó í Svæði alla sína búskapartíð. Hún giftist árið 1934, sama ár og jarð- skjálftinn reið yfir, og var það far- sælt hjónaband. „Hann var mikill indælismaður," segir Unnur um manninn sinn, Guðjón Sigurðsson, en hann lést fyrir nokkmm ámm. „Ég hef oft óskað þess að hjóna- band bamanna minna og skyld- fólks míns yrði jafn ánægjulegt og okkar hjónaband. Við vomm sam- an í 55 ár og varla að upp kæmi missætti á milli okkar.“ Unnur og Guðjón áttu saman fjögur böm en auk sinna eigin bama ólu þau upp tvö bamabörn og bróðurdóttur Guðjóns. Átta böm vom líka hjá þeim á sumrin. Það var því oft kátt í koti á Svæði og nóg að gera. Viðbrigðin þegar bömin vom farin að heiman voru því mikil. Guðjón var að vinna í fiskverkun á Dalvík og Unnur mikið ein heima. Hún var því ánægð þegar þau fengu pláss á Dalbæ þar sem hún gat verið inn- an um fleira fólk. Unnur segist taka töluverðan þátt í félagsstarfinu á Dalbæ. „Ég hef verið að mála á léreft og eins prjóna ég.“ AI Unnur Sigurðardóttir man svo sannarlega tímana tvenna. Hún bjó í torfbæ langt fram á þrítugsaldur og fyrsti bíllinn á Dalvík er henni injög minnis- stæður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.